Tíminn - 04.06.1996, Qupperneq 2
2
Þribjudagur 4. júní 1996
Tíminn
spyr,..
Á að leyfa veibar á hrossagauk?
Amór Þórir Sigfússon
fuglafræbingur:
Veiðar á hrossagauknum
voru leyfðar á íslandi fram til
ársins 1913. Stofninn þolir lík-
lega veiöar vel, hann er hátt í
milljón fuglar að hausti. Þessar
veiðar eru stundaðar í flestum
nágrannalöndum okkar og
þær yrðu aldrei miklar, þar
sem erfitt er að veiða hrossa-
gaukinn. Það er því alfarið
spurning um tilfinningalegt
mat hvort leyfa eigi veiðar á
hrossagauk eða ekki. Út frá líf-
fræðilegu sjónarmiði er ekkert
því til fyrirstöðu.
Sólmundur Einarsson
skotveiðimaður:
Erlendis eru leyföar veiðar á
þessum fugli og stofninn er
stór hérlendis, þannig að það
er ekkert því til fyrirstöðu út
frá náttúrufræðilegu sjónar-
miði og skotveiðimenn hafa
leitaö til ráðuneytis til að
kanna möguleikana á slíkum
veiöum. Mín sannfæring er að
leyfa eigi veiðar á þeim stofn-
um sem nýtanlegir eru.
Ásbjörn Dagbjartsson
veiöistjóri:
Samkvæmt lögum er hrossa-
gaukurinn ekki á skrá yfir þá
fugla sem má veiða og ég tel
ólíklegt að veiðar verði heimil-
aðar á honum, vegna tilfinn-
ingaástæðna. Það má vel vera
að líffræöilega sé ekkert því til
fyrirstööu að veiöa fuglinn, en
ég tel mjög ólíklegt að Alþingi
og almenningsálitið leggi
blessun sína yfir að veiðar á
hrossagauk verði leyföar.
-BÞ
Frumsýning á Galdra-Lofti eftir Jón Asgeirsson þótti takast hiö besta og
fékk afburöa móttökur frumsýningargesta. Jón Ásgeirsson skrifaöi eitthvert
erfiöasta hlutverk sem tenór hefur fengiö í óperu. Jón Ásgeirsson:
Þetta var stórsig-
ur fyrir Þorgeir
Tímamynd BC
Eftir stórsigur á svibi íslensku
óperunnar á laugardagskvöldib
var Þorgeir J. Andrésson, verk-
fræbingur hjá Landsvirkjun,
mættur til vinnu sinnar í gær-
morgun. Þó var hann strangt til
tekib kominn í sumarfrí! Þor-
geir vann hug og hjörtu óperu-
gesta í hlutverki Galdra-Lofts
eftir Jón Ásgeirsson tónskáld.
Menn ræddu um stórafrek ab-
standenda ópemnnar, og þá
ekki síst Þorgeirs sem bar hit-
ann og þungann af sýningunni.
Sjaldgæft er ab svo mikib sé Iagt
á einn söngvara í ópem,
kannski setti Þorgeir heimsmet
í þessu hlutverki.
2 tíma og 25 mínút-
ur á svibinu
„Hann Jóhannes lögreglu-
þjónn, sem er mikill ópemunn-
andi og vel að sér í óperufræð-
unum, vildi meina að ef til vill
væri Siegfried Wagners lengra
hlutverk. En hann ætlaði nú að
mæla það til að vera viss," sagði
Þorgeir J. Andrésson, óperu-
söngvari og verkfræðingur, í
gær.
Þorgeir er allan tímann á svið-
inu, eða 2 tíma og 15 mínútur.
Aðeins einu sinni hverfur
Galdra-Loftur af sviðinu, í 7 sek-
úndur að sagt er, til að sækja
særingabókina.
„Þetta er rismikil ópera, falleg,
mikil saga, dramatík og mikil
átök. Það passar okkur mörgum
þarna. Sagan er í sjálfu sér ekk-
ert séríslensk, gæti þess vegna
verið ítölsk — brjálaður maður,
sem saekist eftir völdum og
þekkingu, og ástfangnar konur.
