Tíminn - 07.06.1996, Page 2

Tíminn - 07.06.1996, Page 2
2 Föstudagur 7. júní 1996 Tíminn spyr... Ertu sammála þeirri skobun Arthurs Morthens að ekki sé vi& hæfi a& háttsettir embætt- ismenn sveitarfélaga gegni jafnframt trúna&arstörfum fyr- ir stjórnmálaflokk innan sama sveitarfélags? Árni Sigfússon, borgarfulltrúi Sjálfstæöisflokks í Reykjavík: Já, ég er sammála þeirri skoð- un. Það er reyndar svo að ef við tölum um háttsetta embættis- menn hjá Reykjavíkurborg, hefur gjarnan gilt sú regla að slíkir aðil- ar sinni ekki trúnaðarstörfum fyr- ir stjórnmálaflokk. Við sjálfstæð- ismenn höfum viljað fylgja þeirri reglu. Við svipaðar aðstæður hafa viðkomandi látið af störfum. Tryggvi Haröarson, bæjarfull- trúi Alþý&uflokks í Hafnarfirði: Þetta er nú kannski engin sér- skoðun Arthurs, en það geta skapast vandræði þótt ég líti ekki þannig á að starfsmenn sveitarfé- laga eigi að missa kjörgengi til sveitarstjórna. Þetta veltur á eðli starfsins, en hættan á hagsmuna- árekstrum er fyrir hendi og því held ég að það sé verra en ella að háttsettir embættismenn séu jafnframt bæjarfulltrúar, þrátt fyrir að réttur þeirra til að taka þátt í stjórnmálum verði varla frá þeim tekinn. Sigríður Stefánsdóttir, bæjar- fulltrúi Alþýöubandaiagsins á Akureyri: Ég hef verið sammála því að það sé ekki eðlilegt að fólk, sem gegnir svokölluðum háum stjórnunarstöðum hjá bæjarfé- lögum, sitji jafnframt í bæjar- stjórn. Þegar við sömdum starfs- mannastefnu fyrir Akureyrarbæ, settum við inn ákveðin skilaboð, t.d. að fólk geti ekki verið í stjórn- um þeirra stofnana sem það gegni sjálft stjórnunarstöðu hjá. Hins vegar finnst mér ekki ósam- rýmanlegt að vera í stjórnunar- stöðu á einu sviði og sitja í nefnd á öðru. Átakiö „Flöggum hreinu landi 17. júní" heldur áfram af krafti um helgina: Tíu þúsund Grænir hirðar flognir út Átak Ungmennafélags ís- lands „Flöggum hreinu landi 17. júní" heldur áfram af fullum krafti um helgina þegar fjölmörg ungmennafé- lög ví&a um land standa fyrir skipulagöri hreinsun. Þegar hafa selst tíu þúsund Grænir hirðar, en svo nefnast taupokar sem seldir em í tengslum við átakið og inni- halda m.a. stóran plastpoka til að tína rusl í. Berghildur Erla Bernharðs- dóttir, verkefnisstjóri átaksins, segir að átakið hafi farið vel af stað um síðustu helgi. Þá var hreinsað á Álftanesi og í Graf- arvogi og var þátttaka sérstak- lega góð á Álftanesinu. Nú hafa 34 önnur félög tilkynnt um þátttöku í átakinu og standa flest þeirra fyrir hreinsunum þær tvær helgar sem eftir eru fram að 17. júní. Berghildur hvetur landsmenn til að taka þátt í hreinsuninni á sínu svæöi. Hún segist reyndar líta svo á að góð sala á Græna hirð- inum bendi til þess að hugur sé í fólki að taka þátt í hreinsun- inni. Berghildur minnir jafn- framt á það takmark að ísland verði eitt hreinasta vestræna landið árið 2000. Þau félög sem hafa tilkynnt um hreinsun á sínu svæði á morgun, laugardag, eru: Ung- mennafélagið íslendingur sem stendur fyrir hreinsun í Andag- ils- og Skorradalshreppi, UFA Drífa með svæðið í kringum Sílabás, Umf. Mýrahrepps í Mýrahreppi í Dýrafirði, Umf. Hrunamanna stendur fyrir hreinsum í Hrunamanna- hreppi, Umf. Neisti sem hyggst hreinsa Katlana við Drangsnes (hreinsun þar hefst reyndar í dag) og Umf. Borgarfjarðar lýk- ur sínu átaki að hreinsun Borg- arfjarðar sem hefur staöið allt frá 1. júní. Á sunnudaginn standa fyrir hreinsun: Umf. Afturelding Reykhólum, Ungmenna- og íþróttafélag Bakkafjarðar sem mun standa fyrir hreinsun á fjörum í Bakkafirði og í þorp- inu og Umf. Þristur sem skipu- leggur hreinsun meðfram Lag- arfljóti. Þess má geta að þegar er byrj- að að leita að verðugum hand- hafa Umhverfisverðlauna Græna hirðisins sem afhent Hundraö ár eru li&in þann 26. júlí næstkomandi sí&an fjórar nunnur úr reglu St. Jósefs- systra stigu frá bor&i skipsins Láru í höfninni í Reykjavík. Þarmeö hófst klausturlíf a& nýju á íslandi eftir 350 ára hlé og þaö þýddi a& kaþólska kirkjan náöi aftur fótfestu á landi. Nunnurnar