Tíminn - 21.05.1996, Side 11

Tíminn - 21.05.1996, Side 11
Þri&judagur 21. maí 1996 11 Ein lengsta umrœba í sögu Alþingis: Um hvað var talab í 35 klukkustundir? Þingmenn töluðu í um 35 klukkustundir um frum- varpið um réttindi og skyld- ur opinberra starfsmanna við aðra umræðu þess á Al- þingi í síðustu viku. Er það ein lengsta umræða sem fram hefur farið um sama málið í sögu þingsins. Við lok umræðunnar fór venju samkvæmt fram atkvæða- greiðsla um að vísa frum- varpinu til þriðju umræðu. Tók atkvæðagreiðslan um tvær klukkustundir þar sem þingmenn tóku hvað eftir annað til máls um einstakar greinar þess þegar þær voru bornar undir atkvæbi sam- kvæmt ákvæbum þingskapa um atkvæbaskýringar. Að lokum var samþykkt að vísa frumvarpinu til þriðju um- ræðu meb atkvæðum þing- manna stjórnarflokkanna gegn atkvæöum þingmanna stjómarandstöbunnar, en stjómarandstæbingar greiddu ýmist atkvæöi gegn einstökum greinum þess eba sátu hjá viö atkvæbagreiðsl- ur. En um hvað snémst þessar maraþonumræður? Þingmenn stjórnarandstöðunnar reifuðu málið frá mörgum hliðum og deildu hart á ýmis ákvæði fmm- varpsins. Harðara var deilt á sum ákvæði þess en önnur, og hér verða dregin fram nokkur þeirra atriða sem urðu tilefni til umfjöllunar og ádeilna. Vil- hjálmur Egilsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar þingsins, var einkum til and- svara úr hópi stjórnarliða ásamt Friðriki Sophussyni fjármálaráð- herra. • „Minni háttar störf" fellt brott í 7. grein fmmvarpsins eru ákvæði um að auglýsa skuli laus embætti í Lögbirtingablaðinu og umsóknarfrestur verði eigi skemmri en tvær vikur frá út- gáfudegi blaðsins. Hart var deilt á að aöeins verði skylt að aug- lýsa störf í Lögbirtingablaðinu, þar sem blaðið komi fyrir augu fárra. Einnig ræddu þingmenn að tveggja vikna umsóknarfrest- ur væri of skammur. í 7. grein var einnig kveðið á um að „minni háttar" skrifstofustörf, ræstingastörf, sendilsstörf eða önnur svipuð störf skyldu vera undan þegin auglýsingum. Orð- in „minni háttar störf" urðu efni mikillar gagnrýni og gengu sumir þingmenn svo langt að segja að í þeim fælist hrein mannfyrirlitning. Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar lagði til þá breytingu við aðra umræðu aö orðin „minni háttar störf" ásamt nánari skilgrein- ingu falli brott og hljóðar frum- varpsgreinin nú þannig að mæla megi svo fyrir að störf, sem ekki krefjist tiltekinnar menntunar samkvæmt náms- samningi, þurfi ekki að auglýsa opinberlega. • Neöanjarbarlauna- kerfi og forstjóravald í 9. grein frumvarpsins er gert ráð fyrir að forstöðumenn opin- berra stofnana geti ákveðið að greiða starfsmönnum viðbótar- laun í samræmi við sérstakt álag eða árangur í starfi og einnig tek- ið slíkar greiðslur af mönnum, standist þeir ekki væntingar og kröfur forstöðumanna. Einnig er lagt til að ráðherra verði heimilt að breyta ákvörðunum um við- bótarlaun, teljist þær brjóta í bága við reglur, og afnema heim- ildir einstakra forstöðumanna til þess að ákvarða starfsmönnum viðbótarlaun, séu rekstrarútgjöld viðkomandi stofnana ekki í sam- ræmi við fjárlög. Stjórnarand- stæðingar staðnæmdust mjög við þessi ákvæði og töldu að með þeim væri verið að veita for- stöðumönnum vald til þess að mismuna starfsfólki að geðþótta og þeir gagnrýndu einnig heim- ildir til þess að afturkalla launa- bætur, ef útgjöld og rekstraraf- koma væri ekki í samræmi við fjárlög. Stjórnarandstæðingar bentu á að slík ákvæði myndu fyrst og fremst koma niður á heilbrigðisstéttunum, þar sem erfiðlega hafi gengið að reka sjúkra- og heilsugæslustofnanir innan þess ramma sem þeim væri ætlað samkvæmt fjárlögum. Stjórnarandstæðingar töldu að með þessu væri ekki einvörð- ungu verið að auka á mismunun, heldur einnig að efla forstjóra- vald og skapa hættu á að neðan- jarðarlaunakerfi næði að mynd- ast. Þeir gagnrýndu einnig að í þessu efni væri vísað til reglna, sem fjármálaráðherra bæri aö setja, en hugmyndir að slíkum reglum lægju ekki fyrir og því ógerningur að átta sig á hvernig þessar hugmyndir yrðu í fram- kvæmd. • Yfirvinnuskylda lögfest í 17. grein fmmvarpsins er gert ráð fyrir að opinberum starfs- mönnum verði skylt að vinna þá "0““" * *-o-V yfirvinnu, sem forstöðumenn telja nauðsynlega, og yfirvinnu- tími megi nema allt að fimmt- ungi af lögmætum vinnutíma. Þá er þeim, er sinna löggæslu og öryggisvörslu, gert að vinna yfir- vinnu að boði yfirmanna án tímatakmarkana. Stjórnarand- stæðingar gagnrýndu þetta ákvæði og töldu að með því að lögfesta