Tíminn - 29.06.1996, Side 6

Tíminn - 29.06.1996, Side 6
6 QKlrAMMMkMAtr WlllWltW Laugardagur 29. júní 1996 Smiðshöggin rekin á kynn- ingar forsetaframbjóöenda ingi. „Til marks um fjöldann keyptum við ansi þykka gesta- bók en hún kláraðist og það þurfti að hlaupa út og kaupa aðra. Á 17. júní komu hingað t.d. um 8-900 manns." Forsetagreinarnar í blöðun- um hafa orðið fjölmörgum umræðuefni síðustu daga og var mikið um reiða stuðnings- menn eftir að umdeildar aug- lýsingar birtust í Morgunblað- inu í vikunni. „Fólk var mjög reitt og sárt út af þessum aug- lýsingum í Morgunblaðinu. Síminn byrjaði að hringja hér um leið og við opnuðum fyrir hann um kl. níu. Það sýndi sig svo á útihátíðinni í gær- kvöldi (fyrrakvöldi) hvað sam- staðan var góð. Fólk þjappaði sig saman og lætur þetta ekki draga sig neitt," sagði Ólafía og var svo rokin. Ólafur Ragnar og Guðrún kjósa í Mýrarhúsaskóla og verja kjördegi í að fara á kosn- ingaskrifstofur í Grindavík, Reykjanesbæ, Kópavogi og Hafnarfirði. Þá mæta hjónin í kosningakaffi á Hótel Borg sem stendur til kl.17 en um kvöldið verður kosningavaka á Hótel Sögu og gleðin hefst kl.21. Kirsuber og píanóleikur Guðrún Agnarsdóttir var á vinnustaðafundi í Mjólkur- samsölunni á Bitruhálsi þegar Tímann bar að kosningaskrif- stofu hennar í Ingólfsstræti í gær. Að sögn Rúnu Hauks- dóttur, starfsmanns á skrif- stofu, hefur gífurlegur fjöldi fólks kíkt inn á skrifstofunni og straumurinn aukist veru- lega undanfarið, sérstaklega síðustu þrjá daga. „Við finn- um fyrir miklum meðbyr. Þessi fylgisaukning hennar síðustu daga hefur mótað al- veg nýtt landslag í baráttunni. Hún er aftur komin inn á kortið," sagði Rúna í gær og meðbyrinn fannst mjög Það var lítið af almennum kjósendum á kosningaskrifstofu Ólafs Ragnars en fjöldi starfsmanna hljóp þar um, svaraði fyrirspurnum í síma og spjall- aði saman um ástand mála. Guðrún Katrín sigldi hraðbyri gegnum and- dyrið til að spá og spekúlera með skrifstofustjóranum eftir að hafa hlust- að á nýjustu tölur skoðanakönnunar í hádegisfréttum útvarpsins íbíl sín- um. verja svo deginum með stuðningsmönnum sínum á kosningaskrifstofunni. Um kvöldið verður síðan haldin kosningavaka á Hótel Borg. Flakka á milli og heilsa fólki Með Pétri Kr. Hafstein í Austurstræti var átta ára son- ur hans og nafni. Að sögn Péturs hefur Pétur Hrafn plumaö sig vel í baráttunni og verið ötulasti stuðningsmaður foreldra sinna. Þeir feðgar ætl- uðu að taka það fremur rólega í gær. „Ég var nú með útifund á Ingólfstorgi í gær (fyrradag) og það var svona lokapunkt- urinn. Svo er ég að fara á Granda í hádeginu og það verður síðasti vinnustaða- fundurinn," sagði Pétur og kvaðst myndu nota það sem- greinilega á skrifstofunni því þar ríkti mikil kátína hjá gest- um. Hlátursrokur, píanóleik- ur, glampandi sól og suðrænir ávextir settu mark sitt á stemninguna hjá stuðnings- mönnum Guðrúnar. Guðrún og Helgi Valdimars- son kjósa í Árbæjarskóla og Pétur sjálfur stóð hins vegar í eld- línunni í Austurstrœtinu ásamt syni sínum Pétri Hrafni. Hann sagði fjölmarga hafa stoppað við um daginn enda heiðskír himinn með glampandi sól í Reykjavík og fjölmargir á röltinu í miðbænum. TT7 osningahríðin verður brátt yfir- JL m.staðin og í nótt kemur í ljós hvem fram- bjóðendanna þjóðin hef- ur valið til að sitja á Bessastööum. Um hádegisbilið í gær voru frambjóðendurnir enn á ferð og flugi við að reka smiðs- höggið á kosningabaráttuna. Tíminn lallaði inn á allar kosningaskrifstofurnar til að kanna ástandið, stemninguna og taugar manna. Þær virtust misjafnlega þandar en víst er að mesta róin hvíldi yfir Frið- arlandi Ástþórs Magnússonar. Rösklega gestabók mætti í kaffisopa Á Hverfisgötunni hjá Ólafi Ragnari var fremur fámennt en að sögn starfsmanna hafði verið stöðugur straumur fyrr um morguninn. Fyrir utan skrifstofuna sat Guðrún Katr- ín spennt yfir hádegisfréttum þar sem nýjustu tölum skoð- anakönnunar var útvarpað. Ólafur Ragnar var hins vegar á ferð í Borgarnesi og á Akra- nesi. Þar sem frambjóðandinn var ekki í kallfæri spjallaði Tíminn við Ólafíu B. Rafns- dóttur, skrifstofustjóra, og spurðist fyrir um vinsældir svona kosningaskrifstofu. ÓI- afía kvað marga hafa komið við undanfarið til að spjalla, fá upplýsingar um kosninga- baráttuna og lýsa yfir stuðn- Það var ró og friður yfir Friðar- landi, kosningaskrifstofu Ástþórs Magnússonar í Tryggvagötu, þeg- ar blaðamaður Tímans var á ferð þar í gœrdag enda reyndist höfuð- paurinn ekki vera á staðnum. /

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.