Tíminn - 21.05.1996, Síða 5

Tíminn - 21.05.1996, Síða 5
Þri&judagur 21. maí 1996 WÍMJÍJWl 5 Kaffileikhúsib: Á ELLEFTU STUNDU. Tveir einleikir eftir Bergljótu Arnalds og Val Frey Einarsson. Leikarar: Höf- undarnir. Leikstjóri: Vibar Eggertsson. Ljósahönnubur: Ævar Gunnarsson. Frumsýning í Hlabvarpanum 15. maí. Áfram heldur Kaffileikhúsið með einleiki sína, samda og flutta af ungu leikhúsfólki. Þetta framtak er lofsvert, enda hef ég áður borið á það lof. Á miðvikudagskvöldið voru frumsýndir tveir þættir. Sá fyrri er eftir Bergljótu Arnalds, Hús hefndarþorstans, og sá seinni eftir Val Frey Einarsson, Heilt ár og þrír dagar. Saman- lagt fylla þessir þættir heilt leikkvöld, en annars eru þeir ólíkir og vandséð hvers vegna þeir eru sýndir saman. Sam- heitið sem sýningunni er valið er líka vandræðalegt og gefur ekki rétta mynd af inntaki verkanna, sé það á einhvern hátt hliðstætt. Að lengdinni til myndi þáttur Bergljótar duga í heila sýningu, þáttur Vals Freys er að vísu nokkm styttri. Ekki get ég þó kvartað undan því að hann skyldi vera hafður með, því að hann var í alla staði betri en hinn. Einleikur Bergljótar Arnalds er byggður á forngrískri sögu, fjölskyldusögu Agamemnons sem Oresteia Æskýlosar lýsir. Þátturinn er tvískiptur. í fyrri hlutanum fer fram matarboð: faðir Agamemnons hefur boð- ið bróður sínum og eljara, Þye- stresi, til hefndarveislu þar sem á borðum eru ýmsir lík- amshlutar. Þýestes sér fyrir óorðnar hörmungar og í lokin hefnir hann sín með því að leggja á Agamemnon að hann muni í fyllingu tímans fórna dóttur sinni. — í seinni hlut- anum er Klýtemnestra komin á sviðið, kona Agamemnons, og bíður manns síns þegar hann snýr heim frá Tróju. Hún er full hefndarþorsta eftir dótturmorðið og drepur Ag- amemnon í baðinu. í lokin kemur Orestes. Hefndin held- ur áfram. Það er að vonum að ungt fólk glími viö grísku tragid- íurnar og spinni út frá þeim eins og Bergljót Arnalds hefur gert hér. Þarna er mikil ögrun fólgin. En spuni Bergljótar var furðumikið utangátta, eins og hann kom manni fyrir augu og eyru í Kaffileikhúsinu. í fyrsta lagi er textinn sjálfur banall. Svona uppskrúfuð til- finningasemi í orðfæri fer afar illa við baksvið hins gríska harmleiks. — Grikkirnir eru klárir og heiðríkir, ósveigjan- legir, undanlátslausir er þeir setja manni hin römmu verki í báðum þáttunum og sýnir Ævar Gunnarsson vönd- uð vinnubrögð í því efni, enda orðinn þjálfaður að vinna við þær aðstæður sem Kaffileik- húsið býður upp á. Þegar komið er í seinni þátt- inn verður annað uppi á ten- ingnum. Einleikur Vals Freys Einarssonar er frumsmíð og ekki leitað langt til fanga. Höf- undur ætlar sér ekki um of, en einleikurinn er ekki einungis vel saminn, hann er líka sýnd- ur á yfirvegaðan hátt. Ég héf ekki séð þennan unga leikara fyrr svo að ég muni, en um leið og hann gekk á sviðið mátti merkja í hreyfingum og látbragði að þarna er maður sem kann leiklist. Honum tókst sem sé að mála persón- una upp fyrir augum manns áöur en nokkuð var sagt. Leikurinn segir frá ungum manni sem hefur verið hand- tekinn fyrir ósiðlegt athæfi sem talið er að hafi orsakað að vinur hans, drengur, stytti sér aldur. Þessi ungi maður er leigubílstjóri, sonur lögfræð- ings og er að reyna að skýra fyrir föður sínum hver hann er. í fjölskyldu föðurins hafa „aldrei verið neinir kippir". En það eru ósjálfráðir kippir í lík- ama sonarins sem ógæfunni valda. Hann hagar sér ekki eins og fyrirskrifað er. Ungi maðurinn vildi ekki verða „ingur", eins og hann segir, hvorki lögfræðingur, sálfræð- ingur, hagfræðingur né neitt annað. Hann er bara leigubíl- stjóri sem hefur leiðst út í at- hæfi sem samfélaginu býður við. Hann hefur engar afsak- anir fram að færa. Og nú bíður hann dóms fyrir glæp sem hann finnur ekki að hann hafi drýgt. Hann hefur gert sig sek- an um það eitt að elska annan mann. Að vísu viðurkennir hann að hann ráði ekki við lík- ama sinn. En þaö er auðvitað ekki nein afsökun. Heilt ár og þrír dagar er hag- leg smámynd, leikurinn geng- ur alveg upp innan síns ramma og hélt áhuga áhorf- andans vakandi frá fyrsta til síðasta andartaks. Textinn er lipur, næmlegur og undir- furðulegur, og látbragðsleikur- inn var, eins og fyrr var vikið að, vel og nákvæmlega unn- inn. í þessu hefur tekist gott samstarf milli leikara og leik- stjóra. Útkoman varð til þess að sætta mann vel við kvöld- stundina í Kaffileikhúsinu. Hér eftir verður fylgst með Val Frey