Þetta er alþjóðlegt fyrirbæri. Ég
verð að viðurkenna að ég var af-
ar ánægður með útkomuna, það
væri vanþakklæti að vera það
ekki. Þetta gekk allt upp, ekki
bara hjá mér, heldur og öllum
hinum líka," sagði Þorgeir J.
Andrésson í gær.
Nú er söguhetjan Loftur, eins
Úr Caldra-Lofti.
og Jóhann Sigurjónsson skapaði
hana, rétt rúmlega tvítugur
skólasveinn á Hólum snemma á
18. öld, kuklari sem ætlar sér
langt í heiminum með göldr-
um.
Söngvarinn Þorgeir er hins
vegar að nálgast fimmtugt, en
engu að síður í stöðugri framför
og vann á laugardagskvöldið
trúlega sinn sætasta sigur.
„Það er rétt, ég er rúmlega tví-
tugur, en einsog menn sjá í upp-
færslunni er litið framhjá aldr-
inum, verkið er óstaðsett í tíma
og rúmi, og persónan getur ver-
ið miðaldra þess vegna. Þetta at-
riði hefur nú ekkert truflað mig,
ég er svo ungur í anda," sagði
Þorgeir og hló við.
Þribja ópera jóns í
smíbum
Jón Ásgeirsson tónskáld sagði
í gær að hann væri vissulega
ánægður með útkomuna á
Galdra-Lofti. „Maður hlustar
alltaf svolítið öðruvísi sjálfur. En
þetta var góð sýning og gekk
vel. Þorgeir var náttúrlega algjör
methafi, eins og þeir segja í
íþróttunum, setti íslandsmet.
Þetta var stórsigur fyrir Þorgeir,
en hin voru afburöa góð og
Garðar Cortes leiddi þetta áfram
af mikilli ástríðu og ákafa. Þetta
er mjög erfitt fyrir tenórinn og
afar langt. Eiginlega eigum við
engan tenór sem færi svona
léttilega í gegnum þetta eins og
Þorgeir. Hann er hraustur og
sérstakt að vinna með honum,"
sagði Jón Ásgeirsson í gær. Það
tók Jón tvö ár aö semja Galdra-
Loft, bæði tónlist og texta.
Jón Ásgeirsson vinnur nú að
gerð þriðju óperu sinnar í fullri
lengd. Það er Möttulssaga, sem
er riddarasaga. Sagan gerist við
hirð Hákonar gamla konungs í
Noregi árið 1262.
„Ég er að gera grín að siðgæði
riddaramennskunar. Það segir
frá afburða fögrum möttli sem
allir vilja eiga, en er gæddur
þeim eiginleika að sýna með
hvaða hætti konur eru ótrúar
mönnum sínum. Þetta er
skemmtileg saga, skemmtileg
sálfræði og hégómleiki manna
tekinn fyrir. Sagan er í riddara-
sagnaútgáfunni og er næst á eft-
ir Tristan og ísold. Þetta er stutt
saga, en utan um þetta nota ég
Norna-Gests þátt úr Fornaldar-
sögum Norðurlanda og læt
hann segja sögurnar; tengi svo
inn í þetta minni úr Örvar-Odds
sögu og fleiri þáttum úr Forn-
aldarsögunum. Þetta er norskt
efni, gerist þar í landi, en þetta
er íslensk bókmenning," sagði
Jón Ásgeirsson. -/BP
Sagt var...
Allir í bjór og brennlvíni
„Þab er ekki nema lítil prósenta ung-
linga sem fer í fíkniefni... hinir fara
allir í bjór og brennivín og þab þarf
ab stöbva."
Bubbi Morthens í Mogganum.
Þribja buffib
„Ég held ab þetta sé í þribja skipti frá
því ab ég var krakki í skóla sem ég
hef lamib frá mér."
Björk um Bangkok-barsmíb sína í
Mogga.
