Tíminn - 21.05.1996, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.05.1996, Blaðsíða 6
6 Þri&judagur 21. maí 1996 Jón Baldvin greinir krötum á Norburlandi frá sameiningarhugmynd- um jafnaöarmanna: Kosningabandalag um eina stefnuskrá Sameining íslenskra jafna&ar- manna í eina öfluga hreyf- ingu á a& felast í myndun kosningabandalags um sam- eiginlega stefnuskrá í næstu alþingiskosningum, sagöi Jón Baldvin Hannibalsson, for- ma&ur Alþýöuflokksins, á kjördæmisþingi á Nor&ur- landi nýlega. Jón segir aö markmi&iö ætti a& vera a& þingflokkur kosningabanda- lagsins ætti aö minnsta kosti aö verða sá næststærsti á þingi. Alþý&uflokkur, Alþýöu- bandalag og Þjó&vaki væru sammála um meginstefnuna, einkum yngri kynsló&in. Gömlu ágreiningsmálin væru flest gufuö upp. Jón Baldvin tók sérstaklega fram aö afstaða Alþýðuflokksins til Evrópusambandsins yröi engin hindrun í veginum, enda þótt flokkurinn hvikaði í engu frá langtímastefnu sinni í þessu máli, stefnu sem hann kvaðst sannfærður um að myndi með tímanum sjálfkrafa hljóta auk- inn stuðning, vegna þess ein- faldlega að hún væri skynsam- leg og rétt. Stjórnmálaályktun Norður- landskrata var harðorð í garð núverandi ríkisstjórnar, sem þeir segja vera samstarf „tveggja dínósára íslenskra stjórnmála", sem jafngildi afturhaldi eða í besta falli kyrrstöðu. Kvartaö er undan hugmynda- og ráöaleysi ríkisstjórnarflokkanna og úreltri og skaðlegri hagsmunagæslu í þágu fárra útvalinna, þrátt fyrir girnileg loforð fyrir kosningar. „Hiö rétta andlit Framsóknar- og Sjálfstæðisflokka hefur kom- Össur Skarphébinsson. Ögmundur jónasson. Ossur og Ogmundur vilja leyfa rjólib Össur Skarphéöinsson og Ög- mundur Jónasson vilja leyfa notkun munntóbaks. Þaö kemur fram í breytingartil- lögu, sem þeir hafa flutt viö frumvarp til tóbaksvamalaga á Alþingi. Samkvæmt frumvarpinu á að banna notkun munntóbaks, en það er í samræmi við reglur sem gilda á svæöi Evrópubandalags- ins um tóbaksnotkun. Þeir Öss- ur og Ögmundur telja hinsvegar ástæðulaust að leiða slíkt bann í lög hér á landi. Bæði sé um til- tölulega litla notkun munntób- aks að ræða og í banninu felist einnig skerðing á mannréttind- um. Steingrímur J. Sigfússon styður tillögu þeirra Össurar og Ögmundar og sagði að sér finn- ist allt í lagi að leyfa þeim fáu, sem enn noti þessa tóbaksvöru, að gera þaö áfram. -ÞI ið skýrt í ljós á síöustu vikum í fautalegri aðför þeirra aö rétt- indum vinnandi fólks — eftir pöntun frá Vinnuveitendasam- bandinu — og fáránlegum hug- myndum þeirra um fjármagns- tekjuskatt, sem myndi gera þá ríku auðugri, en reyta aurana af smásparendum," segir í ályktun k j ördæmisþingsins. í ályktuninni segir að nú rofi til eftir fimm mögur ár, en þar gæti verka Alþýðuflokksins meðan hann sat í ríkisstjórn. Brýn verkefni blasa þó enn við, segir í ályktuninni: Lækkun vaxta og uppstokkun skattkerf- isins í þágu skuldugra fjöl- skyldna. Ranglát tekjuskipting og stöðug tilfærsla þjóðarauðs- ins í hendur þeirra, sem mest áttu fyrir, er óþolandi og hana verður aö stöðva. Þjóðin þarf að taka yfirráðin yfir verðmætustu þjóðareigninni, auðlindinni í hafinu umhverfis landið. Formaður kjördæmisráðs Al- þýðuflokksins á Noröurlandi er Finnur Birgisson. -JBP Norskir farmenn á 60-70% hcerri launum en íslenskir: Vantar alstaðar vélstjóra „Það er alstaðar skortur á vélstjórum og ekkert at- vinnuleysi hjá þeim á Norðurlöndum, enda um- frameftirspum eftir fólki úr þessari stétt," segir Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands. Hann segir að þrátt fyrir þessa jákvæðu stöðu, sem er í atvinnumálum vélstjóra bæði hérlendis og á öörum Norðurlöndum, þá hafi þaö vakið athygli að laun vél- stjóra á norskum farskipum munu vera allt að 60-70% hærri en þau laun, sem ís- lenskir starfsbræður þeirra á kaupskipaflotanum fá. -grh Afli fyrstu fjóra mánuöi ársins 23% meiri en á sama tíma í fyrra: Verðmæti afla jókst um 