Tíminn - 07.06.1996, Qupperneq 4

Tíminn - 07.06.1996, Qupperneq 4
4 Föstudagur 7. júní 1996 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson Fréttastjóri: Birgir Gubmundsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 56B1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Jæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmibja hf. Mánabaráskrift 1700 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk. Uppskurður, ekki niðurskurður Hefðbundin umræða um sumarlokanir á sjúkrahúsum er nú hafin í þjóðfélaginu. Að þessu sinni kveður þó við nokkuð breyttan tón í umræðunni vegna nýlegrar skýrslu Ríkisendurskoðunar, þar sem verulega aðrar áherslur komu fram en yfirleitt hafa farið hæst í umræðu undan- genginna ára. En vandi sjúkrahúsanna er engu að síður mikill og al- mennur. Margir hafa komiö fram — einkum úr röðum gagnrýnenda heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnarinnar — og bent á að flatur niðurskurður og almennur sparnaður sé kominn út fyrir öll velsæmismörk. Slíkur sparnaður skili sér ekki, þegar á heildina er litið, vegna þess að hann hljóti að vera ómarkviss og fálmkenndur. Þetta er að verulegu leyti rétt. Það sem þarf í heilbrigðiskerfinu er uppskurður en ekki niðurskurður, það þarf í raun marga uppskurði vítt og breitt um kerfið. Sannleikurinn er sá að þjóðin lifir nú þannig tíma, að auknar fjárveitingar til heilbrigðismála verða ekki eins auðsóttar og þær hafa verið um áratuga- skeið. Það þýðir einfaldlega að mikilvægasta þróunin í heilbrigðiskerfinu mun felast í því að nýta takmarkaða fjármuni á betri og öflugari hátt en gert er í dag. Eftir um- ræðu undanfarinna ára um heilbrigðismál fer þetta að telj- ast til almæltra sanninda, en fram að þessu hafa menn lát- ið þar við sitja, að halda þessum sannindum almæltum. Fáir hafa komið með miklar eða ítarlegar hugmyndir eba tillögur um hvað, hvar, hvernig eða hvenær eigi að takast á við það verk ab skera upp í heilbrigðiskerfinu. Allra síst hafa slíkar tillögur komið fram frá þeim sem hæst hafa gagnrýnt ríkisstjórn og heilbrigðisráðherra, eins og stjórn- arandstöðunni. Heilbrigðisráðherra kynnti frumvarp fyrir hálfum mán- uði um breytingar á heilbrigðisþjónustu á höfuðborgar- svæðinu þar sem hugmyndin var að samþætta og sam- ræma undir einni stjórn, með mun víðtækari hætti en til þessa hefur tíðkast, starfsemi sjúkrahúsanna á höfuðborg- arsvæðinu. Það eru tillögur um uppskurð á kerfinu sem líklegar eru til að straumlínulaga rekstur þess og nýta bet- ur það fjármagn sem fyrir hendi er, án þess þó að draga úr þjónustunni. í þessum tillögum er gert ráð fyrir ab sam- eina öldrunardeildir á einn stað, setja endurhæfingu und- ir einn hatt og koma á fót kjarnahópum sérfræöinga, sem væru ráðnir á einn stað en færu á milli sjúkrahúsanna. Gríðarleg undirbúningsvinna liggur að baki þessum tillög- um og fjöldi aðila heftjir komið að málinu á einstökum stigum þess. Þess vegna hljóta viðbrögð stjórnarandstöð- unnar við því, þegar taka átti það fyrir á síðustu dögum þingsins, að valda nokkrum vonbrigðum. Sá neikvæði tónn, sem strax kom fram hjá talsmönnum stjórnarand- stöðunnar, gefur ekki tilefni til bjartsýni um að uppskurð- ur á kerfinu muni yfirleitt fá góðar viðtökur í þeim her- búbum. Þó er enn von, því málið er komið til nefndar og kemur aftur á dagskrá í haust, auk þess sem meginþungi gagnrýni stjórnarandstöðunnar snerist á endanum um málsmeðferð frekar en efnisatriði. Það er hægt að fallast á að frumvarpið var seint á ferðinni, og heilbrigðisráðherra hefur raunar viðurkennt það. Hins vegar er það