Tíminn - 06.07.1996, Side 1
EYJAFJÖRÐUR Wwmwm
Hjalteyri:
Margir
sækja sum-
arkaffihúsib
Kristín Hildur Kristjánsdóttir, Kristján Baldursson, Þórey Eyþórsdóttir og Þuríöur Kristjánsdóttir, fyrir framan kaffi-
húsib í Hótel Hjalteyri. Myndina sendi ánœgö fjölskylda frá Fœreyjum sem haft hafbi viökomu á kaffihúsinu.
Á meban Hjalteyri var síldar-
bær iðaöi eyrin af lífi og fjöri
á sumrin. Skipin lögöust aö
og lönduöu viö kranabyggju
verksmiöjunnar eöa söltunar-
bryggjuna eftir því hvort silf-
ur hafsins var taliö henta til
þess aö vera lagt í tunnur meö
tilheyrandi gauragangi eöa
hvort því var brætt í lýsi og
mjöl til útfiutnings. Margir
höföu aðalatvinnu sína af
síldarævintýrinu á Hjalteyri
eins og á öbrum stööum sem
þab átti sér stab og ófáir eru
þeir sem greiddu skólagöngu
sína meö afrakstri sumar-
vinnunnar þar.
Á meðan síldarævintýrið
varði var rekið Hótel á Hjalteyri
en eins og annaö lagðist hótel-
reksturinn af þegar síldin hætti
að veiðast og dvali lagðist yfir
eyrina. Á síðari árum hefur at-
vinnustarfsemi vaxið að nýju
og má þar meðal annars nefna
fiskverkun og einnig starfsemi
Fiskeldis Eyjafjarðar. Hótel
Hjalteyri hefur verið endurvak-
ið, en þó í nokkuð annarri
mynd en á blómatíma þess fyr-
ir fjórum til fimm áratugum.
Nú er rekið sumarkaffihús í
Hótelinu ásamt listsýningum
og með því hefur Hjalteyrin
komist á kort með öðmm stöð-
um vítt um landið þar sem
ferðaþjónusta hefur skotið rót-
um.
Þriðja sumarið í röð annast
tvíburasysturnar Sólveig og
Þuríður Kristjánsdætur rekstur
kaffishússins í Hótel Hjalteyri
ásamt móður sinni Þóreyju Ey-
þórsdóttur og öðrum fjöl-
skyldumeðlimum eftir því sem
efni standa til. „Þetta byrjaði
með því að foreldrar okkar
keyptu þetta hús ásamt systkin-
um mömmu," segja þær. „Hús-
ið hafði staðið ónotað um langt
skeið og var því komið í niður-
níðslu. Fjölskyldurnar hófust
strax handa við að gera það
upp og koma í nothæft ástand
og eftir því sem lengur var unn-
ið að því varð spurningin um
rekstur kaffihússins áleitnari."
Þórey rekur listmunaverslun og
gallerí á Akureyri undir nafn-
inu Gallerí AllraHanda og
kveðst strax hafa séð möguleika
í að tengja rekstur kaffihússins
við starfsemi gallerísins og færa
sýningar á vegum þess til Hjalt-
eyrar þannig að fólk gæti kom-
iö þangað til þess að fá sér kaffi
í eylítið ólíku umhverfi hinu
daglega og njóta myndlistar í
leiðinni.
„Þetta fór strax vel af stað og
aðsóknin varð meiri en við
höfðum búist við," sögðu tví-
burasysturnar Sólveig og Þuríð-
ur. Þær eru á menntaskólaaldri
og hafa sumartekjur sínar með-
al annars af rekstri kaffihússins
eins og margir gerðu með síld-
arvinnunni fyrr á árum. „Við
vissum lítið um hvaða fólk
myndi sækja kaffihúsið en það
verður að segjast eins og er að
gestir okkar hafa komiö víðs
vegar að af landinu og úr flest-
um atvinnugreinum auk út-
lendinga. Margir vita greinilega
um Hjalteyri og þekkja til sögu
staðarins og viö höfum fengið
margar spurningar frá fólki sem
tengist Hjalteyri meö einhverj-
um hætti." Þær segja að margir
„gamlir Hjalteyringar" hafi
komið í kaffihúsib og eiga þar
við fólk sem alist hafi upp á
Hjalteyri eba eigi nákomna ætt-
ingja þaðan. Einnig hafi komið
margt fólk sem tengist síldarár-
unum með einhverju móti.
„Komið hefur í ljós ab margir
eiga rætur hér eba tengjast
staðnum með einhverju móti
og hefur það fólk gjarnan haft
viökomu hér þegar það er á
ferðalögum," segja þær systur
Sólveg og Þuríöur. „Við getum
ekki séð annað en full þörf hafi
verið á þessum rekstri yfir sum-
armánubina því mjög margt
fólk kemur hér niöur á eyrina;
bæði almennt ferðafólk og
einnig fólk úr nágrenninu og
þá einkum frá Akureyri sem fer
í ökuferðir norður meb firðin-
um um helgar og á kvöldin,"
segja þær systur og eru þar meb
horfnar í eldhúsib til að undir-
búa móttöku fólks sem er á leið
aö Hótel Hjalteyri.
Hjalteyrin iðar því af lífi að
nýju þótt með öbrum hætti sé
en þegar bræðsluilminn lagði
yfir fjörðinn og konur hrópubu
á meira salt á söltunarbryggj-
unni og karlarnir urðu að
hlýða. Trillur landa við nýlega
smábátabryggju og starfsemi
fiskverkunarinnar er í fullum
gangi auk þess sem ferðaþjón-
usta hefur skotið rótum á þess-
um umtalaða síldarstað fyrri
ára.
-ÞI
Húsavík Egilsstaðir Homafjörður Vestmannaeyjar Færeyjar
Græiiland Reykjavík Potreksíjörður Þingeyri ísafjörður Sauðíírkrókur
Akureyri Húsavík Egilsstaðir Homafjöröur Vestmannaeyjar Færeyjar
Grænlaiid Reykjavík Patreksíjörður Þingeyri Isaijöröur Sauðárkmkur
Aknreyri Húsavík Egilsstaðir gomaijörður Vestmaiinaeyjar Færeyjar
Grænkncl Reykjavík Patreksfjörðiir Mngeyri fsaijörður Sauðárkrókur
imrevri Hiisavík Egilsstaðir Hórnafjörður Vestinarmaeviar Fæievjar
ir liggja til allra átta...
. með Flugleiðum innanlands
Það er ódýrara að fljúga innanlands en flesta grunar.
Hafðu samband við sölufólk Flugleiða um land allt,
sem veitir þér fúslega upplýsingar um verö og kjör.
FLUGLEIDIR
INNANLANDS