Tíminn - 25.06.1996, Page 2

Tíminn - 25.06.1996, Page 2
2 Þribjudagur 25. júní 1996 Tíminn spyr... Á aö hækka framlög íslands til þróunarabstoöar? (0,11% af vergri þjóöarframleiðslu síö- ustu árin sem er mun lægra framlag en hjá hinum Noröur- landaþjóðunum) Svanfríöur Jónasdóttir, alþingis- maöur Þjóövaka: Já, ég er á þeirri skoöun og hef lengi verið enda eru þessi mál á stefnuskrá Þjóövaka. Ástæðan fyrir því aö fram- lagið er jafn lágt og raun ber vitni er sennilega fyrst £g fremst sú að við ís- lendingar erum svo upptekin af okkur sjálfum. Við erum ung þjóð og berum enn ákveðin unglingseinkenni en það væri okkur afskaplega hollt að láta ör- lítið á móti okkur til aö geta lagt meira fram til þeirra ríkja sem þarfnast frek- ar fjármuna en við gerum. Hjörleifur Guttormsson, alþingis- maður Aiþýðubandalags: Já, tvímælaust verðum við aö gera á þessu mikla bragarbót, það hefur lengi verið til skammar hve lítið íslendingar hafa lagt fram til þessara mála. Alþingi hefur lýst yfir þeim vilja sínum að framlagið nálgist þaö sem hin Norður- löndin eru að gefa, hefur verið rætt um 0,7%-l% af þjóðarframleiðslu í því efni. Þetta framlag lyftist smávegis í tíð þeirrar ríkisstjórnar sem sat '88- 91 en ekkert iiefur þokast síðan. Um er einfaldlega að kenna viljaleysi framkvæmdavaldsins, það vantar ein- beitni af hálfu ríkisstjórna síöustu ára til aö taka sér tak. Þetta er stór blettur á okkur íslendingum og búinn að vera lengi. Björn Dagbjartsson, formaður Þró- unarsamvinnustofnunar íslands: íslensk stjórnvöld hafa margsinnis sagt að þau ætli sér að hækka þessi framlög en ekki staöið við orö sín. Þessi mái em okkur til ákveðinnar minnkunar og þaö væri eðlilegt aö vera a.m.k. í miðjum flokki þeirra Evr- ópulanda sem viö berum okkur dags daglega við. Annað mál er að opinber þróunaraðstoð Norðurlandanna fer að töluveröu leyti í gegnum Hjálpar- stofnanir líkt og Rauða krossinn og það væri æskilegt að svo yrði einnig hér. Til þess að það geti orðið þarf að auka framlagið. - BÞ Majorkahiti í Mjóafiröi: Sprettan góö en sáralítil grásleppa Sigfús Vilhjálmsson ásamt tengdasyni sínum Páli Svavarssyni á leiö á grá- sleppu. 29. Mjófiröingurinn er nýlega kominn í heiminn og lifa flestir grannar hans af trillu- útgerö, sauðfjárrækt og smá- þjónustu. Þegar Tíminn hafbi samband viö Sigfús Vilhjálms- son, útvegsbónda á Brekku í Mjóafirbi, var gott hljóbib í honum enda yfir 20 stiga hiti í firbinum, sprettan gób og feröamenn farnir ab tínast niöur í fjörbinn. Hann átti þó ekki von á aö slátturinn hæf- ist fyrr en upp úr næstu mán- aöamótum, „sem kallast nú bara ágætt." Abspurður um hvort slátturinn hæfist yfir- leitt um 6 vikum síöar en á Suðurlandi hló hann og sagö- ist halda ab þeir Sunnlending- ar sem byrjuöu mjög snemma í ár hefbu haft lítib upp úr krafsinu. „Þab er auðvitað allt- af f gaman ab geta sagst hafa byrjab snemma en þeir eru misjafnlega harbir í ab grobba sig af þessu á Suöurlandi." „Annars er þetta orðið svo fátt fé sem við erum með að við höf- um ekkert með það að gera að slá tvisvar. Svo er heyskapar- tæknin orðin allt öðru vísi. Nú er þetta bara rúllað og sett í plast og slátturinn klárast á ör- fáum dögum ef það er bara þurrt veður. Það er ekkert orðið gaman að þessu, ekkert stress eða neitt. Annars líst mér bara vel á þetta. Maöur er alltaf afar bjartsýnn svona fyrri part sum- ars." Eins og fleiri Mjófiröingar er Sigfús með sauöfé og gerir út á trillu. Hann segir grásleppuafl- ann hafa verið sáralítinn að þessu sinni og náði sjálfur ekki nema um tveimur tunnum. „Bæöi er að ég hafði nú ekki mikið af netum og svo var veið- in bara léleg. Ég var með smá þorskkvóta líka. Þorskurinn veiddist samt ekki meira en sæmilega en það var nú lítill vandi að veiða kvótann því hann er ekki nema tæplega fimmtán tonn á heilu ári. Það mætti nú vera léleg veiði ef það tækist ekki. Ég byrjaði aðeins á þorskveiðinni í nóvember í fyrra og svo kláruðum við þetta á útmánuðum og endanlega í maí." Sigfús saltar svo þorskinn og sendir áfram til SÍF. „En sauðburðurinn gekk vel, bæði lambahald og frjósemi var í fínu lagi. Það er löngu búið að sleppa fénu, byrjuðum á því upp úr 20. maí. Hér er svo rúmt í haga og grær snemma svona niður við sjóinn í blíðunni," en Sigfús sagöi þetta ekki óvana- lega snemma. „Að vísu var eng- inn snjór í vetur en það var