Tíminn - 10.05.1996, Síða 1

Tíminn - 10.05.1996, Síða 1
80. árgangur Þjóöin safnar fé til aö bjarga börnunum heim. Söfnun á öllum útvarps- stöövum í dag: 113 krónur á mann Allar útvarpsstöbvar landsins munu helga daginn í dag söfn- un til aö styöja baráttu Sophiu Hansen, sem hefur í meira en fimm ár unniö aö því aö fá aft- ur heim dætur sínar tvær, Dag- björtu og Rúnu, sem eru á 14. og 15. ári í dag. Telpunum var nán- ast rænt frá móöur sinni sem hefur lagalegt forræöi yfir þeim. Það var 15. júní 1990 sem litlu telpurnar fóm frá heimili sínu og móðurinnar í Reykjavík. Þær áttu að dvelja hjá föður sínum í tvo mánuði. Síöan hafa þær ekki átt afturkvæmt. Faðir þeirra, Halim Al, leyfði þeim ekki aö snúa til baka. Flestum er kunnugt fram- haldiö. Nú eru framundan skelfileg réttarhöld í Tyrklandi. Þann 13. júní veröa stúlkurnar tvær leiddar fyrir dóminn og þær spurðar hvom foreldrinu þær vilji fylgja. Talið er fullvíst að þær þori ekki annaö en að fylgja föðurnum. Barátta Sophiu Hansen hefur kostað mikið fé og skuldir hlaðist upp. Þær munu nema um 30 milljónum króna — en þaö þýðir um 113 krónur ef upphæðinni er dreift á hvert mannsbarn á ís- landi. -JBP Flókin og framandi verkefni kalia á fjölþœtt nám fyrir for- ystumenn verkalýösfélaga. Sótt um meira fjármagn til ríkisins: Foringjar á skólabekk Þau verkefni sem forystumenn verkalýðsfélaga þurfa að takast á vib em oft á tíðum bæbi framandi og flókin og því þarf ab afla þeirri skoðun fylgis meðal forystu- manna að þeir leggi stund á fjöl- þætt og hagnýtt nám. Öflugt fræðslustarf á vegum verkalýðs- hreyfingar á einnig ab stuðla að því að forystumenn eigi aubveld- ara en ella með ab hverfa til starfa á almennum vinnumarkabi þrátt fyrir breytta atvinnuhætti og ald- urs eftir starfstíma þeirra hjá verkalýðshreyfingunni. Þetta kemur m.a. fram í drögum að tillögum miðstjórnar ASÍ um innra fræðslustarf verkalýðshreyf- ingar sem lagt veröur fyrir 38. þing ASÍ sem haldið verður í Kópavogi 20.-24. maí nk. Þar er m.a. lagt til að stórauka almenna félagsmála- fræðslu fyrir forystufólk innan hreyfingarinnar, efla faglega fræðslu fyrir trúnaðarmenn svo þeir eigi auðveldara með að takast á hendur forystu í samningagerð í einstökum fyrirtækjum og stað- bundnum atvinnugreinum. Til að þetta geti orðið er lagt til, á grund- velli laga um Fræðsluskóla alþýðu, að þingið samþykki að ASÍ sæki um aukið fjármagn frá ríkinu við gerð næstu fjárlaga. ■ STOFNAÐUR 1917 Föstudagur 10. maí 4-1 * * * ar W&VFÍffl 1 farþega og hjólastólabí 5 88 55 22 88. tölublað 1996 Sjavarnytjar- félag áhugamanna um skynsamlega nýtingu náttúruauölinda, afhenti ígœr Ólafi C. Einarsssyni forseta Alþingis og Þorsteini Pálssyni s/ávarútvegsráöherra áskorun um ab þingib leyfi hvalveibar strax í sumar. Áskorunin var afhent í tilefni afþvíab umrœbur fóru fram um hvalveibar utan dagskrár íþinginu og ergreint frá þeim umrœbum á blabsíbu 3. Tímamynd bc Bensínlítrinn hœkkar um 1,90 kr. Fjóröa veröhœkkunin á árinu. Ríkiö dregur úr skattheimtu á bensíni, tímabundiö: Bensíngjald lækkar en lítraveró hækkar Olíufélagið Esso hækkar verb á 95 okt. og 98 