Tíminn - 10.05.1996, Side 1
80. árgangur
Þjóöin safnar fé til aö
bjarga börnunum heim.
Söfnun á öllum útvarps-
stöövum í dag:
113 krónur
á mann
Allar útvarpsstöbvar landsins
munu helga daginn í dag söfn-
un til aö styöja baráttu Sophiu
Hansen, sem hefur í meira en
fimm ár unniö aö því aö fá aft-
ur heim dætur sínar tvær, Dag-
björtu og Rúnu, sem eru á 14. og
15. ári í dag. Telpunum var nán-
ast rænt frá móöur sinni sem
hefur lagalegt forræöi yfir
þeim.
Það var 15. júní 1990 sem litlu
telpurnar fóm frá heimili sínu og
móðurinnar í Reykjavík. Þær áttu
að dvelja hjá föður sínum í tvo
mánuði. Síöan hafa þær ekki átt
afturkvæmt. Faðir þeirra, Halim
Al, leyfði þeim ekki aö snúa til
baka. Flestum er kunnugt fram-
haldiö.
Nú eru framundan skelfileg
réttarhöld í Tyrklandi. Þann 13.
júní veröa stúlkurnar tvær leiddar
fyrir dóminn og þær spurðar
hvom foreldrinu þær vilji fylgja.
Talið er fullvíst að þær þori ekki
annaö en að fylgja föðurnum.
Barátta Sophiu Hansen hefur
kostað mikið fé og skuldir hlaðist
upp. Þær munu nema um 30
milljónum króna — en þaö þýðir
um 113 krónur ef upphæðinni er
dreift á hvert mannsbarn á ís-
landi. -JBP
Flókin og framandi verkefni
kalia á fjölþœtt nám fyrir for-
ystumenn verkalýösfélaga. Sótt
um meira fjármagn til ríkisins:
Foringjar á
skólabekk
Þau verkefni sem forystumenn
verkalýðsfélaga þurfa að takast á
vib em oft á tíðum bæbi framandi
og flókin og því þarf ab afla þeirri
skoðun fylgis meðal forystu-
manna að þeir leggi stund á fjöl-
þætt og hagnýtt nám. Öflugt
fræðslustarf á vegum verkalýðs-
hreyfingar á einnig ab stuðla að
því að forystumenn eigi aubveld-
ara en ella með ab hverfa til starfa
á almennum vinnumarkabi þrátt
fyrir breytta atvinnuhætti og ald-
urs eftir starfstíma þeirra hjá
verkalýðshreyfingunni.
Þetta kemur m.a. fram í drögum
að tillögum miðstjórnar ASÍ um
innra fræðslustarf verkalýðshreyf-
ingar sem lagt veröur fyrir 38. þing
ASÍ sem haldið verður í Kópavogi
20.-24. maí nk. Þar er m.a. lagt til að
stórauka almenna félagsmála-
fræðslu fyrir forystufólk innan
hreyfingarinnar, efla faglega
fræðslu fyrir trúnaðarmenn svo þeir
eigi auðveldara með að takast á
hendur forystu í samningagerð í
einstökum fyrirtækjum og stað-
bundnum atvinnugreinum. Til að
þetta geti orðið er lagt til, á grund-
velli laga um Fræðsluskóla alþýðu,
að þingið samþykki að ASÍ sæki um
aukið fjármagn frá ríkinu við gerð
næstu fjárlaga. ■
STOFNAÐUR 1917
Föstudagur 10. maí
4-1 * * * ar
W&VFÍffl 1 farþega og hjólastólabí
5 88 55 22
88. tölublað 1996
Sjavarnytjar- félag áhugamanna um skynsamlega nýtingu náttúruauölinda, afhenti ígœr Ólafi C. Einarsssyni forseta Alþingis
og Þorsteini Pálssyni s/ávarútvegsráöherra áskorun um ab þingib leyfi hvalveibar strax í sumar. Áskorunin var afhent í tilefni afþvíab umrœbur fóru
fram um hvalveibar utan dagskrár íþinginu og ergreint frá þeim umrœbum á blabsíbu 3. Tímamynd bc
Bensínlítrinn hœkkar um 1,90 kr. Fjóröa veröhœkkunin á árinu. Ríkiö
dregur úr skattheimtu á bensíni, tímabundiö:
Bensíngjald lækkar
en lítraveró hækkar
Olíufélagið Esso hækkar verb
á 95 okt. og 98 okt. bensíni
um 1,90 krónur í dag. Eftir
verðbreytingu kostar lítrinn
af 95. okt. bensíni 75,30 kr. og
lítrinn af 98 okt. bensíni 80
krónur. Vibbúiö er ab svipðar
veröbreytingar eigi sér stað
hjá öbrum olíufélögum í dag.
