Tíminn - 17.07.1996, Page 3
Mi&vikudagur 17. júlí 1996
3
Fjármögnun arösemigreiningar Magnesíumverksmibja í fullum gangi. júlíus jónsson forstjóri
Hitaveitu Suöurnesja:
Ákvörðun í mánaöarlok
Skólar til sveitarfélaga
eftir tvœr vikur:
Margt er
þó óljóst
Enda þótt aðeins tvær vikur séu
til stefnu að sveitarfélögin taki
viö rekstri grunnskólanna, er
margt á huldu um framkvæmd-
ina að sögn þeirra Hannesar Þor-
steinssonar launafulltrúa og Guð-
rúnar Ebbu Ólafsdóttur varafor-
manns Kennarasambands ís-
lands.
Starfsmenn skólanna fá nýja yfir-
menn og launagreiðendur, en fjöl-
margir þættir eru óljósir enn varð-
andi flókin samningamál kennara.
Gera þarf nýja ráðningarsamn-
inga við aðra en þá sem eru fast-
ráðnir eða skipaðir í störf yfir 1. ág-
úst. Vitað er að enn á eftir að gera
ráðningasamninga við fjölmarga
kennara. -JBP
„Við viljum meina að svona
stórvirki sé ekki okkar einka-
mál," sagði Júlíus Jónsson for-
stjóri Hitaveitu Suðumesja í
samtali við Tímann, en fyrir-
tækið hefur leitað eftir þátt-
töku ríkissjóðs við forkönnun
á arðsemi magnesíumverk-
smiðju á Suöumesjum.
Júlíus sagði að búið væri að
safna 35 milljónum króna í
hlutafé en lagt hefði verið upp
með að safna 70 milljónum til
að ljúka forhönnun. Hlutafjár-
framlögin væru háð því að end-
anleg fjármögnun tækist. „Við
eigum tvo, þrjá, fjóra aðila eftir
sem við emm að reyna að fá
svör hjá en við emm ekkert að
gefa upp neina aðila eða tölur
fyrr en þetta er orðið pakki."
Erlendir aðilar munu taka að
sér arðsemiathugun á hug-
myndinni, en hún verður ekki
framkvæmd nema fram fari um
leið forhönnun á verksmiðj-
unni. Júlíus segir að upphaflega
hafi átt að svara þessum aðilum
5. júlí. „Við erum búnir að fá
því framlengt út mánuðinn,
þannig að það er gert ráð fyrir
því að við segjum af eða á fyrir
mánaðarmótin." Það samkomu-
lag er háð samþykki stjórnar
Magnesíumfélagsins og hún
getur ekkert staðfest fyrr en hún
hefur peningana í höndunum.
Hitaveita Suðurnesja hefur
lagt umtalsvert fjármagn í und-
irbúning magnesíumverksmiðj-
unnar. „í dæminu eins og það
stendur erum við búnir að
leggja rúmlega 70%. Hlutafé er
núna 60 milljónir og við erum
með rúmar 40 af því. Síðan
ákváðum viö að ábyrjast það
sem til þurfti og ætluðum að
leita eftir aðilum en það vildi
enginn gera neitt fyrr en við
vorum búnir að lofa, þannig að
núna ætlum við ekki að lofa
neinu fyrr en við sjáum hvað á
vantar og þá tökum við ákvörð-
un um hvort við brúum það bil
sem eftir verður eða ekki. Við
ætlum ekki að gera neitt fyrir-
fram því þá þýðir ekkert að tala
við neinn á eftir. Við bíðum eft-
ir endanlegum svörum, síðan
verður fundur hér í mánaðar-
lokin þar sem verður ákveðið
hvað gert verður," segir Júlíus
Jónsson forstjóri Hitaveitu Suð-
urnesja. -ohr
Hvalfjaröargöng ganga ágœtlega aö noröanveröu:
Gólfið níu metr-
um undir sjó
„Það gengur bara ágætlega,"
svaraði Björgvin Guðjónsson
jarðfræðingur er starfar við
nyrðri gangamunna Hvalfjarð-
arganga í samtali við Tímann.
Hann segir gólf ganganna vera
komið níu metra undir sjávarmál
en ekkert farið að leka.
Hann segir engin slys hafa orð-
ið á mönnum, bergið sé ljómandi
og hvorki vatn né sjór. En eru
tækin ekkert að bila?
„Ekkert nema bara svona eins
og gengur þegar tækin eru að fara
af staö og verið að þjálfa upp
mannskap. Tækin eru ný og
menn eru að læra á þau. Þrátt fyr-
ir það gengur þetta allt alveg
ljómandi vel."
Björgvin segir ekki annað að sjá
en það líti vel út framundan. „Það
er hægt að bora á undan sér. Við
borum fjórar könnunarholur á
undan og það er ekki að sjá annað
en þetta sé óbreytt framundan,
eitthvaö." -ohr
Ómar Valdimarsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir hafa starfaö fyrir Rauöa krossinn f Ngara í Tansaníu.
Ljósmynd Rauöi krossinn.
Slysavarnafélagiö um norrœnu heilsuverndarverö-
Herdís á
verðlaunin
Rauöi kross íslands. 50% aukning á sendifulltrúum:
Mikill áhugi á
h j álparstörfum
Blaðaskrif um norræn heilsu-
vemdarverblaun 1995 til Her-
dísar Storgaard bamaslysafull-
trúa Slysavamafélagsins urbu
um þab leyti sem félagið hélt
aðalfund á dögunum.
