Tíminn - 21.05.1996, Blaðsíða 10
10
Þriðjudagur 21. maí 1996
UTLOND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . ..
Kosningabaráttan í Albaníu er meb öbrum hœtti en fólk hefur átt ab
venjast þar í landi:
Rokkaö á fullu fyrir
stjómmálaþreytta Albani
Demókrataflokkurinn í Alban-
íu, sem nú heldur þar um
stjórnartaumana, var ekki á
spamaðarbuxunum þegar hald-
iö var heljarmikiö kosninga-
partí um síöustu helgi. Herleg-
heitin fóru fram á risastómm
fótboltavelli í Tirana, þar sem
ungir Albanir skóku líkamann í
takt viö dmnandi popptónlist
og sýningarfólk sýndi nýjustu
tískufötin milli þess sem fram-
bjóöendumir fluttu 30.000
áheyrendum boöskap sinn um
hagvöxt og betri lífsgæði.
Fram aö þingkosningum, sem
fram eiga að fara á sunnudaginn
kemur, hafa demókratar lofaö því
aö stanslaust fjör ríki í landinu.
„Viö tilheyrum Vesturlöndum og
þetta er ný leið til þess að segja
fólki aö viö höfum tekið upp vest-
ræna lífshætti," sagði Alban Bala,
talsmaður flokksins, á meðan lag
Tinu Turner, „Simply the Best",
hljómaði úr hátalarakerfinu.
Miðaö viö fortíð þessa lands má
telja þessar aðferðir í kosninga-
baráttunni vægast sagt róttækar. í
45 ár var Albanía nánast algjör-
lega einangmö frá umheiminum
undir einræði Kommúnista-
Háskólabókasafnib í
Cambridge:
Farsímar
bannaöir
flokksins. Allt þar til stjórninni
var steypt af stalli árið 1990 var
bannað með að hlusta á vestræna
popptónlist.
„Fólk hefur gaman af rokk- og
popptónlist," sagði Bala, „og við
veitum þeim þá ánægju." Hann
bætti því við að hann væri sann-
færður um að þessi baráttuaðferð
myndi koma flokknum til góða í
kosningunum, þeim þriðju sem
haldnar hafa verið frá því komm-
únistastjórnin féll.
í síðustu kosningum, sem fram
fóru í mars 1992, unnu demó-
kratar yfirgnæfandi meirihluta
þingsæta, eða 92 þingsæti af alls
140. Helsti andstæðingur þeirra,
Sósíalistaflokkurinn, fékk aðeins
38 sæti.
Þótt sósíalistar séu arftakar
gamla Kommúnistaflokksins er
samt talið að þeir eigi töluverða
möguleika á góðum árangri í
kosningunum, enda hafa demó-
kratar lagt harðar efnahagsum-
bætur á herðar þjóðarinnar og
ekki laust við að ýmsir sakni ör-
yggisins sem ríkti áður fyrr undir
stjórn kommúnista.
Demókratar hafa heitið því að
berjast gegn endurreisn komm-
únista og hafa tekið höndum
saman við aðra hægri- og mið-
flokka til þess að auka sigurlíkur
sínar. Þeir hafa lofað Albönum
betri framtíð með aukinni einka-
væðingu og mikilli fjárfestingu af
hálfu ríkisins í samgöngumálum
og sjúkrahúsum.
Þau orð hljóma samt hálf inn-
antóm í eyrum margra Albana,
sem segjast vera orðnir þreyttir á
stjórnmálaþrasi — þá sé skárra að
hlusta á háværa tónlist og fylgjast
með íburðarmiklum skrautsýn-
ingum. „Þetta er greinilega betri
kosningabarátta en áður, þar sem
okkur finnst gaman að tónlist en
höfum lítt gaman af innantóm-
um loforðum. Eftir erfiðan dag
heillast margt fólk af tónlist og
tískusýningum, sérstaklega ung-
lingarnir," sagði 63 ára gamall
maður, Mihal að nafni, sem vildi
þó ekki gefa upp fullt nafn.
-CB/Reuter
Theo Waigel, fjármálaráöherra Þýskalands, og Helmut Kohl kanslari
leggja mikla áherslu á sparnabarácetlanir sínar, viö mismikla hrifningu al-
mennings.
