Tíminn - 03.05.1996, Page 11
Föstudagur 3. maí 1996
11
Búvélakönnun RALA
Silomac rúllu-
pökkunarvélin
Gerb: Silomac 991 B. Framleibandi:
Kilmaine, Co. Mayo, írlandi. Innflytjandi:
Vélar og þjónusta hf., Reykjavík.
Yfirlit
Silomac 991B rúllupökkunar-
vélin var fyrst prófuð af
Bútæknideild Rannsóknastofn-
unar landbúnabarins sumarið
1993. Var hún þá notuð alls
um 25 klst. við pökkun á 390
böggum. Prófunartíminn var
venju fremur skammur vegna
þess hve seint vélin kom til
prófunar, en fylgst var með
notkun vélarinnar eftir að
formlegri prófun lauk. Vélin
var samt reynd bæði á fyrri og
seinni slætti, en ekki við græn-
fóðurbagga.
Sumarið 1995 var ákveðið að
gera ítarlegri prófanir, einkum
er snertu afköst við pökkun og
sér í lagi með 75 cm breiðri
filmurúllu. í eftirfarandi skýrslu
er fyrst og fremst gerð grein fyr-
ir athugunum varðandi pökk-
un, en að öðru leyti er vísað til
skýrslu Bútæknideildar nr. 640
um Silomac pökkunarvél.
Pökkunarvélin er ætluð til að
hjúpa rúllubagga af öllum al-
gengum stærðum inn í plast-
filmu. Hún er dragtengd, knúin
af vökvakerfi dráttarvélar og
vegur um 1775 kg. Vökvastýrð-
ur armur lyftir böggum upp á
pökkunarborö. Við pökkun er
bagganum snúið og velt um
leið. Má stjórna þéttleika vafn-
inga með því að breyta veltu-
hraðanum. Strekkibúnaðurinn
er bæði fyrir 50 og 75 cm breið-
ar plastfilmur. Þegar bagginn er
fullpakkaður, er pallinum snúið
í sturtustöðu og bagganum velt
aftur að fallpalli. Með pallinum
má láta baggann falla hægt
niður á jörðu. Er fallhraðinn
stillanlegur með stilliloka undir
vélinni að framanverðu.
Vélin er með vökvastýrðum
skurðarbúnaði fyrir plastfilm-
una. Afköst vélarinnar eru
breytileg eftir aðstæðum, vafn-
ingafjölda og baggastærð, en í
þeim mælingum, sem gerðar
voru, voru þau um 47 baggar á
klst. og brúttóafköst um 40
baggar á klst. Ætla má að 30
kW (41 hö.) sé lágmarksstærð
dráttarvéla fyrir pökkunarvél-
ina. Við fjórfalda pökkun er
filmunotkun um 0,9-1,0 kg á
bagga (þvermál 1,2 m), eða sem
svarar um 70 m af óstrekktri
filmu. Filmunotkun er háð
filmustrekkingu og baggastærð.
Vélin er á nægilega belgmiklum
hjólbörðum til að bera hana
við allar algengar aðstæður.
Fallpallurinn á vélinni ver
plasthjúpinn gegn skemmdum
þegar bagginn veltur af vélinni
og er það verulegur kostur.
Pökkunarborðið er vel opið
gagnvart heyslæðingi úr bögg-
unum, þannig að hann veldur
sjaldan töfum. í lok reynslu-
tímans, sem var fremur
skammur, var ekki unnt að
merkja óeðlilegt slit á vélinni
og engar bilanir komu fram.
Vélin er í alla staði að sjá
traustlega smíðuð og dagleg
hirðing einföld. ■
Lely sláttuvél
Gerb: Lely Optimo 240 C. Framleib-
andi: Lely industries NV, Flollandi.
Innflytjandi: Atlas hf., Reykjavík.
Yfirlit
Sláttuvélin Lely Optimo 240
C með knosara var reynd af
Bútæknideild Rannsóknar-
stofnunar landbúnaðarins
sumarið 1995. Hún var notuð
alls í um 62 klst.
Hún er tengd á þrítengi
dráttarvélar og gengur sláttu-
búnaðurinn út hægra megin
frá dráttarvél og er lyft upp í
flutningsstöðu lóðrétt hægra
megin aftan til við hana.
Þyngd sláttuvélarinnar er 710
kg. Sláttuvélin reyndist að
jafnaði slá hreint og jafnt.
Stubblengd í sláttufari var
að meðaltali 55 mm og frá-
viksstuðull 31% við ökuhraða
á bilinu 6,0-16,7 km/klst.
Hægt er að stilla sláttunánd
bæði með meiðum undir
skífubakka og með lengd yfir-
tengis. Sláttubúnaður vélar-
innar fylgdi vel ójöfnum
landsins þrátt fyrir mikla
vinnslubreidd. Vinnslubreidd
sláttuvélarinnar er 2,40 m.
