Tíminn - 07.06.1996, Side 1
80. árgangur
Föstudagur 7. júní
* -r
XWREVF/IZ/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
106. tölublað 1996
Ingibjörg Sólrún segir aö
ríki og borg geti ekki flú-
/ö þá áhœttu sem fylgir
rekstri Listahátíöar:
Berlínar-
sinfónían
felld út?
„Þaö er náttúrulega alltof
seint aö setja taumhald á há-
tíöina núna þegar hún er
komin af staö. Taumhaldiö
veröur aö vera á undirbún-
ingstímanum í gegnum full-
trúa borgar og ríkis í fram-
kvæmdastjórninni," sagöi
Ingibjörg Sólrún borgarstjóri
um þá hugmynd sem kom frá
menntamáíaráðuneytinu
nokkrum dögum fyrir setn-
ingu Listahátíöar aö ef halli
veröi á rekstri listahátíðar nú
þá dragist hann frá framlagi
ríkis og borgar til listahátíðar
á næsta ári.
Dregist hef-
ur að undirrita
yfirlýsinguna
og viröist bolt-
inn vera hjá
borginni nú,
því borgar-
stjórinn segist
ósáttur viö
þessa hug- Ingibjörg Sólrún.
mynd eins og
hún liggi fyrir og sömuleiðis
framkvæmdastjórn Listahátíö-
ar. „Auðvitað á aö miöa starf-
semi Listahátíðar viö aö hún sé
rekin án halla en viö slíka starf-
semi eru margir óvissuþættir
umfram aðra venjubundna
starfsemi. Ef fulltrúar ríkis og
borgar í framkvæmdastjórn há-
tíöarinnar vita um þessa áhættu
þá getum við ekki hlaupið frá
henni. Ekki nema viö tökum þá
á málinu og ákveðum aö sleppa
einhverju," sagöi Ingibjörg og
minntist sérstaklega á þann
möguleika aö fella þýsku sin-
fóníuhljómsveitina frá Berlín út
af dagskránni sem sé mjög dýr
liður. Hún sagði aö þaö yrði
áfall fyrir hátíðina en telur aö
ríki og borg muni komast aö
samkomulagi áöur en til þess
komi. LÓA
Þokkaleg marhnútaveiöi
átti leib um höfnina aHólmavík á döqunum en beir félaqar höföu b<
var hjá þeim Arnþóri I. jónssyni t.h. og Daníel F.
í dögunum en þeir félagar höfbu þá veitt tvo marhnúta. í baksýn má sjá Víkurnesib
Gunnarssyni, þegar Ijósmyndari
vib bryggju ífallegri kvöldsólinni.
Tímomynd Stefán Císlason
Embœttismenn og hagsmunaaöilar bera saman bcekur sínar fyrir
embœttismannafund í Osló vegna Smugudeilunnar:
Rætt um 16-18 þús.
tonna þorskkvóta
„Þaö er alltof snemmt aö tala
um efnisatriði. Við höfum veriö
aö þreifa fyrir okkur í þessu og
átt óformleg samtöl. Annaö get
ég ekki sagt á þessu stigi," segir
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráöherra aðspuröur hvort veriö
sé aö ræða um 16-18 þúsund
tonna þorskkvóta Islendinga í
Barentshafi sem ekki eingöngu
yröi veiddur í Smugunni heldur
og einnig innan lögsögu Noregs
og Rússlands.
Ráðherra varöist allra frétta af
hugsanlegum viöræðum embætt-
ismanna um lausn fiskveiöideilu
Flugeftirlitsnefnd uggandi um flugstarfsemi á Ströndum:
Hörmulegt fyrir íbúana
Flugeftirlitsnefnd er þeirrar
skoöunar aö flugleiöin milli
Reykjavíkur og Hólmavíkur
og einnig til Gjögurs kunni
aö vera í hættu, komi ekki til
aukning á farþegum.
„Afleiðing þess yröi hörmu-
leg fyrir íbúa þessa landsvæðis
og myndi geta orsakað ófyrir-
sjáanlega byggðaröskun," segir
í skýrslu Flugeftirlitsnefndar,
en formaður hennar er Birgir
Þorgilsson. „Aö öllum líkind-
um mætti þó stórauka ferða-
mannastrauminn til þessa
landshluta, en það er langtíma
markmið sem ekki næst án þess
aö verja til þess miklum fjár-
munum," segir ennfremur í
skýrslunni.
