Tíminn - 08.05.1996, Page 2
2
Mi&vikudagur 8. maí 1996
Tíminn
spyr...
Eiga reykingamenn a& greiða
sérstaklega fyrir heilbrig&is-
þjónustu vegna reykingasjúk-
dóma eins og rætt var um á
rá&stefnu um sí&ustu helgi?
Halldóra Bjarnadóttir forma&ur
T óbaksvarnanefndar:
Ég held að skynsamlegast væri
að hækka verulega verð á tóbaki,
t.d. upp í 500 kr. pakkann. Með
því myndi reykingamaðurinn vera
búinn að borga fyrir þann aukna
heilbrigðiskostnað sem mögulega
fylgdi neyslu hans. Það er ekki
hægt að taka mann sem lendir í
slysi vegna hraðaksturs og veita
honum annars flokks læknisþjón-
ustu eöa láta hann greiða aukalega
fyrir. Mannúðin verður alltaf að
vera fyrir hendi. Hitt er annað mál
að það myndi letja unglinga mjög
til að byrja að reykja ef tóbak yrði
hækkað í veröi. Þannig yrðu for-
varnir efldar.
Sólveig Pétursdóttir alþingis-
ma&ur, á sæti í heilbrigðis-
nefnd:
Þetta hefur ekki verið rætt sér-
staklega í heilbrigðis- og trygg-
inganefnd þingsins. Sjálfsagt má
færa rök bæði með og á móti hug-
myndinni, en heldur þykir mér
hún langsótt. Þó má auðvitað
segja að einstaklingurinn beri
vissa ábyrgð á heilsufari sínu og
öll ættum við að vita að reykingar
eru heilsuspillandi.
Matthías Halldórsson
a&sto&arlandlæknir:
Það góða við okkar heilbrigðis-
kerfi er aö það leitast við að sinna
öllum sem eru veikir eða þjáðir á
jafnréttisgrundvelli. Þegar fólk er
orðið veikt er of seint að hegna
því fyrir ranga lifnaðarhætti, enda
mætti þá spyrja hvar ætti að draga
mörkin. Hvað með feitt fólk, alkó-
hólista osfrv. Nei, heilbrigðiskerf-
ið á að sinna öllu þessu fólki en
ekki refsa því fyrir að hafa ein-
hvern tímann átt góða daga. Eða
eigum við bara að sinna þeim sem
eru að deyja úr leiðindum?
Einni allra lélegustu skíöavertíö lokiö sem sögur fara af. Mikiö tap á
rekstri skíöasvœöa:
Tekjur skíðasvæöa
niður í 20% af áætlun
Úr Bláfjöllum.
Skí&astöðum landsins hefur nú
verið lokað og ber forrá&a-
mönnum skí&asvæ&a saman
um að sjaldan eða aldrei hafi
jafn illa árað fyrir skíðafólk og
sl. vetur. Á ísafirði þarf a& fara
aftur til ársins 1955 til að finna
jafn snjóléttan vetur og tekjur
námu sums staðar aðeins
fimmtungi af áætlun. Ennfrem-
ur óttast menn að snjóleysiö í
vetur ýti undir utanlandsferðir
skíðafólks næsta vetur og hafi
því keðjuverkandi áhrif.
Hlíöarfjall:
„Fór aldrei almenni-
íega af stab"
„Þetta er búið að vera óvenju
dapurt eins og gefur að skilja,
vegna snjóleysisins. Fór í raun-
inni aldrei almennilega af stað,"
sagði Ingvar ívarsson, sem starfað
hefur í Hlíðarfjalli, skíðaparadís
Akureyringa.
Ingvar sagði að samt hafi að-
stæður verið með skásta móti í
Hlíðarfjalli miðað við önnur
svæði, þeir hafi t.d. haldiö all-
mörg mót sem áttu að fara fram á
öðrum skíðasvæðum. Á Dalvík,
Ólafsfirði og Húsavík hafi menn
varla ræst skíðalyfturnar.