Risaebla í hrauni
„Þá var ég þar ein ab labba úti í
hrauninu einn daginn þegar keyrir
framhjá mér jeppi. Bílstjórinn þekkti
mig, bakkabi meb hrabi, fjölskyldu-
fabirinn stoppabi og sendi krakkana
út. Þau hlupu öll ab mér og potubu í
mig. Þab var eins og pabbinn hefbi
séb risaeblu og sent krakkana út í
hraun til ab skoba hana. Þau horfbu
ekki einu sinni í augun á mér eba
bubu góban daginn."
Aftur Björk í Mogga, sem lýsir hér öm-
urlegri lífsreynslu sinni hérlendis eftir
ab hún varb stórstjarna.
Hafa ekki áhuga á álftirmi
„Sumir hafa bent á ab vib ættum
heldur ab veiba fugla eins og t.d.
álftina. Vib höfum hins vegar engan
áhuga á því, enda er hún aubveld
veibibráb og stofninn miklu minni en
hrossagaukurinn."
Sigmar B. Hauksson íTímanum, en
skotveibimenn vilja fá ab skjóta hrossa-
gauk.
Vonbrigbi meb vodkann
„Menn héldu ab þarna væri kominn
glabningur fyrir sjómannadaginn.
Þab var aubvitab tekinn tappi af
einni flöskunni, en verstur andskoti
ab þetta var svo brimsalt og gjör-
samlega ódrekkandi."
Þorleifur Gubmundsson, skipstjóri á
Jóni Trausta, í DV. Bátsverjar fundu hell-
ing af vodka í sjónum, en mjöburinn
olli vonbrigbum.
Sjómönnum veitir ekki af fríi
„Skyldustopp tvisvar á ári í fiskiskipa-
flotanum getur varla verib svo alvar-
legt ab útgerbin sé ab sligast undan
þeim þunga og flokka þab undir
mikinn kostnab. Mönnum veitir ekki
af ab taka þau frí sem þeir eiga
möguleika á."
Gubmundur Hallvarbsson um vinnu sjó-
manna á sjómannadaginn. DV.
Þab vekur athygli í pottinum ab Stöb
2 virbist ætla ab hrifsa frumkvæbib í
dekkun á forsetakosningunum og
vera meb frambobsfund allra fram-
bjóbenda í beinni annab kvöld. Ljóst
er ab sjónvarpsmaburinn góbkunni,
Stefán ]ón Hafstein, mun þó verba
fjarri góbu gamni, en eftir ab fram-
bob Péturs Kr. Hafsteins tók Stefán
sjálfur þá ákvörbun ab segja sig frá
umfjöllun um forsetakosningar, en
hann og Elín Hirst áttu ab stýra
þeirri umfjöllun fyrir stöbina. Ástæb-
an fyrir ákvörbun Stefáns er sú ab
hann og Pétur eru bræbrasynir og
Stefán passabi sig á því ab segja sig
frá þessu verki ábur en nokkrar at-
hugasemdir komu fram. Stefán mun
verba nýttur til annarra verka á Stöb-
inni á meban, en hvaba er ekki enn
vitab...
•
... pottormur sem þekkir til Stefáns
fullyrbir þó ab þab sé algerlega úr
lausu lofti gripib ab Stefán jón sé ab
fara ab vinna fyrir frænda sinn Pétur
á kosningaskrifstofu hans, eins og
orbrómur hefur verib uppi um. Eftir
því sem næst verbur komist hefur
Stefán ekki gefib upp stubning vib
neinn enn sem komib er...
•
Frá því var greint í heita pottinum á
dögunum ab Hrafn jökulsson, rit-
stjóri Alþýbublabsins, var ekki mebal
bobsgesta í forsetaveislunni til heib-
urs Mary Robinson, forseta írlands.
Hrafn var hins vegar í veislunni sem
Mary Robinson hélt á Hótel Borg,
og segja menn í pottinum greinilegt
ab írski forsetinn hafi greinilega ekki
lesib Alþýbublabib í fyrrasumar þeg-
ar þab fór hamförum vegna Kína-
ferbar forsetans...