okt. bensíni um 1,90 krónur í dag. Eftir verðbreytingu kostar lítrinn af 95. okt. bensíni 75,30 kr. og lítrinn af 98 okt. bensíni 80 krónur. Vibbúiö er ab svipðar veröbreytingar eigi sér stað hjá öbrum olíufélögum í dag. Þetta er í fjórða skipti á árinu sem verð á bensínlítra hækkar vegna hækkunar á heimsmark- aðsverði, en í sl. mánuði hækk- aði verð á bensínlítra tvisvar með skömmu millibili. Á sama tíma og þessar hækkanir eiga sér stað hefur fjármálaráðuneytið ákveðið að lækka bensíngjaldið tímabundið, eða sem nemur um 82 aurum á hverp lítra af blýlausu bensíni að meðtöldum virðisaukaskatti. Þetta gerir ráð- neytið til að draga úr áhrifum erlendra verðhækkana á bensín- verði. íjarni Bjarnason, fulltrúi for- stjora hjá olíufélaginu Esso, seg- ir að ef fjármálaráðuneytið hefði ekki orðið við framkomn- um óskum um að lækka bensín- gjaldið \hefði verðhækkun til bifreiðaeigenda orðið meiri fyrir vikið. Hann segir mikla eftir- spurn og spennu á Bandaríkja- markaði vera eina af ástæðun- um fyrir hækkandi heimsmark- aðsverði. Hann bendir einnig á að olíufélagið hafi lækkað álagnirigu sína til ab draga úr áhrifum verðhækkunarinnar, en vill ekki upplýsa hvað það var mikið. í tilkynningu fjármálaráðu- neytisins kemur m.a. fram að lækkun bensíngjaldsins jafn- gildir þeirri breytingu sem varð á gjaldinu í febrúar sl. Ákvörðun ráðuneytisins hefur þab í för með sér að gjald af blýlausu bensíni lækkar úr 25,51 kr. í 24,85 kr. Ráðuneytið tekur jafn- framt fram að ofangreind lækk- un á bensíngjaldi, sem rennur til vegaframkvæmda, mun ekki hafa í för með sér breytingu á fyrirhuguðum framkvæmdum á árinu. -grh • • Ofug- þróun Helgi Gubbergsson, formaður læknaráðs Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur, kallar það öfugþróun að leggja nið- ur berklavarnadeild stöðvar- innar nú þegar berklar séu í sókn. Hann segir dæmin sanna að berklavörnum verði ekki sinnt á fullnægjandi hátt innan heilsugæslustöðva ein- göngu. Helgi gagnrýnir einn- ig margt annað í tillögum stjórnar Heilsuverndarstöðv- arinnar sem hann segir hráar og illa unnar. ■ Sjá nánar bls. 2 Verkfallsboöun verkalýösfélaga: Einn af hverjum tíu meb trúnaðarráði Einugis einn af hverjum tíu vill að trúnaðaráb verkalýðsfélaga ákveði hvort viðkomandi stéttar- félag bobi til vinnustöðvunar eb- ur ei. Um 90% landsmanna vilja að verkfallsbobun sé borin undir atkvæbi allra félagsmanna. Þetta er m.a. niðurstaða úr skoð- anakönnun sem Gallup gerði ný- verið fyrir Viðskiptablaðið og greint er frá í fréttabréfi. VSÍ. Þar kemur m.a. fram að þessi niðurstaða sé í samræmi við þær hugmyndir sem fram koma í frumvarpi félagsmála- ráðherra um breytingar á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Niður- staðan bendir einnig til þess að hin harða andstaða sem fram hefur komið við áðurnefnt frumvarp sé aðeins bundin við forystu verka- lýðshreyfingarinnar.Könnunin var gerð í sl. mánuði og náði til 1400 einstaklinga sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá á aldrinum 18-75 ára af öllu landinu og var nettósvömn um 70,6%. -grh

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.