Hann hafði ekki tölur um
fjölda skíðagesta handbærar, en
bjóst við að aðsóknin hefði verið
um þriðjungur af áætluðum tekj-
um. Stærstu dagarnir um páskana
hefðu e.t.v. skilað um 100 manns,
en það væri ekkert miðað við það
sem vant væri. „Þegar best hefur
látið höfum við náð rekstrinum á
núllið, en það mun vanta mikið á
það núna. Við opnuðum á svip-
uðum tíma og vanalega, en það
var sífelldur barningur að halda
svæðinu opnu."
Sem fyrr segir var töluverður
fjöldi skíðamóta færður til Akur-
eyrar vegna snjóleysis annars
staðar. Vertíðinni lauk með Andr-
ésar andar-leikunum, sem lukk-
uðust vel að sögn Ingvars, en
fjöldi þátttakenda var þó aðeins
brot af því sem vant er. Aldurs-
hópinn 6-8 ára vantaði alveg
vegna snjóleysis á viðráðanleg-
ustu skíðasvæðum fjallsins.
Seljalandsdalur, ísafiröi:
Snjóléttasti vetur í
40 ár
Á ísafirði sagði Kristinn Lyng-
mó, umsjónarmaður skíðasvæðis-
ins í Seljalandsdal, að veturinn
sem leið hafi verið einn sá ömur-
legasti sem skíðaáhugamenn
minntust. „Það hefur líklega ekki
verið svona snjólétt síðan árið
1956. Þetta voru bara krakkar sem
voru á skíðum hjá okkur, almenn-
ingur var alltaf að bíða eftir
snjónum."
Kristinn sagði að tapi vegna
rekstrarins í ár hefði verið haldið í
lágmarki, m.a. vegna fárra fastra
starfsmanna við skíðasvæðið, en
tap yrði þó töluvert. „Þetta var
ekkert sem kom inn. Á venjuleg-
um vetri skilum við e.t.v. um 5
milljónum í tekjur, en í ár náði
það ekki milljón."
Oddsskarö á Austurlandi:
36 daga vertíö
„Þetta var mjög slappur vetur,
e.t.v. þriðjungur af venjulegri ver-
tið. Við opnuðum ekki fyrr en 15.
febrúar og höfðum aðeins opið í
36 daga. Starfsemin byggðist í
raun bara á æfingum skíðafólks í
topplyftunni," sagði Ómar Skarp-
héðinsson, umsjónarmaður úti-
vistarsvæðisins í Oddsskarði.
Hann sagði það með eindæm-
um að snjólína hefði nánast aldr-
ei farið niður fyrir 700 metra í vet-
ur. Um páskana hefðu vonir stað-
ið til að úr rættist, en óveður og
vond færð hefðu spillt því. Asa-
hláka í kjölfarið hefði svo valdið
því að skíðasvæðinu var lokað
mun fyrr en venja er til.
Ómar hefur starfað í 11 ár í
Oddsskarði og hann segir veðrið
seinnipart vetrar hafa verið al-
gjört einsdæmi. „Við vorum með
6-7 stiga hita allan sólarhringinn
rétt eftir páskana. Það er mjög
óeðlilegt ástand."
Ómar sagði að það bjargaði ein-
hverju ab opnunartími skíða-
svæðisins hefði verið styttri en
vanalega, en ljóst væri að útkom-
an yrbi ekki góð. í heildina hefðu
um 4000 manns komið á svæbið.
„Ég óttast það svolítið ab snjó-
leysið í vetur geti haft áhrif á að-
sóknina næsta vetur. Hættan er
ab fólk leiti annað, út fyrir land-
steinana, ef það getur ekki treyst
því að fá snjó hér innanlands,"
sagði Ómar að lokum.
