Tíminn - 21.05.1996, Side 1
% *
\MEVFIU/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
STOFNAÐUR 1917
80. árgangur
Þriöjudagur 21. maí
94. tölublað 1996
Þjóbminjasafnib keypti drykkjarhorn frá 15. öld á
uppbobi í Danmörku:
Fékkst slegið á
250 þúsund kr.
Þjó&minjasafninu var slegið út-
skorib drykkjarhorn frá 16. öld á
uppbo&i Sothebys á Lálandi í
Danmörku í gærdag. Kýrhorni&
var slegiö á lágmarksver&i a& því
er vir&ist, á 250 þúsund íslenskra
króna. Uppboðið á ýmsu erfða-
góssi Raben-Levetzau greifaætt-
arinnar fór fram í stóru tjaldi ut-
an hallarinnar. Veri& var a&
bjóöa upp höllina með öllu sem
í henni var.
Seinna horniö ná&ist ekki til ís-
lands, boöin gengu og fóru yfir
þau mörk fjármagns sem Þjóð-
minjasafnið hafði úr að spila.
Lilja Árnadóttir hjá Þjóðminja-
safninu sagði að engu að síður
væri það ánægjulegt að safninu
bættist þarna góöur gripur, sem
vonandi yrði hægt ab sýna al-
menningi ábur en langt um liði.
Á hornið er skorin mynd með
trúarlegu efni. -JBP
38. þing A5Í:
Varðstaða um
jafnlaunastefnu
„Hugmyndafræ&i og aðfer&a-
fræöi kjarasamningana frá því
í febrúar gekk í sjálfu sér alveg
upp, en vi& veröum hinsvegar
að gæta þess í framtí&inni a&
a&rir brjóti slíka samninga
ekki niður," sagöi Benedikt
Daví&sson forseti ASÍ á þingi
sambandsins í gær.
Hann sagði ab kaupmáttur
launa hefði aldrei vaxið eins
mikið við jafn lágt verðbólgust-
ig eins og raun hefur orbið á í
núgildandi kjarasamningum.
En talið er ab kaupmáttur dag-
vinnulauna innan ASÍ vaxi að
jafnaði um tæplega 6% á árun-
um 1995 og 1996 á sama tíma
og verðbólgan er innan viö 2%.
Þannig hafa núgildandi kjara-
samningar hækkað lágmarks-
laun um ríflega 15% á móti
5,6% hækkun hjá þeim sem
voru með laun yfir 84 þúsund
krónum á mánuði.
í ræbu sinni viðurkenndi for-
seti ASÍ að það hefðu verið mis-
tök á sínum tíma að hafa ekki
gengið betur frá forsendum
gildandi kjarasamnings en raun
varb á. Það hefði m.a. leitt til
erfiðs félagslegs ágreinings inn-
an verkalýðshreyfingarinnar
sem kristallaðist í launanefnd
aðila vinnumarkabarins þegar
kom ab endurskoðun samning-
Eistneskur sjó-
mabur á sjúkrahús
Tvær þyrlur Varnarli&sins
flugu suöur á Reykjaneshrygg
í gærdag og sóttu þanga& sjúk-
ling um bor& í eistneskan tog-
ara. Álitiö var aö maöurinn
heföi fengiö heilabló&fall.
Flug þyrlanna gekk með ágæt-
um, tók rúma þrjá tíma fram og
til baka. Lent var á þyrlupalli
Sjúkrahúss Reykjavíkur kl.
16.15 og sjómanninum komib í
hendur lækna sjúkrahússins.
Þyrluflug út á miðin gerast nú
alltíð. -JBP
anna í vetrarbyrjun í fyrra.
Hann gagnrýndi ríkisstjórn og
sveitarfélög fyrir að hafa gengið
fram fyrir skjöldu í því að brjóta
niður jafnlaunasamningana
með því að gera betur við sína
vibsemjendur en atvinnulífið
taldi sér fært að gera við al-
mennt launafólk. Athygli vekur
að þessi gagnrýni forseta ASÍ á
launastefnu ríkis og sveitarfé-
laga er efnislega samhljóma
þeirri gagnrýni sem Ólafur B.
Ólafsson formaður VSÍ viðhafði
í ræðu sinni á aðalfundi sam-
taka atvinnurekenda í sl. viku.
-grh
Benedikt Davíbsson ávarpar þingiö í gær.
Tímamynd: CS
Munntóbakið
þverpólitískt
Hvort leyfa eigi notkun munn-
tóbaks hér á landi í framtí&inni
er þverpólitískt mál á Alþingi.
Við atkvæðagreiðslu um frum-
varp til tóbaksvarnarlaga kom
til atkvæ&a breytingartillaga frá
Össuri Skarphéðinssyni og Ög-
mundi Jónassyni um að leyfa
notkun munntóbaks en í fmm-
varpinu er gert rá& fyrir að
notkun þess ver&i bönnuö. Var
tillagan felld me& 28 atkvæðum
gegn 24 og ré&u flokkslínur
engu um á hvern hátt þing-
menn vör&u atkvæöi sínu.