líka rétt hjá ráðnerranum að miðað við mikilvægi málsins og þann mikla undirbúning og forvinnu, sem unnin hafði verið, hefði verið leikur einn að afgreiða málið með hraði. Úr því sem komið er, hljóta menn þó að gera ráð fyrir að málið fái vandaða og skjóta afgreiðslu í haust, enda löngu kominn tími til að uppskurðartillögur leysi af hólmi niðurskurðar- tillögur. Ab tala eða mala Þegar Garri var ungur dáðist hann að þeim mönnum, sem gátu staðið í ræðustóli klukkutímum saman og látið dæluna ganga stanslaust og alveg blaðalaust. Hann gat ómögu- lega skilið hvernig þeir fóru að þessu. í dag skilur hann ekki ennþá hvernig þeir fara að þessu. Hann skilur ekki heldur hvernig menn nenna þessu og það er fráleitt að hann dáist að þessum hæfileika. Nú dáist Garri mun meira að mönnum sem geta sagt mikið í fá- um orðum en þeim sem tala óra- lengi án þess að segja neitt sérstakt. Alþingi íslendinga er stundum skrýtin samkoma. Þar koma saman þjóðkjörnir einstaklingar til að vinna að og varðveita lýðræði þjóðarinnar, ásamt því að útdeila peningum og reyna að draga úr kostnaði hins opinbera. En lýð- ræðislegt skal það vera og meirihluti ræður ákvörðunum. Þannig virkar lýðræðið yfirleitt, en þó ekki alltaf. Það eru nefnilega sumir sem ekki eru tilbúnir að viðurkenna tap, hvað sem leikregl- urnar segja. Mismunandi hlutverk Tilfellið er að það er margt líkt með Alþingi ís- lendinga og leikhúsi. Menn stíga inn á nokkurs- konar leiksvið þegar þeir setjast í sæti þingmanns- ins og leika mismunandi hlutverk eftir því hvern- ig vindurinn blæs og málin þró- ast. Sumir eru meiri leikarar en aðrir, eins og gengur, og fara létt með að bregða sér í ólík hlutverk. En sumir eru líka ósköp litlir leik- arar. Af og til kemur það fyrir að einstakir þingmenn festast í ákveðnum hlutverkum og kom- ast ekki úr þeim. Senuþjófurinn Senuþjófur vikunnar á Alþingi er án efa Hjörleifur Guttormsson, en hann hélt landsstjórninni allri í herkví í röskar fjórar stundir daginn sem til stób ab slíta Al- þingi. Betri tíma gat hann ekki valiö til að fá menn til að hlusta á sig, en spyrja má hvort svo marg- ir hafi í raun og veru hlustað þeg- ar þingmaðurinn var búinn ab tala í nokkur „hjörl", en þab hugtak gefur ákvebna vísbendingu um hvaða hlutverki við- komandi þingmaður hefur fest í. Þegar fréttamaður Ríkisútvarpsins benti Hjör- leifi á að hann heföi á sínum tíma viljaö stöðva málþóf Inga Björns Albertssonar í öðru máli, þá sagbist þingmaðurinn ekki sjá samhengið. Enda er ekkert hugtak tengt við Inga Björn og hann er bara fastur í heildsalahlutverkinu. Þar að auki verður fólk að gera sér grein fyrir því að það er stór munur á því að tala og mala — í hálfan vinnudag. Garri GARRI „Aö ljúka þingstörfum" Þingstörfum lauk á miðvikudags- kvöldib og ef ab líkum lætur liggja þingfundir niðri næstu mánuð- ina, eða til fyrsta október. Á fimmtudagsmorguninn hlust- aði ég á pistil Illuga Jökulssonar þegar ég var að búa mig til vinnu, þar sem hann fjallaði um þá leið- inlegu framhaldssögu fjölmiðla um hvenær þingstörfum lyki. Vissulega er sú framhaldssaga fast- ur liður í umfjöllun fjölmiðla og bætist við aðra fasta liði í umfjöll- un þjóðarsálarinnar og ýmissa pistlahöfunda, en það er hvers vegna Alþingi sé frestað og það sé skylda þess að vera að störfum meðan nokkurt mál er óafgreitt. Þingið sé færiband fyrir framkvæmdavaldið og svo fram- vegis. Breytt skipan Alþingis Síðan Alþingi var breytt í eina málstofu hafa orðið miklar breytingar á starfi þess. Allar þingnefndir hafa umboð allt árið, og hægt er að kalla Alþingi saman með mjög litlum