Tíminn - 09.07.1996, Síða 1

Tíminn - 09.07.1996, Síða 1
80. árgangur Þriðjudagur 9. júlí 127. tölublað 1996 Kœli- og frystibúnabur sem inniheldur ósoneyö- andi efni: Reynt ab flytja inn þrátt fyrir bann Hollustuvernd ríkisins hefur farið þess á leit vib Kaup- mannasamtök íslands að þau kynni fyrir félagsmönnum sínum bann við innflutningi á kæli- og frystibúnaöi sem inniheldur ósoneyðandi kælimiðla. En nokkrar til- raunir hafa verið gerðar til innflutnings á kælibúnaði sem inniheldur þessi efni, þrátt fyrir ab þab hafi verið bannab um nokkurt skeið. Hinsvegar reyndist ekki unnt ab fá upplýsingar um það hversu mikið hefbi verið reynt ab flytja inn af þessari bannvöru vegna sumarleyfa starfsmanna hjá Hollustu- vernd ríkisins. í bréfi Hollustuverndar til samtaka kaupmanna er jafn- framt óskað eftir samvinnu við þau um þetta mál svo hægt verði að komast hjá óþægind- um, óþarfa vinnu og kostnaöar sem skapast vegna tilrauna til innflutnings á þessum bann- aða búnaði. En eins og kunn- ugt er þá var ísland fyrst allra landa til að banna innflutning á þessum ósoneyðandi kæli- miðlum vegna þeirrar gífurlegu aukningar sem hafði verið á notkun þeirra hér á landi. Það sem gerir þetta mál kannski erfiðara en það þyrfti að vera er sú staðreynd að framleiðsla og útflutningur á búnaði sem inniheldur óso- neyðandi kælimiðla verður hvorki bannaður í Evrópu né í Bandaríkjunum fyrr en 1998 eða um næstu aldamót, sam- kvæmt því sem segir í bréfi Hollustuverndar til samtaka kaupamnna og greint er frá í fréttapósti þeirra síðastnefndu. Af þeim sökum telur Hollustu- vernd aö á næstu árum verði gerðar tilraunir til innflutnings á þessum búnaði og hvetur til samstarfs við samtök kaup- manna til að koma í veg fyrir það. -grh Alþingissalurinn breytir um svip Þessa dagana er veriö aö gera allt klárt í Alþingishúsinu fyrir embœttistöku Oiafs Ragnars Crímssonar veröandi forseta íslands, en sjálf athöfnin fer fram þann I. ágúst nk. Til aö nóg pláss veröi íþingsalnum, en reiknaö er meö aö allt aö 100 manns veröi viö athöfnina, þarf aö rýma þingsalinn af húsgögnum þingmanna og koma öörum hentugri fyrir. Húsgögn- in, ráöherrastólarnir meötaldir, veröa tryggilega geymd í gámum á öruggu svœöi. Sjálf athöfnin er á vegum forsœtisráöuneytisins og ber þaö einnig stœrstan hluta af þeim kostnaöi sem henni er samfara. Samkvœmt því er þaö DavíÖs aö sjá um aö embœttistaka Ólafs Ragnars gangi fyrir sig meö eöli- legum og réttum hœtti í sal alþingis á fyrsta degi ágústmánaöar. -grh/Tímamynd: Pjetur. Kemur ekki óvart aö Vigdís hafi íhugaö afsögn. Kristín Ástgeirsdóttir þingkona Kvennalista: Vigdís tók hárrétta afstöbu í EES-málinu Kristín Ástgeirsdóttir þingkona Kvennalista segir að það hafi ekki komib sér óvart að frú Vigdís Finnbogadóttir fráfarandi forseti hefbi íhugað afsögn úr embætti þegar EES-málib stób sem hæst. En Vigdís greindi frá þessu í vib- talsþætti í Sjónvarpinu í fyrra- kvöld sem tekin var upp í sl. mánubi, eba skömmu ábur en landsmenn völdu sér nýjan for- seta í kjörklefanum. „Ég talabi við hana á þessum tíma, en hún leitaði víða ráða og talaði við mjög marga. Mér er alveg ljóst aö þetta mál var ákaflega erfitt, mikil andstaða við samninginn og hún fékk þúsundir undirskrifta auk þeirra mörgu sem