Tíminn - 26.07.1996, Page 1
80. árgangur
STOFNAÐUR 1917
Föstudagur 26. júlí
140. tölublað 1996
Þingfararkaup miklu
hœrra á íslandi en í
Danmörku í hlutfalli viö
kaup annarra stétta:
Danskir þing-
menn með
tvöföld bréf-
beralaun
Danskir þingmenn hafa tvöfalt
(99%) hærri laun en danskir
póstmenn. íslenskir þingmenn
hafa 3,3 sinnum (234%) hærri
laun en íslenskir póstmenn.
Þingfararkaup, í hlutfalli við al-
menn laun annarra stétta, virö-
ast til muna hærri á íslandi
heldur en í Danmörku.
Fastakaup íslensks þingmanns
(195.000 kr. á mánuði) er t.d.
rúmlega 130% hærra en kaup
grunnskólakennara og rúmlega
110% hærra en kaup hjúkrunar-
fræðings. Mánaöarlaun danska
þingmannsins (28.500 Dkr.= 331
þús.kr.) eru aftur á móti bara 50%
hærri en hjá. danska grunnsóla-
kennaranum og tæplega 80%
hærri en laun hjúkrunarfræbings.
Dagvinnukaup nokkurra starfs-
stétta á íslandi og í Danmörku
kemur fram í nýlegri skýrslu for-
sætisráðherra um laun og lífskjör
í þessum löndum. Fróðlegt er að
bera þau laun saman við laun
þingmanna í hvoru landinu fyrir
sig:
Almenn laun sem hlutfall af
þingfararkaupi:
Island: Danmörk:
Þingmaður 195. 000 kr. 331.000 kr.
Bréfberi 30% 50%
Sjúkraliði 36% 51%
Fltr.skrifst. 37% 64%
Tollvörður 37% 83%
Gmnnsk.kenn. 43% 68%
Hjúkr.fræð. 47% 56%
Lögfræðingur 49% 87%
Héraðsdómari 99% 120%
Ráðuneytisstj. 113% 224%
Allar þessar starfsstéttir hafa
greinilega mun hærra hlutfall af
launum þingmanna sinna í
Danmörku heldur en hér á ís-
landi. Þannig ab í samanburði
við almenna launþega virðast
íslensku þingmennirnir hlut-
fallslega mun betur launaðir
heldur en danskir þingmenn
(með 28.500 Dkr.á mánuði),
sem aftur eru nokkurn veginn á
miðjunni í samanburði vib
þingmenn annarra landa Evr-
ópusambandsins. Laun þeirra
koma fram í úttekt sem blaðið
The European gerði í síðustu
viku.
íslenskt þingfararkaup er samt
sem áður meb því allra lægsta
sem þekkist meðal þingmanna í
löndum Evrópusambandsins,
eða á milli Spánverja og Grikkja.
Auk þingfararkaupsins,
195.000 kr. á mánuði sem hér
hefur veriö mibað við, eiga
þingmenn rétt á 40.000 kr. svo-
nefndum starfskostnaði á mán-
uði, sem sumir þingmenn hafa
hins vegar afsalað sér. Þar við
bætast síðan ýmsar greiðslur
vegna ferðakostnaðar og fleira
sem er mismunandi milli ein-
stakra þingmanna. ■
Islenskur bréfberi er ekki metinn ab sömu veröleikum og danskur starfsbróbir, ekki ef vibmiöunarstéttin er þingmabur
eins og fram kemur í frétt hér á síbunni. Þessir ágœtu starfsmenn póstþjónustunnar voru komnir af stab snemma ígærmorgun meb póstinn á sín svæbi
í miöborginni. Vib hittum þá Martein Fribriksson og Örvar Friöriksson (ekki brœbur, sögöu þeir), þarsem þeir voru staddir vib Alþingishúsib.
Tímamynd Pjetur.
Stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur samþykir tillögur til 290 milljóna sparnaöar á ári:
Fækkun um 92 rúm
og 105 starfsmenn
Fækkun um nærri 105 stöðu-
gildi og um 92 rúm verður
niðurstaðan ef sparnarðartil-
lögur þær sem stjórn Sjúkra-
húss Reykjavíkur samþykkti í
gær koma til framkvæmda. Af
þessum rúmum eru 54 á öldr-
unarsvibi, 13 á geösviði og 16
á lyf- og endurhæfingarsviöi,
auk þess sem augndeild
Landakots með 9 rúmum
flytji á Landsspítalann í
haust. Meb þessum aðgerðum
er einungis talib mögulegt ab
spara innan við 50 milljónir á
yfirstandandi ári, en eins árs
sparnaður er áætlaður rúm-
lega 290 milljónir.
Samkvæmt tillögunum verð-
ur dagdeild Hafnarbúba og
deild 35 í Arnarholti lokað (13
rúm), deild E-62 á Grensás lögð
niður (16 rúm), starfsemi
Heilsuverndarstöðvar og Hvíta-
bands flutt á Landakot (fækkun
um 41 rúm) og rúmum fyrir
öldrunarsjúklinga á B-4 fækkað
um 13. Þá er áformaöur sam-
dráttur í iðjuþjálfun, sjúkra-
þjálfun, félagsráðgjöf, röntgen-
deild og endurhæfingardeiid á
Grensási um sem svarar rúm-
lega 14 stöðugildi samtals.
Líkur til aö áöur óþekkt perla sé komin í leitirnar:
Nýtt ljób eftir Bólu-Hjálmar
Miklar líkur benda til þess ab
áður óþekkt ljób eftir Bólu-
Hjálmar hafi nýlega fundist.
Ljóðið fannst í uppskrifta-
bók frá síðustu öld og segir
Hjálmar Jónsson alþingis-
maöur og afkomandi nafna
síns frá Bólu ab um sé ab
ræða ritara sem tekið sé
verulegt mark á og sem megi
væntanlega treysta. „Við er-
um ab láta kanna þetta af
fagmönnum á Landsbóka-
safninu og Þjóðskjalasafn-
inu," segir Hjálmar.
Ljóðib sem um ræðir eru 24
vísur sem fjalla um Gretti Ás-
mundarson. Ekkert var vitað
um tilvist þessa kvæðis fyrr en
bókin kom í leitirnar, að sögn
Hjálmars.
„Nei, þetta er örugglega ekki
til í Landsbókasafninu, það er
búið ab kanna það. Nú er bara
að vita sönnur á því hvort
þetta er örugglega eftir Bólu-
Hjálmar og það er það sem við
erum að fara yfir og ætlum
ekkert að staðfesta fyrr en við
vitum.
Það þarf að bera þetta saman
við ljóöform og það þarf að
bera þetta saman við aðrar
uppskriftir þessa ritara og fyrr
viljum við ekki segja neitt, fyrr
en allt er öruggt," segir afkom-
andinn, presturinn og þing-
maðurinn, Hjálmar Jónsson.
-ohr
„Stjórn Sjúkrahúss Reykjvíkur
telur að þær breytingar á rekstri
sjúkrahússins sem fram-
kvæmdastjórnin leggur til séu
þau neyðarúrræði sem illskást
reynist að grípa til í þeirri stöbu
sem sjúkrahúsið er í nú", segir í
bókun sem stjórnin samþykkti
samhljóða á fundi sínum í gær
(fulltrúi heilbrigðisráöuneytis-
ins sat hjá). Breytingarnar
þurfa nokkurra mánaða aðdrag-
anda þannig að áformað er að
flestar þeirra komi til fram-
kvæmda í nóvember og desem-
ber.
Stjórn SHR telur fyllstu þörf
fyrir þá heilbrigðisþjónustu
sem sjúkrahúsið veitir nú. En
umræddar breytingar muni
skerba þjónustu við aldraða, við
geðsjúka og þá sem þurfa á end-
urhæfingu að halda. Sjúkrahús-
ið muni heldur ekki geta sinnt
sömu þjónustu og áður á sviði
skurðaðgerða. Samdrátturinn
muni síðan valda auknu álagi á
bráðadeildir Sjúkrahúss Reykja-
víkur og Landsspítalans og
hans vebi vafalaust vart hjá fé-
lagsþjónustu sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu. ■