Tíminn - 29.05.1996, Blaðsíða 7
M»í>yi kg^agwr rniaíi ;1,?£á
WMiÍWU-
Afmœlisár í vœndum hjá LA:
Vefarinn mikli,
Hálsaskógur og
Sigrún Ástrós
Tiin im hm
% iiplK
■
jjj Jg§
í í» V
Mörg afmæli eru í vændum hjá
Leikfélagi Akureyrar á næsta
leikári. Fyrst ber að nefna að
Leikfélagið verður áttrætt þann
19. apríl 1997. Þá verður í janú-
ar 90 ára vígsluafmæli Sam-
komuhússins á Akureyri. Auk
þessa eiga tveir aðalleikarar LA
til margra ára leikafmæli á ár-
inu, en þá veröa þrjátíu ár liðin
frá því að Sunna Borg steig fyrst
á svið í Samkomuhúsinu og Þrá-
inn Karlsson mun fagna 40 ára
leikafmæli.
Sunna mun minnast leikaf-
mælisins meb því að leika einleik-
inn Sigrúnu Astrósu eftir Willy
Russell í leikstjórn Þráins. Ekki er
endanlega ákveðið hvert verður
afmælishlutverk Þráins en hann
mun fara með hlutverk í minnst
þremur uppfærslum á næsta leik-
ári.
Sigrún Ástrós er einleikur um
konu sem gerir djarfa tilraun til
þess ab höndla lífshamingjuna.
Einleikurinn verður fyrsta frum-
sýning ársins og er ákveöin 20.
september.
Skömmu síðar ætlar LA að
gleðja yngstu leikhúsgestina með
Dýrunum í Hálsaskógi eftir Thor-
björn Egner. Frumsýning er áætl-
uð 12. október.
Jólaverkefni leikfélagsins verð-
ur nýlegt verk eftir bandarískan
Bosníumann sem heitir Steve Tes-
ich. Það heitir á frummálinu „On
the Open Road" og var frumsýnt í
Chicago árið 1992. Hugmyndin
er að sýna þetta verk utan Sam-
komuhússins og eru starfsmenn
leikfélagsins að svipast um eftir
Hœstiréttur um inn-
heimtu lánslána:
Lagatúlkun
LÍN staöfest
með dómi
Stjóm Lánasjóðs íslenskra
námsmanna telur ab meb
dómi Hæstaréttar frá 17. maí
sl. hafi verið stabfestur skiln-
ingur stjómar LÍN á þeim end-
urgreiðslureglum sem sjóbur-
inn hefur unnib eftir sl. 17 ár.
Málavextir voru þeir að LÍN
höfðaði mál á hendur einum af
lánþega sínum vegna ágreinings
um endurgreiðslur þegar í hlut
eiga hjón sem hafa fengið
námslán hjá LÍN. Lánþeginn
taldi að endurgreiðslur sínar
ættu að helmingast, þar sem
maki hans hefði einnig fengið
námslán, en ákvæði um slík
helmingaskipti á endurgreiðslu
hafði verið í lögum sem giltu
um LÍN á árunum 1976-1982.
LÍN hélt því hins vegar fram ab
þeir sem hefbu tekið lán á
grundvelli laga sem giltu ábur
eða síðar um sjóbinn hafi ekki
slíkan rétt.
Þessi ágreiningur fór fyrst fyr-
ir Héraðsdóm Reykjavíkur en
viðkomandi lánþegi áfrýjaði
þeim dómi síðan til Hæstarétt-
ar. Þar var lánþeginn dæmur til
að greiða LÍN gjaldfallnar af-
borganir að fullu ásamt dráttar-
vöxtum.
-grh
hentugu sýningarhúsnæði. Leik-
ritið þykir ögrandi, miskunnar-
laust og meinfyndið, en það hefur
að undanförnu verið frumsýnt í
öllum höfuðborgum Norður-
landa nema Reykjavík.
í tilefni af vígsluafmæli Sam-
komuhússins frumsýnir LA og
Leikhúskórinn kabarett sem hefur
fengið yfirskriftina Ástin á sviði
Samkomuhússins. Sýningin verð-
ur ofin saman úr söngvum og
stuttum leiknum atriðum þar sem
saga leikfélagsins verður rifjub
upp í ástarljóðum og lögum.
Sjálft afmælisverkefni Leikfé-
lagsins verbur síban leikgerð Hall-
dórs E. Laxness og Trausta Ólafs-
sonar eftir skáldsögu Halldórs
Laxness Vefarinn mikli frá Kasmír
en svo skemmtilega vill til að 70
ár eru liðin frá útkomu bókarinn-
ar. Af því tilefni hafa Vaka-Helga-
fell og LA ákveðið að efna til rit-
gerðarsamkeppni um þessa nafn-
toguðu bók Nóbelskáldsins þar
sem glæsileg verðlaun verða í
boöi. Það verða þau Marta Nordal
og Þorsteinn Bachman sem fara
með hlutverk Diljár og Steins Ell-
iða í Vefaranum. Frumsýning er
ákveðin 21. mars og sérstök há-
tíðarsýning verður á afmælisdeg-
inum þann 19. apríl.
Ásgeir Nikulásson viröir fyrir sér „listaverk" á álklœddum vegg viö íbúöir aldraöra borgarbúa íReykjavík. Tímamynd: gs
Veggjakrotarar
valda skaða
„Þetta nýjasta „afrek", sem var
málað á vegg héma hefur nábst
af, en engu að síður er veggja-
krotib mikið vandamál víba,
veldur miklum óþægingum og
aukakostnaði.