komu að máli við hana og þrýstu á hana. Þannig að það kemur mér ekki á óvart að þetta mál hafi reynst henni mjög erfitt," segir Kristín. Hún telur hinsvegar að Vigdís hafi tekið hárrétta afstööu í málinu þegar hún ákvað að staðfesta samn- inginn með undirskrift sinni í stað þess að gera það ekki eins og margir vildu að hún gerði. Kristín minnir á í þessu sambandi að það hefði verið pólitískur vilji fyrir samþykki EES- samningsins á Alþingi, auk þess sem hún telur að andstaðan gegn samningnum úti í þjóðfélaginu hefði ekki verið nægjanleg til þess að forsetinn skrifaði ekki undir. „Það var pólitískur meirihluti fyr- ir málinu á Alþingi og það var búið að fá tiltölulega mikla umfjöllun í Söluaukandi vinningar skattskyldir Heppnir kaupendur, sem vinna t.d. utanlandsferðir og jafnvel bíla í söluaukandi happdrættum ýmissa fyrirtækja gera sér injög oft ekki grein fyrir því, ab mati Neytendasamtakanna (NS), ab slíkir vinningar eru skattskyldir. Gleymi heppinn vinningshafi ab telja vinninginn fram á næsta skattframtali sé litib á þab sem undanskot frá skatti þannig ab skattyfirvöld geta nýtt 25% vib- bótarálag. í versta falli geti hinn heppni þurft ab greiba 525.000 kr. í skatt af 1 milljónar happdrættis- bíl. NS minna á ab þab eru neyt- endur sjálfir sem greiba ]>essa happdrættisvinninga meb hærra vöruverbi og þau krefjast þess ab fyrirtæki sem efna til slíkra „leikja" upplýsi neytendur um ab vinningarnir séu skattskyldir. Ab mati Neytendasamtakanna hefur það færst í vöxt að fyrirtæki reyni að örva hjá sér sölu með happdrættisvinningum. Nýleg dæmi um þetta sé svokallaður BKI bílaleikur og ævintýraferð til Lego- lands fyrir fjölskyldu sem kaupir Li- berobleiur. Sölumennska af þessu tagi hafi verið heimiluð með setn- ingu samkeppnislaga. Oftar en ekki gera heppnir kaupendur sér ekki grein fyrir að slíkir vinningar eru skattskyldir, enda Íslendingar vanir því að vinningar fjölmargra happ- drætta séu skattfrjálsir, segir í til- kynningu frá Neytendasamtökun- um. Þetta eigi þó aðeins við um happdrætti vegna ýmissa gjóbgerð- armála, en hins vegar ekki um happdrætti eins og í ofannefndum dæmum, sem eingöngu séu til þess að örva sölu á vöru eða þjónustu. ■ kosningunum 1991. Þá voru öll helstu hagsmunasamtök í landinu búin að lýsa yfir stuðningi við samninginn, þannig aö mér fannst hún taka rétta afstöðu," segir Krist- ín. Hún telur aftur á móti ákaflega erfitt að dæma um það hvort kosn- ingarnar sem hefðu fylgt í fram- haldi af neitun forseta, hefðu fyrst og fremst snúist um afstöðu kjós- enda til forseta eba ríkisstjórnar en minna um sjálfan samninginn eins og Vigdís hélt fram í áðurnefndu viðtali. Kristín telur það jafnframt vera misskilning hjá Vigdísi þegar hún talaði um það í sjónvarpsþætt- inum ab unga fólkið hefði verið úti- lokað frá flestum evrópskum há- skólum ef EES- samningurinn hefði ekki veriö samþykktur. Það helgast m.a. af því að samningurinn fjallaði hvorki um skóla- og menntamál né neitt þvíumlíkt. „En auðvitað hang- ir allt þetta samstarf saman," segir Kristín Ástgeirsdóttir þingkona Kvennalista sem krafðist þess á sín- um tíma ásamt fleirum að EES- samningurinn yrði borinn undir þjóðaratkvæðagreiðslu. -grh

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.