Tíminn - 08.05.1996, Síða 10

Tíminn - 08.05.1996, Síða 10
10 Miövikudagur 8. maí 1996 Sýning glæsi- legra hrossa Hestadagar norðan- og sunnan- manna fóru fram í Reiðhöllinni í Víbidal á föstudag, laugardag og sunnudag. Samvinna þcssara aöila í sýningunni skilaöi sér vel og tókst sýningin meb ágætum. Hún batnabi meb hverjum deginum sem leib. J>ab var því ekki ofmælt, sem sagt var frá í síbustu HESTA- MÓTUM, ab í vændum væri glajsi- leg sýning. Sýningin hófst meb glæsilegu opnunaratribi Hólanema og var þab fánareib nemenda af mörgum þjóð- ernum sem ribu meb sinn fána. Hólamenn komu síðar fram meb at- ribi, sem sýndi vinnu þeirra nem- enda sem nú eru þar í námi, auk þess sem Framhaldsdeildin sýndi fimiæf- ingar. Hestarnir, sem komu fram bæbi í flokki alhliðahesta og klár- hesta, voru góbir, en mest fannst mér þó koma til einvígis þeirra Þyts frá Krossum, sem Höskuldur Jóns- son sat, og Farsæls frá Arnarhóli, sem Gylfi Gunnarsson sat. Þarna voru afburbagæðingar á ferð meb hreint ótrúlegt rými og eru auk þess glæsiskepnur. Farsæl komum við til meb ab sjá á Fjórðungsmótinu í sumar og hlýtur hann að teljast þar sigurstranglegur. Sýndir voru tveir hópar alhliða hryssna og tveir hópar klárhryssna. Ekki fór á milli mála að þessir hópar bera ræktuninni gott vitni. Fram kom sým'shorn af þróun reiðmennskunnar gegnum árin og var þaö skemmtileg túlkun á þeirri miklu breytingu sem þar hefur átt sér stað. Unglingar frá Suburlandi voru með skemmtilega sýningu, sem sýndi vel færni þeirra. Margir frábærir vekringar flugu um sali og stóð Skeiðmannafélagið fyrir þeirri uppákomu. Þá skemmtu Siguroddur og Eldur og er það orðið klassískt skemmtiatriði. TÍMABIKARINN afhentur Eftir hlé á laugardagssýningunni var TÍMABIKARINN afhentur, en að þessu sinni kom hann í hlut þeirra hjóna, Hildar Claessen og Skafta Steinbjörnssonar á Hafsteinsstöðum í Skagafirði. Bikarinn er veittur fyrir hæstdæmda kynbótahross hvers árs. Þau áttu stóðhestinn Fána, sem var með hæstu kynbótaeinkunn árib 1995. Nánar verður sagt frá þeirra ræktun síbar. Sigurbjörn Bárðarson og Hæring- ur léku listir sínar við mikinn fögn- uð, en Sigurbjörn sýndi líka ásamt einum starfsmanna sinna kerruakst- ur. Þá kom fram atriði sem vakti mikla athygli, en það var sýning á afkvæmum Flosa frá Brunnum, sem lést fyrir aldur fram 1989. Þetta voru glæsileg ganghross, en fríðleikanum er ekki fyrir að fara. Þau eru bullandi viljug og hágeng, en aubséb var ab svo afmarkað rými sem Reiðhöllin gefur hentaði þeim ekki öllum, vilj- inn og orkan er svo mikil. Stó&hestarnir frábærir Eitt sterkasta atribi sýningarinnar voru stóðhestarnir. Það var hrein veisla. Þar komu fram bæði klárhest- ar og alhliðagæðingar og fóru mik- inn. Þetta var virkilega skemmtileg Tíminn fæst í Hestamanninum Framvegis verður miðvikudags- blað Tímans til sölu í Hesta- manninum, Ármúla 38. ■ kynning og voru starfsmenn Stóð- hestastöðvarinnar duglegir að mæta með sína hesta til leiks. Þá var heiðursverðlaunahesturinn Hrafn frá Holtsmúla heibraður, 28 vetra gamall, og hlaut hann lárviðar- krans. Honum fylgdu 5 ættlibir 1. verðlauna stóðhesta og var það glæsilegur hópur. Slíkt hefur aldrei gerst fyrr. Hópurinn sannaði vissu- lega kynbótagildi föðurins. Reiðhall- argestir risu úr sætum til ab heibra þennan aldna höfðingja. Sýningunni lauk svo með stóð- hestaeinvígi þar sem þeir voru sam- an Svartur frá Unalæk, Galsi frá Sauðárkróki, Oddur frá Selfossi og Kópur frá Mykjunesi. Þetta voru lok- in á veislunni. Sunnlendingar og Norblendingar eiga þakkir skildar fyrir góba sýn- ingu og þá ekki síst sýningarstjórinn Sigurbur Marínusson. Þulir voru Sig- urbur Sæmundsson og Sveinbjörn Hjónin á