Tíminn - 04.06.1996, Síða 2

Tíminn - 04.06.1996, Síða 2
2 Þribjudagur 4. júní 1996 Tíminn spyr,.. Á að leyfa veibar á hrossagauk? Amór Þórir Sigfússon fuglafræbingur: Veiðar á hrossagauknum voru leyfðar á íslandi fram til ársins 1913. Stofninn þolir lík- lega veiöar vel, hann er hátt í milljón fuglar að hausti. Þessar veiðar eru stundaðar í flestum nágrannalöndum okkar og þær yrðu aldrei miklar, þar sem erfitt er að veiða hrossa- gaukinn. Það er því alfarið spurning um tilfinningalegt mat hvort leyfa eigi veiðar á hrossagauk eða ekki. Út frá líf- fræðilegu sjónarmiði er ekkert því til fyrirstöðu. Sólmundur Einarsson skotveiðimaður: Erlendis eru leyföar veiðar á þessum fugli og stofninn er stór hérlendis, þannig að það er ekkert því til fyrirstöðu út frá náttúrufræðilegu sjónar- miði og skotveiðimenn hafa leitaö til ráðuneytis til að kanna möguleikana á slíkum veiöum. Mín sannfæring er að leyfa eigi veiðar á þeim stofn- um sem nýtanlegir eru. Ásbjörn Dagbjartsson veiöistjóri: Samkvæmt lögum er hrossa- gaukurinn ekki á skrá yfir þá fugla sem má veiða og ég tel ólíklegt að veiðar verði heimil- aðar á honum, vegna tilfinn- ingaástæðna. Það má vel vera að líffræöilega sé ekkert því til fyrirstööu að veiöa fuglinn, en ég tel mjög ólíklegt að Alþingi og almenningsálitið leggi blessun sína yfir að veiðar á hrossagauk verði leyföar. -BÞ Frumsýning á Galdra-Lofti eftir Jón Asgeirsson þótti takast hiö besta og fékk afburöa móttökur frumsýningargesta. Jón Ásgeirsson skrifaöi eitthvert erfiöasta hlutverk sem tenór hefur fengiö í óperu. Jón Ásgeirsson: Þetta var stórsig- ur fyrir Þorgeir Tímamynd BC Eftir stórsigur á svibi íslensku óperunnar á laugardagskvöldib var Þorgeir J. Andrésson, verk- fræbingur hjá Landsvirkjun, mættur til vinnu sinnar í gær- morgun. Þó var hann strangt til tekib kominn í sumarfrí! Þor- geir vann hug og hjörtu óperu- gesta í hlutverki Galdra-Lofts eftir Jón Ásgeirsson tónskáld. Menn ræddu um stórafrek ab- standenda ópemnnar, og þá ekki síst Þorgeirs sem bar hit- ann og þungann af sýningunni. Sjaldgæft er ab svo mikib sé Iagt á einn söngvara í ópem, kannski setti Þorgeir heimsmet í þessu hlutverki. 2 tíma og 25 mínút- ur á svibinu „Hann Jóhannes lögreglu- þjónn, sem er mikill ópemunn- andi og vel að sér í óperufræð- unum, vildi meina að ef til vill væri Siegfried Wagners lengra hlutverk. En hann ætlaði nú að mæla það til að vera viss," sagði Þorgeir J. Andrésson, óperu- söngvari og verkfræðingur, í gær. Þorgeir er allan tímann á svið- inu, eða 2 tíma og 15 mínútur. Aðeins einu sinni hverfur Galdra-Loftur af sviðinu, í 7 sek- úndur að sagt er, til að sækja særingabókina. „Þetta er rismikil ópera, falleg, mikil saga, dramatík og mikil átök. Það passar okkur mörgum þarna. Sagan er í sjálfu sér ekk- ert séríslensk, gæti þess vegna verið ítölsk — brjálaður maður, sem saekist eftir völdum og þekkingu, og ástfangnar konur. Þetta er alþjóðlegt fyrirbæri. Ég verð að viðurkenna að ég var af- ar ánægður með útkomuna, það væri vanþakklæti að vera það ekki. Þetta gekk allt upp, ekki bara hjá mér, heldur og öllum hinum líka," sagði Þorgeir J. Andrésson í gær. Nú er söguhetjan Loftur, eins Úr Caldra-Lofti. og Jóhann Sigurjónsson skapaði hana, rétt rúmlega tvítugur skólasveinn á Hólum snemma á 18. öld, kuklari sem ætlar sér langt í heiminum með göldr- um. Söngvarinn Þorgeir er hins vegar að nálgast fimmtugt, en engu að síður í stöðugri framför og vann á laugardagskvöldið trúlega sinn sætasta sigur. „Það er rétt, ég er rúmlega tví- tugur, en einsog menn sjá í upp- færslunni er litið framhjá aldr- inum, verkið er óstaðsett í tíma og rúmi, og persónan getur ver- ið miðaldra þess vegna. Þetta at- riði hefur nú ekkert truflað mig, ég er svo ungur í anda," sagði Þorgeir og hló við. Þribja ópera jóns í smíbum Jón Ásgeirsson tónskáld sagði í gær að hann væri vissulega ánægður með útkomuna á Galdra-Lofti. „Maður hlustar alltaf svolítið öðruvísi sjálfur. En þetta var góð sýning og gekk vel. Þorgeir var náttúrlega algjör methafi, eins og þeir segja í íþróttunum, setti íslandsmet. Þetta var stórsigur fyrir Þorgeir, en hin voru afburöa góð og Garðar Cortes leiddi þetta áfram af mikilli ástríðu og ákafa. Þetta er mjög erfitt fyrir tenórinn og afar langt. Eiginlega eigum við engan tenór sem færi svona léttilega í gegnum þetta eins og