Knosarinn er tengdur á burð-
argrind vélarinnar og má taka
hann af sláttuvélinni. Velja
má um 4 mismunandi knos-
unarstig og tvo snúnings-
hraða á knosara.
Ætla verður að minnsta
kosti 46 kW (63 hö.) dráttar-
vél fyrir sláttuvélina til að
fullnýta afkastagetu hennar.
Vélin er tiltölulega lipur í
stjórnun en þyngd hennar
getur í flutningi raskað
þungahlutföllum meðalstórra
og minni dráttarvéla. Hnífa-
slit á reynslutímanum var
innan eðlilegra marka.
Hlífðardúkar vélarinnar eru
vel úr garði gerðir. Frákast
knosarans er stillanlegt. Dag-
leg umhirða er fljótleg. í lok
reynslutímans var ekki unnt
að merkja óeðlilegt slit á vél-
inni og engar meiri háttar bil-
anir komu fram á reynslutím-
anum. Sláttuvélin virðist vera
traustbyggð og vönduð að
allri gerð.
Vélar og þjónusta:
Athyglis-
verðar
heyvinnu-
vélar frá
Krone
Nýlega var farið að bjóba upp
á nýja vél frá þýska fyrirtæk-
inu Krone, sem Vélar og þjón-
usta hefur umboð fyrir en
það er Krone 10-16 rúllu-
bindivél, en um er ab ræba
fastkjarnavél og er þar af leib-
andi meb breytilega stærb
baggahólfs. Ágúst Schram
segir þarna um athyglisverba
nýjung ab ræba, en hægt er
ab hafa þvermál bagganna
allt frá 1 metra og upp í 1,50
metra.
Hann segir þetta það allra
nýjast frá Krone, en þetta er
annað árið sem vélin er á mark-
aðnum og hefur hún að sögn
Ágústar fengiö mjög góða
dóma erlendis.
Af öðrum nýjungum má
nefna að Vélar og þjónusta eru
nú um þessar mundir að flytja
inn nýja rakstrarvél frá Krone,
sem hefur gríðarlega afkasta-
getu og getur vinnslubreidd
hennar verið allt frá 6,80 metr-
um upp í 13 metrar, sem er
mun meira en þekkst hefur hér
á landi hingað til. Auk þess ab
hafa mikla vinnslubreidd er
hægt að láta hana raka, hvort
sem er í einn eöa tvo garba í
einu. Vélin var prófuð hjá
bútæknideild Rala á síðasta
sumri og reyndist hún að sögn
Ágústs mjög vel.
Sömuleiðis er í boði hjá
Krone mjög afkastamikill tætari
þar sem vinnslubreiddin er allt
ab 8,5 metrar, auk þess sem
einnig eru í boði mjög afkasta-
miklar sláttuvélar frá fyrirtæk-
inu.
-PS
Sigurður Gunnarsson
Sigurður Gunnarsson var fæddur
10. október 1912 í Skógum, Öxar-
firði. Hann lést 23. apríl 1996 í
Landspítalanum. Foreldrar: Krist-
veig Bjömsdóttir og Gunnar Áma-
son. Þeirra böm: Rannveig, Bjöm,
Sigurveig, Amþrúður, Ámi, Sigurð-
ur, Jón Kristján, Þórhalla, Oli og
tvær uppeldisdætur, Sigríður Guð-
mundsdóttir og Kristveig Jónsdótt-
ir.
Eiginkona: Guðrún Karlsdóttir,
fædd 29. maí 1917 á Seyðisfirði.
Foreldrar: Vilhelmína Ingimundar-
dóttir og Karl Finnbogason. Þeirra
böm: Guðrún, Helga, Þóra, Ásgerð-
ur, Gyða og Karl.
Guðrún og Sigurður gengu í
hjónaband 24. júní 1941. Þeirra
synir: Karl, Gunnar og Vilhjálmur.
Mig setti hljóðan er mér barst
andlátsfregn vinar míns, Sigurð-
ar Gunnarssonar. Hann lést á
„Degi bókarinnar" hinn 23. apr-
íl sl. Það var sannarlega tákn-
rænt, allt líf og starf þessa heið-
ursmanns var tengt bókum og
ritstörfum. Fyrir aðeins þremur
dögum höfðum vib Siguröur,
ásamt konum okkar, átt ánægju-
lega stund saman í bobi hjá koll-
ega okkar. Eins og venjulega var
Sigurður hrókur alfc fagnaðar,
hann hafði meðferðis 60 ára
gamlar myndir frá fyrstu
t MINNING
kennsluárum sínum og sýndi
okkur. Þá las hann nýja blaða-
grein, sem hann hafbi lokið við
að skrifa og ætlaði að senda dag-
blöðunum eftir helgina. Þótt
Sigurður væri kominn á níræöis-
aldurinn, hélt hann andlegum
kröftum óskertum, en heilsan
var nokkuð tekin að bila, eink-
um fæturnir. Gekk hann við staf
og þurfti einnig á stuðningi ab
halda.