frek- ar kalt í vor. Það greri nú samt furðanlega." Sigfús segir varla hægt að segja að snjór hafi sest að í vet- ur. „Við komumst yfir þessa Mjóafjarðarheiði og upp í Égils- staði í mestallan vetur. Ég held það hafi ekki verið nema einn þriggja vikna kafli þegar það var alveg ófært. Venjan er aö vegur- inn lokist svona í desember og opnist þá ekkert fyrr en í maí jafnvel ekki fyrr en um mánaöa- mótin júní." Að lokum sagði Sigfús kvóta- kerfið sæi til þess að menn yrðu að vera tvöfaldir í útgerðinni, þ.e. á sjó og landi, ef dæmið á að ganga upp. Aðspurður um hvort kvótinn hrykki til benti Sigfús á að ekki hefði hann drepið þau enn. „Jú, jú, þetta gengur ágæt- lega ef menn hafa bara gaman af þessu." -LÓA Sagt var... Stórborgarmenningin „Skilinn eftir rotabur á götunni — ranka&i fyrst vib sér fimm tímum síb- ar" Abalfyrirsögn DV segir frá fimm ára dreng, sem fannst liggjandi mebvit- undarlaus á götu í Reykjavík. Talib er ab ekib hafi verib á hann og bílstjórinn stungib af. Vín eba ekki vín, þab er málib „Þab verbur ab viburkennast ab þessi kosningabarátta hefur verib heldur dauf. Ef jón Steinar hefbi ekki reddab smáglebskap um hríb hefbi þetta beinlínis verib leibinlegt. Þab er libin tíb. Landsmenn hafa loksins fengib í kosningabaráttuna þab sem þá dreymdi um, deilur um brennivíns- geymslu og vínveitingar í bobum fína fólksins." Dagfari DV glebst yfir því a& hafa loks fundib ágreiningsefni forsetaframbjób- endanna sem er þess vir&i a& kjósa um þa&. Á a& opna vínkjallarann eba loka honum? Svefnvana þjób „Ég held ab þjóbin sé ab hlusta meira og meira. Sumir sofa svo vært ab þab tekur nokkurn tíma ab vekja þá. Abrir eru alltaf ab ýta á takkann og vilja sofa abeins lengur. Þab er bara tímaspursmál hvenær ég verb búinn ab vekja upp alla þjóbina." Ástþór Magnússon, öflugasta vekjara- klukka landsins, um sjálfan sig í DV. Listin ab deyja „Sá sem ab sýningunni stendur segir hana dæmi um einstakan heimildar- expressjónisma, en þab sem vib sýn- ingargestum blasir er mabur sem er ab deyja úr alnæmi og situr nakinn í sófa. Gestir eru hvattir til a& snerta hann.... Auk mannsins f sófanum hefur verib komib fyrir sýnishornum af sýktu bló&i víbs vegar í sýningar- salnum." Lýslng á listsýningu í Tate- galleríinu í London sem finna má í Sunnu- dagsmogganum. Áfram stelpur! „Þab væri ágætt ef stelpur hef&u líka áhuga á tölvum." Segir Helgi Bjarnason, 13 ára nemandi í Árbæjarskóla og tölvuséní. Innilegt samband „Mér fannst myndast ákvebin tengsl þarna inni, á milli Bjarkar og okkar úti á gólfinu; þetta voru mjög per- sónulegir og innilegir tónleikar hjá henni. Ma&ur fann fyrir stoltinu yfir því ab vib skulum eiga hana." Segir tónleikagestur á tónleikum Bjark- ar í Sunnudagsmogganum. Skyldi Björk vera sammála því a& vi& eigum hana? Talib er víst a& málefni biskups íslands, herra Ólafs Skúlasonar, muni skyggja á allt á prestastefnu sem hefst í dag. Prestar munu margir krefjast þess ab biskup láti af störfum um næstu áramót og fari á eftirlaun, eins og hann á rétt á ... • Alþjóbaminningarsjóbur Gandhis hefur fengib augastab á Öskjuhlí&inni til ab setja upp styttu af gamla Gandhi. Félög- um í heita pottinum þykir þetta þjóbráb og stungib var upp á ab einnig yrbu sett- ar upp styttur af Ástþóri, handahafa heimsfribarins, og Clinton Bandaríkjafor- seta en þeir tveir eru lagbir ab jöfnu af sjóbnum og heibrabir sérstaklega í sömu spyrbu. Ef svo fer ab Ástþór Magnússon nái ekki kjöri í forsetakosningunum, stakk karlinn í raubu sundskýlunni upp á ab herópinu verbi breitt í „Virkjum Öskju- hlíbina." • Þab kvisabist um alla heitu pottana um hélgina ab Ólafur Ragnar sé þegar farinn ab rába sér abstobarmenn þegar hann tekur vib forsetaembættinu. Hann hyggst brjóta þá hefb sem höfb hefur verib í heibri frá stofnun lýbveldisins, ab forseta- ritari komi úr utanríkisrábuneytinu. Sigur- vegari skobanakannanna telur ab þar eigi hann sér ekki nægilega trygga abdáend- ur og mun því velja forsetaritara af öbr- um vettvangi. Einar Karl er talinn líkleg- ur eftir ab hann var rekinn sem fram- kvæmdastjóri Alþýbubandalagsins. En Ól- afur Ragnar er klókur og er nú ab leita ab konu í embættib. En einkaritarinn má vera karlkyns, svo ekki er öll nótt úti enn fyrir trygga fylgismenn ab fá embætti vib forsetaembættib.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.