Þorgeir. Hann er hraustur og sérstakt að vinna með honum," sagði Jón Ásgeirsson í gær. Það tók Jón tvö ár aö semja Galdra- Loft, bæði tónlist og texta. Jón Ásgeirsson vinnur nú að gerð þriðju óperu sinnar í fullri lengd. Það er Möttulssaga, sem er riddarasaga. Sagan gerist við hirð Hákonar gamla konungs í Noregi árið 1262. „Ég er að gera grín að siðgæði riddaramennskunar. Það segir frá afburða fögrum möttli sem allir vilja eiga, en er gæddur þeim eiginleika að sýna með hvaða hætti konur eru ótrúar mönnum sínum. Þetta er skemmtileg saga, skemmtileg sálfræði og hégómleiki manna tekinn fyrir. Sagan er í riddara- sagnaútgáfunni og er næst á eft- ir Tristan og ísold. Þetta er stutt saga, en utan um þetta nota ég Norna-Gests þátt úr Fornaldar- sögum Norðurlanda og læt hann segja sögurnar; tengi svo inn í þetta minni úr Örvar-Odds sögu og fleiri þáttum úr Forn- aldarsögunum. Þetta er norskt efni, gerist þar í landi, en þetta er íslensk bókmenning," sagði Jón Ásgeirsson. -/BP Sagt var... Allir í bjór og brennlvíni „Þab er ekki nema lítil prósenta ung- linga sem fer í fíkniefni... hinir fara allir í bjór og brennivín og þab þarf ab stöbva." Bubbi Morthens í Mogganum. Þribja buffib „Ég held ab þetta sé í þribja skipti frá því ab ég var krakki í skóla sem ég hef lamib frá mér." Björk um Bangkok-barsmíb sína í Mogga. Risaebla í hrauni „Þá var ég þar ein ab labba úti í hrauninu einn daginn þegar keyrir framhjá mér jeppi. Bílstjórinn þekkti mig, bakkabi meb hrabi, fjölskyldu- fabirinn stoppabi og sendi krakkana út. Þau hlupu öll ab mér og potubu í mig. Þab var eins og pabbinn hefbi séb risaeblu og sent krakkana út í hraun til ab skoba hana. Þau horfbu ekki einu sinni í augun á mér eba bubu góban daginn." Aftur Björk í Mogga, sem lýsir hér öm- urlegri lífsreynslu sinni hérlendis eftir ab hún varb stórstjarna. Hafa ekki áhuga á álftirmi „Sumir hafa bent á ab vib ættum heldur ab veiba fugla eins og t.d. álftina. Vib höfum hins vegar engan áhuga á því, enda er hún aubveld veibibráb og stofninn miklu minni en hrossagaukurinn." Sigmar B. Hauksson íTímanum, en skotveibimenn vilja fá ab skjóta hrossa- gauk. Vonbrigbi meb vodkann „Menn héldu ab þarna væri kominn glabningur fyrir sjómannadaginn. Þab var aubvitab tekinn tappi af einni flöskunni, en verstur andskoti ab þetta var svo brimsalt og gjör- samlega ódrekkandi." Þorleifur Gubmundsson, skipstjóri á Jóni Trausta, í DV. Bátsverjar fundu hell- ing af vodka í sjónum, en mjöburinn olli vonbrigbum. Sjómönnum veitir ekki af fríi „Skyldustopp tvisvar á ári í fiskiskipa- flotanum getur varla verib svo alvar- legt ab útgerbin sé ab sligast undan þeim þunga og flokka þab undir mikinn kostnab. Mönnum veitir ekki af ab taka þau frí sem þeir eiga möguleika á." Gubmundur Hallvarbsson um vinnu sjó- manna á sjómannadaginn. DV. Þab vekur athygli í pottinum ab Stöb 2 virbist ætla ab hrifsa frumkvæbib í dekkun á forsetakosningunum og vera meb frambobsfund allra fram- bjóbenda í beinni annab kvöld. Ljóst er ab sjónvarpsmaburinn góbkunni, Stefán ]ón Hafstein, mun þó verba fjarri góbu gamni, en eftir ab fram- bob Péturs Kr. Hafsteins tók Stefán sjálfur þá ákvörbun ab segja sig frá umfjöllun um forsetakosningar, en hann og Elín Hirst áttu ab stýra þeirri umfjöllun fyrir stöbina. Ástæb- an fyrir ákvörbun Stefáns er sú ab hann og Pétur eru bræbrasynir og Stefán passabi sig á því ab segja sig frá þessu verki ábur en nokkrar at- hugasemdir komu fram. Stefán mun verba nýttur til annarra verka á Stöb- inni á meban, en hvaba er ekki enn vitab... • ... pottormur sem þekkir til Stefáns fullyrbir þó ab þab sé algerlega úr lausu lofti gripib ab Stefán jón sé ab fara ab vinna fyrir frænda sinn Pétur á kosningaskrifstofu hans, eins og orbrómur hefur verib uppi um. Eftir því sem næst verbur komist hefur Stefán ekki gefib upp stubning vib neinn enn sem komib er... • Frá því var greint í heita pottinum á dögunum ab Hrafn jökulsson, rit- stjóri Alþýbublabsins, var ekki mebal bobsgesta í forsetaveislunni til heib- urs Mary Robinson, forseta írlands. Hrafn var hins vegar í veislunni sem Mary Robinson hélt á Hótel Borg, og segja menn í pottinum greinilegt ab írski forsetinn hafi greinilega ekki lesib Alþýbublabib í fyrrasumar þeg- ar þab fór hamförum vegna Kína- ferbar forsetans...

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.