Tíminn - 23.07.1996, Qupperneq 1
Þ *
'm&Fiu/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
80. árgangur
Þriðjudagur 23. júlí
137. tölublað 1996
Norsk-íslenska síldin er
feit en sú íslenska er
mögur eftir hrygningu:
Kópur GK fann
síld 60 mílur
frá Gerpi
Jakob Jakobsson forstjóri
Hafrannsóknastofnunar
sagbist í gær ekki hafa fengið
upplýsingar um þab hvort
síldin sem línubáturinn
Kópur GK fann 60 sjómílur
út af Gerpi sé íslensk eba úr
norsk-íslenska síldarstofnin-
um. Þá var Þórshamar GK á
leib á stabinn og var búist
vib ab skipverjar mundu
reyna ab kasta á torfuna sl.
nótt ef þeir fyndu þá síldina.
Forstjóri Hafró segir ab það
sé hinsvegar mjög mikill mun-
ur á þessum tveimur tegund-
um á þessum árstíma vegna
þess að íslenska síldin er nýbú-
in að hrygna og er því horuð á
sama tíma og norsk-íslenska
síldin væri feit eftir ab vera bú-
in að úða sig í æti sl. þrjá mán-
uði.
Af þeim sökum ætti það
ekki vera miklum vandkvæð-
um bundið að sjá hvað þarna
væri á ferðinni eftir að búið er
að koma höndum yfir sýni úr
þeirri síld sem skipverjar á Kóp
sigldu framá þarna eystra.
-grh
58 punda lax úr Reynisvatni Önnur eins skepna og þessi hefur trúlega aldrei sést koma á land úr ám
né vötnum á íslandi. Fjórtán ára strákur úr Caröabæ, Pétur Dabi Ólafsson, setti í þennan líka laxinn á sunnudaginn í Reynisvatni vib Reykjavík, þegar
hann var þar ab veibum ásamt hundrubum manna. Laxinn kom daginn ábur í vatnib frá laxeldisstöb, kynbœttur bolti, og nánast ónáttúrlegur í vextin-
um eins og sjá má. Erfitt reyndist ab vigta laxinn vegna stœrbar hans, en síbustu tölur um þyngdina voru 29 kíló, eba 58 pund. Tímamyndibp
Dagur og Tímirw sameinast:
Þriðja stóra dagblabið
lítur senn dagsins ljós
Nýtt afl er aö skapast á íslenskum
fjölmiðlamarkabi. Tíminn og
Dagur munu sameinast og mun
nýja blaðib bera nafn þeirra
beggja. Með sameiningunni verb-
ur þjónusta vib áskrifendur og
abra lesendur stórlega bætt. Dag-
ur-Tíminn verbur stærra blab og
efnismeira en hvort blabanna fyr-
ir sig er í dag og þribja stóra dag-
blaðib á markabnum. Þessa dag-
ana er unnib hörbum höndum ab
því ab koma útgáfunni á laggirn-
ar. Senn verbur tilkynnt hvenær
fyrsta tölublab hins nýja blabs
kemur út.
Sameining blaðanna byggist á
samkomulagi sem náðst hefur
milli Frjálsrar fjölmiblunar, sem á
og gefur Tímann út, og meirihluta
hluthafa í Dagsprenti sem gefur út
dagblaðið Dag. Eftir sameiningu
verður Frjáls fjölmiðlun meiri-
hlutaeigandi í Dagsprenti, útgáfu-
félagi hins nýja blaðs. Höfuð-
stöðvar Dags-Tímans verða á Ak-
ureyri.
Dagur-Tíminn verður óháð dag-
blað og frjálst og mun leggja mikla
áherslu á að sinna málefnum
landsbyggðar, eins og raunar
landsins alls, með vönduðum
fréttaflutningi og skýra frá mál-
efnum líðandi stundar með ein-
um hætti og öðrum.
Fréttasveit Dags-Tímans verður
staðsett um land allt og mun flytja
tíðindi af fólkinu í landinu og at-
burðum dagsins í dag. Landsmenn
eiga því að geta fylgst með fréttum
úr sínum heimahéröðum alla út-
gáfudaga Dags-Tímans.
Með sameiningu blaöanna
verður þjónustan viö núverandi
áskrifendur stórlega bætt. Þeir
munu fá stærra og efnismeira blað
í hendur og verður lögð sérstök
áhersla á að áskrifendur um land
allt geti lesið blaðið með morgun-
kaffinu.
Lesendur Dags-Tímans munu í
senn fá fróðlegt, efnismikið og
skemmtilegt blað þar sem fréttir
frá þeirra heimabyggð veröa á vís-
um stað. Þá veröur Dagur-Tíminn
frjáls og óháður vettvangur þjóð-
félagsumræðu á breiðum grund-
velli. Ritstjórn Tímans og aðrir
starfsmenn blaðsins fagna því að
gengið er til sameiningarinnar og
hlakka til að takast á við útgáfu
öflugs fréttablaðs.