Hafsteinsstööum í Skagafiröi, Hildur og Skafti, hlutu TÍMABIKARINN. Eyjólfsson og skiluðu sínu hlutverki vel. Þessa helgi hafa komib milli 5 og 6 þúsundir manna í Reiðhöllina og á Stóðhestastöðina. Fullyrba má að enginn atburbur á íslandi dregur til sín fleira fólk en sýningar á íslenska gæðingnum. Spyrja má hvort ekki verði að gera þá kröfu til sjónvarps- stöðvanna að þær geri íslenska hest- inum og hestamennskunni betri skil en verið hefur. Um 30 þúsund manns stunda hestamennsku og áhugi fyrir slíku sjónvarpsefni er mikill. ■ Gó& sýning sem fór vel fram Arleg sýning á Stóbhestastöbinni fór fram á laugardaginn eins og ætlab var. Ab venju sóttu margir stöbina heim og skiptu þeir þús- undum. Því hefur ekki verib of- mælt þab, sem sagt hefur verib um auglýsingagildi stöbvarinnar, ekki síst fyrir stóbhestana sem koma utan af landi. Dagskráin hófst meb hópreið fé- laga úr Hestamannafélaginu Geysi. Hrafnkell Karlsson, formabur stjórnar Stöðvarinnar, flutti ávarps- orb og þakkir til starfsmanna. Þá flutti Guðmundur Bjarnason land- búnaðarrábherra ávarp og lét hann í ljós vonir um ab finna mætti rekstr- arabila að stöðinni til frambúðar. Galsi yfir 9 fyrir hæfileika Hæsta dóm fyrir hæfileika hlaut Galsi frá Sauðárkróki 9,01 og er hann þribji stóbhesturinn sem fer yfir 9 í meðaltalseinkunn fyrir hæfi- leika. Galsi er gríðarlega góður hest- ur og er það brokkið og skeibib sem eru hans sterkustu hlibar. Töltið er síbra og má segja að þar sé kannski fullgefið. Galsi fékk fyrir byggingu 7.87 og eru það sem fyrr fætur sem standa lágt. Abaleinkunn hans var 8,44 og verður spennandi að sjá hvort einhver hestur brýtur þann múr í sumar. Galsi er móálóttur, undan Ófeigi frá Flugumýri og Gnótt frá Saubárkróki og fæddur hjá Sveini Guðmundssyni. Annar í 6 v. hópnum var Hjörvar frá Ketilsstööum, sem fékk líka prýðilega einkunn fyrir hæfileika 8,81, þar af 10 fyrir skeib sem hann á vissulega. Hann fær 8,5 fyrir tölt, þ.e. sömu einkunn og Galsi, en þar finnst mér eigi að vera munur á, því tölt Hjörvars er betra. Hjörvar er eins og fleiri frændur hans með slaka byggingareinkunn, 7,80. Hjörvar hlaut í abaleinkunn 8,30. Hjörvar er svartur, undan Otri frá Sauðárkróki og gæbingshryssunni Hugmynd frá Ketilsstöbum. Þriðji hesturinn í þessum flokki var Asi, rauðnösóttur, Feykissonur frá Kálfholti, sem er nú með 8,23 í abaleinkunn. Galdur, svartur frá Laugarvatni er afar jafn bæbi í bygg- ingu og fyrir hæfileika, meb aðal- einkunn 8,22. Hann er undan Stíg- anda frá Sauðárkróki og Glímu frá Laugarvatni. Þrír næstu hestar fengu 8,20. Ask- ur frá Keldudal, brúntvístjörnóttur, er feikna ganghestur meb 8,57 fyrir hæfileika, en slakari í byggingu meb 7,83. Askur fær í abaleinkunn 8,20. HEJTA- MOT KARI ARNORS- SON Askur er undan heiðursverðlauna- foreldrum, þeim Þætti frá Kirkjubæ og Nös frá Stokkhólma. Hrynjandi, rauðblesóttur frá Hrepphólum, undan Stíganda frá Sauðárkróki og Von frá Hrepphól- um, fékk líka 8,20 í aöaleinkunn. Hann er skeiðlaus, en fékk samt 8,17 fyrir hæfileika, sem er mjög gott. Fyrir byggingu fékk hann 8,23. Hrossaræktarsamband Suburlands á Hrynjanda. Þorri, svartur —— —' ■ frá Þúfu, náði tæplega því sem vænst var, og var nú lækkaður mikið í bygg- ingu, úr 8,40 í 8,25. Hann hlaut í abaleinkunn 8,20. Þinur frá Laugarvatni, dökkjarpur jafngóbur hestur, fékk 8,04 í aðaleinkunn. Alls komu 21 hestur í þessum ald- ursflokki í dóm og má segja að mik- ill meirihluti þeirra, sem ekki hafa verib nefndir hér, eigi lítið erindi sem kynbótahestar. Stö&varhestar efstir í 5 v. flokki í flokki 5 v. hesta komu stöbvar- hestarnir best út, eins og oft áður. Þrír efstu voru af stöðinni. Þar var efstur Kormákur, jarpur