Tíminn - 12.07.1996, Qupperneq 1

Tíminn - 12.07.1996, Qupperneq 1
Þaö tekur aöeins einn ■viHrantS^ dag t.f....... m " - - þínum til skila STOFNAÐUR 1917 80. árgangur Föstudagur 12. júlí 130. tölublað 1996 Mjólkurbú Flóamanna tekur viö rekstri mjólkur- samlags KASK í haust: 30 milljón króna sparnabur A5 öllum líkindum flytur starfsemi mjólkursamlags KASK á Höfn í Hornafirði til Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi þann 1. sept. nk. en þá tekur gildi samningur frá því í vor milli félaganna tveggja um yfirtöku MBF á mjólkursamlagi KASK. „Það er nú ekki svo einfalt að Mjólkurbú Flóamanna hafi tekið þessa ákvörðun. Það hef- ur verið krafa fjölmargra aðila, stjórnvalda sem annarra, að hagræða í mjólkuriðnaði og þetta er í reynd framhald af þeim aðgerðum þegar Mjólk- urbúið í Borgarnesi var lagt niður. Það má reikna með um 30 milljón króna sparnaði á ári með þessum samningi," sagði Garðar Eiríksson, skrif- stofustjóri hjá Mjólkurbúi Flóamanna, í samtali við Tím- ann. Sparnaður verður í flutn- ings- og rekstrarkostnaði að sögn Garðars. Hann segir að flutningabílar Kaupfélags Hér- aðsbúa séu hvort eð er á ferð- inni á þessu svæði og með samningum við þá losna menn við tvöfalda flutninga. „Við náum að spara u.þ.b. 40.000 km. akstur á stórum og þungum bílum á ári." Starf- semi mjólkursamlagsins á Hornafirði leggst alveg niður. Tæki til framleiðslu Mozarella osts verða flutt til Egilsstaða en innlögð mjólk verður öll flutt á Selfoss. Um er að ræða 2 milljónir lítra á ári að meðal- tali sem bætast við þá tæplega 37 milljón lítra af innlagðri mjólk í MBF á ári. Ekki þarf því að leggja út í neinn kostnað hjá MBF til að taka á móti nýju mjólkinni enda mun yfirtakan skila lítilli veltuaukningu þó af henni hljótist sparnaður. -LÓA Geisladiskatæknin og bókmenntaarfur íslend- inga tengjast: Vigdís fékk fyrsta CD- ROM diskinn Vigdís Finnbogadóttir tók í gær við CD-ROM geisladiski fyrir tölvur sem Mál og menn- ing gaf út í gær. Diskurinn geymir oröstöðulykil og texta allra íslendingasagna. Er hér um aö ræða efni sem auðveldar mjög rannsóknir á þjóðararfi íslendinga. Má segja að hér tengist saman nútíma tölvutækni og hin forna sagna- hefð. ■ r Tíkin Táta • Hreinræktaöur íslenskur hundur var meö í útreiöartúrnum hjá ömmu Úlfhildi og henni Ragnhildi í Mosfellsbœnum f gœrdag. Blíöviöriö er faríö aö hellast yfir suövesturkjálkann aö nýju eftir aö rigndi hóflega í tvo daga eöa svo. Tímamynd cva Ymsar blikur á lofti í atvinnumálum fiskvinnslufólks. Form. fiskvinnsludeildar VMSI: Margir hafa ekki efni á sumarfríi Ýmsar blikur eru á lofti í at- vinnumálum fiskvinnslu- fólks vítt og breitt um alla strönd þegar obbinn af tog- araflotanum heldur í Smug- una þar sem aflinn er ýmist frystur eöa saltaður um borð. Þá stefnir allt í það að sumar- lokanir hjá einstökum fisk- vinnslustöðvum muni vara lengur en venjulega. En síð- ast en ekki síst eru einstaka forystumenn fiskvinnslu- húsa famir að ræða það op- inberlega að það kunni að vera hagstæðast með tilliti til lítils þorskkvóta og lélegs marksaðsverðs á bolfiskaf- urðum að stofna fiskvinnslu- fyrirtæki t.d. í Póllandi þar sem launakostnaður er minni en hérlendis eða í ríkjum ESB þar sem fiskverð er niðurgreitt. Aðalsteinn Á. Baldursson formaður fiskvinnsludeildar Verkamannasambands ís- lands, sem jafnframt er for- maður Verkalýðsfélags Húsa- víkur, segir að þessi þróun í fiskvinnslunni sé mjög alvar- legt mál, enda muni réttar- staða fiskvinnslufólks verða eitt af þeim málum sem verður uppá borðum þegar gengið verður til samninga um kaup og kjör í vetur. Hann segir að í þessu ljósi sé það kannski ekk- ert undarlegt þótt erfitt sé oft á tíðum að fá fólk til að vinna við þessa undirstöðuatvinnu- grein landsmanna þegar at- vinnuöryggið er ekki meira en raun ber vitni um. Þá sé það staðreynd að margt fisk- vinnslufólk hefur hreinlega ekki efni á því að taka sér frí yfir sumarið vegna lágra launa. Hinsvegar sé erfitt aö henda reiður á því hvaða afleiðingar það muni hafa fyrir atvinnu fiskvinnslufólks sú ákvörðun margra útgerða að salta um borð afla ísfisktogara í Smug- unni. En oft á tíðum er tölu- X verða vinnu að hafa við salt- fiskinn eftir að búið er að skipa honum í land. Engu að síður er viðbúið að sumarlokanir og minna framboð af fiski til vinnslu í landi muni leiða til aukins atvinnuleysis meðal fiskvinnslufólks í sumar. Hann segir að ótti fisk- vinnslufólks um atvinnuör- yggi sitt og framtíð hefði kom- ið berlega í ljós á þeim fund- um sem forusta VMSÍ gekkst fyrir um land allt. Aðalsteinn bendir einnig á að á sama tíma og fólk er óttaslegið um af- komu sína virðast stærstu sjáv- arútvegsfyrirtækin hafa burði til þess að fjárfesta erlendis og skapa þarlendu fólki atvinnu. Svo sé ekki sé minnst á þá staðreynd að íslensk fisk- vinnslufyrirtæki virðast vera vel samkeppnishæf um hrá- efni erlendis frá vegna þess hvað launakostnaður þeirra er lítill miðað við erlenda sam- keppnisaðila. -grh Císli Halldórsson golfari, 82 ára keppnismaöur. Teikning R.Lár. GOLF-síða Ragnars Lár. er á bls. 8

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.