Slysavarnafélagið var sakað um
að hafa sælst eftir þessum verð-
launum. Nú hefur félagið og Her-
„Þetta er beinn afturkippur og þá
fyrst og fremst út af kvótastöb-
unni. Svo hefur fiskverb farib
lækkandi bæði á mörkuðum og
erlendis, þannig ab þab er engin
uppsveifla í útgerbinni, því mib-
ur", segir Kristján Ragnarsson for-
mabur LÍÚ um niburstöbu togara-
skýrslu landsambandsins fyrsta
ársþribjunginn á yfirstandandi
ári mibab vib sama tíma í fyrra.
Athygli vekur að nær allstaðar er
um minnkun að ræða á milli ára
hvort sem um er ab ræða aflaverb-
mæti togaranna, fjölda úthalds-
daga, meðalafla á úthaldsdag og
meðalskiptaverðmæti. Formabur
LÍÚ telur einsýnt að þessi niður-
staða sé vísbending um það hvernig
árið muni verða hjá togaraflotan-
um, þótt vibbúib sé að frystitogarn-
ir hafi eitthvab rétt úr kútnum
vegna karfaveiðanna á Reykjanes-
hrygg svo ekki sé talað um Smug-
una þar sem fátt er um fína drætti
þessa stundina. Hann telur að það
dís sent frá sér fréttatilkynningu
um málib. Verðlaunin voru Her-
dísar og annað kom ekki til álita.
Slysavarnafélagið kveðst stolt
og ánægt með Herdísi sem starfs-
kraft. „Herdís er og verbur barna-
slysafulltrúi Slysavarnafélagins,"
segir í fréttatilkynningunni.
breyti ekki heildarniðurstöbu
skýrslunnar þótt togarar Samherja
hf. á Akureyri séu ekki meb að þessu
sinni, nema þá um afla togara á
Norðurlandi.
Samkvæmt skýrslunni lækkaði
heildaraflaverðmæti togaraflotans
um rétt rúm 19% fyrstu fjóra mán-
uði ársins miðað við sama tíma í
fyrra, eða úr 8.693 milljónum króna
í 7.036 miljónir króna. Mesta
minnkunin var hjá frystitogurum,
tæp 20%, en þeir fiskuðu fyrir 3.860
milljónir króna fyrstu fjóra mánuði
ársins á móti 4.825 á sama tíma í
fyrra. ísfisktogarar öfluðu hinsvegar
fyrir 3.176 milljónir króna á fyrsta
ársþriðjungi í ár á móti 3.868 millj-
ónum kr. í fyrra, eba samdráttur um
tæp 18%. Þá fækkaði úthaldsdögum
hjá togaraflotanum um 16,3% á
þessu tímabili.
í skýrslunni kemur einnig fram
ab mebalafli frystitogara minnkaði
fyrstu fjóra mánubi 1996 miðaö við
sama tíma í fyrra um tæp 5,6%, eða
Lok kalda stríðsins viröast
hafa aukið á þörfina fyrir
hjálparstörf, ef marka má
fjölda sendifulltrúa á vegum
Rauða kross íslands. Ab jafn-
úr 11,2 tonnum í 10,58 tonn. Aftur
á móti jókst mebalafli ísfisktogara á
úthaldsdag um tæp 4%, eba úr 9,1
tonni í 9,46 tonn. í heildina
minnkaði meðalafli togaraflotans
um 0,26%, eða úr 9,93 tonnum í
9,90 tonn. Þá minnkaði meðal-
skiptaverðmæti á úthaldsdag hjá
öllum togumm, eða úr 705 þúsund-
abi hafa 20 sendifulltrúar far-
ib út árlega, eba 10 talsins
hvert misseri, en algengast er
að farib sé ab utan í hálft ár í
senn. Nú bregður hinsvegar
um króna í 680 þúsund krónur.
Sem fyrr var hæsta meðalskipta-
verðmætið hjá frystitogurum, eba
953 þúsund krónur á dag en hjá ís-
fisktogurum var skiptaverðmætib
að jafnabi um 501 þúsund krónur á
hvem veiðidag.
-grh
svo vib ab sendifulltrúamir
em 15 talsins, og er þar um
50% aukningu ab ræba frá því
undanfarin ár.
Sendifulltrúarnir starfa nú vib
hlið starfsmanna Alþjóðahreyf-
ingar Rauða krossins og landsfé-
laga hreyfingarinnar í níu lönd-
um í þremur heimsálfum. Vekur
þar einna mesta athygli ab flest-
ir þeirra, eða 7 talsins, eru stað-
settir í Evrópu þ.e. ef fyrrver-
andi lýðveldi Sovétríkjanna em
meðtalin. Þar af eru þrír að
störfum í fyrrverandi Júgóslav-
íu. í Afríku eru sex sendifulltrú-
ar, og í Asíu tveir.
íslendingar hafa sýnt mikinn
áhuga á hjálparstörfum á veg-
um Rauða krossins, og búist er
við mikilli aðsókn að næsta
námskeiði fyrir sendifulltrúa,
sem haldið verður í lok október
nk. Til að geta öðlast þátttöku-
rétt á náskeiðum Rauða krossins
þurfa menn ab vera orðnir 25
ára, hafa góða tungumálaþekk-
ingu, víðtæka starfsreynslu, og
síðast en ekki síst brennandi
áhuga á mannúðarmálum. 20
manna hópur er svo valinn úr
hópi umsækjanda til þáttöku í
fimm daga námskeiði undir
handleiðslu leiðbeinenda frá Al-
þjóða Rauöa krossinum í Genf.
-sh
-JBP
Togaraskýrsla LÍÚ fyrsta ársþriöjunginn heldur döpur miöaö viö sama tíma í fyrra:
Bakslag í afkomu togaraflotans
Fyrstu fjóra mánuöi ársins fiskabi Cuöbjörg ÍS-46 fyrir ríflega 205 milljónir króna.
Skipiö kostabi nýtt frá Noregi nokkuö á annan milljarö króna fyrir 2-3 árum.