Tíminn - 10.05.1996, Side 3

Tíminn - 10.05.1996, Side 3
Föstudagur 10. maí 1996 WJWJWÖíl 3 Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráöherra: Hvalveiðar verða hafn- ar en spurning hvenær „Engin spuming er um hvort hvalveibar verða hafn- ar heldur hvenær þær veröa hafnar," sagbi Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráb- herra, í umræöum utandag- skrár á Alþingi í gær. Hann sagbi ab ákvörbun um þab yrbi meðal annars aö byggj- ast á möguleikum til nýting- ar afurba, áhrifum hvalveiða á vibskipti og aöstæbum í samskiptum þjóba. Þorsteinn gat þess að íslend- ingar ættu í mörgum erfiðum samningamálum á svibi fisk- veiða og nýtingar sjávarfangs og ein af ástæðum þess að ekki hafi enn verið tekin ákvörðum um að hefja hvalveiðar að nýju væri sú að ekki hafi þótt fært að efna til fleiri ágrein- ingsmála á því sviði. Hann sagði að búið væri að ákveða að hefja takmarkaðar hrefnu- veiðar fyrir innanlandsmarkað og hvalarannsóknir væru nú hluti af fjölþættu rannsókna- verkefni sem Hafrannsókna- stofnun vinni að. Guðjón Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki, hóf umræð- una og spurði hvað tefði þá ákvörðun stjórnvalda að hefja hvalveiðar að nýju. Nú væru liðin sjö ár frá því síðasti hval- urinn var dregin að landi en þá hafi lokið takmörkuðum veiðum á hvölum í vísinda- skini. Guðjón benti á þær tekj- ur sem þjóðarbúið hafði af hvalveiðum og að fjöldi fólks hafi einnig haft atvinnu af þeim þar sem þær hafi skapað allt að 150 ársverk. Guðjón ræddi einnig um mikinn vöxt hvalastofnanna hér við land og að þeir ætu nú álíka magn af fiski og allur veiðifloti landsmanna aflaði. Hjörleifur Guttormsson, Al- þýðubandalagi, spurði hvað tefði orminn langa. Hann kvað núverandi utanríksráð- herra hafa hvatt til þess að hefja hvalveiðar á meðan hann sat utan stjórnar og sagði að um loddaraleik væri að ræða þegar þingmenn úr flokki sjávarútvegsráðherra stæðu upp hver eftir annan til þess að krefjast ákvörðunar í málinu en síðan væri ekkert gert. Siv Friðleifsdóttir, Fram- sóknarflokki, sagði að íslend- ingar væru að verða að athlægi og spurbi hversu lengi ætti að tala án nokkurra aðgerða. Hún benti á að hvalirnir ætu mikiö af fiski í hafinu og sagði að Magnús Guðmundsson, kvik- myndagerðarmaður, ætti þakkir skildar vegna starfa hans í þágu hvalveiða. Árni Matthiesen, Sjálfstæðisflokki, sagði að heimila ætti hvalveið- ar strax úr þeim stofnum sem vísindamenn teldu óhætt að veiða úr og Gísli S. Einarsson, Alþýðuflokki, sagði ab hval- veiðar hafi verið eini sjávarút- vegurinn sem ekki hafi þurft á ríkisstyrkjum að halda meðan þær voru stundaðar. Geir H. Haarde, Sjálfstæbis- flokki og formaður utanríkis- málanefndar Alþingis, sagbi að öll þróun á alþjóðavett- vangi væri okkur hliðholl hvað hvalveiðar varðar. Hann kvaðst telja eblilegt að utan- ríkismálanefnd taki málið til meðferðar í því efni ab hval- veiðir verið hafnar á nýjan leik. Stefán Guðmundsson, Framsóknarflokki, sagði að taka verði tillit til þess hversu mikið hvalir taki af