fyrirvara. Formenn þingnefnda geta kallað nefndirnar saman hvenær sem er, þyki ástæða til að fjalla um einhver málefni á þeim vett- vangi. Hins vegar er skipan mála sú að mál, sem er ekki afgreitt á Alþingi fyrir þing- frestun, þarf að flytja aftur þegar komið er saman að hausti og þá þarf það að fara í gegnum þrjár umræður á ný. Hin hefðbundna vinna þingnefnda með ákvebin frurpvörp eða þingsályktunartillögur liggur því niðri yfir sumarmánuðina. Hins vegar er þorri þingmála sendur til umsagnar ýmissa aðila í þjóbfélaginu og þær umsagnir liggja oft fyrir og spara vinnu þegar hið sama mál er tekið fyrir á nýju þingi. Breyttir tímar Greinarhöfundur hefur setið á Alþingi í einn ára- tug og á þeim tíma hafa orðið afar miklar breytingar á þingstörfum. Alþingi hefur fjölmennara starfsliði á að skipa til þess að aðstoða vib úrvinnslu mála, og Alþingi sem stofnun hefur sjálft yfir að ráða meiri sérfræðiþekkingu en áður var. Þingið hefur orðið óháðara ríkisstjórn, framkvæmdavaldinu í landinu, að þessu leyti. Hins vegar starfar ríkisstjórn í skjóli þingmeirihluta og milli Alþingis og ríkisstjórnar á hverjum tíma hljóta að vera afar sterk bönd við nú- verandi skipulag, þar sem ráðherrarnir eru þar að auki þingmenn með fullan atkvæðisrétt. Ríkisstjórn og sá þingmeirihluti, sem hún hefur ab baki, leitast aubvitað við ab koma fram sínum málum. Fyrir því er gróin hefb hér á landi og er sama hverjir hafa set- ib í ríkisstjórn. Þessi hefð er stundum túlkub þannig í hita leiksins að Alþingi sé afgreiðslustofnun fyrir ríkisstjóm á hverjum tíma. Sjálfstæb vinnubrögb Aðstaða alþingismanna til þess að vinna að mála- tilbúnaði hefur batnað, en nauösyn ber til þess ab hún sé góð. Þab hafa mörg athyglisverö þingmanna- mál komið fram í vetur, ekki síst frá hinum fjöl- mörgu sem nú sitja sitt fyrsta þing í fullri lengd og vinna ab því ab koma sínum hugmyndum í form þingmála. Það er nauðsynlegt ab þingið sé fullmekt- ugt til þess að hafa sjálfstæðan málatilbúnað í flókn- um málum. Eins og áður segir, hefur hún batnað. Þinghléð, sem nú stendur í tæplega fjóra mánuði, er meðal annars notað af þingmönnum til þess ab viða að sér upplýsingum og vinna ab undirbúningi mála, auk vinnu í kjördæmum sem til- heyrir starfi þingmannsins. Hins vegar hafa engir tveir alþingis- menn sama verkahringinn, það fer eftir þeim skyldum sem á hvern og einn em lagðar, og eftir þeim málaflokkum sem hver um sig einbeit- ir sér að. Söguleg stund Lok þingsins vom hátíðlegri nú heldur en verið hefur, vegna þess að forseti íslands sleit því og ávarp- aði þingheim í lokin. Ábur höfðu Ólafur G. Einars- son, forseti þingsins, og fulltrúi stjórnarandstöðunn- ar, Svavar Gestsson, flutt ágæt ávörp þar sem þeir veltu fyrir sér tímabæmm spurningum um þing- störfin yfirleitt. Ég finn greinilega fyrir því að þab er almenn samstaða og samkomulagsvilji um að bæta vinnubrögð. Aðalatriðið er að sú lagasetning, sem þar er afgreidd, sé vönduð og öllum sjónarmiðum sé komið til skila. Vigdís Finnbogadóttir ávarpaði nú þingib í síðasta sinn. Ég sé eftir henni úr þessu embætti. Hún hefur gegnt skyldum sínum við Alþingi öll þau ár sem ég hef setið þar, og nærvera hennar við ýmis tækifæri hefur gætt stundirnar hátíðleika og hafið þær yfir hin hversdagslegu átök. Vegna þessarar reynslu minnar hef ég ákveðnar skoðanir um mikilvægi þess að forsetinn sé sameiningartákn fyrir þjóbina. Nærvera hennar á miðvikudagskvöldið gerbi stundina sögulega, og við þessi þáttaskil vil ég þakka fyrir mig. Jón Kr. Á víbavangi

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.