settust að í verða í september nk. því fé- lagi, fyrirtæki eða sveitarfélagi sem hefur sýnt sérstaklega góð- an árangur í hreinsun landsins. Tilnefningum um verðlauna- hafa ber að skila til Ung- mennafélags Íslands, Fellsmúla 26, Reykjavík. Landakoti þar sem reistur hafði verið spítali fyrir gjafafé sem rit- höfundurinn Nonni, séra Jón Sveinsson, hafði forgöngu um að útvega í Frakklandi. Kaþólsk- ir menn á íslandi munu halda hátíölega upp á aldarafmæliö í sumar. Þá er væntanleg bók um sögu St. Jósefssystra á íslandi, en þær störfuðu og starfa enn á nokkrum stöðum í landinu. ■ -GBK Nunnurnar fjórar sem komu meb Láru fyrir einni öld og settust ab í Landakoti. Mynd: Kaþólska kirkjublabib St. Jósefssystur í eina öld á íslandi: Klausturlíf hófst að nýju eftir 350 ára hlé Sagt var... Tannleysi er umhverfismál „í rauninni er brýnna a& umhverfis- rábherra taki á málinu en heilbrigðis- rábherra. Tannlausir menn eru nefni- lega þannig í andlitinu ab þeirflokk- ast undir umhverfismál. Því er sú fróma ósk borin fram ab munnlegur málflutningur hefjist í þessu máli sem fyrst." Rítar Dagfari um deilu tannlækna og tannsmi&a. Hve lengi? „Tveir góbir kaflar í daufum leik" Fyrirsögn DV um hundslappan lands- leik íslendinga og Kýpur. Hvor leikkafli um sig hlýtur a& hafa veri& mjög stutt- ur. Of greindar Kristín og Cuðný eru alltof greindar konur til ab tala svona um fréttir. í þokkabót er Kristín fyrrverandi blaba- maður og á ab þekkja betur til frétta- mennsku en ætla má af blindri kröfu um fréttaefni." Skrifar Halldór Halldórsson í HP um jafnræ&ismál og fréttaflutning. Dýrt me&al „Bingóferbir læknubu mig af flug- dellunni" Fyrirsögn HP í gær höf& eftir Hilmari Kristjánssyni. Því skal trúa& a& Bingó- fer&amartrö&in hafi lækna& Hilmar af þessum kvilla, en dýr yr&i Hafii&i ailur. Klökkur á kirkjubekkjum „En þab sem gerir mig mest undr- andi á hvernig Ólafur kann vib ab nota gáfurnar, en þær á hann nógar, er ab nú situr þessi mabur, sem hefur margoft lýst yfir trúleysi, klökkur á kirkjubekkjum landsins og sjónvarps- menn eru aubvitab reibubúnir meb myndavélarnar ab mynda þessa hræsni." Nína Björk Árnadóttir í Mogga. Fjölfróbur fræbimabur „Ég hafbi ekki setib lengi í tímum hjá Ólafi þegar mér varð Ijóst ab þar fór ekki abeins afburða kennari og fyrir- lesari heldur einnig víbsýnn og fjöl- fróbur fræbima&ur sem átti afskap- lega gott meb ab mi&la þekkingu sinni til annarra." Sveinn Gubjónsson um sama Ólaf og Nína Björk. í heita pottinum voru menn aö ræ&a auglýsingu Ölgerðar Egils Skalla- grímssonar á nýja dökka bjórnum sem birtist í Morgunbla&inu í gær. Fullyrt er að þeir hjá Ölgerðinni hafi verið lengi að velta fyrir sér hvort fyr- irtækið ætti að fara þessa skrípaláta- leið í auglýsingum. Á endanum munu þeir ekki hafa talið sig hafa aðra valkosti og ákveðið að birta þessa einu auglýsingu, þeir væru að markaðssetja nýjan bjór undir sama nafni og bjór sem reyndist flopp í sölu. Egils dökkur (eldri) seldist sama og ekkert og því var settur á markað- inn Egils dökkur (nýrri) sem er veikari en annar bjór og og því ódýrari og auk þess í stærri dósum. Áfengis- verslunin sagði hins vegar hingað og ekki lengra og þvertók fyrir að selja bjór með nýju nafni - það væri ný vara. Því situr ölgerðin uppi með nýj- an bjór með óseljanlegu nafni. • Einn þeirra sem sóttist eftir því að verða frambjóðandi til Bessastaða var nuddarinn góði, Cu&mundur Rafn Geirdal. Hann skorti 999 með- mælendur. En hann er ekki af baki dottinn heyrðum við fullyrt í heita pottinum í gær. Hann er sagður staðráðinn í að gefa kost á sér í for- setakjöri árið 2000... • Matvælaskólinn mikli í Kópavogi opnar í haust. Þar eiga matreiðslu- menn, þjónar, bakarar og fleiri að læra sína list. Hvíslað er um að erfið- lega gangi með byggingu og inn- réttingu hússins, einkum öflun tækja. Ljóst sé að skólinn geti ekki hafið starfsemi fyrr en seint í haust vegna tækja sem ekki voru pöntuð í tíma...

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.