Tíminn - 04.06.1996, Síða 3
3
Þri&judagur 4. júní 1996
Gunnar Bragi Kjartansson: Allt brjálaö aö gera hjá Istravel í gœr:
Yfir 120 með fyrstu ferð
Transavia til Amsterdam
„Já, þa& er búið ab vera brjál-
ab a& gera í dag," svara&i
Gunnar Bragi Kjartansson hjá
Istravel, þegar Tíminn ná&i
loks sambandi. Fyrsta vél
Transavia á vegum Istravel
var væntanleg frá Hollandi kl.
00.50 í nótt, me& íslenskan
flugstjóra, Óskar Sigurðsson,
viö stjómvölinn. Gunnar
Bragi átti ekki von á mörgum
með vélinni hingað í þessari
fyrstu ferö, en yfir 120 manns
fæm hins vegar meö henni út.
Samkvæmt áætlun átti vélin
að fara aftur í loftið kl. 01.40 og
lenda á Schiphol kl. 06.40 í
morgun. „Farþegar, sem vilja
fara lengra en til Amsterdam, ná
þannig í um 220 áætlunarvélar
frá Schiphol og nokkra tugi
leiguvéla að auki," sagði Gunn-
ar Bragi. TGV- hraðlestin komi
síðan inn frá miðjum júlí. Enda
er Schiphol ekki einungis flug-
völlur, heldur járnbrautarstöð
einnig.
En hafa menn hjá Istravel
ekki orðið þess varir að snubb-
ótt endalok Bingóferða fæli far-
þega frá að nota sér nýjungar í
flugi?
„Það hefur vafalítið haft ein-
hver áhrif. En það er auðvitað
allt annað form sem við erum
með. Við fljúgum með því virta
flugfélagi Transavia, sem er 30
ára gamalt flugfélag að megin-
Nýtt og endurbœtt Verkfrœbingatal kom frá Þjób-
sögu í gœr:
Stétt sem hef-
ur sjöfaldast
á halfri öld
Stétt verkfræðinga hefur
stækkað svo um munar á örfá-
um áratugum samhliða örri
þróun í tæknivæðingu þjóðar-
innar. Sjö sinnum fleiri verk-
fræðingar starfa nú en upp úr
rpiðri öldinni. Þetta má greina
á nýju og vönduðu Verkfræð-
ingatali sem Þjóðsaga sendi
frá sér í gær. I þessu fjórða
Verkfræðingatali eru 1.977
æviskrár íslenskra verkfræð-
inga.
í fyrstu útgáfunni, sem kom
út 1956 voru æviskrár 270 verk-
fræðinga. Tíu árum síðar kom
önnur útgáfa með 439 nöfnum
og árið 1981 sú þriðja með ævi-
atriðum 962 verkfræðinga. í
Fyrsta kynning forseta-
frambjóbenda verbur á
Stöb 2 annab kvöld:
Aðeins fyrir
áskrifendur
Stöð 2 ríður á va&ið með
fyrstu almennu kynning-
una á forsetaframbjóð-
endunum fimm annað
kvöld, miðvikudag.
Elín Hirst fréttastjóri mun
stjórna klukkutíma löngum
þætti, sem sendur verður út
í beinni útsendingu, en lok-
aður öðrum en áskrifendum
Stöðvar 2. Mikill áhugi mun
vera á þessu efni, enda ekki
seinna vænna að frambjóð-
endur leiði saman hesta
sína.
Ríkisútvarpið — sjónvarp,
mun hins vegar halda fram-
boðsfund á sunnudags-
kvöldið og mun Kristín Þor-
steinsdóttir fréttamaður
stjórna þeim fundi.
-JBP
nýju Verkfræðingatali eru 1.977
æviágrip, og þau ítarleg.
Verkfræðingatal kemur nú út
í tveim bindum, alls 1.050 blað-
síður, í einni öskju. Verkfræð-
ingafélag íslands hafði frum-
kvæði að útgáfunni og fékk
Þjóðsögu ehf. til að annast
vinnuna. Þjóðsaga gerði samn-
ing við Ættfræöistofu Þorsteins
Jónssonar ehf. um úrvinnslu
gagna og Prentsmiðjuna Odda
um bókargerðina. í ritnefnd
störfuðu Haraldur Ásgeirsson
formaður, Guttormur V. Þor-
mar, Ingi Ú. Magnússon, Krist-
ján Már Sigurjónsson og Páll
Flygenring.
Forseti Islands, Vigdís Finn-
bogadóttir, verkfræðingsdóttir,
er heiðursfélagi í Verkfræðinga-
félagi íslands. Faðir hennar,
Finnbogi Rútur Þorvaldsson, var
fyrsti verkfræðiprófessorinn við
Háskóla íslands og jafnframt
brautryðjandi í félagsmálum
verkfræðinga. Vigdísi var afhent
fyrsta eintakib af Verkfræðinga-
tali við hátíðlega athöfn í húsi
Verkfræðingafélagsins um síð-
ustu helgi.