Það tók okkur talsverðan tíma
ab ná þessum ósóma af veggn-
um," sagði Ásgeir Nikulásson um-
sjónarmaður með þjónustuíbúð-
unum að Lindargötu 59. Þar eru
108 íbúar í 94 íbúðum, 57 leigu-
íbúðir í eigu Reykjavíkurborgar og
37 félagslegar kaupleiguíbúðir
eba kaupleiguíbúðir. Þjónustu-
miðstöðin er í eigu borgarinnar.
Ásgeir sagði að ýmis efni væru
til á markaðnum til að létta vinn-
una við að ná af veggjakrotinu og
yfirleitt tækist það. En í þessu lægi
mikil vinna. Ásgeir sagbi að sam-
borgarinn væri afar lítið vakandi
gagnvart skemmdarvörgum af
þessu tagi.
Veggjakrotarar, menn með
undarlega áráttu, halda út í nótt-
ina vopnaðir spreybrúsum, virð-
ast sumir handlagnir og kannski
verðandi listamenn, — öðrum
virðast mislagðar hendur og eru
vægast sagt slæmir textahöfund-
ar.
-JBP
Launatöflur í dönskum aöalkjarasamningi aö hverfa og verslunarmenn hœttir aö kynna
kröfugerö sína opinberlega. VR:
Samib um launahækkan-
ir á hverjum vinnustab
í dönskum starfsgreinasamn-
ingum í iðnabi er ekki kveðið
á um kauphækkanir í kjara-
samningi heldur skal semja
um þær á hverjum vinnustab
fyrir sig og í aöalkjarasamn-
ingi eru launatöflur að hverfa.
Miðað er við ábatakerfi í einni
eba annari mynd og aðstoöar
vibkomandi verkalýðsfélag
við samningagerð á hverjum
vinnustað, enda opna fyrir-
tæki bókhald sitt til ab auð-
velda uppsetningu á ábata-
skiptakerfi.
Þetta kemur m.a. fram í sam-
antekt Gunnars Páls Pálssonar,
„Undirbúningur kjarasamninga
— samanburður launa", sem
hann vann fyrir Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur og birt
var á fundi í byrjun mánaðarins
með starfsgreinafulltrúum og
trúnaðarmönnum VR á vinnu-
stöbum. En eins og kunnugt er
þá benda kannanir til þess að
laun verslunar- og skrifstofu-
fólks á íslandi séu allt að helm-
ingi lægri en gengur og gerist
meöal starfsfélaga þeirra í Dan-
mörku. Af þeim sökum leggur
VR áherslu á í komandi kjara-
samningum að þessi launamun-
ur verði brúaður á sem
skemmstum tíma, auk þess sem
samningsgeröin verði færð inn
á svið starfsgreina og fyrirtækja.
í samantektinni vekur at-
hygli sú fullyrðing að forystu-
menn danskra verslunarmanna
séu hættir að spyrja félagsmenn
beint um hversu miklum kaup-
hækkunum þeir óski eftir, auk
þess sem þeir em hættir ab stilla
upp kröfugerð með ákveðinni
launahækkun og sömuleiðis
hættir að kynna kröfur sínar op-
inberlega. Þess í stab er einfald-
lega óskað eftir vibræðum um
hækkun launa þar sem stuðst er
við óbeinar viðmiðanir.
Þetta helgast m.a. af því að
reynslan hefur kennt dönskum
verslunarmönnum að forðast að
skapa óraunhæfar væntingar
innan sinna raða, enda leiðir
það einatt til óánægju og ásak-
ana á hendur forustu launafólks
fyrir að hafa ekki staðið sig bet-
ur gagnvart atvinnurekendum.
Meðal annars er bent á að þegar
borin er fram ákveðin krafa um
t.d. 10% launahækkun og 10
sérkröfur verði niðurstaðan
kannski 5% - 6% launahækkun
og 2-4 sérkröfur sem fást sam-
þykktar.
-grh
Guömundur Rafn neyddist til aö hœtta viö forsetaframboöiö:
Vantabi 999 meðmælendur
„Þetta er upphefð sem ég nýt
í hjarta," segir Guðmundur
Rafn Geirdal, nuddari og
skólastjóri, sem varð að
hætta við forsetaframboð
sitt á föstudagskvöldið.
Hann skorti 999 meðmæl-
endur til að fylla flokk fram-
bjóðenda í forsetakjöri, - en
hann er á sinn hátt ánægbur.
Guðmundur Rafn segir að
sér hafi ekki fundist stætt á að
skila inn framboði með ósk
um undanþágu eða frestun,
þar sem hann gæti með því
verið að „tmfla mikilvægari
störf og einkafrið embættis-
manna".
En Guðmundur Rafn lítur á
meira en hálft þúsund með-
Cuömundur Rafn Ceirdal.
mælenda sem allgóðan árang-
ur og heiður að fá svo margar
uppáskriftir. Fyrir þetta væri
hann þakklátur. Hann er líka
sáttur við umfjöllun flestra
fjölmiðla.
Fram kemur í máli Guð-
mundar Rafns að andstaða
hafi verið við framboðið inn-
an fjölskyldu hans, fáir hafi
mætt á kosningafundi hans og
fylgið í skoðanakönnunu.m
allt frá núlli og upp í 2%
„Ég komst semsagt það
langt að leggja inn framboð til
forseta íslands til að staðfesta
að mér væri alvara allt til loka-
dags," segir Guðmundur Rafn
Geirdal.
-JBP