Tíminn - 29.05.1996, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 29. maí 1996
SSNIÍSMt
Miðvikudagip ?9 maí1996
íf}' K
Hvítasunnumót Fáks:
Stóðhestar í fjórum
efstu sætum í A-flokki
Úrslit í barnaflokki: I. Silvía Sigurbjörnsdóttir og Haukur, 2. Vibar Ingólfs-
son og Clabur, 3. jóna M. Ragnarsdóttir og Móbrá. Tímamynd ei
Hryssa frá Víöidal efst
í þessum flokki líka
í 5 vetra hópnum trónir efst
hryssa frá Víðidal í Skagafirði,
eins og í 6 vetra flokknum. Nú
er það hryssan Elding undan
Hervari frá Sauðárkróki og
Rauðku frá Víðidal. Hún er
með 7,89 fyrir byggingu og
8,39 fyrir hæfileika; aðalein-
kunn 8,14. Þær frænkur Elding
og Lukka eru báðar dótturdæt-
ur Toppu frá Víðidal, sem stóð-
hesturinn Vinur 980 er undan.
Hann var seldur til Þýskalands.
Toppa hefur því skilað sínu vel,
þó ættir hennar verði ekki rakt-
ar langt. Bylgja frá Torfunesi í
Köldukinn úr ræktun Baldvins
Kr. Baldvinssonar er jafngóð
hryssa meö 8,06 fyrir byggingu
og 8,12 fyrir hæfileika; aðalein-
kunn 8,09. Hún er undan
Baldri frá Bakka og Kviku frá
Rangá. Þriðja hryssan er Linda
frá Arbakka í Landsveit, undan
Leisti frá Álftageröi og Dala-
Brúnku frá Kolkuósi. Hún hlaut
fyrir byggingu 7,83 og fyrir
hæfileika 7,99; aöaleinkunn
7,91. Næst kemur Filma frá Ár-
bæ, undan Toppi frá Eyjólfs-
stöðum og Bertu frá Vatns-
leysu. Filma er meö 7,71 fyrir
byggingu og 8,01 fyrir hæfi-
leika, sem er mjög góð ein-
kunn, því hún er skeiölaus; að-
aleinkunn 7,86. Fimmta hryss-
an, sem náði markinu inn á
fjórðungsmót, er Björk frá Efra-
Ápavatni, undan Erni frá Efri-
Brú og Hrafnhettu frá Efra-Apa-
vatni. Hún hlaut fyrir byggingu
7,81 og fyrir hæfileika 7,89; að-
aleinkunn 7,85. Hæsta bygg-
ingareinkunn í þessum flokki
hafði Angadóttirin Harpa frá
Dallandi, 8,25. Móðir hennar
er Gróska undan Gnótt frá
Sauðárkróki. { þessum flokki
voru dæmdar 30 hryssur og þar
af 6 aöeins byggingardæmdar.
Orradóttir efst í
4ra v. flokknum
í 4ra vetra flokknum stóö efst
Kyrrð frá Lækjamóti í Víðidal.
Hún er undan Orra frá Þúfu og
Ólgu frá Húnavöllum. Þetta er
hryssa með jafnar einkunnir,
fyrir byggingu 7,92 og fyrir
hæfileika 7,88; aðaleinkunn
7.90.
Önnur var Dögun frá Lauga-
völlum í Reykholtsdal. Hún er
undan Ófeigi frá Flugumýri og
Dögg Hrafnsdóttur frá Dals-
mynni. Dögun fékk fyrir bygg-
ingu 7,92 og fyrir hæfileika
7,71; aöaleinkunn 7,81. Þriðja
hryssan var Hekla frá Hafsteins-
stöðum í Skagafiröi. Hún er
undan Hervari frá Sauðárkróki
og Eldingu frá Hafsteinsstöð-
um. Hekla fékk fyrir byggingu
7,78 og fyrir hæfileika 7,80; að-
aleinkunn 7,79. Ein hryssa til
viðbótar náði lágmarkinu inn á
fjórðungsmótið, en það var
Kolbrún frá Kjarnholtum und-
an Pilti frá Sperðli og Glókollu
frá Kjarnholtum (alsystir Kólfs
frá Kjarnholtum). Kolbrún fékk
fyrir byggingu 7,62 og fyrir
hæfileika 7,91; aðaleinkunn
7,76.
í þessum flokki voru dæmdar
13 hryssur og þar af 4 aöeins
fyrir byggingu. Hæstan bygg-
ingardóm hlaut Snotra frá Dall-
andi í Mosfellsbæ 8,07. Hún er
undan Hirti frá Tjöm og Snotru
Feykisdóttur frá Dýrfinnustöð-
um. Önnur hryssa frá Dallandi,
Gnótt Orradóttir, fékk 8,01
fyrir byggingu. Móðir hennar
er Gróska, dóttir Feykis frá
Hafsteinsstöðum og Gnóttar
frá Sauðárkróki.