6,5% Heildaraflinn fyrstu fjóra mánuði ársins nemur um 908 þúsund tonnum, eða 23% meiri en á sama tíma í fyrra. Verðmæti aflans nemur um 19,5 miljöröum króna, sem er 6,5% aukning frá fyrra ári. Á þessu tímabili nemur verð- mæti botnfiskaflans um 12,1 miljarði króna á móti 12,5 miljöröum á sama tíma í fyrra, sem er samdráttur um tæp 3%. Aftur á móti jókst verðmæti loðnu um 67% eða úr 2,3 miljörðum kr. í 3,8 mil- jarða kr. og samtals jókst verö- mæti síldar og loðnu um helming, eða úr 2,7 miljörð- um kr. í 4 miljaröa í ár. Heildarafli það sem af er fisk- veiðiársins er um 1282 þúsund tonn, sem er 22% aukning frá sama tímabili í fyrra. Mestu munar um síld og loðnu, en afli þessara tegunda jókst um þriðj- ung frá sama tíma í fyrra. Botn- fiskafli er svipaður á milli tíma- bila, eða 306 þúsund tonn á móti 304 þúsund tonnum í fyrra. Þetta kemur m.a. fram í bráðabirgðatölum um fiskafl- ann í Útvegstölum fyrir apríl- mánuð. Þar kemur fram að aukning varð í þorsk og steinbít miðað við sama mánuö í fyrra, en samdráttur í veiðum á öðr- um fisktegundum. Sé hinsvegar aflinn fyrstu fjóra mánuði yfirstandandi árs borin saman við sama tímabil í fyrra, þá hefur þorskaflinn auk- ist um tæp 16%, eöa úr 60 þús. tonnum í 70 þús. tonn. Ýsuafli dregst saman um þriðjung, eða úr rúmlega 26 þús. tonnum í tæp 16 þús. tonn, og ufsaafli minnkar um 17%, eða úr 19 þús. tonnum í tæp 16 þús. tonn. I öðrum tegundum nemur sam- drátturinn um 9% í karfa, 14% í úthafskarfa, 10% í grálúðu, en aftur á móti jókst steinbítsafl- inn um 68% og rækja um 17%, eða úr 24 þús. tonnum í 28 þús. -grh Lögmaöur VSÍ: Fimm nýlegir dómar gengiö gegn niöurstööum Kœrunefndar jafnréttismála: Vantar Kærunefnd skilning á aöstæðum vinnumarkaöarins? „Þaö er því ljóst aö nefndin (Kærunefnd jafnréttismála) þarf að endurskoða afstöðu sína og málatilbúnað. Kæru- nefnd, sem ekki hefur skiln- ing á aðstæðum á almennum vinnumarkaði, getur ekki vænst þess að fá hljómgrunn þannig að tilmælum hennar sé sinnt. Hún hefur því ekkert hlutverk," segir Hrafnhildur Stefánsdóttir hdl. í fréttabréfi VSÍ. Hún fjallar þar um líklegar skýringar þess að enginn af fimm dómum, sem kveðnir hafa verið upp nýlega í málum sem Kærunefnd hefur haft til umfjöllunar, hefur staðfest nið- urstöðu nefndarinnar. Lögmaðurinn segir sérstakar reglur gilda um sönnunarbyrði fyrir Kærunefnd, sem vægast sagt sé umdeilanlegt. Við máls- meðferð fyrir nefndinni þurfi vinnuveitandinn að sýna fram á að aðrar ástæður en kynferði hafi legið til grundvallar ákvörðun hans. Það skýri þó ekki framangreindan mun. „Kærunefnd virðist leggja aðra lagatúlkun eða a.m.k. annað mat til gmndvallar en dómstól- ar. Það á ekki hvaö síst við um rekstrarforsendur vinnuveit- anda, sem nefndin sýnist treg til að viðurkenna sem lögmætar ástæður. Við svo búið er þess ekki aö vænta að álit nefndar- innar hafi þaö leiðbeiningar- gildi sem til er ætlast," segir Hrafnhildur. Nýjasta dæmið segir hún dóm Héraðsdóms Reykjavíkur 30. apríl s.l. Um var að ræða að ráðningarkjör tveggja starfs- manna sem unnu sömu störf voru mismunandi, þar sem þau byggðust á mismunandi kjara- samningum. Konan hafi talið á sér brotið, þar sem grunnlaun hennar vom lægri en samstarfs- manns hennar. Dómurinn var á annarri skoðun. Um mánuði áður dæmdi Hæstiréttur að rekstrarerfiðleik- ar vinnuveitanda, sem leiddu til lokunar útibús hans, gilda ástæöu uppsagnar samkvæmt fæðingarorlofslögum og að jafnréttislög hafi ekki verið brotin heldur. í dómum Héraðsdóms Reykja- víkur 14. júlí og 2. nóvember í fyrra hafi því einnig verið hafn- að aö störf, sem Kæmnefnd taldi jafn verðmæt, væru það. í janúar s.l. hafi Héraðsdómur einnig hafnað þeirri niðurstöðu Kærunefndar að mat á starfs- hæfni starfsmanns við ráðningu og uppsögn verði lagt að jöfnu. Uppsögnin, sem um var fjallað, átti sér rekstrarlegar forsendur ab mati dómsins. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.