Tíminn - 03.05.1996, Side 16
I
IWIIItl
Föstudagur 3. maí 1996
Vebríb (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær)
• Suburland og Faxaflói: Breytileg átt eöa nor&vestan gola og skúr-
ir á stöku stab. Hiti 3 til 9 stig.
• Breibafjörbur og Vestfirbir: Fremur hæg breytileg átt og síban
norbaustan gola. Sma skúrir. Hiti 2 til 9 stig.
• Strandir og Norburland vestra: Norbaustan gola og smá skúrir.
Hiti 5 til 7 stig.
• Norburland eystra: Fremur hæg breytileg átt eba austan gola og
skýjab meb köflum. Hiti 1 til 8 stig.
• Austurland ab Glettingi og Austfirbir: Austan og subaustan gola
og skúrir eba smá él. Hiti 1 til 5 stig.
• Subausturland: Austlæg átt, víbast gola en stinningskaldi austast.
Skýjab meb köflum og smá skúrir, einkum vestantil. Hiti 4 til 7 stig.
Borgarráö Reykjavíkur mótmœlir stjórnarfrumvarpi um fjármagnstekjuskatt:
Borgin tapar 170
mill j ónum á ári
Fjárhagslegt tap Reykjavíkur-
borgar getur numið a.m.k.
170 milljónum króna árlega
verði stjórnarfrumvarp um
skattlagningu fjármagnstekna
samþykkt óbreytt. Borgarráð
leggur til aö afgreiðslu frum-
varpsins verði frestað.
Borgarhagfræðingur hefur
skilað borgarráði umsögn sinni
um stjórnarfrumvarpið auk
fmmvarps þriggja flokksfor-
manna um sama mál. Athugun
borgarhagfræðings sýnir að
veröi stjórnarfrumvarpið
óbreytt að lögum kunni fjár-
hagslegt tjón sveitarfélaganna í
landinu að nema a.m.k. 300
milljónum króna. Þar við bætist
óvissa vegna ófyrirsjáanlegra
áhrifa á útsvarsstofn. í frum-
varpi flokksformannanna er
hins vegar gert ráð fyrir aukn-
ingu útsvarstekna um samtals
200 milljónir í upphafi og síðar
um 340-425 milljónir króna á
ári.
Borgarhagfræðingur telur að
frumvarp flokksformannanna
geti orðið tiltölulega einfalt í
framkvæmd enda sé þar ein-
göngu fjallað um skattlagningu
vaxtatekna. Hann segir það
einnig ótvíræðan kost að vaxta-
tekjur yrðu samkvæmt því
skattlagöar innan núverandi
skattkerfis. Stjórnarfrumvarpið
er hinsvegar víðtækara og tekur
auk vaxtatekna til arðs, leigu og
söluhagnaðar.
Mesta tekjutap sveitarfélag-
anna er til komið vegna þess
ákvæðis frumvarpsins sem
kveður á um að sveitarfélög og
fyrirtæki og stofnanir sem þau
reka, skuli greiða tekjuskatt af
fjármagnstekjum þrátt fyrir að
þau séu að öðru leyti undanþeg-
in skattskyldu. Einnig veldur
frumvarpið skerðingu á útsvars-
stofni en erfiðara er að meta
hversu mikil sú skerðing verður.
í umsögn borgarhagfræðings
segir ennfremur að frumvarpið
sé svo óljóst í veigamiklum at-
riðum að erfitt sé með vissu að
meta fjárhagstjón sveitarfélag-
anna í heild. Þó þyki sýnt að tap
Reykjavíkurborgar, borgarsjóðs
og fyrirtækja borgarinnar nemi
a.m.k. 170 milljónum króna og
sé þá aðeins reiknað með 50
milljóna króna lækkun tekna
vegna skeröingar útsvarsstofns.
Þá þyki ýmislegt benda til þess
að útsvarstekjur muni rýrna
enn meira með tímanum vegna
þeirra áhrifa sem breytingarnar
kunna að geta haft á form
einkareksturs.
Borgarhagfræðingur telur því
ekki nóg að krefjast þess að
sveitarfélögin og fyrirtæki og
stofnanir þeirra verði undan-
þegin fjármagnstekjuskatti
heldur verði einnig að bæta
þeim þá lækkun tekna sem
kann að hljótast af skerðingu
útsvarsstofns. í bókun borgar-
ráðs frá fundi þess í vikunni eru
áréttuð mótmæli gegn frum-
varpinu. Borgarráð leggur til að
afgreiðslu frumvarpsins verði
frestað og segir hugmyndina
um tvískipt tekjuskattskerfi
skapa meiri vandamál en hún
leysir. Borgarráð telur öll rök
hníga að því að sveitarfélög og
fyrirtæki og stofnanir sem þau
reka eigi að vera undanþegin
skattlagningu fjármagnstekna
sem annarra tekna. -GBK
Davíb til
Gotlands
og Eistlands
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra er farinn til Visby á Got-
landi þar sem hann situr leið-
togafund Eystrasaltsráðsins í
dag og á morgun. Þá verður
jafnframt haldinn fundur for-
sætisráðherra íslands og Nor-
egs og utanríkisráðherra
Liechtenstein með forsætis-
ráðherra Ítalíu sem nú fer með
formennsku í Evrópusam-
bandinu, og forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB.