yfirvinnuskyldu væri verið að fara áratugi aftur í tím- ann í vinnumarkaðsmálum. • Bann lagt viö öörum störfum Þá gagnrýndu stjórnarand- stæðingar talsvert ákvæði í 20. grein fmmvarpsins þar sem op- inberir starfsmenn em skyldaðir til að skýra hlutaðeigandi yfir- manni frá, hyggist þeir stofna til atvinnurekstrar, ganga í stjórn fyrirtækja eða taka við öðm launuðu starfi. Fmmvarpið gerir ráð fyrir að banna megi opinber- um starfsmönnum slíka starf- semi, fari hún ekki saman við störf þeirra í þjónustu ríkisins, án þess að vera skilgreint nánar. Þetta töldu ýmsir gagnrýnendur frumvarpsins of opið og að um brot á mannréttindum gæti ver- ið að ræða, yrði ákvæðinu beitt til hins ýtrasta. • Lítil gagnrýni á af- nám æviráöningar Samkvæmt 23. grein fmm- varpsins um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna skulu embættismenn verða skipaðir tímabundið til fimm ára í senn, nema annað sé tekiö fram í lög- um, og tilkynna beri embættis- mönnum með minnst þriggja mánaða fyrirvara, eigi að auglýsa starf þeirra að nýju að ráðningar- tíma loknum. Á þetta ákvæði var ekki deilt verulega, þótt það kæmi til umræðu í ræðum þingmanna, enda ljóst að æviráðning embætt- ismanna og annarra opinberra starfsmanna á lítinn hljómgrunn á meðal landsmanna. • Lagaskylda aö reka sjúka Mjög harðar umræður urðu um það ákvæði 30. greinar frum- varpsins að leysa fólk frá störfum vegna veikinda. í frumvarpinu segir að ef embættismaður hefur verið frá störfum vegna sjúk- dóma eða slysa samfellt í eitt ár, eða sem svarar einum áttunda af samfelldum starfstíma hans hjá ríkinu, skuli veita honum lausn vegna heilsubrests. Hjá þessu megi þó komast, veiti læknir vottorð um að verulegar líkur séu á að viðkomandi nái fullri heilsu innan þriggja mánaða. Stjórnarandstæðingar sögðu að með þessu væri verið að gera það að lagaskyldu að víkja manni úr starfi, ef hann ætti við veikindi að stríða til lengri tíma, og væri það nýbreytni er byggðist á gömlum og löngu úreltum hug- myndum. Einnig komu fram þau sjónarmið sumra stjórnar- andstæðinga að með þessu væri enn ein atlagan gerð að sjúkum í þessu þjóðfélagi. • Tilfærsla á milli starfa Stjórnarandstæðingar gagn- rýndu einnig verulega það ákvæði 36. greinar lagafrum- varpsins að stjórnvöld geti flutt starfsmann úr einu embætti í annað. í máli þeirra kom þrá- faldlega fram að slíkt hafi ein- ungis gilt um fáa embættismenn ríkisins, en með þessu væri verið að opna fyrir þann möguleika að flytja starfsmenn til án þess að taka á neinn hátt tillit til per- sónulegra haga þeirra. • Embættismönnum óheimil þátttaka í kjarabaráttu Samkvæmt 40. grein frum- varpsins um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna verður embættismönnum óheimilt að vinna á nokkurn hátt að kjara- málum. í greininni segir að emb- ættismönnum sé óheimilt að efna til, stuðla að eða taka þátt í verkföllum eða öðrum sambæri- legum aðgerðum. í 53. grein sama frumvarps segir að brot á 40. grein varði fésektum, nema mælt sé fýrir um þyngri refsingar í öðrum lögum. Við þessar grein- ar frumvarpsins staðnæmdust stjórnarandstæðingar hvað eftir annað og töldu að um óviðun- andi ákvæði væri að ræða, og í atkvæðaskýringu lét einn þing- manna að því liggja að um mannréttindabrot væri að ræða. • Er veriö aö lokka fólk úr stéttarfélögum? Frumvarpið gerir ráð fyrir í 47. grein að opinberum starfsmönn- um verði ekki mismunað eftir því hvort þeir séu meðlimir stétt- arfélaga eða standi utan þeirra. Um þetta ákvæði létu gagnrýn- endur frumvarpsins að því liggja að með þessu væri verið að lokka fólk úr stéttarfélögum í þeim til- gangi að veikja verkalýðshreyf- inguna og baráttu launafólks fyr- ir kjörum sínum. Þá gangrýndu andstæðingar frumvarpsins einnig það ákvæði harkalega er heimila á lengingu uppsagnar- frests úr þremur mánuðum í sex, leiti svo margir lausnar frá störf- um að til auðnar um starfrækslu viðkomandi vinnustaðar eða stofnunar sé að ræða. Þeir sögðu að með þessu væri verið að jafna uppsögnum saman við verkföll. • Megin réttarfarsregla brotin Stór orð féllu einnig á Alþingi um 49. grein frumvarpsins þar sem segir að ákvörðun stjórn- valda samkvæmt lögum þessum verði ekki skotið til æöri stjórn- valda nema ööruvísi sé mælt fyr- ir í einstökum ákvæðum. Með þessu ákvæði töldu talsmenn stjórnarandstöðunnar að verið væri að brjóta eina meginreglu íslensks réttarfars að skjóta megi úrskurði lægra setts stjórnvalds til æðra stjórnvalds. -PI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.