Tíminn - 04.06.1996, Page 9
Þribjudagur 4. júní 1996
9
PJETUR SICURÐSSON
Islenska landsliöiö lek fyrsta leik sinn / undankeppni HM i knattspymu,
þegar libiö mœtti Makedónum í Laugardalnum. Jafntefli í frekar slökum leik var niburstaban og var þab Arnór Cubjohnsen sem gerbi mark íslands, en á mebfylgjandi mynd er hann í baráttu
vib einn leikmann Makedóníu. íslensku strákarnir í U21 landslibinu stóbu sig hins vegar betur gegn jafnöldrum sínum frá Makedóniu, því þeir sigrubu 2-0. Þab voru þeir Bjarnólfur Lárusson
og Stefán Þórbarson sem gerbu mörk íslands, bæbi úr vítum. Tímamynd ec
Leikmenn enska landsliösins til skammar eftir leik liösins gegn úrvalsliöi Hong Kong og á
heimleiö í flugvél:
Veröa látnir greiða hálfr-
ar milljón króna skemmdir
Þaö er heitt í kolunum hjá
breskum fjölmiðlum og
knattspyrnuáhangendum
þessa dagana í kjölfar þeirra
atburöa sem áttu sér staö eftir
leik enska landsliðsins gegn
úrvalsliði Hong Kong á dög-
unum og á heimleiöinni í
flugi, frá Hong Kong til Lond-
on. Fyllerí leikmanna eftir
leikinn, í 29 ára afmæli Paul
Gascoignes og skrílslæti í
flugvélinni, bæöi undir ör-
yggri stjóm Gazza, þykja liö-
inu og leikmönnum þess til
háborinnar skammar og ríkir
mikil reiöi út í liðið, nú þegar
aöeins er tæp vika þar til
enska landsliðið leikur opn-
unarleik í úrslitakeppni Évr-
ópukeppninnar í knatt-
spyrnu, sem fram fer í Eng-
landi.
Enska knattspyrnusambandið
hefur þegar tilkynnt að þeir
sem tóku þátt í þessum atburð-
um og þeir sem urðu valdir að
skemmdum á innréttingum
flugvélarinnar fái að gjalda
þess. „Þetta er ekki það sem við
óskuðum okkur, nú rétt fyrir
keppnina. Ef við komumst að
því að um alvarleg afbrot var að
ræða, þá verður refsingin í sam-
ræmi við það," sagði talsmaður
enska knattspyrnusambands-
ins.
Flugfélagið, Cathay Pacific
hefur lýst því yfir að skemmdir
á flugvélinni nemi yfir hálfri
milljón íslenskra króna, þar
sem meðal annars voru eyði-
lögð tvö sjónvarpstæki, borð og
margt fleira. Ensku blöðin tóku
hart á þessu máli um helgina
og birtu meðal annars myndir
af knattspyrnuhetjunum, Paul
Gascoigne, Steve McManaman
og fleirum berum að ofan, þar
sem allt var fljótandi í áfengi,
inn á næturklúbbi í Hong
Kong.
Framkvæmdastjóri enska
knattspyrnusambandsins segir
að Terry Venables, landsliðs-
þjálfari, muni láta fara fram
rannsókn á þessum atvikum.
Varðandi þá spurningu, hvort
einhverjum leikmönnum verði
vikið úr liðinu fyrir keppnina,
sagði hann að í versta falli yrði
það gert. „Það gæti skaðað sak-
lausa leikmenn í liðinu, en það
er hins vegar skref sem verður
ekki stigið nema að vandlega
íhuguðu máli."
Bobby Charlton var áhyggju-
fullum yfir þeim skilaboöum,
sem leikmenn eru að senda frá
sér með þessari hegðun.
„Áhangendur liðsins og áhorf-
endur á Euro 96, gætu hugsað
sem svo; Fyrst þeir mega það,
þá hljótum við að mega það."
Paul Gascoigne hefur í kjöl-
far þessara atvika látið sig
hverfa og talar ekki við fjöl-
miöla. Lögfræðingur hans, hef-
ur hins vegar tilkynnt að hann
sé farinn í veiðiferð, þar sem
ekkert áfengi verði haft um
hönd. Þar verði hins vegar æft,
slappað af og veitt.
Leeds selt?
Viðræður eru nú í gangi á milli
hóps fjárfesta og eigenda meiri-
hluta Leeds United um sölu á
félaginu. Það hefur verið haft
eftir fjárfestum að þeir ætli sér
að laga fjárhagsstöðu liðsins, en
það skuldar nú um 10 milljónir
punda. ■
Hollenska landsliöib
Þjálfarinn áfram
Hollenski landsliðsþjálfarinn,
Guus Hiddink, hefur gert
tvpggja ára samning við hol-
lenska knattspyrnusambandið.
Hiddink hefur þjálfað liðið frá
því Dick Advocaat tók við PSV
Eindhoven í janúar 1995.
Áskriftartilboð að HEIMA ER BEZT
• hvert tölublað
Tímaritið HEIMA ER BEZT hefur komið út óslitið síðan árið 1951.
„Blaðinu er ætlað að vera þjóðlegt heimilisrit og vettvangur ritfærra
alþýðumanna, kvenna sem karla, sem eitthvað vilja láta til sín heyra,“
var m.a. sagt um tilgang ritsins í upphafi ferils þess. Það vill byggja
tilveru sína á þjóðlegu efni, segja frá lífsbaráttu fólksins í landinu til
sjávar og sveita, fyrr og nú, hugðarefnum þess og skemmtunum.
HEIMA ER BEZT er kjörið tímarit fyrir alla
þá sem unna þjóðlegum fróðleik og vilja lesa
og fræðast um daglegt líf og hugðarefni
íslensks alþýðufólks, fyrr og nú, eins og það
segir frá því sjálft.
Áskriftarsúni
HEIMA ER BEZT
Þjóðlegt heimilisrit ■