Tíminn - 25.06.1996, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 25. júní 1996
11
Frímerkjasýning og hafs-
botninn kringum Færeyjar
Þann sjöunda júní sendu Fær-
eyjar frá sér tvær nýjar frí-
merkjaútgáfur. Önnur þeirra er
til að vekja athygli á hafsbotn-
inum í kringum Færeyjar og
víðáttu landgrunnsins kringum
eyjarnar. Hin útgáfan er til að
minnast frímerkjasýningarinn-
ar „NORDATLANTEX 96", en
það er gert með því að gefa út
blokk með þrem barnateikning-
um, með myndum af börnum
að leik.
Þar sem Færeyjar, Hjaltland
og Rockall liggja er gliðnun
tveggja jarðfleka, annar þeirra
er frá Ameríkuhlutanum og
hinn er evróasískur. Síðan
gliðnuðu Grænland og Labra-
dor út frá flekanum og urðu að-
skilin lönd. Það mun hafa verið
fyrir um 60 milljónum ára að
Grænlands- og Færeyja-Rockall-
svæðin tóku að gliðna hvort frá
öðru. Þá rifnaði Mið-Atlants-
hafshryggurinn. Öllu þessu
fylgdi geysimikil eldvirkni.
Um það bil 70% af yfirborði
jarðar er landskorpa, sem liggur
nebansjávar. Slík landsvæði
myndast í miklum gosum og
djúpt í hafi, svo oft er erfitt að
rannsaka þau. Þannig er það sér-
kenni Færeyja, að þar er hægt
aö virða fyrir sér hvernig skorp-
an hefir gliðnað og það á þurru
landi.
FRIMERKI
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON
Landgrunn Færeyja að 200
metra dýpi er um það bil 25.000
ferkílómetrar. Sé síðan haldið út
á 500 metra dýpi, er það 45.000
ferkílómetrar. Yst á landgrunn-
inu til austurs liggja svo veiði-
svæðin Nólseyjarbanki, San-
deyjarbanki og Suðureyjar-
banki, á 138-160 metra dýpi.
Suðaustur af ströndinni fellur
svo botninn í 200 metra dýpi
um 50 kílómetra frá ströndinni.
Þá tekur við bratti niður á 400
metra og síðan tekur botninn að
stíga upp í 200 metra, um það
bil 120 kílómetra frá ströndinni.
Þá er einnig merkileg vatns-
blöndun, sem á sér stað, og
straumar yfir Atlantshafshrygg-
inn. Heitir straumar sunnan úr
flóum við Ameríkustrendur,
koma gegnum skörð og upp að
íslandsströndum og kringum
þær, en af þeim er Golfstraum-
urinn þekktastur.
Að þessu sinni gefa Færeyjar
út tvö frímerki með landakorti
eyjanna. Þetta eru fyrstu frí-
merkin í stærri samstæðu, sem
koma á út á næstu 3-4 árum og
mun þá hafa sýnt allar þær 18
,,NORDATLANTEX 96"-blokkin me&barnateikningunum.
Landgrunns-
frímerkin.
eyjar sem tilheyra Færeyjum.
Það er seðlaprentsmiðja Nor-
ges Bank sem hefir bæði hannað
frímerkin og prentað þau í stál-
stungu. Myndefnið er svo kort
af Færeyjum og umlykjandi haf-
svæði ásamt hluta af áttavitarós.
Verðgildið er 10 og 16 krónur.
„NORDATLANTEX 96"
Af tilefni „NORDATLANTEX
96" stofnaði Póstverk Föroyja til
samkeppni meðal skólabarna á
sl. vetri. Teikna skyldi tillögur
að frímerki með þemanu „Leik-
ur og umferðaröryggi". Þátttak-
Breyttir búnabarhættir á Kúbu
„Uppskera af sykri varð 1990
meiri en nokkru sinni, 8,1
milljón tonn, en 1995 var hún
3,3 milljónir tonna, hin
minnsta í 50 ár. Eftir Armag-
eddon (þ.e. hrun Ráöstjórnar-
ríkjanna) var ekki kostur á
áburði og vélum, sem á er þörf
við ræktun sykurs. Gömlu sov-
ésku skurðvélarnar skrölta á
ökrum, en í fyrra nam nýting
hinna 156 sykurmyllna lands-
ins aðeins um 60% og í ryð-
föllnum skúrum þeirra standa
bandarískar mölunarvélar frá
árunum fyrir byltinguna. Auk
þess hefur stórlega dregið úr
vinnuhug verkamanna." Svo
sagði í Economist 6. apríl 1996
og enn:
„Árið 1992 heyrðu 75% rækt-
anlegs lands á Kúbu undir
granjas estatetes, stór ríkisbú
sem nutu mikilla ríkisstyrkja.
En 1995 heyrðu aðeins 27% af
ræktanlegu landi undir þau. Að
EFNAHAGSMAL
öðru leyti var það nytjað af ým-
iss konar minni samtökum:
Samvinnufélögum um fram-
leiðslu búvara; campesinos (litl-
um jörðum í einkaeigu) og
samvinnubúum með nýju
sniði, „grunneiningum sam-
vinnuframleiðslu". Þessi bú,
upp tekin 1993, nýta nú 90%
sykurakra og 42% annars rækt-
anlegs lands."