Upplýsingar í nýja Verkfræð-
ingatalinu eru til muna ítarlegri
en í fyrri útgáfum sem er mjög
til bóta. Á milli upphafsstafa í
ritinu eru birtar myndskreyttar
greinar um ýmislegt úr heimi
verkfræðinnar og úr starfsemi
félagsins. Stuttar greinar en hið
þekkilegasta efni fyrir lærða sem
leika, enda höfundar valin-
kunnir sérfræðingar á hinum
ýmsu sviðum innan verkfræð-
innar, sem er víðfeðm grein.
Geta má þess að útlit og allur
frágangur Verkfræðingatals
hins nýja er til fyrirmyndar.
Þjóðsaga hefur um langt skeið
skartað fallegum og vel út gefn-
um bókum og svo er greinilega
enn.
-JBP
hluta í eigu hins virta hollenska
flugfélags KLM og auk þess með
yngsta flugvélaflota í Evrópu,"
svaraði Gunnar Bragi. Einu flug-
in, sem ákveðiö hafi verið að
fella niður, eru 12. og 19. júní,
en öll önnur yrðu samkvæmt
áætlun. Fyrstu Hollendinganna
er að vænta hingað þann 10.
júní. En skrifstofan í Amster-
dam (TAD) fengi tugi fyrir-
spurna á dag, „auk þess sem það
er verið að hringja í okkur frá
Frakklandi, Belgíu, Englandi og
Kanada meira að segja".
Áformað var að fljúga til loka
september. En Gunnar Bragi
segir nú í athugun að fljúga
einnig næsta vetur. Ákvörðun
um það verði tekin um miðjan
júlí.
Fengu
lögreglu-
fylgd
Þœr eru vœntanlega ekki margar
gœsirnar sem fá heiöursvörb lög-
reglunnar á gönguferbum sínum
en þannig var um gæsafjölskyld-
una sem villtist upp ab Seblabanka
á sunnudaginn. Ekki er vitab hvort
fjármálaáhugi eba almenn ferba-
glebi rak gœsirnar á vit nýrra œv-
intýra en laganna vörbum þótti ör-
uggast ab fylgja þeim aftur til
heimkynnanna vib Reykjavíkur-
tjörn. Alls urbu fimm fuglar þessa
heiburs abnjótandi, hjónakorn af
grágœsastofni og ungar þeirra þrír.
-BÞ
Tímamynd ES
Fyrsta flug Landgrœöslunnar var fariö í gœr. Flugleiöum þakkaö
framlag til viöhalds Páls Sveinssonar:
Dreifingin aöeins
fjóröungur af því sem
var fyrir 20 árum
I gær hóf DC 3 vél Landhelgis-
græðslunnar, Páll Sveinsson,
sig á loft frá Reykjavíkurflug-
velli í fyrsta flug sumarsins.
Alls er áætlað aö dreifa 500-
600 tonnum af áburði og fræi í
ár. Það er nokkru minna magn
en oft áður þar sem starfsaö-
ferðir til uppgræðslu hafa
breyst. Á vissum uppgræðslu-
svæðum á landinu háttar þó
þannig til að ekkert kemur í
staðinn fyrir dreifingu úr lofti
að sögn landgræöslustjóra og
því verður flugvélin væntan-
lega áfram í notkun hjá Land-
græðslunni.
Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri flutti ávarp áður en
flugvél Landhelgisgæslunnar
sem framleidd var árið 1943, hóf
sig til lofts í gær. Hann þakkaði
Flugleiðum sérstaklega þeirra
þátt í að styrkja Landgræðsluna
en Flugleiðir skiptu nýverið end-
urgjaldslaust um hreyfil á vél-
inni og má meta það framlag til
nokkurra milljóna króna að
sögn Sveins. Þá þakkaði hann
öðmm styrktaraðilum sem kost-
Sigurbur Helgason, forstjóri Flugleiba, og Sveinn Runólfsson landgrœbslu-
stjóri fyrir framan Pál Sveinsson á Reykjavíkurflugvelli í gœr.
uðu nýja hreyfilinn en að kaup-
unum standa 24 aðilar.
Aukið samstarf Landgræðsl-
unnar við bændur er eitt af því
sem leyst hefur verkefni Páls
Sveinssonar af hendi. Árin 1975-
1979 var t.d. dreift um fjórum
sinnum meira magni en í sumar
eða um 2000 tonnum. Reykja-
nes, Gunnarsholt, Þorlákshöfn,
Haukadals Auökúlu- og Ey-
vindarstaðarheiði eru meðal
svæða þar sem dreift verður
áburöi úr lofti og er reiknaö með
að verkið taki um fjórar vikur.
-BÞ
I