Athygli vakti að á ráðherra-
bekknum hlaut tillaga þeirra Öss-
urar og Ögmundar eitt atkvæði —
atkvæbi Davíðs Oddssonar forsæt-
isráöherra, sem samkvæmt því vill
leyfa áframhaldandi notkun
munntóbaks í landinu. Abrir ráð-
herrar greiddu atkvæði gegn til-
lögunni en þeir voru Guðmundur
Bjarnason, Þorsteinn Pálsson,
Friðrik Sophusson, Halldór Blön-
dal og Ingibjörg Pálmadóttir. Hall-
dór Asgrímsson og Páll Pétursson
vom ekki í þingsalnum og Finnur
Ingólfsson var staddur erlendis.-Þ/
írar unnu
Hinir sigursælu írar unnu í sjö-
unda sinn I Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstö&va sí&astliö-
inn laugardag en sveit íslendinga
me& Önnu Mjöll í fararbroddi
hafna&i í 13. sæti.
Það var Eimear Quinn, 23ja ára
gömul söngkona frá Dublin, sem
söng sigurlagið The Voice og hlaut
það alls 162 stig. írska ríkissjón-
varpib fær nú tveggja vikna frest til
að svara því hvort þeir haldi keppn-
ina að ári. -LÓA
38. þing ASI í Kópavogi:
Rætt um sameiningu
samtaka launafólks
Svo kann ab fara a& meint aö-
för stjórnvalda aö verkalý&s-
hreyfingunni lei&i til þess a&
heildarsamtök launafólks á
almennum og opinberum
vinnumarkaöi hefji opinskáa
umræ&u um áherslur sínar og
framtí&arsýn me& þa& í huga
a& móta sameiginlega stefnu
eöa jafnvel sameinist. Bene-
dikt Daví&sson forseti ASÍ
vakti máls á þessu í ræðu sinni
vi& upphaf 38. þings ASÍ í gær
og Ögmundur Jónasson for-
ma&ur BSRB tók undir þessi
sjónarmib í ávarpi sínu til
þingfulltrúa.
Forseti ASÍ lagði einnig
áherslu á ab það væri sameigin-
legt verkefni allrar launa-
mannahreyfingarinnar í land-
inu að treysta kjör þeirra sem
hafa lægstu launin og minnsta
starfsöryggið. Auk þess væri
mikilvægt og koma í veg fyrir að
þróun á vinnumarkaði og breyt-
ingar á rekstrarformi fyrirtækja
leiði til innbyrðis sundurlyndis
og átaka. Hann sagði að sundr-
ung og sundurlyndi mundi að-
eins verba til þess að veikja
stöðu samtaka launafólks og
verða vatn á myllu andstæðing-
anna. Þá væri eblilegt að heild-
arsamtök launafólks taki upp
náið samstarf vegna vaxandi
þátttöku í starfi alþjóðlegrar
verkalýðshreyfingar og á ýms-
um vettvangi í Evrópu, sem sí-
fellt væri að verða umgangs-
meiri og mikilvægari fyrir ís-
lenskt launafólk. Þar fyrir utan
bibu mikil og erfið verkefni í
samskiptum verkalýðshreyfing-
ar við stjórnvöld og atvinnurek-
endur á næstu misserum.
Til marks um þá þróun sem
átt hefur sér stað meðal helstu
samtaka launafólks á síðustu
mánubum vegna meintra að-
fara stjórnvalda gegn innri mál-
efnum verkalýðshreyfingar, þá
ávarpaði Elna K. Jónsdóttir
varaformaður BHMR þingið og
mun þetta vera í fyrsta skipti
sem fulltrúa samtaka háskóla-
manna er boðið að flytja ávarp á
þingi ASÍ. Þessi nýjung var hins-
vegar í fullu samræmi við það
sem gerðist fyrir skömmu, þegar
forseta ASÍ var boðið að ávarpa
aðalfund BHMR í fyrsta skipti.
Hátt í 500 þingfulltrúar taka
þátt í 38. þingi ASÍ sem haldiö
er aö þessu sinni í íþróttahúsinu
í Digranesi í Kópavogi, en þing-
inu lýkur nk. föstudag. Helstu
mál þingsins lúta að framtíðar-
stefnu sambandsins næstu ár og
skipulagsmálum verkalýðs-
hreyfingar, eins og t.d. breyting-
um á félagsgjöldum aðildarfé-
laga til ASÍ að ógleymdu forseta-
kjörinu sem veröur í hádeginu á
morgun, miðvikudag. Töluverð
óvissa ríkir um það hver verður
kjörinn forseti sambandsins fyr-
ir næsta kjörtímabil og er viðbú-
ið að sú óvissa muni setja mark
sitt á þingstörfin að viðbættri
baráttunni gegn lögþvinguðum
breytingum á vinnulöggjöfinni
og á réttindum og skyldum
starfsmanna ríkisins. -grh