„Þessi nýju samvinnufélög,
hópar bænda, leigja land sitt og
kaupa tól sín (á vildarkjörum)
af ríkinu. Allar fyrirætlanir sín-
ar og kaup sín þurftu þau að
ræða við ríkið. Og tilsettan
kvóta framleiðslu sinnar þurfa
þau að selja ríkinu, en allt það,
sem þau framleiða umfram
kvótann, geta þau selt á mörk-
uðum. Þau eru hvött til að
rækta grænmeti og að ala svín
til eigin neyslu. Eru þau talin
mynda fjárhagslega sjálfstæðar
einingar. Þegar bændum finnst
þeir vera eigendur búa, er
minna undan stungið og sett á
svarta markaði."
„í sumum greinum hefur
ávinningur af þessum breyting-
um vakið undrun. Samkvæmt
opinberum tölum jókst fram-
leiðsla kjöts um 29%, tóbaks
um 52% og kartaflna um 35%
1995. ... Til umbóta í landbún-
aði er þannig farið að segja. Á
því er þó ein undantekning, þar
sem er helsta uppskeran, sykur.
... Engu að síður er horft til syk-
uruppskerunnar 1995 sem þess,
sem efnahagslegur bati Kúbu er
undir kominn. Ef uppskeran
nemur 4,5 milljónum tonna,
kann verg þjóðarframleiðsla, að
mati embættismanna, að vaxa
um 5%."
Sumarpopp af bestu gerö
Þriðja plata Vina vors & blóma
— einnar mestu gleðisveitar
síðustu ára — er komin út og
nefnist hún Plútó. Skífan gefur
út. Boðskapur Vinanna er enn
sem fyrr á léttu nótunum,
melódískt og skemmtilegt
sumarpopp af bestu gerð.
Meðlimir Vinanna eru þeir
Birgir Nielsen (trommur),
Gunnar Þór Eggertsson (gítar),
Njáll Þórðarson (hljómborð),
Siggeir Pétursson (bassi) og
Þorsteinn G. Ólafsson (söng-
ur).
Á Plútó eru 10 lög og tvö
þeirra hljómuðu vel á öldum
ljósvakans í vor og gerðu það
gott á íslenska listanum: Ó
Ijúfa líf og Satúmus þar sem
GEISLADISKAR
Kidda bigfoot bregður fyrir í
rappkafla.
Vv&b eru uppbókaðir um
allt land í sumar og hafa m.a.
tekiö höndum saman við Jafn-
ingjafræðslu framhaldsskól-
anna. Meira um það síðar.
Stone Free — Úr leikriti
Ut er komin tólf laga plata, sem
hefur að geyma hluta af því tón-
listarefni sem verður flutt í leik-
ritinu Stone Free eftir Jim
Cartwright. Leikritið verður
heimsfrumsýnt að Cartwright
viðstöddum þann 12. júlí næst-
komandi.
an var svo góð að um 3000 til-
lögur bárust. Þá var ákveðið að
nota ekki aðeins teikningarnar
sem myndir á frímerkin. Þær
voru einnig notaðar sem bak-
grunnur fyrir blokkina, sem
fyrstadagsstimpill og loks sem
prent á bol í auglýsingaskyni.
Þeir sem sigruðu í samkeppn-
inni voru svo þau Herborg frá
Vestmanna, sem teiknaði mynd
af bíl við gangbraut. Þar getur
einnig að líta stúlku á hjóli og
vitanlega með hjálm og svo
með dúkkuna sína á bögglaber-
anum.
Búgvi frá Fuglafirði teiknaði
svo ákaflega einfalda og góða
mynd af dreng sem skoppar
gjörð. Með litla prikinu sínu fær
hann gjörðina til að skoppa og
stjórnar ferð hennar. í baksýn
skín svo sólin björt og geislandi
á bláum himni.
Guðríður á Pokeri á Suðurey
hefir svo teiknað stúlkuna, sem
stendur við umferðarmerki og
umferðarljós. Ef til vill var hún
að ýta á hnappinn til þess ab fá
grænt ljós.
Bakgrunnur blokkarinnar er
svo teiknabur af John frá Skúg-
voy. Á myndinni eru vörubíll og
strætisvagn, auk þess eru þar
einnig tveir menn í báti og fullt
af mávum.
Rúna frá Vestmanna hefir svo
teiknað fyrsta dags stimpilinn,
þrjár stúlkur sem leika sér meb
dúkkur í grasinu. Þá hefir Linda
María frá Þórshöfn teiknað
myndina á T-bolinn, glablega,
græna stúlku á hjóli.
Sólin og græni liturinn er í
miklu uppáhaldi hjá færeyskum
börnum. Þau gleyma þá alveg
hafþokunni og súldinni.
Nafnverö blokkarinnar er
13,50 krónur og er hún seld án
yfirverðs. Bárður Jákupsson hef-
ir hannað blokkina og House of
Questa prentað hana í offset.
í dag koma út ný frímerki
tileinkuð Ólympíuleikunum
Fyrstadagsumslög fást stimpluð á pósthúsum
um land allt. Einnig er hægt að panta þau frá
Frímerkjasölunni.
Að auki verður gefin út glæsileg
gjafamappa með Ólympíu-
frímerkjunum. Þar er að finna
fróðleiksmola um þátttc';u
íslendinga á Ólympíuleikunum
frá upphafi til dagsins í dag.
Lögin á plötunni eru öll frá
sjöunda áratugnum, en söngv-
ararnir eru: Emilíana Torrini,
Ingvar Sigurðsson, Daníel Ágúst
Haraldsson, Gubmundur
„Hendrix" Pétursson, Jón
„McCartney" Ólafsson og Egg-
ert Þorleifsson. ■
F R I M E R KJASALAN
POSTUR OG SIMI Pósthólf 8445, 128 Reykjavík
Heimasíða Frímerkjasölunnar er: http://www.simi.is/postphil/