Nefndin kannaöi í fyrra flug-
rekstur til Hólmavíkur, Gjög-
urs, Sauðárkróks og Siglufjarö-
ar. Hún segir reksturinn erfiöan
fjárhagslega á öllum þessum
flugleiöum, nema helst til
Sauðárkróks.
„Svo viröist sem flugrekend-
ur og umboðsmenn þeirra eyöi
hvorki miklum tíma né fjár-
munum í aö auka flutningana.
Þó mætti ætla að mögulegt
væri að auka áhuga fólks á
hinu svonefnda „Stór- Reykja-
víkursvæði" á feröum til ofan-
greindra staða ef staðið væri aö
kynningu á skipulagðan og
raunsæjan hátt," segir í skýrslu
Flugeftirlitsnefndar.
Þá telur nefndin aö búast
megi við samdrætti í flugi til
fleiri afskekktra staöa á landinu
meö auknu frjálsræöi til rekstr-
ar farþegaflugs þann 1. júlí á
1997. Óskar nefndin eftir
stefnumótun varöandi innan-
landsflugið.
-JBP
Islands, Noregs og Rússlands í
Barentshafinu sem rætt hefur ver-
iö um að halda í Osló um helgina.
Af hálfu stjórnvalda hefur staða
mála og hugsanlegir valkostir í
væntanlegum samningaviöræð-
um verið kynntir fyrir hagsmuna-
aðilum á undanförnum dögum.
En hagsmunaaðilar eins og ráð-
herra verjast allra frétta af því sem
þar hefur farið í milli, enda miklir
hagsmunir í húfi og staða mála
afar viðkvæm.
Þorsteinn sagði hinsvegar ljóst
að ef samningar ættu að nást áður
en flotinn leggur af stað á sumar-
vertíðina norður í Smugu, þá væri
þaö núna. Hann áréttaði það
sjónarmiö að stjórnvöld væru til-
búin aö semja um þessi mál, „ef
viðunandi grundvöllur fengist."
Hann ítrekaði jafnframt þann
vilja stjórnvalda að ræöa ekki op-
inberlega um stærð þess þorsk-
kvóta sem hugsanlega kynni að
vera ásættanlegur af hálfu íslend-
inga. En eins og kunnugt er þá
hafa bæði Norðmenn og Rússar
nefnt töluna 12 þúsund í þessu
sambandi. Það telja hagsmunaað-
ilar vera of lítið miðað við þann
afla sem þar hefur fengist.
-grh
Afrakstur af mikilli um-
fjöllun bandarískra
feröablaöa?
Bandarískum
gestum fjölgab
um þriðjung
Rúmlega 2.700 Bandaríkja-
menn komu hér vib í maí, sem
er þriðjungs (33%) fjölgun m.v.
maí í fyrra. Rúmlega fimmtung-
ur allra erlendra ferðamanna á
þessu ári eru Bandaríkjamenn,
um 11.200 talsins. Það er nærri
fjórbungs fjölgun m.v. sama
tíma í fyrra og um 34% fjölgun
frá fyrstu fimm mánuðum árs-
ins 1994. Bandarískum ferba-
mönnum hefur fjölgað hér
meira en öðrum að undan-
förnu, hvort sem góbri umfjöll-
un bandarískra ferðablaða (sbr.
sjónvarpsfréttir) er þar öbru
fremur ab þakka eða ekki.
Hins vegar virðist mjög hafa
hægt á fjölgun Þjóðverja og Norð-
urlandabúa, a.m.k. framan af ár-
inu. Og færri Bretar komu hingað
á tímabilinu janúar/maí heldur
en fyrir tveim árum.
Um 15.500 erlendir ferðamenn
lögðu hingab leið sína í maí og
alls tæplega 54.000 frá áramót-
um, sem er tæplega 9% fjölgun
milli ára.
Utanferðum íslendinga hefur
fjölgab miklu meira en erlendum
gestum okkar. Um 12.100 komu
heim í maí, 14% fleiri en í maí í
fyrra. Alls komu 53.300 íslend-
ingar til landsins fyrstu fimm
mánuði ársins, sem er 16% fjölg-
un milli ára og 29% fjölgun frá
sama tímabili fyrir tveim árum. ■