Tíminn - 12.07.1996, Blaðsíða 1
Þaö tekur aöeins
einn
■viHrantS^
dag
t.f....... m " - -
þínum til skila
STOFNAÐUR 1917
80. árgangur
Föstudagur 12. júlí
130. tölublað 1996
Mjólkurbú Flóamanna
tekur viö rekstri mjólkur-
samlags KASK í haust:
30 milljón
króna
sparnabur
A5 öllum líkindum flytur
starfsemi mjólkursamlags
KASK á Höfn í Hornafirði til
Mjólkurbús Flóamanna á
Selfossi þann 1. sept. nk. en
þá tekur gildi samningur frá
því í vor milli félaganna
tveggja um yfirtöku MBF á
mjólkursamlagi KASK.
„Það er nú ekki svo einfalt
að Mjólkurbú Flóamanna hafi
tekið þessa ákvörðun. Það hef-
ur verið krafa fjölmargra aðila,
stjórnvalda sem annarra, að
hagræða í mjólkuriðnaði og
þetta er í reynd framhald af
þeim aðgerðum þegar Mjólk-
urbúið í Borgarnesi var lagt
niður. Það má reikna með um
30 milljón króna sparnaði á
ári með þessum samningi,"
sagði Garðar Eiríksson, skrif-
stofustjóri hjá Mjólkurbúi
Flóamanna, í samtali við Tím-
ann.
Sparnaður verður í flutn-
ings- og rekstrarkostnaði að
sögn Garðars. Hann segir að
flutningabílar Kaupfélags Hér-
aðsbúa séu hvort eð er á ferð-
inni á þessu svæði og með
samningum við þá losna
menn við tvöfalda flutninga.
„Við náum að spara u.þ.b.
40.000 km. akstur á stórum og
þungum bílum á ári." Starf-
semi mjólkursamlagsins á
Hornafirði leggst alveg niður.
Tæki til framleiðslu Mozarella
osts verða flutt til Egilsstaða
en innlögð mjólk verður öll
flutt á Selfoss. Um er að ræða 2
milljónir lítra á ári að meðal-
tali sem bætast við þá tæplega
37 milljón lítra af innlagðri
mjólk í MBF á ári. Ekki þarf því
að leggja út í neinn kostnað
hjá MBF til að taka á móti nýju
mjólkinni enda mun yfirtakan
skila lítilli veltuaukningu þó af
henni hljótist sparnaður.
-LÓA
Geisladiskatæknin og
bókmenntaarfur íslend-
inga tengjast:
Vigdís fékk
fyrsta CD-
ROM diskinn
Vigdís Finnbogadóttir tók í
gær við CD-ROM geisladiski
fyrir tölvur sem Mál og menn-
ing gaf út í gær. Diskurinn
geymir oröstöðulykil og texta
allra íslendingasagna.
Er hér um aö ræða efni sem
auðveldar mjög rannsóknir á
þjóðararfi íslendinga. Má segja
að hér tengist saman nútíma
tölvutækni og hin forna sagna-
hefð. ■
r
Tíkin Táta
• Hreinræktaöur íslenskur hundur var meö í útreiöartúrnum hjá ömmu Úlfhildi og henni Ragnhildi í Mosfellsbœnum f
gœrdag. Blíöviöriö er faríö aö hellast yfir suövesturkjálkann aö nýju eftir aö rigndi hóflega í tvo daga eöa svo. Tímamynd cva
Ymsar blikur á lofti í atvinnumálum fiskvinnslufólks. Form. fiskvinnsludeildar VMSI:
Margir hafa ekki
efni á sumarfríi
Ýmsar blikur eru á lofti í at-
vinnumálum fiskvinnslu-
fólks vítt og breitt um alla
strönd þegar obbinn af tog-
araflotanum heldur í Smug-
una þar sem aflinn er ýmist
frystur eöa saltaður um borð.
Þá stefnir allt í það að sumar-
lokanir hjá einstökum fisk-
vinnslustöðvum muni vara
lengur en venjulega. En síð-
ast en ekki síst eru einstaka
forystumenn fiskvinnslu-
húsa famir að ræða það op-
inberlega að það kunni að
vera hagstæðast með tilliti
til lítils þorskkvóta og lélegs
marksaðsverðs á bolfiskaf-
urðum að stofna fiskvinnslu-
fyrirtæki t.d. í Póllandi þar
sem launakostnaður er
minni en hérlendis eða í
ríkjum ESB þar sem fiskverð
er niðurgreitt.
Aðalsteinn Á. Baldursson
formaður fiskvinnsludeildar
Verkamannasambands ís-
lands, sem jafnframt er for-
maður Verkalýðsfélags Húsa-
víkur, segir að þessi þróun í
fiskvinnslunni sé mjög alvar-
legt mál, enda muni réttar-
staða fiskvinnslufólks verða
eitt af þeim málum sem verður
uppá borðum þegar gengið
verður til samninga um kaup
og kjör í vetur. Hann segir að í
þessu ljósi sé það kannski ekk-
ert undarlegt þótt erfitt sé oft á
tíðum að fá fólk til að vinna
við þessa undirstöðuatvinnu-
grein landsmanna þegar at-
vinnuöryggið er ekki meira en
raun ber vitni um. Þá sé það
staðreynd að margt fisk-
vinnslufólk hefur hreinlega
ekki efni á því að taka sér frí
yfir sumarið vegna lágra
launa.
Hinsvegar sé erfitt aö henda
reiður á því hvaða afleiðingar
það muni hafa fyrir atvinnu
fiskvinnslufólks sú ákvörðun
margra útgerða að salta um
borð afla ísfisktogara í Smug-
unni. En oft á tíðum er tölu-
X
verða vinnu að hafa við salt-
fiskinn eftir að búið er að skipa
honum í land. Engu að síður
er viðbúið að sumarlokanir og
minna framboð af fiski til
vinnslu í landi muni leiða til
aukins atvinnuleysis meðal
fiskvinnslufólks í sumar.
Hann segir að ótti fisk-
vinnslufólks um atvinnuör-
yggi sitt og framtíð hefði kom-
ið berlega í ljós á þeim fund-
um sem forusta VMSÍ gekkst
fyrir um land allt. Aðalsteinn
bendir einnig á að á sama tíma
og fólk er óttaslegið um af-
komu sína virðast stærstu sjáv-
arútvegsfyrirtækin hafa burði
til þess að fjárfesta erlendis og
skapa þarlendu fólki atvinnu.
Svo sé ekki sé minnst á þá
staðreynd að íslensk fisk-
vinnslufyrirtæki virðast vera
vel samkeppnishæf um hrá-
efni erlendis frá vegna þess
hvað launakostnaður þeirra er
lítill miðað við erlenda sam-
keppnisaðila. -grh
Císli Halldórsson golfari, 82 ára
keppnismaöur. Teikning R.Lár.
GOLF-síða
Ragnars Lár.
er á bls. 8