fiskistofn- unum sem sé næstum því eins mikið og íslendingar veiði í dag. Einar K. Guðfinnsson, Sjálfsstæðisflokki, sagði allt mæla með því að hefja hval- veiðar aö nýju. Hann vitnaöi til fundar Alþjóðaþingmanna- sambandsins, sem hann sótti nýverið í Tyrklandi og sagði mikla breytingu hafa orðið á viðhorfi til hvalveiða. Ragnar Arnalds, Alþýðubandalagi, sagði að hefja ætti hvaðveiðar að nýju. Þær hafi gefið af sér allt að milljarði í þjóðarbúið og veitt um 250 manns vinnu meðan á þeim hafi staðið. Ág- úst Einarsson, Þjóðvaka, kvaðst hafa verið andvígur hvalveiðum en hafa skipt um skoöun því öll rök mæltu með því í dag að veiöa hvali á grundvelli sjálfbærrar þróun- ar. Jóhanna Sigurðardóttir, Þjóðvaka, sagði að hafa yrði útflutningshagsmuni þjóðar- innar í huga ef hefja eigi hval- veiðar en ekkert væri því til fyrirstöðu að heimila takmark- aðar hrefnuveibar fyrir innan- landsmarkað. Kristín Halldórs- dóttir, Kvennalista, sagbi þau rök að hætta stafaði af því fyr- ir fiskustofnana að hvalir ætu fisk ekki standast. Hvalir væru Á landsþingi Barnaheilla, sem haldið var um síðustu helgi, var úthlutaö fjórum styrkjum úr Rannsóknarsjóði Barnaheilla. Hæsta styrkinn, 200.000 kr., hlaut verkefnið „Heilbrigöi og líðan bama og unglinga" sem Matthías Halldórsson aðstoðar- landlæknir og prófessoramir Ásgeir Haraldsson og Jóhann Ágúst Sigurbsson stjórna. 100.000 kr styrk hlutu verkefn- hluti af mikið stærri lífkeðju. Hún ræddi einnig um útfutn- ingshagsmuni íslendinga og sagbi að ekkert mætti gera sem skabaði þá. Japansmarkaður væri lokabur fyrir hvalaafurðir og Japanir myndu aldrei fórna viðskiptahagsmunum sínum í Bandaríkjunum með því að kaupa hvalaafurðir af íslend- ingum. -ÞI in „Orsakir og kringumstæður bmnaslysa íslenskra barna", sem Ragnheiður Elísdóttir læknir, Ás- geir Haraldsson prófessor og Pét- ur Lúðvíksson barnalæknir stjórna; „Upplýsingaöflun um einkenni og stöðu fámennra skóla, með sérstakri áherslu á samskipti kennara og nemenda," sem Kristín Aðalsteinsdóttir lekt- or stjórnar og „Alþjóðleg könnun á réttindum barna á heimili og í Litlar líkur á ab „landsins forni fjandi", hafísinn, valdi usla í ár: Is á miblínu Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF SÝN, fór í eftirlits- og ískönnunar- flug á mibunum úti fyrir Vest- fjörðum I gær. Næst landi var ís- jaðarinn 65 sjómílur VNV af Deild og 113 sjómílur vestur af Barba. ísinn hefur fjarlægst land- ib ört ab undanförnu. Þór Jakobsson veðurfræðingur sagði ísjaðarinn vera nú á miðlínu milli íslands og Grænlands, hluti hans væri á fiskimiðunum við Dohrn-banka. Fullsnemmt væri að útiloka að hafís ætti eftir að gera landsmönnum einhverja skráveifu, því hann ykist jafnan fram í maílok í Grænlandssundi. „Ef ríkjandi vest- lægar áttir myndu vara lengi gæti það sett strik í reikninginn en veð- urhorfur næstu daga gefa tilefni til bjartsýni," sagði Þór. -BÞ skóla" sem Ágústa Gunnarsdóttir og Maja Sigurðardóttir sálfræð- ingar stjórna. Tigangur Rannsóknarsjóbs er að efla rannsóknir á högum