Tíminn - 25.06.1996, Side 6

Tíminn - 25.06.1996, Side 6
6 Þribjudagur 25. júní 1996 TIIVIINN KYNNIR FORSETAFRAMBJOÐENDUR 1996 Astþór Magnússon, 43 ára, er „dularfulli maöurinn" í forsetakjörinu 1996 og hefur veriö líkt viö geimveru. Ástþór eignaöist umtalsvert fé í viöskiptum erlendis og vill nota þaö í þágu framboös síns og friöar í heiminum. Ástþór í viötali viö Tímann: Astþór Magnússon — forsetaframbjóbandinn sem býbur Kerfinu byrginn. Ástþór hefur vakib athygli í umrœbum forsetaframbjóbendanna fyrir „öbruvísi" málflutning. / Eg er upp á móti kerfinu Menn eru ab spyrja mig hvort ég sé geimvera. Ég sagbi nú í vibtali vib þá á Bylgjunni ab alltjent væri ég ekki grænn. Svo kom ég nibur á skrifstofu og sá þennan bæk- ling héma, þar er ég reyndar grænn. Kannski ab þeir hafi verib ab kanna hvemig ég kem út á peningasebli," sagbi Astþór Magnússon forseta- frambjóbandi í upphafi vib- tals vib Tímann, og hló vib. Hann kannast vib ab vera „dularfulli maburinn" í fram- bobinu. Maburinn sem kemur erlendis frá meb mikib fé, sem hann eybir í kosninga- baráttu. Meb nærri 5% atkvæba í könnunum fullyrbir hann: „Ég er búinn ab vinna þessar kosn- ingar." Þessi fullyrbing krefst skýrs svars. „Svariö vib þessu var í ávarpi mínu í Tímanum á laugardag- inn var. Mér hefur tekist ab koma af stab umræöunni um frib, umhverfismál og mann- réttindi í kosningabaráttunni. Flestir frambjóbendur hafa núna gert þessi mál ab sínum og er þab vel. Meginástæöan fyrir því aö ég bauö mig fram var einmitt þessi. Ekki sú ab ég vildi komast í freyöibabiö á Bessastööum til ab hugsa máliö þar," segir Ástþór. „Ég stilli þessari kosningabaráttu þannig upp aö þab séu bara tveir í framboöi: ég og svo kerfib og kolkrabbinn á móti mér," segir Ástþór. Hann segir ab kolkrabb- ar séu steiktir á Spáni og þyki lostæti. Hér éti kolkrabbinn fólkib. Af efnuðu fólki kominn Frambjóbandinn Ástþór er fæddur og uppalinn í Reykja- vík, nánar til tekiö í Klepps- holtinu. Hann er sonur Magn- úsar K. Jónssonar bygginga- meistara og Unnar H. Lárus- dóttur. Fjölskyldan bjó vib góban hag, frekar vel efnab fólk. Systkinin vom fimm: tvö upp- komin, bróbir og systir, þegar Ástþór fæddist; síöar bættust vib tvær dætur og einn sonur, Ástþór, og er hann elstur. Þegar viö komum er Ástþór ekki á skrifstofu Fribar 2000, sem er til húsa sex hæöum ofar götunni hans Tómasar Austur- strætisskálds, meb glæsilegu út- sýni yfir götuna aö sunnan- veröu og gömlu höfnina í Reykjavík aö noröan. Þarna byggöu á sínum tíma félagarnir Silli og Valdi. Ástþór birtist í lyftudyrunum eftir andartaks- stund, unglegur mabur af for- setaframbjóöanda ab vera. Hann býbur til skrifstofu sinnar í fölgrænt hægindi úr leöri. Á skrifboröi hans er mikiö fjör, samansafn af pappírum og skjölum, tvær tölvur í gangi. Ástþór er friöarmaöur. Hann kemur hvergi fram þessa dag- ana án þess ab viöra hugmynd- ir sínar um friö og stórt hlut- verk íslendinga í friöarferlinu. Hann vill ab íbúar heimsins fái braub en ekki vopn. Ljósmyndaástríða Ástþórs Kornungur lababist Ástþór aö fjölmiölun, tók myndir fyrir dagblaöib Vísi, fyrst árekstrar- mynd skammt frá sumarbústaö fjölskyldunnar, þá um ferming- araldur. Síban komu fleiri myndir og smám saman betri og Ástþór gerbist kornungur sum- arafleysingaljósmyndari blabsins og þótti efnilegur. Skólaganga Astþórs hér á landi varb ekki mikil, enda þótt hann ætti býsna gott meö ab læra. Hann lauk landsprófi og hélt síöan í Verslunarskólann. Sá skóli átti ekki vib hann og fljót- lega útskrifabi hann sig sjálfur frá þeim forna skóla, enda var hann þegar tekinn til vib eigin blabaútgáfu. Þess í stab hélt hann til Eng- lands í nám í ljósmyndun og markabsfræbum, þar sem hann dvaldi næstu fjóra veturna. Vibskipti voru Ástþóri snemma hugleikin. Abeins 16 ára gamall þótti honum þröngt um sig sem launþegi hjá Vísi og tók til ab gefa út unglingablabib Jónínu ásamt Páli Hermanns- syni, sem nú býr erlendis, og Jens Ingólfssyni, framkvæmda- stjóra Kolaportsins í dag. Náði helmingi ferm- ingarbarna í myndatöku „Eftir námib setti ég upp ljós- myndastofu. Byrjabi á ab taka fermingarmyndir og notabi nýja markabstækni, hafbi tvö stúdíó í