Tíminn - 29.06.1996, Blaðsíða 1
4
STOFNAÐUR 191 7
* *
'mWFILL/
418 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
80. árgangur
Laugardagur 29. júní
121. tölublað 1996
Gubrún Agnarsdóttir, lœknir, 54 ára, ásamt
eiginmanni sínum, Helga Valdimarssyni,
lcekni og prófessor.
Ástþór Magnússon, 43
ára, forstööumabur frib-
arsamtakanna Fribur
2000. Ógifturen erí
sambúö meb Hörpu
Karlsdóttur myndlistar-
manni.
Ólafur Ragnar Gríms-
son, alþingismabur, 53
ára, og eiginkona hans,
Gubrún Katrín Þor-
bergsdóttir, fram-
kvœmdastjóra Póst-
mannafélags íslands.
Pétur Hafstein, hœstaréttardómari, 47 ára,
ásamt eiginkonu sinni, Ingu Ástu Hafstein,
píanókennara.
Landsmenn ganga til forsetakosninga í dag:
194.784 íslendingar velja forseta
Landsmenn ganga aö kjörborðinu í dag til að kjósa
sér nýjan forseta. í framboði eru Astþór Magnússon
Wiium, Guðrún Agnarsdóttir, Ólafur Ragnar Gríms-
son og Pétur Kr. Hafstein. 194.784 manns eru á kjör-
skrá og hefur kjósendum fjölgað um tæplega 21.000
manns síðan gengið var til forsetakosninga síðast,
árið 1988.
Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu íslands voru
143.196 manns á kjörskrá árið 1980 þegar Vigdís Finn-
bogadóttir forseti var kjörin en árið 1988 þegar Sigrún
Þorsteinsdóttir bauð sig fram gegn henni voru 173.829
á kjörskrá. Fjölgun frá síðustu forsetakosningum nemur
því 12%.
Þessi fjöldi skiptist þannig eftir kjördæmum að í
Reykjavík eru 79.394 á kjörskrá, á Reykjanesi eru
49.916, á Vesturlandi 9.745, í Vestfjaröakjördæmi
6.148, á Nl. vestra 7.159, á Nl. eystra 18.980, á Austur-
landi 8.982 og á Suðurlandi 14.460.
Þess má að lokum geta að gert er ráð fyrir sunnanátt
og þokkalegu veðri um allt land en þó gæti rignt á Sunn-
lendinga. -BÞ
Séra Þorgrímur Daníelsson telur aö konurnar sem sakab hafa biskup um kynferöislegt áreiti eigi mikinn stuöning á
meöal presta:
Kirkjan kvelst og konumar einnig
Séra Þorgrímur Daníelsson,
sóknarprestur á Norðfirði,
kvað sér hljóbs á Presta-
stefnu í fyrradag og las upp
yfirlýsingu þar sem hann
íýsti þeirri skoðun ab biskup
ætti ab fara frá þegar í stab,
enda leysti ákvörbun hans
ab sitja í 18 mánubi í vibbót
engan vanda. Þorgrímur er
Guörún
áháu
flugi
Sjá fréttaskýringu á
tölum skoöana-
kannana á bls. 3
eini presturinn sem lýst hef-
ur þessari skobun sinni opin-
berlega en telur sig skyldug-
an að taka afstöðu í málinu
þar sem hann hefur ekki
lengur von um að kirkjan
sem heild taki á málinu.
„Meb þessari ákvörðun
heldur biskup ekki lengur í
þau rök að hann megi ekki
segja af sér vegna ósannaðs
áburðar. Þetta eru einu rökin
sem hafa haldið fyrir því að
Ólafur ætti ekki að segja af sér,
þar sem sakirnar teljist ósann-
aðar. Tilgangur yfirlýsingar-
innar er að fá sátt, ljúka mál-
inu. Mótmælastaða kvenn-
anna fyrir framan Digranes-
kirkju í gær sýnir að konur eru
ekki sáttar við framgang
mála," sagði Þorgrímur Daní-
elsson í samtali við Tímann í
gær.
„Biskup sagði í setningar-
ræðu sinni að ástandið væri
óþolandi fyrir hann og fjöl-
skyldu hans. Þab er einnig
ljóst að kirkjan kvelst, konurn-
ar kveljast og allir hlutabeig-
andi kveljast. Ég sé ekki til-
ganginn með að framlengja
þetta ástand þegar hægt væri
að láta því ljúka strax."
Aðspurður um viðbrögð
annarra presta við yfirlýsing-
unni segir Þorgrímur að
Pétur Hafstein, forsetafram-
bjóbandi, sagði í gær að hann
teldi ekki rétt ab beita þeim
aðferbum í kosningabarátt-
unni, sem notabar hafa verið í
Morgunblaðinu tvo síbustu
dagana.
„Nú í tvo daga samfellt hafa
birst auglýsingar í Morgunblað-
inu um feril Ólafs Ragnars
mönnum hafi ekki gefist tæki-
færi til að taka opinbera af-
stöðu til þess. Hann telur þó
ljóst að skoðun hans eigi
nokkru fylgi ab fagna á meðal
starfsbræðra sinna. „Ég hef
Grímssonar. Vegna þessa vil ég
árétta að auglýsingar þessar em
framboði mínu alls óvibkom-
andi og ekki á þess vegum. Ég
hef ávallt lagt fyrir stuðnings-
menn mína að sýna drengskap
og heiðarleika í kosningabarátt-
unni. Það hefa þeir gert," sagði
Pétur í yfirlýsingu, sem hann
sendi fjölmiðlum.
ekki lengur von um að kirkjan
sem heild geti tekið á málinu.
Ég tel að þessar konur njóti
mun meiri samúðar á meðal
presta en komið hefur fram í
fjölmiölum." -BÞ
„Ég harma ab hópur manna
skuli hafa gengið fram með
þessum hætti á lokastigi kosn-
ingabaráttunnar. Þetta hefur
skaðað framboð mitt, því ýmsir
telja að þetta sé frá mínum
stubningsmönnum komið. Ég
vil árétta að svo er ekki," segir í
yfirlýsingu Péturs Hafstein.
-JBP
Auglýsingarnar gegn Ólafi Ragnari:
Pétur Hafstein segir
auglýsingar skaða sig