Tíminn - 17.07.1996, Page 11

Tíminn - 17.07.1996, Page 11
Mibvikudagur 1 7. júlí 1996 11 Þróunarstofnun Sameinubu Þjóöanna: íslendingar í 8. sœti á mœlikvaröa lífsgœöavísitölu, næst á undan Svíum: Afkoma íslendinga nú lakari heldur en á áttunda áratugnum Efnahagsframfarir óraunverulegar í huga atvinnulausra: Um 35-40 milljón manns án vinnu í iönríkjunum Efnahagsframfarir þjóbar verða einungis raunverulegar í huga fólks ef því tekst ab fá áhugavert og vel launab starf, segja skýrslu- höfundar Þróunarstofnunar SÞ. Könnun í 69 löndum á síbasta áratug hafi mebal annars leitt í ljós, ab af þeim 46 þjóbum sem bjuggu vib hagvöxt hafi abeiris 27 einnig notib fjölgunar at- vinnutækifæra. í 19 þessara landa, eða 40%, hafi störfum ekkert fjölgað þrátt fyrir efnahgsbata. Mebal þeirra voru Indland, Pakistan, og Simbabve. Tólf þeirra landa, þar sem fjölgun starfa fylgdi efnahagsframförum, vom iðnaöarþjóðir, þeirra á mebal Kanada, Japan, Sviss, og Bandarík- in, en hinar eru nær allar í hópi uppgangsþjóða Austur-Asíu, svo sem Kína ásamt Tyrklandi og Chile. Boðskapur skýrsluhöfunda er sá, að hægt sé að snúa við á þeirri braut aukins atvinnuleysis sem margar þjóbir hafi lent á undanfar- in ár. En til að það megi takast verði aukin atvinna að vera for- gangsverkefni. Áætlab er að atvinnuleysi hrjái nú 35 milljónir manna í iðnríkjum og 4 milljónir til viðbótar hafi gef- ist upp á aö leita sér að vinnu. Hlutfall atvinnulausra sé frá 2,5% í Japan upp í 23% á Spáni. í Austur- Evrópu sé atvinnuleysi, sem var nær óþekkt fyrir 1990, nú t.d. kom- ið í 19% í Albaníu, 17% í Búlgaríu og Póllandi. Konur mæta þó enn frekari hindmnum en karlar. Af 1,3 millj- örðum blásnauðra séu konur um 70%. Laun þeirra séu aðeins 75% af launum karla, þ.e. þegar þær em í launaðri vinnu, en 3/4 vinnu sinn- ar verji þær í ólaunuð störf fyrir heimili og samfélag. í mörgum Afr- íkuríkjum sjái konur um 60% allra landbúnaðarstarfa og 80% allrar matvæíaframleiðslu. ■ Alls 64 þjóbir hafa nú hærri meðaltekjur á hvern íbúa heldur en nokkru sinni fyrr — en ísland er ekki meðal þeirra, segir í nýrri skýrslu Þróunar- stofnunar Sameinubuþjóöanna um þróun lífsgæba í heimin- um (Human development re- port 1996). Af ríku þjóbunum eru þab aðeins íslendingar, ásamt Finnum og Kanada- mönnum, sem hafa þab nú lé- legra fjárhagslega heldur en á síbasta áratug. En þrátt fyrir lægri þjóðartekjur á mann en grannarnir mælist ísland ab þessu sinni í 8. sæti á lista lífs- gæöavísitölu (Human develop- ment index) sem reiknub er út ár fyrir 174 lönd. Grundvölur lífsgæðavísitölunnar er saman settur úr þremur þáttum; al- mennu heilsufari (mebalævi- lengd), skólagöngu og kaup- mátt launa. Island var í 6. sæti í fyrra en því 14. árið þar ábur. Þróunarstofnunin vekur at- hygli á ab engin sjálfvirk tengsli séu á milli hagvaxtar og lífsgæbaþróunar. Enda standi ísland framar á lífsgæðalistan- um heldur en lönd eins og Sví- þjóð, (9. sæti), Danmörk (sem aöeins nær 17. sæti þrátt fyrir háu launin) og Þýskaland (18. sæti). Sviss og Lúxemborg sem jafnan eru í með einna hæstar þjóðartekjur á mann í heimin- um ná aðeins í 15. og 27. sæti samkvæmt lífskjaravísitölunni. Það er ekki síst langlífið sem ýtir íslendingum upp á lífs- gæðalistanum. Með 78,2 ára meðalævi eru íslendingar í hópi 5 langlífustu þjóða, þar sem Japanir tróna á toppnum með 79,6 ára áætlaða meðal- ævi. Ýmiss konar sainanburbur leibir m.a. í ljós ab íslendingar drukku að jafnaði 3,9 lítra af hreinu alkóhóli árið 1991 en Luxemborgarar 12,3 lítra. Árið 1994 voru ný eyðnitil- felli aðeins 1,1 á hverja 100.000 íbúa borið saman við 23 á hverja 100.000 í Bandaríkjun- urn. Á íslandi eru 93% alls kostn- aöar af heilbrigðisþjónustunni greidd af hinu opinbera (1991), sem er eitt allra hæsta hlutfall sem þekkist í heiminum. í Bandaríkjunum var samsvar- andi hlutfall abeins 61%. Á árunum 1990-91 segir skýrslan hlutfall slasaðra í um- ferðarslysum 343 á hverja 100.000 íbúa hér á landi, .sem sé hæsta slysatala á Norður- löndunum. Slysahlutfallið var samt fjórum sinnum hærra í Bandaríkjunum, um 1.400 slas- aðir af hverjum 100.000 íbú- um. Sjálfsmorð á árunum 1989-93 á íslandi voru 18 á hverja 100.000 karla og 4 á 100.000 konur. Hæst er þetta hlutfall hins vegar í Ungverjalandi, 55/100.000 karla og 18/100.000 kvenna. Meb 32 sjónvarpstæki fyrir hverja 100 íbúa em íslendingar ekki einu sinni hálfdrættingar á við Bandaríkjamenn þar sem sjónvarpstæki eru 82 á 100 íbúa. Á íslandi koma út 52 ein- tök af dagblöðum á hverja 100 íbúa, en Norðmenn slá okkur við með 61 blöð fyrir hverja 100 manns. Landsframleiðsla á hvern ís- lending var $ 17.660 árið 1992, rétt neöan við norræna meöal- lengra á stjórnmálasviðinu en nokkrar aðrar segir í skýrslunni. Meb 24% þingsæta og 15% ráð- herrastóla vantaði íslenskar konur enn nokkuð á ab ná þessu meðaltali. ■ taliö $ 18.090 á mann, en hins vegar meira en þrefalt meðaltal í heiminum, sem var $ 5.430 á mann. Með 35% þingsæta og 31% ráðherrastóla (1990-94) hafa konur á Norðurlöndunum náð

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.