Þetta er í fjórða skipti á árinu
sem verð á bensínlítra hækkar
vegna hækkunar á heimsmark-
aðsverði, en í sl. mánuði hækk-
aði verð á bensínlítra tvisvar
með skömmu millibili. Á sama
tíma og þessar hækkanir eiga sér
stað hefur fjármálaráðuneytið
ákveðið að lækka bensíngjaldið
tímabundið, eða sem nemur
um 82 aurum á hverp lítra af
blýlausu bensíni að meðtöldum
virðisaukaskatti. Þetta gerir ráð-
neytið til að draga úr áhrifum
erlendra verðhækkana á bensín-
verði.
íjarni Bjarnason, fulltrúi for-
stjora hjá olíufélaginu Esso, seg-
ir að ef fjármálaráðuneytið
hefði ekki orðið við framkomn-
um óskum um að lækka bensín-
gjaldið \hefði verðhækkun til
bifreiðaeigenda orðið meiri fyrir
vikið. Hann segir mikla eftir-
spurn og spennu á Bandaríkja-
markaði vera eina af ástæðun-
um fyrir hækkandi heimsmark-
aðsverði. Hann bendir einnig á
að olíufélagið hafi lækkað
álagnirigu sína til ab draga úr
áhrifum verðhækkunarinnar,
en vill ekki upplýsa hvað það
var mikið.
í tilkynningu fjármálaráðu-
neytisins kemur m.a. fram að
lækkun bensíngjaldsins jafn-
gildir þeirri breytingu sem varð
á gjaldinu í febrúar sl. Ákvörðun
ráðuneytisins hefur þab í för
með sér að gjald af blýlausu
bensíni lækkar úr 25,51 kr. í
24,85 kr. Ráðuneytið tekur jafn-
framt fram að ofangreind lækk-
un á bensíngjaldi, sem rennur
til vegaframkvæmda, mun ekki
hafa í för með sér breytingu á
fyrirhuguðum framkvæmdum á
árinu. -grh
• •
Ofug-
þróun
Helgi Gubbergsson, formaður
læknaráðs Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur, kallar
það öfugþróun að leggja nið-
ur berklavarnadeild stöðvar-
innar nú þegar berklar séu í
sókn. Hann segir dæmin
sanna að berklavörnum verði
ekki sinnt á fullnægjandi hátt
innan heilsugæslustöðva ein-
göngu. Helgi gagnrýnir einn-
ig margt annað í tillögum
stjórnar Heilsuverndarstöðv-
arinnar sem hann segir hráar
og illa unnar. ■
Sjá nánar bls. 2
Verkfallsboöun verkalýösfélaga:
Einn af hverjum
tíu meb trúnaðarráði
Einugis einn af hverjum tíu vill
að trúnaðaráb verkalýðsfélaga
ákveði hvort viðkomandi stéttar-
félag bobi til vinnustöðvunar eb-
ur ei. Um 90% landsmanna vilja
að verkfallsbobun sé borin undir
atkvæbi allra félagsmanna.
Þetta er m.a. niðurstaða úr skoð-
anakönnun sem Gallup gerði ný-
verið fyrir Viðskiptablaðið og greint
er frá í fréttabréfi. VSÍ. Þar kemur
m.a. fram að þessi niðurstaða sé í
samræmi við þær hugmyndir sem
fram koma í frumvarpi félagsmála-
ráðherra um breytingar á lögum um
stéttarfélög og vinnudeilur. Niður-
staðan bendir einnig til þess að hin
harða andstaða sem fram hefur
komið við áðurnefnt frumvarp sé
aðeins bundin við forystu verka-
lýðshreyfingarinnar.Könnunin var
gerð í sl. mánuði og náði til 1400
einstaklinga sem valdir voru af
handahófi úr þjóðskrá á aldrinum
18-75 ára af öllu landinu og var
nettósvömn um 70,6%.
-grh