Kynni okkar Sigurðar em löng,
allt frá kennaraskólaárunum.
Lengst kenndi Sigurbur úti á
landi, var skólastjóri barnaskól-
ans á Húsavík í tuttugu ár, en
flutti til Reykjavíkur 1960, er
hann varð æfingakennari við
Kennaraskóla íslands. Þá gafst
tækifærið að endurnýja kunn-
ingsskapinn og vináttuna.
Áhugamál Sigurðar vom mörg
og margþætt. Hann var mikill
félagsmálamaður, vann ab rétt-
indamálum kennara, lagði
kirkjustarfi lið, söngmálum,
skógrækt og bindindismálum.
Hann flutti fjölda erinda og
skrifaði urmul greina um áhuga-
mál sín. Sigurður var sannur
hugsjónamabur og mannvinur.
Sameiginleg áhugamál okkar
Sigurðar voru ritstörfin. Hann
var afar mikilvirkur og fjölhæfur
rithöfundur og þýðandi. Hann
skrifabi meðal annars nokkrar
ágætar barna- og unglingabæk-
ur, einnig kennslubækur, ferða-
þætti og mikinn fjölda erinda og
greina. Þá má geta þess að Sig-
urður var hagyrðingur góður og
orti talsvert ljóð og stökur.
Sigurður brá á þab ráð að gefa
út úrval ritverka sinna, 5 stór
bindi um 300 blaðsíður hvert. í
formála Andrésar Kristjánssonar
segir m.a.: „Ég tel, ab ýmsir sem
eiga í fórum sínum sitthvað,
sem erindi getur átt við framtíð-
ina, ættu að fara að dæmi Sig-
uröar. Með nýrri tækni er bókin
besta geymslan og besta farar-
tækið inn í framtíðina. ... Bókin
er öbrum hirslum betri. Hún er
minnisbanki kynslóbanna."
Sigurður þýddi úr norsku,
dönsku og ensku. Afköst hans
hvað þýðingar snerti eru undur
og ævintýri, sem líklega slær
met. Hann kastaði ekki höndun-
um til þýbinga sinna, gott mál
sat í fyrirrúmi og allt var unnið
af stakri nákvæmni og sam-
viskusemi. Hann þýddi nær
hundrað barna- og unglinga-
bækur og allmörg leikrit fyrir út-
varp. Þá þýddi Sigurður mörg
stór skáldverk og las í útvarp;
má þar nefna „Saga um ástina
og dauðann" eftir Knut Hauge
og „Sonur himins og jarðar" eft-
ir Káre Holt. Sigurður var þekkt-
ur útvarpsmaður, hafði þægilega
og skýra rödd, hafbi góða fram-
sögn. Fyrir lesturinn á fram-
haldssögunum var Sigurði oft
þakkab, bæbi munnlega og bréf-
lega.
Sigurður átti mikið og gott
bókasafn. Flestar bækur sínar
batt hann sjálfur, og verkið var
svo vel unnið líkt og fagmaður
hefði verið að verki. Hið mikla
bókasafn gáfu þau hjónin Sig-
urður og kona hans Guðrún
Karlsdóttir, Bókasafni Suður-
Þingeyinga, Húsavík. Safninu,
hátt í fjögur þúsund bindi, var
komið fyrir í sérstöku herbergi,
sem ber nafnið Sigurbarstofa. Þá
gaf Sigurður grunnskóla Húsa-
víkur nær þúsund bækur ung-
linga- og barnabóka. Sigurður
gerði það ekki endasleppt og gaf
út nákvæma bókaskrá safnsins.
Afhending þessara miklu og
höfðinglegu gjafa fór fram á átt-
ræðisafmæli Sigurbar, hinn 10.
október 1992.
Sigurbur hafði mikla ánægju
af ferðalögum og var mikill úti-
vistarmaður. Sérstakt yndi hans
var að klífa fjöll. Marga fjalls-
tinda norðan og sunnan heiba
hefur hann sigrað og notið hins
dýrðlega útsýnis. Víða um lönd
hafa þau hjónin Sigurður og
Guðrún lagt leið sína, og notib
þess ab skoða listaverk framandi
þjóða og dást að fegurð og tign
okkar stórkostlegu og töfrum
slungnu jarðar.
í þessu greinarkorni minntist
ég á síðasta fund okkar Sigurðar.
Ég ók honum heim og studdi
hann skrefin að húsdyrunum.
Hann faðmabi mig ab sér í þakk-
lætisskyni, ég gleymi ekki hlýju
og kærleika þessa góða vinar. Nú
hefur hann lagt upp í ferðina
handan móðunnar miklu, þar
sem nýtt dýrðarríki blasir vib
augum.
Vib Abalheiður sendum Guð-
rúnu, sonum og öðru vensla-
fólki okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Sigurðar
Gunnarssonar.
Ámiann Kr. Einarsson