frá Flugu- mýri II, undan Kveik frá Miðsitju og Kolskör frá Gunnarsholti. Báðir for- eldrarnir eru miklir gæðingar og sýnir þessi hestur hvers má vænta, þegar vel er valið saman. Kormákur hlaut fyrir byggingu 8,19 og fyrir hæfileika 8,30, abaleinkunn 8,24. Þetta er mjög góður dómur á 5 v. fola og þab mælir sérstaklega með honum hve jafn hann er í einkunn- um. Annar í röð var Valberg frá Arnar- stöbum í Flóa. Hann er undan Gassa frá Vorsabæ II og Kolfinnu frá Arn- arstöðum. Valberg fékk eins og Kor- mákur jafnar einkunnir: bygging 8,21 og hæfileikar 8,12, abalein- kunn 8,16. Valberg var tekinn sem ............... dæmi um mik- inn fríðleika, en hann fékk 9 fyrir höfuð og 9 fyrir bak og lend. Þribji hestur- inn var Glaður frá Hólabaki í Sveinsstaða- hreppi. Hann er undan Garbi frá Litla-Garði og Lýsu frá Hólabaki. Þetta er vel gerður hestur með 8,18 fyrir byggingu og 8,06 fyrir hæfi- leika, aðaleinkunn 8,12. Væntan- lega kemur hann til með að bæta hrossastofninn í Húnavatnssýslu. Næstur var Jarl frá Búðardal, son- ur Kolfinns frá Kjarnholtum og Rispu frá Búðardal. Hann hlaut fyrir byggingu 7,74, en fyrir hæfileika 8.44; aðaleinkunn 8,09. Jarl er feikna ganghestur meb mikinn fóta- burð, en bygging hans er heldur slök. Margir fleiri spennandi hestar voru í þessum flokki. Má þar nefna Hrók frá Glúmsstöbum, Ögra frá Sauöárkróki, Sprota frá Hæli, Galsa frá Ytri-Skógum og Eld frá Súluholti. Galsi fannst mér einna besti tölt- arinn sem fram kom í Gunnarsholti - -» -v, . : \ ' - .* ' - #'7» ^1/v. - ______ Roöi frá Múla, mjög efnilegur unghestur. Knapi Daníel jónsson. að þessu sinni. Hann hækkaði mik- ib í byggingu, úr 7,63 í 8,09. Þetta sýnir að ekki má dæma 4ra v. fola úr leik, þó þeir dæmist ekki vel í bygg- ingu, því þeir eiga margir eftir ab þroskast mikib. í HESTAMÓTUM í fyrra var fundið að byggingardómi á Galsa. Nítján hestar í þessum flokki voru fulldæmdir og er þar margt eigulegra hesta, þó þeirra sé ekki getið hér. Húnvetnskir hestar efstir í 4ra v. flokknum í 4ra v. hópnum stóðu efstir tveir Orrasynir. Roði frá Múla í V.-Hún. var efstur. Móðir hans er Litla- Þruma undan Gusti 923. Roöi er skeiblaus, en náði þó 7,98 í aðalein- kunn, sem er frábært hjá svo ungum hesti. Þetta er bráðfallegur hestur með 8,10 fyrir byggingu. Hinn Orrasonurinn er líka mjög efnilegur foli, Skorri frá Blönduósi. Hann hlaut í aðaleinkunn 7,85, þar af 7,94 fyrir byggingu. Móðir Skorra er af miklu tölthestakyni frá Eiríks- stöðum í Svartárdal. Bábir þessir fol- ar eiga mikla framtíb fyrir sér og sýna Húnvetningum líka hvers þeir geta vænst, ef mæðurnar eru góðar. Þriðji hesturinn var Piltssonurinn Heljar frá Gullberastöðum. Móðirin er Helena frá Skarði II í Borgarfirði. Þetta er bráðvelgerður foli með 8,10 fyrir byggingu. í aðaleinkunn hlaut hann 7,82. Ellefu folar 4ra v. fengu fullnaðardóm og átta til viðbótar voru byggingardæmdir. Þar stób efstur Gljái Viðarsson frá Hrafnkels- stöðum í Hrunamannahreppi með 8,05. Stofnlánadeild landbúnaðarins veitti verðlaun sem endranær. Þorkell hei&ra&ur Þá voru sýndir stóbhestar Hrossa- ræktarsambands Suðurlands og var það glæsileg sýning. Það er aubséð aö sambandið býr nú yfir miklum hestakosti og sú ákvörðun að hafa hestana í þjálfun á Stóðhestastöð- inni og kynna þá vib þetta tækifæri var hárrétt. í lok sýningarinnar var Þorkell Bjarnason heiðraður. Flutti Sigur- geir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri BÍ, honum þakkir fyrir hönd Bændasamtaka íslands fyrir vel unnin störf og færði honum vegleg- an minjagrip. Framhald á Stóðhestum FM '96 og Vítahring hrossaræktar verður í næstu HESTAMÓTUM. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.