Hvítasunnumóti Fáks lauk
með úrslitakeppni á annan í
hvítasunnu. Hestamót Fáks
um hvítasunnu hafa verið
haldin í áratugi. Nú hefur
hins vegar verið ákveðið að
mótið skuli framvegis fara
fram síðustu helgina í maí,
sem reyndar ab þessu sinni
var hvítasunnuhelgin.
Mótið nú var mjög sterkt,
enda var það jafnframt úr-
tökumót fyrir fjórðungsmót
Suðurlands sem haldið verður
í byrjun júlí. í A-flokki vakti
athygli að í fjórum efstu sæt-
unum voru stóðhestar. í röð-
uninni sigraði Óður frá Brún,
knapi Hinrik Bragason. Þessi
sigur var verðskuldaður, hest-
urinn feiknamikill gæðingur.
Annar varð Svartur frá Una-
læk, annar snillingurinn til,
setinn af Þórði Þorgeirssyni,
en í þriðja sæti skaut upp
nýrri stjörnu. Þar var kominn
Hljómur frá Brún, undan
sömu hryssunni og Óður.
Hann náði afburða árangri,
aðeins 5 vetra gamall. Knapi á
Hljóm var Hulda Gústafsdótt-
ir. Fjórði stóðhesturinn var
Geysir frá Dalsmynni, setinn
af Ragnari Hinrikssyni.
í B-flokki sigraði Farsæll frá
Arnarhóli, knapi Ásgeir Svan
Herbertsson. Stóðhestur kom
svo í annað sætið, Logi frá
Skarði, og nú var knapi Orri
Snorrason, því eigandinn Sig-
urbjörn Bárðarson sat Odd frá
Blönduósi í þessari keppni. í
þriðja sæti var Ernir frá Eyrar-
bakka, setinn af Sigurði V.
Matthíassyni.
í öðrum flokkum var líka
hörð keppni og var nú í fyrsta
sinn keppt í ungmennaflokki.
Einnig var keppt í unglinga-
flokki og barnaflokki. Það er
greinilegt að Fákur á ekki að
þurfa að kvíða því á næstu ár-
um að hafa ekki upp á að
bjóða nóg af frambærilegum
knöpum, eins og úrslitin hér á
eftir sína.
Töltkeppnin er alltaf spenn-
andi og núna var spennan
mest milli Hafliða Halldórs-
sonar, sem sat Nælu frá Bakka-
koti, og Vignis Siggeirssonar
sem sat Þyril frá Vatnsleysu.
Á mótinu fór fram verð-
launaafhending vegna kyn-
bótahrossa sem dæmd voru í
Kjalarnesþingi.