barna hér á landi. Stjórn sjóðsins er skipuð fulltrúum frá Félagsvís- indadeild Háskóla íslands, Kenn- araháskóla íslands og stjórn og fulltrúaráði Barnaheilla. Formað- ur Barnaheilla er jafnframt for- maður sjóðsstjórnar. -BÞ Frá styrkveitingunni. F.v. Ragnheibur Elísdóttir lœknir, Arthur Morthens, fráfarandi formabur Barnaheilla, Maja Sigurbardóttir og Ágústa Cunnarsdóttir sálfrœbingar, Matthías Halldórsson abstobarlandlœknir og Abalsteinn Císlason sem tók vib styrknum fyrir hönd Kristínar Abalsteinsdóttur lektors. Barnaheill: 500.000 kr. úthlutaö úr Rannsóknarsjóöi Kosiö í fyrsta sinn á morgun í sameinaöa sveitarfélaginu á Vestfjöröum. Jón Baldvin og Sighvatur blanda sér í kosningabaráttuna. Bœjarfulltrúi Alþýöuflokks: „Skelfileg skoðanakönnun" Karítas Pálsdóttir, baejarfull- trúi Alþýbuflokks á ísafirbi, telur fylgi Funklistans sam- kvæmt skobanakönnun Bæj- arins besta vera sterka vís- bendingu um ab sitjandi stjórnmálamenn hugsi ekki nóg um unga fólkib í landinu. Hún segir nýlega skoðana- könnun BB vera skelfilega fyr- ir flokkinn. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins og Sighvatur Björgvinsson, alþing- ismaður, fóru til ísafjarðar í fyrradag, og tengdist heimsókn þeirra kosningabaráttunni fyrir bæjarstjórnarkosningarnar. Kosið verður um nýja stjórn í fyrsta sinn á morgun í samein- aða nafnlausa sveitarfélaginu á norðanverðum Vestfjörðum. Alþýðuflokkurinn fær engan mann kjörinn skv. fyrrnefndri könnun en nýtt afl, Funklisti framhaldskólanema, fær tvo menn ef marka má könnunina. „Þetta er nattúrlega alveg skelfileg könnun fyrir flokkinn en þó gæti önnur niðurstaða komið upp úr kjörkössunum. Við erum bjartsýn á að ná inn a.m.k. einum manni." Um fylgi Funklistans sagði Karítas: „Þessi hugmynd unga fólksins ab gera þetta ein og óstudd sýnir kraftinn sem býr í þessu fólki. Mér finnst hug- mynd þeirra í raun og veru mjög góð. Ég túlka þetta sem aðvörun til þess fólks — og þar á meðal mín — sem ráðið hefur ferðinni. Ungu fólki hefur kannski ekki veriö gefinn nægi- legur gaumur hingað til." Karítas sagði kosingarnar sér- stakar fyrir margar sakir og ekki síst vegna verulegra umskipta á íbúaskrá undanfarin ár. Alþýðu- flokkurinn fékk tvo menn í síð- ustu kosningum á ísafirði. Sig- urður Ólafsson leiðir listann sem fyrr. -BÞ Kópavogur: Lýst eftir manni Lögreglan í Kópavogi lýsir eftir Sigurði Hjálmari Jónssyni, til hcimilis að Hlíðarhjalla 53 í Kópavogi. Ekkert hefur spurst til Sigurbar síban klukkan 11.30 að morgni mánudagsins 6. maí sl., en hann var þá vib Breibholtsúti- bú Landsbankans á bifreibinni LG-372. Sigurður er 37 ára gamall, um 175 cm á hæð, gráhærður með stutt liðað hár. Bifreiðin LG-372 er af gerðinni Subaru 1800 station, grá að lit, meb áberandi gulu aug- lýsingamerki á ökumannshlið. Þeir sem kunna að hafa orðið varir við Sigurð eða bifreiðina síð- an klukkan 11.30 sl. mánudag eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Kópavogi. -BÞ Sigurbur Hjálmar jónsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.