Ekki náðist í forráðamenn
skíðasvæðisins í Bláfjöllum í gær,
en þar var vertíðin einnig afar
döpur, eins og komið hefur fram í
fréttum. -BÞ
Sagt var...
Ekki nefndar a& hafa sko&un á
RÚV
„Og stofnunin er ekki sjálfstæð nema
þjóbin og alþingi láti Ríkisútvarpib í
fribi. Hvab þá ab einhver nefnd leyfi
sér ab hafa skobun á RÚV. Þab er
skerbing á sjálfstæbi stofnunarinnar."
Ritar Dagfari gærdagsins í DV.
Áhugalaus þjó&
„Ef þjóbin hefbi nógu mikinn áhuga
á heilsu sinni, myndi hún ekki þola
embættis- og stjórnmálamönnum ab
skaba heilsu fólks á þennan hátt,
valda því hjartasjúkdómum og
krabbameini til ab halda uppi háu
verbi á grænmeti. En þjóbina skortir
áhuga á þessu."
Skrifar Jónas Kristjánsson í DV um ofur-
tollakerfi grænmetis.
Samræmdu prófin ónákvæm
„Skrifleg samræmd próf eru óná-
kvæm mælitæki til ab meta árangur
náms og niburstöbur þeirra veita
óljósar upplýsingar um þau fáu
markmib sem þau ná til."
Segir Meyvant Þórólfsson absto&ar-
skólastjóri í DV.
Einu sinni gerst lögfræbíngur
„Ég hef einu sinni neybst til ab gerast
lögfræbingur til ab verja mig, til ab
tryggja mér málfrelsi og ég held ab
flestir hafi talib mig hafa sigur í því
máli..."
Thor Vilhjálmsson í Alþýbublabinu.
Brábabirg&alög eru tíma-
skekkja
„Núverandi heimild til útgáfu brába-
birgbalaga í 28. gr. stjórnarskrárinn-
ar, eins og þessi heimild hefur verib
túlkub af ríkisstjórnum, Alþingi og
Hæstarétti, er tímaskekkja og brýtur í
bága vib meginregluna í 2. grein
stjórnarskrárinnar um þrígreiningu
ríkisvaldsins."
Þórbur S. Gunnarsson í Mogganum.
Hættulegur þröskuldur
„Þab langhættulegasta í samkomu-
laginu er ab 1 7% verbi þröskuldur
eba þak sem okkur mun á komandi
árum reynast erfitt ab yfirstíga."
Steingrímur J. Sigfússon í Mogganum
um síldarsamninginn.
Eftir a& Ijóst varð í pottinum að
Hervar Gunnarsson, verkalý&s-
foringi af Skaganum, ákvað að
gefa kost á sér til forystu í ASÍ
þykir Ijóst að allt sé nú galopið í
forsetaslagnum. Spekúlantarnir
telja einsýnt að nú geti þab orðið
þrautin þyngri fyrir Benedikt að
halda áfram sem forseti, jafnvel
þó hann vilji þab. Hann var jú
búinn að segjast ætla að hætta
núna og það væri hálf snautlegt
að hætta við að hætta, loksins
þegar frambjóðendur eru komnir
fram. Hins vegar þykir sýnt að
verslunarmenn og iðna&armenn
munu leggja að Benedikt að
halda áfram. Fleiri nöfn eru nú
komin í umræðuna og það nýj-
asta er nafn Gu&mundar Gunn-
arssonar Rafibnaðarsambands-
manns, sem þó hefur þá fötlun
a& bera að vera sjálfstæbismab-
ur...
•
Það hefur vakib athygli í verka-
lýðsgeiranum að á 1. maí voru
engir forsetaframbjóðendur í
kröfugöngu. Þótti mönnum það
skjóta skökku við, því yfirleitt létu
frambjó&endurnir ekki nein
meiriháttar mannamót framhjá
sér fara. Þó vann Gu&rún Agn-
arsdóttir sér inn prik, því hún
mætti á baráttufundinn á Húsa-
vík.