Fáksmótið var ekki fjölsótt,
en þó verður að geta þess að
margir höfðu komið og horft
á forkeppnina. Það er hins
vegar íhugunarefni hvers
vegna ekki næst til fleiri
áhorfenda, þar sem um eitt
besta mót landsins er að ræða
og það á sjálfu höfuðborgar-
svæðinu þar sem þúsundir
stunda hestamennsku. ■
Úrslit á Hvítasunnumóti Fáks 1996
A-flokkur
1. Óður 8,59 Knapi: Hinrik Bragason
Eig.: Hinrik Bragason og Hulda Gúst-
afsdóttir
2. Svartur 8,58 Knapi: Þórður Þorgeirs-
son
Eig.: Þórður Þorgeirsson og Oddur
Björnsson
3. Hljómur 8,52 Knapi: Hulda Gústafs-
dóttir
Eig.: Hulda Gústafsdóttir og Hinrik
Bragason
4. Geysir 8,57 Knapi: Ragnar Hinriks-
son
Eig.: Arngrímur Ingimundarson
5. Prins 8,51 Kn./eig.: Viðar Halldórs-
son
6. Gordon 8,61 Kn./eig.: Sigurbjöm
Bárðarson
7. Hannibal8,55 Knapi: Siguröur V.
Matthíasson
Eig.: Guðmundurjóhannsson
8. Dalvar 8,48 Kn./eig.: Daníel Jónsson
B-flokkur
1. Farsæll 8,58 Kn./eig.: Ársæll Svan
Herbertsson
2. Logi 8,56 Eig.: Sigurbjörn Bárðarson
Knapar: Sigurbjörn Bárðarson og Orri
Snorrason
3. Ernir 8,54 Kn./eig.: Siguröur V.
Matthíasson
4. Snillingur 8,69 Kn./eig.: Gunnar Arn-
arson
5. Oddur 8,59 Kn./eig.: Sigurbjörn
Bárðarson
6. Hektör 8,40 Eig.: Gunnar Arnarson
Knapar: Kristbjörg Eyvindsdóttir og
Gunnar Arnarson
7. Birta 8,44 Kn./eig.: Sigurður V.
Matthíasson
8. List 8,51 Eig.: Sigurbjörn Báröarson
Knapar: Sigurbjörn Bárðarson og Sig-
urður V. Matthíasson
Barnaflokkur
1. Sylvía Sigurbjörnsdóttir
á Hauki 8,60 2. Viðar ingólfsson
á Glað 8,59 3. Jóna M. Ragnarsdóttir
á Víði 8,50 4. Anna Þ. Rafnsdóttir
á Boða 8,46 5. Þórdís E. Gunnarsdóttir
á Venna 8,36 6. Unnur B. Vilhjálms-
dóttir
á Svertu 8,34 7. Hrefna M. Ómarsdóttir
á Salvari 8,21 8. Sæþór F. Sæþórsson
á Pjakki 8,23 @.afyr:Unglingaflokkur
1. Davíð Matthíasson
á Prata 8,64 2. Aubur Jónsdóttir
á Kleópötru 8,31 3. Bergþóra Snorra-
dóttir
á Ósk 8,48 4. Árni B. Pálsson
á Hrannari 8,27 5. Erla Sigurþórsdóttir
á Garpi8,36 6. Bjarni G. Nicolaison
á Frosta 8,31 7. Hannes Sigurjónsson
á Vini 8,22 8. Anita M. Aradóttir
á Faxa 8,21 @.afyr:Ungmennaflokkur
1. Kristín H. Sveinbjd.
á Valiant 8,27 2. Davíð Jónsson
á Snældu 8,33 3. Alma Olsen
á Erró 8,31 4. Gunnhildur Sveinbjarn-
ardóttir
á Víkingi 8,23 5. Saga Steinþórsdóttir
á Húna 8,25 6. Gubrún Berndsen
á Galsa 8,20 7. Karl G. Davíðsson
á Tinna 8,11 8. Þórir Ingþórsson
á Þrúöi 8,10
Tölt
1. Hafliði Halldórsson á Nælu
2. Vignir Siggeirssoná Þyrli
3. Sigurbur V. Matthíasson
4. Fríba Steinarsdóttir á Hirti á Kraka
5. Baldvin A. Guðlaugsson á Gullfossi
6. Olil Ambleá Erni
7. Snorri Dal á Greifa
150 metra skeib
1. Sokki 14,84 Kn./eig.: Baldvin A. Guð-
laugsson
2. Lúta 14,86 Eig.: Hugi Kristinsson
Knapi: Þórður Þorgeirsson
3. Súper Stjarni 15,28 Knapi: Daníel
Jónsson
Eig.: Sæþór Fannberg
250 metra skeib
1. Tvistur 22,18 Knapi: Logi Laxdal
Eig.: Sigurbur Matthíasson
2. Svala 23,17 Kn./eig.: Hörður Hákon-
arson
3. Von 23,27 Kn./eig.: Hinrik Bragason
Kerrubrokk, 800 metrar
1. Munkur 2,00,34 Kn./eig.: Jón 1. Krist-
jánsson
2. Kappi 2,03,28 Kn./eig.: Hjalti G.
Unnsteinsson
3. Spóla 2,03,88 Knapi: Richard Svend-
sen
Eig.: Haraldur Haraldsson
350 metra stökk
1. Chaplin 26,82 Knapi: Siguroddur
Pétursson
Eig.: Guðni Kristinsson
2. Elja 28,45 Knapi: Hjalti G. Unn-
steinsson
Eig.: Kristinn Dagur
3. Glúmur 28,98 Knapi: Logi Ólafsson
Eig.: Hjalti G. Unnsteinsson
300 metra brokk
1. Þiðrandi 39,07 Knapi: Þráinn Ragn-
arsson
Eig.: Ásgerður Þráinsdóttir
2. Sturla 49,55 Knapi: Akseljansen
Eig.: Sigríður Jansen
Sjá Frissa fríska mótib bls. 5
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR - HEILDSALA - SMÁSALA
Höfum úrval varahluta og boddýhluta í Land-Rover.
Einnig varahluti í Range-Rover og Mitsubishi
Þekking og reynsla tryggir þjónustuna.
Bændur, bílaverkstæði...
...og aðrir eigendur Land-Rover og
Range-Rover bifreiða, athugið!
í