Einarssyni á sviðinu. Vel mætti hann spreyta sig meir á að semja leiktexta. Hann hefur vald á því. ■ Upp og ofan einleikir ákvæði fyrir sjónir, lífsveg manneskjunnar til tignar og falls. Hér er farið að veita inn í textann nútímalegum friðar- hugmyndum, sem satt að segja em nokkuð klisjubornar, samfara tuggukenndri sálfræði og hversdagsviti eins og því að „einhver verði að hætta að hefna sín". Útkoma úr þessari blöndu verður einkennilegt klístur. Ég kann ekki annað orð sem betur lýsir texta Berg- ljótar. — Textinn er raunar laus við dramatík þrátt fyrir sitt feiknalega efni, ég fann LEIKHUS GUNNAR STEFÁNSSON engan neista í einræðunum, þetta eru orð og setningar en ekki skáldskapur. — Auðvitað setur Bergljót sig undir harðan dóm með því að fást við efni eins og þetta. Hún sýnir virð- ingarverða dirfsku og áræði — en við verðum að spyrja að leikslokum. Bergljót flutti einleik sinn af verulegum krafti, hefur tölu- vert mikilli leiktækni yfir að ráða og var reyndar furðu góð í karlmannshlutverkinu, engu lakari en í Klýtemnestru. Ann- að mál er það að þegar leikið er á stríðum nótum út í gegn verður það til að veikja áhrif- in. Átök í leik geta ekki breitt yfir veikan texta. — Sviðið eru reyndar pallar eftir salnum endilöngum og varð býsna malerískt, eins og þegar rauði dregillinn er dreginn þar eftir. Búningur Klýtemnestru var auðvitað einnig rauður. Ljósa- hönnunin gegnir miklu hlut- Enn fjölgar „skattasmugunum" í framkomnu frumvarpi stjórn- arflokkanna um fjármagns- tekjuskatt er að finna eitt mjög varasamt ákvæði. Þar er um að ræða lækkun á skatti af arð- greiðslum úr 45% í 10%. Lækk- un þessi er rökstudd með því að skatta af fjármagni verði að samræma. Én hafa menn gert sér grein fyrir því að samfara þessari breytingu er verið að opna fyrir eina stærstu skatta- undankomuleið síðari ára? í dag er hægt að stofna svo- kölluð einkahlutafélög (ehf.), þar sem lágmarkshlutafe er 500.000 kr. Eigendur þeirra sæju sér leik á borði ef breyting verður á skattameðferð arðs. I stað þess aö einkahlutafélagið greiöi eiganda sínum laun með 41,6% skatti, borgaöi það út arð sem aðeins bæri 10% skatt. Þessi nýja skattasmuga getur leitt til þess að einyrkjar eins og iðnaðarmenn, bílstjórar, bænd- ur, trillukarlar o.fl. sjá sér hag í því að stofna einkahlutafélag um starfsemi sína, eingöngu til þess að lækka hjá sér tekjuskatt- inn. Fólk í eigin atvinnurekstri er í dag skylt að reikna sér end- urgjald af starfsemi sinni og er endurgjaldið í raun laun við- komandi. Ef stofnað er einka- hlutafélag geta eigendur þess komist upp með að greiða sér sjálfum arð í stað launa. Ekki þarf að kalla til löggiltan endur- skoöenda til að sjá hversu góð „fjárfesting" fælist í stofnun slíks hlutafélags. Og einyrkjar Frá mínum bæjar- dyrum EINAR SVEINBJÖRNSSON eru alls ekki þeir einu sem keypt gætu sér slíka skattalækkun. Ekkert stæði í vegi fyrir því að launþegar hjá smærri fyrirtækj- um gerðust „verktakar" og stofnuðu sitt einkahlutafélag. Vinnuveitandinn keypti ein- faldlega vinnu af hinu nýstofn- aða félagi í stað þess að greiða laun með beinum hætti. Hluta- félagið greiddi síðan laun sem næmi skattleysimörkum og að auki ríflegan arð með 10% skatti. Drjúg búbót það! Ekki er heldur loku fyrir það skotið að hið opinbera neyddist til að taka þátt í þessum leik þegar fram í sækti í samkeppni um hæfasta vinnukraftinn sem byggi ef til vill við þessi skatt- fríðindi á einkamarkaði. Aðeins launþegar hjá stærri fyrirtækj- um, gjarnan ófaglært starfsfólk, sæti eitt eftir með háu skattana (og lágu launin). Það hljóta allir að sjá réttlætið sem í þessu fælist eða hitt þó heldur, svo ekki sé talað um tekjutap ríkissjóðs og sveitarfé- laga. Skattalækkun er í sjálfu sér fagnaðarefni, en hún verður þá að vera í takt við góða afkomu ríkis og sveitarfélaga og eins er afar æskilegt að hún nái til sem flestra þegna landsins. Óbreytt frumvarp um fjár- magnstekjuskatt mun ekki færa ríkissjóði auknar tekjur, öðm nær. Enn ein skattasmugan er örugglega ekki leiðin til aö bæta siðferðisþrek þjóðarinnar og ekki má heldur líta fram hjá þeirri staðreynd að jafn róttæk lækkun skatts á arði, og lögð hefur verið til, á eftir að stuðla að enn breiðara bili á milli þeirra tekjuháu og tekjulágu. Það er beinlínis sanngirnismál að launatekjur og arðgreiðslur fái sambærilega meðferð hjá skattayfirvöldum þessa lands.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.