Tíminn - 19.07.1996, Page 5

Tíminn - 19.07.1996, Page 5
5 Föstudagur 19. júlí 1996 Árni Gunnarsson: Meö allt niöurum Stutt grein um skemmtilega tísku Eg sæki vinnu í miöbæinn og geng stundum í hádeginu út á Snakkbarinn við Ingólfstorg og kaupi mér samloku. Á torginu eru ævinlega unglingar, sem leika kúnstir á hjólabrettum. Þetta eru mest strákar og margir þeirra hafa náö talsverðri fimi í stökkum og all- skyns hundakúnstum á hjólabrett- unum. Vetur, sumar, vor og haust æfa krakkarnir sig á brettunum sjálfum sér og jafnvel fleirum til skemmtunar. Þetta er gott dæmi um vel heppnaða unglingatísku. Einn daginn komast hjólabrettin úr tísku og krakkarnir taka til viö eitthvað annað. Sennilega kem ég til með að sakna hjólabrettatísk- unnar þegar hún verður úr sög- unni, ekki síst þeim klæðaburði sem fylgir henni. Upphaflega á hjólabrettatískan trúlega rætur sínar að rekja til ein- hverskonar Harlem-menningar, sem hefur skolað hingað upp með VETTVANGUR „Krakkamir á hjólabrett- unum em luralegir. Þeir ganga opinmynntir og álútir, í alltofstómm fót- um, með prjónahúfu á hausnum. Peysumar dingla utan á hjólabretta- kynslóðinni og buxnarass- inn nœr niður að hnjám. Þau eru með allt niður um sig í orðsins fyllstu merkingu." fjöldaframleiddu, bandarísku rusl- atunnubíói. Sama er mér hvaðan gott kemur, en þessi tíska smell- passar íslenskum aðstæðum. Krakk- arnir á hjólabrettunum eru luraleg- ir. Þeir ganga opinmynntir og álút- ir, í alltof stórum fötum, með prjónahúfu á hausnum. Peysurnar dingla utan á hjólabrettakynslóð- inni og buxnarassinn nær niður að hnjám. Þau eru með allt niður um sig sig í orðsins fyllstu merkingu. Árum og áratugum saman hafa kynslóðir unglinga á undan þessari kynslóð reynt að bera sig vel og þóst vera merkilegt fólk, en verið raunverulega með allt niðrum sig. Við munum eftir '68-kynslóðinni, sem taldi sig vera að bæta heiminn þó að annað hafi komið í ljós. Diskó-kynslóðin skildi lítið eftir sig tíu árum seinna og pönkararnir gerðu fátt annað eftirminnilegt en að raka á sér hausinn og sniffa þar til hausinn varð tómur að innan. X- kynslóðin borðaði E-pillur og sumir eru enn að. Sú kynslóð sem ég sé vaxa úr grasi við Ingólfstorg — með prjóna- húfu á hausnum og buxurnar á hælunum — er hvorki hrokafull né haldin hvöt til þess að frelsa heim- inn. Hún er hins vegar afskaplega þjóðleg. Höfundur er formaöur Sambands ungra framsóknarmanna. Georgískt helgirit á íslensku til minningar um Grigol íslandsvin Fjölvaútgáfan hefur nú gefið út veglegt rit til minningar um georg- íska Islandsvininn Grigol Matsja- variani, en hann fórst í bílslysi í heimalandi sínu í vor. Grigol varð þjóðkunnur hér á landi, er það fréttist að hann hefbi þar í fjarlægð og upp á eigin spýtur lært íslensku ótrúlega vel. Davíö Oddsson for- sætisráðherra sýndi honum og Irmu konu hans þá viöurkenningu að bjóba þeim hingað til lands, og dvöldust þau hér í hálft ár 1993. Þau komu sér vel og eignuðust marga vini og kunningja, sem sakna þeirra sárt. Grigol var mesti hæfileikamað- ur, félagslyndur og bráðskemmti- legur. Menn undruðust, hvar sem hann kom, hve vel hann hafði til- einkað sér íslenskuna. Hann átti létt meb að halda tækifærisræbur af vörum fram á íslensku af and- ríki, meb réttum framburði, og réð yfir miklum forba orða og orðatil- tækja. Ritið, sem Fjölvi sendir frá sér, er þýðing Grigols á fornu georgísku handriti, sem er bæði í senn grund- völlur bókmennta og kirkjuritunar þessarar kristnu Kákasusþjóðar. Þab nefnist Píslarvcetti Sjúsjanikar drottningar, ritað af kristnum munki um árið 480. Crigol Matsjavariani. Georgíumenn urðu meðal fyrstu þjóba til að gera kristindóminn að ríkistrú árið 337, en síðar var sótt að þeim úr öllum áttum. Persar neyddu Varsken, höfðingja