Opinberir starfsmenn
leggja niöur vinnu
U.þ.b. 100 þúsund opinberir
starfsmenn í Þýskalandi
lögöu niður vinnu í gær,
bæði til að leggja áherslu á
kröfur sínar um 4,5% launa-
hækkun og í mótmælaskyni
við hugmyndir ríkisstjórnar-
innar um að frysta laun sem
lið í sparnaðaráætlunum rík-
isins. Vegna verkfallsins
lömuðust almenningssam-
göngur í mörgum borgum
landsins.
Kohl kanslari sagðist engu
að síður ætla að halda fast við
kröfur sínar um að laun hækki
ekki.
„Ég hef aldrei tekið mark á
hótunum," sagði Kohl í sjón-
varpsviðtali og ætlaði sér aug-
sýnilega að gefa ekkert eftir.
„Verkalýðsfélögin eru bara að
reyna að verja sína eigin hags-
muni og þeim verður ekkert
ágengt við það."
Verkalýðsfélögin hafa sakað
Kohl um að nota sér lélegan
hagvöxt og mikið atvinnuleysi
sem yfirskin til þess að hverfa
af þeirri braut félagslegs mark-
aðskerfis, sem byggt er á al-
mennri sátt í þjóðfélaginu, og
Þjóðverjar hafa lagt áherslu á
hingað til. í staðinn vilji hann
innleiða harðskeyttari mark-
aðsstefnu með minna félags-
legu öryggi.
-GB/Reuter
Shell viöurkennir „mistök" í Nígeríu
Á bókasöfnum háskólans í
Cambridge hefur verið gripið
til þess ráðs að banna alla
notkun GSM-síma og annarra
farsíma, vegna vaxandi ónæð-
is sem verið hefur af þeim.
Nemendum hefur verið gert
að slökkva á símum sínum
um leiö og þeir koma inn í
safnahúsið, enda hafði kvört-
unum fjölgað jafnt og þétt.
„Það varö sífellt algengara að
símar hringdu og fólk var hrein-
lega að tala í símann inni á safn-
inu," sagði Roy Welbourn, safn-
vörður í Cambridge. „Gangarnir
á safninu voru notaðir í æ meira
mæli eins og hann væri stór
símaklefi," bætti hann við.
-GB/Reuter
Hollensk-breska olíufélagið
Shell hefur viburkennt að
hafa gert mistök þegar leitað
var eftir abstob öryggislög-
reglu í Nígeríu, en öryggis-
sveitimar urbu 80 manns að
bana. Þetta kom fram í sjón-
varpsþætti sem sýndur var í
bresku sjónvarpi í gær.
„Viö höfum gert ein eða
tvenn mistök," sagði Brian And-
erson, yfirmaður starfsemi Shell
í Nígeríu. „Við kölluðum einu
sinni eftir lögreglunni til þess
aö aðstoða okkur í máli þar sem
allt fór gjörsamlega úr böndun-
um, og ég verð að segja að við
drógum okkar lærdóm af því ...
Eitthvað af fólki lét lífið af þess-
um sökum."
Umrætt atvik átti sér staö árið
1990, þegar Shell bað öryggis-
sveitir Nígeríu um að taka á
mótmælum gegn fyrirtækinu
við bæinn Umuechen í Nígeríu.
í sjónvarpsþættinum World in
Action kom fram að eftir að lög-
reglusveitirnar, sem illræmdar
eru meðal heimamanna fyrir
grimmd, höfðu 80 manns legið
í valnum.
„Þetta var afskaplega hörmu-
legur atburbur," sagöi Ander-
son. „Við trúðum því ekki að
lögreglan myndi bregðast svona
harkalega við." Talsmaður fyrir-
tækisins í London sagði hins
vegar um atvikib í Umuechen:
„Okkur ber skylda til þess sam-
kvæmt lögum að skýra yfirvöld-
um frá því þegar truflanir verða
á olíuvinnslunni. Þau ákveða
síðan hvernig bregðast eigi við í
þeirri stöðu rétt eins og gerist í
öllum öðrum löndum. Ef þau
bregðast of hart við þá er þab
þeirra ákvörðun en ekki fyrir-
tækisins."