vinnu og vaktavinnu, og hringdi í foreldra allra ferm- ingarbarnanna í Reykjavík og nágrenni. Ég nábi víst næstum helmingi af fermingarbörnun- um í myndatöku. Síban tók vib framköllun á litmyndum. Ég tók upp þá markaöstækni ab gefa litfilmu meb framköllun- inni. Ljósmyndarar voru ekki ánægöir meb þetta og kæröu mig. Ég fékk tvær sektir. Þab væri áreiöanlega búib ab háls- höggva Jóhannes í Bónus, ef þetta viöhorf ríkti enn í dag," segir Ástþór. Óvelviljað kerfi Myndiöja Ástþórs vakti þjóö- arathygli fyrir nýjungar og sóp- aöi ab sér vibskiptum. En sam- keppninni var mætt af öflugu fyrirtæki, Hans Petersen. Fram- köllunarverö þess fyrirtækis breyttist ekkert í nærri 200% veröbólgu í nærri tvö ár, ab sögn Ástþórs. Verölag á fram- köllun var oröib lægra á íslandi en á Spáni. Ástþór reyndi ab keppa vib risann, og féll. Gjald- þrot var óumflýjanlegt. í kjöl- farib kom verslunin Magasín í Kópavogi. Einnig þaö fyrirtæki varb ab gefast upp, enda mjög tengt Myndiöjunni. Ástþór seg- ir aö í þessu máli öllu hafi hann kynnst mikilli óvelvild kerfisins. Skiptaráöandi hafi meöal annars vísaö frá tilboöi meb fasteignavebi sem greibslu. Eignir voru seldar á lágmarks- veröum. Engum samningum var hægt ab ná. Þab hafi átt ab setja sig á hausinn, og þær fyr- irskipanir hafi komiö ofan frá, úr bönkunum, samkvæmt upp- lýsingum lögmanna á þeim tíma. Ástþór segir ab gjaldþrotin hafi verib erfiö sér og fjölskyldu sinni. Hann segir ab hann hafi síöar greitt skuldir sínar ab mestu leyti. Hann hafi ekki oröiö var vib nokkurn mann sem teldi sig eiga inni hjá sér. Upphafsmaður greiðslukorta Ástþór átti ýmsar fleiri hug- myndir, sem áttu eftir ab valda þáttaskilum í lífi fólks. Hann átti hugmyndina ab stofnun kreditkortafyrirtækis í byrjun 9. áratugarins. Þab átti fyrst ab heita Gírókortib og markaös- kannanir höfbu verib gerbar og lofuöu góbu um vibskipti. Síb- an kom í ljós ab erlent kortafyr- irtæki þurfti ab koma til og var þá samiö viö Eurocard. Enn á ný þurfti Ástþór ab glíma vib kerfiö, sem brást ókvæöa vib krítarkortavæöingunni. „Breytingar eru aldrei auö- veldar, þaö kom til dæmis fram þegar Seblabankinn sjálfur kraföist rannsóknar á fyrirtæk- inu og allt var reynt til aö loka fyrirtækinu. Vib vorum um tíma hræddir um aö þaö tækist, en þab reyndist ekki hægt, þótt margir reyndu," sagöi Ástþór. Fyrirtækib Eurocard á íslandi var síbar selt bönkum og spari- sjóbum, sem áöur höfbu engan áhuga haft á rekstri kortafyrir- tækis og töldu slík kort ekki hæfa í íslensku samfélagi. Hannaði tölvuforrit í Danmörku Eftir gjaldþrotin, mikil blaöa- skrif og hamagang hvarf Ástþór úr landi og settist ab í Dan- mörku. Þar setti hann á fót um- boösverslun meb vörur til póst- verslana og tölvuforritunarfyr- irtæki; haföi reyndar þreifaö fyrir sér áöur á þeim markabi. „Mér gekk ágætlega í Dan- mörku, þar fann ég ekkert ann- ab en eölilega samkeppni á stórum og þroskuöum mark- aöi," segir Ástþór. En annaö sviö beiö hans, tölvu- og upp- lýsingatæknin, sem farin var ab ryöja sér til rúms. „Ég fékk í liö meö mér fyrrverandi forstjóra Daells Varehus. Ég haföi hann- ab kerfi sem ég gerbi meb pappírsmódelum í kjallaranum heima hjá mér. Vib fórum sam- an og seldum þessa hugmynd á hálfa milljón dollara, bara út á áætlanir. Þab varb til þess ab ég gat rábib til mín fólk og kom fyrirtækinu í gang. Meöan ég var í Danmörku kom til mín kona frá Bretlandi, sem var aö kynna möguleika fyrir dönsk fyrirtæki ab flytja starfsemi til vissra svæba í Bretlandi. Þab varö úr ab ég flutti til Englands. Ég var í þessu í rúm 10 ár," seg- ir Ástþór. Hann vill ekki ræöa nánar niöurstööutölur og hagnab fyrirtækis síns. En eftir öllum sólarmerkjum ab dæma hefur Ástþór verib ab gera þaö gott í Englandi. Þar eignabist hann ekki bara fallegt einbýlis- hús, heldur líka góba bíla - - og einkaþotu, sem hann flaug sjálfur víöa um lönd á vegum fyrirtækisins og í eigin þágu. Þetta er í stuttu máli „huldu- maöurinn" Ástþór. Hann neitar því ekki ab hann hafi gert þab gott meöan tölvufyrirtækiö var og hét og framleiddi vélbúnaö, en fyrirtækiö er í rekstri og framleiöir hugbúnab.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.