Tíminn - 26.06.1996, Qupperneq 9

Tíminn - 26.06.1996, Qupperneq 9
Mi&vikudagur 26. júní 1996 9 UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . Andreas Papandreo jarösunginn í dag: Barist um leiötogaembættiö Pétur l Iafstein -tmustsins i ’crdur Bretland: Lög um lágmarkslaun? Yfirma&ur Öryggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu (ÖSE), Flavio Cotti, sag&i í gær a& fyrstu kosningamar í Bo- sníu eftir a& stríöinu lauk ver&i haldnar 14. september nk. „Ákvöröunin um a& gefa grænt ljós á kosningarnar, og þetta segi ég ykkur í fullri ein- lægni, hefur alls ekki verið auð- veld fyrir mig," sagði hann í ræöu í fastaráði stofnunarinnar. Hann sagðist hafa byggt ákvörðunina á viðræðum við fjölda aðila, sérstaklega í Bosníu sjálfri, og á þeirri afstöðu sem tekin var á alþjóðaráðstefnunni um málefni Bosníu sem haldin var í Flórens á Ítalíu fyrr í mán- uðinum. Hann lagði jafnframt áherslu á það að mikilvægasta skilyrðið fyrir því að kosningarnar komi raunverulega að gagni sé að ákærðir stríðsglæpamenn, svo sem Radovan Karadzic, verði fjarlægðir úr pólitískum áhrifa- stöðum. Töluverðar líkur voru taldar á því í gær að Karadzic myndi láta af embætti sínu sem leiðtogi Bo- sníu- Serba vegna þrýstings, m.a. frá Slobodan Milosevic for- seta Serbíu. -gb/Reuter „Fjársjóður okkar íslendinga er fólkið í landinu. Kjarkur ykkar og áræði er mér hvatning til dáða.“ Ríkisstjóm breska Verka- mannaflokksins myndi leggja áherslu á það að koma sem fyrst á lágmarkslaunum í landinu, að því er Chris Smith, talsmaður bresku Al- mannatrygginganna, sagði á mánudag. Verkamannaflokkurinn hefur verið í stjórnarandstöðu í Bret- landi í 17 ár, en skoðanakann- anir gefa til kynna að hann sé líklegur til þess að bera sigur úr býtum í næstu þingkosningum, sem fara eiga fram ekki síöar en í maí á næsta ári. Smith bar hins vegar til baka fréttir sem voru í dagblaöinu The Guardian um helgina um að flokkurinn hafi ákveðið aö lög um lágmarkslaun verði að taka gildi innan árs frá því að flokkurinn tekur við stjórnar- taumunum. „Það hefur engin sérstök tímaáætlun verið gerð fyrir inn- Hafin er í Grikklandi hörð barátta um leiðtogaembættið í PASOK, sósíalistaflokknum sem Andreas Papandreo stofn-- aði árið 1974 og hafbi forystu fyrir allt til dauðadags. Pap- andreo féll frá á sunnudaginn var og verður jarðsunginn í dag. Nýr leiðtogi flokksins verður kosinn á flokksþingi PASOK sem stendur í fjóra daga og lýkur nk. sunnudag. Baráttan um leiðtogaembætt- ið stendur á milli Costas Simitis forsætisráðherra og Akis Tso- hatzopoulos innanríkisráð- herra. Tsohatzopoulos hefur verið dyggur fylgismaður Pap- andreos um langa hríð og hyggst halda uppi merki hans verði hann fyrir valinu. Simitis hefur á hinn bóginn verið gagn- rýninn á stefnu og stjórnarhætti Papandreos, sem byggði mjög á alþýðuhylli sem á köflum jaðr- aði við persónudýrkun. Bæði Simitis og Tsohatzopou- los halda því fram að ef þeir verði kosnir muni það stuðla að einingu í PASOK, sem undir- lagður hefur verið af innbyrðis deilum flokksmanna og átt erf- itt með að móta sér skýra stefnu. Flokkurinn nýtur nú ör- litlu minna fylgis en íhalds- Bosnía: Kosningar í Andreas Papandreo, fyrrverandi forsœtisrábherra Crikklands sem lést á sunnudaginn, verbur jarbsunginn í dag. flokkurinn sem nú er í stjórnar- andstöðu. september Simitis, sem lýsir sér sem um- bótasinna og er hlynntur Evr- ópubandalaginu, hefur farið hægt af stað frá því hann tók við af Papandreo í janúar síðast- liðnum. Hann tók við forseta embættinu eftir að Papandreo veiktist alvarlega og bar þá sig- urorð af Tsohatzopoulos með litlum atkvæðamun í kosningu sem fram fór í þingflokki PA- SOK. Simitis hefur fengið mis- jafnar undirtektir í forsætisráð- herraembættinu. Honum tókst að komast vel í gegnum sam- skiptakreppu við Tyrkland í Janúar og hefur unnið að betra sambandi við aðildarríki Evr- ópusambandsins. Tsohatzopoulos hefur enga reynslu í utanríkismálum. Hann hefur starfað sem ráðherra af litlum eldmóði en óumdeildum dugnaði í ýmsum ráðuneytum. Stærsti galíinn á honum er tal- inn vera sú fjölmiðlaímynd að hann hafi staðið dyggur að baki Papandreos en eigi erfitt með að starfa sjálfstætt. Ef Simitis verður fyrir valinu mun hann hafa öll völd í flokknum á sinni hendi, sem bæði forsætisráðherra og flokks- formaður. Sigri Tsohatzopoulos þýðir það hins vegar að töluverð orka mun fara í að viðhalda valdajafnvæginu innan flokks- ins þar sem reyna verður að halda báðum fylkingunum ánægðum. „PASOK án Andreas Pap- andreo hefur verið óhugsandi möguleiki til þessa dags," sagði einn af starfsmönnum flokks- ins. „Leiðtogatöfrar hans eru horfnir og hver svo sem tekur við af honum mun eiga fullt í fangi með að halda flokknum saman." -gb/Reuter leiðslu lágmarkslauna í land- inu," sagði Smith á blaöa- mannafundi sem hann hélt þess að kynna áætlanir sínar um að auðvelda atvinnulausum að fá atvinnu. „Við ætlum að ná fram góðu skriði um leið og við kom- umst í stjórn ... en það væri heimskulegt af okkur að tiltaka ákveðinn mánaöafjölda," bætti hann við. í The Guardian var vitnað í ónefndan þingmann Verka- mannaflokksins, einn af „ráð- herrunum" í skuggaráðuneyti flokksins, sem sagði að lág- launanefnd sem flokkurinn hef- ur í hyggju að setja á laggirnar myndi hafa í mesta lagi sex mánuði til þess að koma með tillögur um löggjöf um lág- markslaun. Þetta myndi gera það kleyft að koma löggjöfinni í gegnum þingið áður en ár yrði liðið frá því að flokkurinn kæm- ÍSt í StjÓm. -gb/Reuter

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.