Shell-fyrirtækið hefur verib
gagnrýnt harðlega fyrir starfsemi
sína í Nígeríu. Halda heima-
menn því m.a. fram ab þeim hafi
ekki verið bættur sá skaði sem
umhverfisspjöll hafa valdið
þeim. Athygli heimsins beindist
síban ab starfsemi Shell í Nígeríu
þegar herstjórnin í landinu lét
hengja rithöfundinn Ken Saro-
Wiwa og átta félaga hans sem
gagnrýnt höfðu bæði stjórnvöld
og Shell. Aftökurnar voru for-
dæmdar víða um heim og Níger-
íu var tímabundið vikib úr
Breska samveldinu. ■
Sumarliöi Bjömsson
Sumarliði Bjömsson var fceddur í
Svínadal í Skaftártungu í Vestur-
Skaftafellssýslu þann 7. febrúar 1906
og lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 9. maí
síðastliðinn. Foreldrar hans vom
hjónin Bjöm Eiríksson, bóndi í Svína-
dal, og Vigdís Sœmundsdóttir og var
hann sjöundi í röð fjórtán systkina og
em sjö á lífi. Hinn 17. maí 1936 gift-
istSumarliði Þórgunni Guðjónsdóttur,
f. 6. maí 1909, frá Hlíð í Skaftár-
tungu. Þau eignuðust þrjú böm: Guð-
geir f. 1937, eiginkona hans er Anna
Sigríður Þorbergsdóttir og eiga þau
fimm dxtur og átti Anna Sigríður tvo
syni fyrir; Bjamdís f. 1940, eiginmað-
ur hennar er Birgir Hjaltason og eiga
þau tvœr dœtur; og Valgerður f. 1940,
eiginmaður hennar er Ámi Rúnar Þor-
valdsson og eiga þau tvœr dœtur og
t MINNING
tvo syni. Bamabamabömin em orðin
níu talsins.
Útfór Sumarliða fór fram frá Graf-
arkirkju í Skaftártungu laugardaginn
18. maí.
Elsku afi.
Það er erfitt að sætta sig við að þú
sért farinn héðan, þrátt fyrir að and-
lát þitt hafi ekki komið á óvart, eftir
þriggja vikna erfiða baráttu.
Það, sem mest einkenndi afa, var
mikil vinnusemi og voru verk hans
alltaf unnin af mikilli nákvæmni og
vandvirkni. Afi innrætti okkur frá
unga aldri að vinnan göfgar mann-
inn og vorum við ekki há í loftinu
þegar við vorum komin út á tún
með hrífu í hönd að „raka dreif"
eöa að sinna öðrum verkum, sem til
féllu í sveitinni og vom viö okkar
hæfi. Aldrei vantabi hrósið fyrir það
sem vel var gert og var hann alltaf
boöinn og búinn aö leiöbeina okk-
ur með það sem betur mátti fara.
Eitt af einkennum afa var fróð-
leiksfýsn og réttsýni og ekki var það
margt fréttaefnið sem framhjá hon-
um fóar. Öll ummæli um menn og
málefni vom sett fram á varfærnis-
legan hátt og eftir vandlega íhugun,
þó að alla tíð hafi hann veriö trúr
sinni stjórnmálaskoðun og ekki
alltaf þótt mikið til þess koma sem
mótherjarnir voru að segja.
Þegar heilsa ömmu leyfði ekki
lengur að hún sæi ein um heimilis-
störfin, var afi ekki í vandræöum
meb aö taka til hendinni og hefur
verið ömmu ómældur smðningur
hin síöari ár.
Þú hefur alla tíð fylgst af áhuga
með því, sem við höfum verið að
gera, og vitum við að svo verður
áfram, þrátt fyrir að þú sért kominn
á annað tilvemstig. Það veröur erfitt
að koma í Litluhlíð núna og þú
verður ekki til aö taka á móti okkur
á veröndinni, en við vitum að þú
munt einhvemtíma taka á móti
okkur á annarri verönd.
Þó missi ég heym og mál og róm
og máttinn ég þverra finni,
þá sofna ég hinst við dauðadóm,
6, Drottinn, gefsálu minni
að vakna við söngsins helga hljóm
í himneskri kirkju þinni.
(Ó. Andrésd.)
Hvíl í friði.
Summi, Jóhanna,
Sigga Þóra og Valli,
Þóra og Sigurlín
Greinin átti aö birtast í laugar-
dagsblaðinu, en misfórst og er beð-
ist velviröingar.