þeirra, til að kasta trúnni og taka upp elds- dýrkun, en drottning hans Sjúsan- ík reis upp og hafnaði trúskiptum. Fyrir þab misþyrmdi hann henni og lokaði í dyflissu í sjö ár og minnir staðfesta hennar á úthald Mandela á vorum dögum. Því varð Fréttir af bókum hún lýsandi fordæmi Georgíu- manna um trúfesti jafnt gegn flóð- bylgjum íslams og sovéskri kúgun á þessari öld. Er saga hennar þjóð- ardýrgripur Georgíumanna og má líkja henni vib íslenskar fornsögur eða helgisögur miðalda, nema hún er um 800 árum eldri en okkar rit. Þrátt fyrir forneskjuna er hún fersk og skemmtileg, næstum nútíma- lega spennandi. Við þýðinguna naut Grigol að- stoðar ýmissa vina sinna: Pjeturs Hafstein Lárussonar, Kolbeins Þor- leifssonar og Kristjáns Árnasonar. Grigol ritar auk þess skýringar og sérstaka kynning á ættlandi sínu, þjóð og sögu með litljósmyndum. Fjölvaútgáfan fékk georgíska li- stakonu sérstaklega til ab mynd- skreyta verkib með fjölda litprent- abra mynda í georgískum stíl. Hún heitir Dali Mughadze og er þjóð- kunn í Georgíu. Það var miklum örðugleikum bundið að koma listaverkunum til íslands, því að ekki verður treyst á öruggar póst- samgöngur frá Georgíu. Benda má á, að þetta er fyrsta ge- orgíska ritið sem birst hefur í heild á íslensku. Bókin er ákaflega skrautleg og vönduð að öllum frá- gangi, síburnar prentaðar í dauf- brúnum lit og textinn með sér- stöku stílletri kenndu við Clairva- ux-klaustur (Kláruvelli) frá miðöld- um, svo allt minnir nokkuð á bókfell, en er þó vel læsilegt. Bókin um Píslarvætti Sjúsjaníkar er 80 síður í stóru broti. Filmugerð annaðist PMS í Súðarvogi, en prentun og bókband Grafík hf. Verð bókarinnar er kr. 2,480. Um fálkavarpið á Bessastöðum Eitt af því sem allir frambjóðendur í nýafstöðnum forsetakosningum voru sammála um, var að fara þyrfti sparlega með Fálkaorðuna. Er það ab vonum, enda ungaði fráfar- andi forseti út hvorki meira né minna en 604 íslenskum fálkum. Það jafngildir rúmlega þremur stykkjum á mánuði undanfarin sextán ár (Fjöldi útlendra fálka á þessum tíma er mér hulinn). Hlýt- ur þab að teljast, þökk fyrir, bæri- legur slatti. Orðunefnd hefur ekki tiltækar tölur um fálkaútungun annarra forseta, né heldur orðu- veitingar i tíð konungsríkisins ís- lands. Mér segir þó hugur um, ab frú Vigdís Finnbogadóttir hafi síst verib eftirbátur forvera sinna. Er heldur hvimleitt til þess að vita, einkum í ljósi þess að eitt af slag- orðum hennar í kosningabarátt- unni 1980 var að draga ætti úr orðuveitingum. Eitt af síðustu embættisverkum frú Vigdísar var að smala dágóðum slatta fólks suður að hinni fornu þrælakistu á Álftanesi og fálka mannskapinn. Meðal þeirra, sem þá voru ataðir fiðri ránfuglsins, voru þau Þorsteinn frá Hamri og Steinunn Sigurðardóttir. Dálæti frú Vigdísar á íslenskum bókmenntum hefur ekki fariö leynt. Þvert á móti hefur af orðum hennar mátt ráða, að hún telji skáldskap og aðrar listir spanna allt þab víða svið sem kallast menning. Þetta er að vísu æði þröngur skiln- ingur, en fyrirgefanlegur í ljósi þess að mönnum er tæpast ætlað að leggja meira af mörkum en inneign er fyrir. Nú er það svo ab þeir, sem und- anfarna áratugi hafa fylgst sæmi- lega með íslenskum bókmenntum, Pjetur Hafstein Lárusson munu nokkuö samdóma um að Þorsteinn frá Hamri hafi með skáldskap sínum markað spor, sem lesendum sé hollt að fylgja. Það sama verður tæpast sagt um tísku- höfund á borð vib Steinunni Sig- urðardóttur. Helst hefur hún unniö sér það til frægðar í tengslum vib bókmenntir, að liggja sem kálfur á spenum Launasjóðs rithöfunda, sem og öðrum spenum sem hægt er að totta, sé viljinn fyrir hendi í réttu hlutfalli við skort á sjálfsgagn- rýni. Það, að heiðra þessar tvær manneskjur fyrir framlag þeirra til bókmennta og þab með sama hætti, kemur því sem blaut tuska framan í andlit þeirra, sem gera nokkum mun á sönnum skáldskap og upphafinni auglýsinga- mennsku. Vissulega er fallegt að vera góður vib vini sína. En það flokkast tæp- ast undir manngæsku að hengja á þá opinberar orður að tilefnislausu. Það er einfaldlega kjánaleg misbeit- ing valds. Ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að veita fráfarandi forseta nokkra ölmusu umfram lögboðin eftir- laun. Væri ekki ráð að stíga skrefið til fulls og afhenda honum svo sem fjórar til fimm fálkaoröur árlega, svona rétt til að hann geti glatt þá vini sína sem litlu verða fegnir? ■ FÖSTUDAGS PISTILL ÁSGEIR HANNES REYKJAVÍK FYRIR REYKVÍKINGA Frá því Skúli Magnússon reisti gömlu innréttingarnar við Aðalstræti hefur blómlegt atvinnulíf sett svip sinn á höfuöborgina. Reykvíkingar hafa borib gæfu til ab brauðfæba jafnób- um alla íbúa borgarinnar og tugþús- undir manna úr svefnbæjum í grenndinni ab auki. Enda hefur straumur manna legið af lands- byggöinni til Reykjavíkur í atvinnuleit og til ab njóta félagslegs öryggis inn- an borgarmarkanna. Borgin hefur náb ab sinna þessum þörfum til skamms tíma ab minnsta kosti. En nú eru blikur á lofti og atvinnu- leysi hefur stungið sér nibur í Reykja- vík eins og víbar. Sum bæjarfélög bregbast við þeim vanda meb því ab láta heimamenn ganga fyrir meb at- vinnu og önnur hafa reyndar búib lengi vib slíka einokun. Vib þessar abstæbur hefur ný tegund vinnu- miblunar skotib upp kollinum um landsbyggðina og ekki seinna vænna að Reykjavíkurborg bregðist vib henni af fullri hörku. Um skeib hafa bæjarfélög á lands- byggðinni auglýst eftir fyrirtækjum til ab flytja heim í hérað og skapa þar atvinnu. Langflest koma fyrirtæk- in frá Reykjavík. Nýjasta útfærslan er svo ab nota fyrirtæki í borginni fyrir skiptimynt í átökum hagsmunas- eggja á landsbyggbinni. Þannig slóg- ust fisksalar um afurðir Útgerbarfé- Iags Akureyringa og Sölumiðstöb hrabfrystihúsanna sigrabi íslenskar sjávarafurbir meb því að kaupa Sæl- gætisgerbina Opal í Reykjavík og flytja norður yfir heiðar. Engum þarf að koma í opna skjöldu að ráðherrar úr sveitum landsins vilji flytja stofnanir ríkisins úr borginni þegar harðnar á dalnum. Sjálfsagt er ab lofa þeim að flytja stofnanir bænda frá Reykjavík og út á land, því þar starfa hvort sem er aöeins sveitamenn en ekki Reykvík- ingar. Öbru máli gegnir um Land- mælingar íslands, sem er gróin borg- arstofnun og á hvergi heima nema í Reykjavík. Og ekki nóg meb þab: Borgarstjórn Reykjavíkur verbur ab ganga óhrædd fram fyrir skjöldu og verja atvinnu fólksins í borginni okk- ar. Bregbast hart vib öllum hug- myndum sveitamanna um ab færa grónar stofnanir úr borginni í at- vinnuskyni. Selja arblausar eignir og nota andvirbib til ab kaupa ný fyrir- tæki handa Reykvíkingum. Verja at- vinnuleysisbótum til ab skapa at- vinnu í borginni, en greiba ekki fólki fyrir ab sitja meb hendur í skauti. Og betur má ef duga skal. í Reykjavík starfar fjöldi fólks sem býr í öbrum bæjarfélögum og greibir þangab opinber gjöld. Meira ab segja starfsmenn borgarinnar og margir helstu yfirmenn hennar eru í þeim hópi. Verktakar utan Reykjavík- ur eiga greiban abgang ab vinnu hjá borginni. Þetta gengur ekki lengur. Reykjavíkurfyrirtæki verba ab hafa algeran forgang á verk hjá borginni. Reykvíkingar verba líka ab sitja fyrir um vinnu hjá borginni sinni. Þab er ekki hlutverk Reykvíkinga ab halda úti atvinnu fyrir svefnbæina vib borgarmörkin. Þab er ekki heldur hlutverk Reykvíkinga ab halda úti fé- lagslegri þjónustu fyrir landsbyggb- arfólk. Önnur sveitarfélög hlaba ekki undir Reykvíkinga, eins og dæmin sanna. Reykjavík er byggb af Reykvík- ingum og fyrir Reykvíkinga.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.