Er fundurinn haldinn í sam-
ræmi við yfirlýsingu um pólitísk
skoðanaskipti í EES- samningn-
um og ákvörðun EES-ráðsins frá
síðasta ári.
Frá Visby heldur Davíð ásamt
konu sinni, Ástríði Thoraren-
sen, til Tallin í Eistlandi í opin-
bera heimsókn 6. til 8. maí.
Mun hann eiga fundi við Meri
forseta, Váhi forsætisráðherra
og Toomas Savi forseta Riigi-
kogu, eistneska þingsins. -JBP
Heimili og skóli kvartar yfir mistökum viö sam-
raemdu prófin. Unnur Halldórsdóttir:
Veldur nem-
endunum kvíba
og hugarangri
I ljós hefur komið að nemend-
ur sem gengust undir sam-
ræmdu prófin í dönsku og ís-
lensku sátu ekki allir við sama
borð varðandi upplestur af
segulbandi. Þetta segir Unnur
Halldórsdóttir, formaður
Heimilis og skóla. Samtökin
hafa sent fyrirspurn vegna
framkvæmdar þessara prófa
til Rannsóknarstofnunar upp-
eldis- og menntamála.
„Samtökin líta það alvarleg-
um augum að nemendum í
skólum sé mismunað, hvort
sem það er á þessu sviði eða öðr-
um. Nemendur taka samræmdu
prófin alvarlega og hafa undir-
búið sig undir þau af bestu getu.
Mistök af þessu tagi hafa vænt-
anlega áhrif á frammistöðu
þeirra í öörum þáttum prófsins
og valda þeim óþarfa kvíða og
hugarangri," segir Unnur. Hún
segir að í tengslum við þetta mál
vakni spurningar um hvernig
veröi staðið að framkvæmd
þeirra samræmdu prófa sem
væntanlega verða tekin upp í 4.
og 7. bekk á næsta skólaári.
-JBP
Fyrsti maí í Reykjavík, launafólk flykktist í mibborgina og sótti útifundinn á Ingólfstorgi. Margir telja ab aldrei fyrr
hafi svo margir sótt 1. maí fundinn í höfubborginni. Tímamynd: cs
7. maí fagnaö af þúsundum höfuöborgarbúa:
Fjölmargt launafólk
vann eins og aöra daga
Ekki voru allir verkamenn í
fríi á frídegi verkalýðsins, 1.
Kosiö milli fimm nafna á nýtt sveitarfélag á Vestfjöröum:
ísafjarðarbær meðal valkosta
Samþykkt hefur verið að kosiö
skuli um fimm nöfn á sameinaö
sveitarfélag á norðanverðum Vest-
fjöröum um leiö og kosningar til
nýrrar sveitarstjórnar fara fram
11. mai nk.
Eftir að sex sveitarfélög á noröan-
verðum Vestfjörðum samþykktu að
sameinast í eitt í kosningum í des-
ember á síðasta ári var haldin sam-
keppni um nafn á nýja sveitarfélag-
ið. Mörg nöfn bárust í samkeppnina.
Nú hefur samstarfsnefnd valið fimm
þeirra og ákveðið að um þau verði
kosið um leið og kosningar til nýrrar
sveitarstjórnar fara fram. Sveitarfé-
lögin sem eru að sameinast em Isa-
fjarðarkaupstaður, Flateyri, Þingeyri,
Suðureyrarhreppur, Mýrarhreppur
og Mosvallahreppur. Eftir samein-
inguna mun nýja sveitarfélagið bera
eitt af eftirtöldum nöfnum: Arnar-
byggð, Eyrarbyggð, Fjarðabyggð, ísa-
fjarðarbyggð eða ísafjarðarbær.-GBk
maí. Ibúar í Seljahverfi tjáðu
blaðinu til dæmis aö þeir
hefðu vaknað fyrir allar aldir
þann dag við drunur í loft-
pressu og loftborum.
Við álverið mátti líta verka-
menn á fleygiferö að járnbinda í
nýja kerskálanum sem þar er að
rísa. Sjoppur, bakarí og margar
matvöruverslanir voru opnar
eins og venjulega daga. 1. maí
er lögbundinn frídagur, en Ari
Skúlason hjá ASÍ sagði í gær að
ýmis tilvik væru þess eðlis að
launafólk færi til vinnu þennan
dag. Það væri þó sjaldgæft.
Á sama tíma flykktist launa-
fólk á útifundi víða um landið. í
Reykjavík var metþátttaka, enda
veðrið með afbrigðum gott. Á
fundinum mátti finna þunga
undiröldu og stjórnvöld fengu
að heyra sitt af hverju frá ræðu-
mönnum, sem kröfðust þess að
lagafrumvarpi félagsmálaráð-
herra um verkalýðsfélögin yrði
kippt til hliðar. Páll Pétursson
segist hins vegar stefna að því
að fá frumvarpið gert að lögum
fyrir vorið. „Við erum ekkert
ósveigjanlegir í þessu máli, það
er ráðherrann hins vegar sjálf-
ur," sagbi Ari Skúlason.
-JBP