Tíminn - 27.07.1996, Blaðsíða 1
ÚTIHÁTÍDIR og FERDALÖG Hnám*
Ekki er nákvœmlega vitaö hvenœr þessi mynd var tekin, en trúiega á sjötta áratugnum þegar síidarœvintýrib stáö sem hœst á Siglufiröi. Á myndinni eru konur („stúlkur") viö söltun, en marg-
ar minningar eru tengdar þessu gullaldartímabili í íslenskri atvinnusögu. Nú hafa Siglfiröingar tekiö söguna í þjónustu feröamála og gert Siglufjörö aö sérstökum ferbamannabœ.
Síldarœvintýriö á Siglufiröi:
Gullaldarstemmning fyrri ára
Siglufjörður og síld tengjast í
hugum margra — einkum fólks
sem komið er á miðjan aldur
og man þá tíð þegar Siglufjörð-
ur var einn aðal síldarbær
landsins og þungamiðjan í því
atvinnulífi sem byggöist á silfri
hafsins. Seint á sjöunda ára-
tugnum hætti síld úr norsk-ís-
lenska stofninum að veiðast og
lagðist þessi atvinnuvegur þá af
að mestu.
Þetta þýddi mikla blóðtöku fyr-
ir Siglufjörö, eins og aöra bæi
sem byggt höfðu afkomu sína að
miklu leyti á þessum veiðum.
Langan tíma tók að koma at-
vinnulífi bæjarins í vibunandi
horf að nýju. Þótt á Siglufirði sé
nú nokkuð blómleg atvinnustarf-
semi, er það með öbrum hætti en
þegar síldin flæddi þar um
bryggjur og plön.
Siglfirðingar minnast þó þessa
Ýmis hefðbundin mót verba
haldin um verslunarmanna-
helgina. Þar á mebal má nefna
Bindindismótið í Galtalækjar-
skógi og einnig Snæfellsásmótib
að Hellnum á Snæfellsnesi. Þessi
mót eru sitt meb hvorum hætti,
en byggja engu að síður bæbi á
mannrækt sem ákveðnu gildi.
Þótt mótin séu ólík ab allri gerð
og innihaldi, eiga þau þó eitt
sameiginlegt, en þab er að mót-
unum er ætlað að vera án alla
vímuefna.
tíma með virðingu og fyrir
nokkrum árum var ákveðib að
endurvekja ímynd þeirra sem lið
í vaxandi ferðaþjónustu í bæn-
um. Er það vel til fundið, þar sem
Siglufjörður er ákveðin endastöð
í þjóðvegakerfinu, þannig að fólk
fer ekki í gegnum bæinn á lengri
leið og verður því að eiga nokk-
urt erindi til þess að leggja leið
sína þangað. Þannig varð síldar-
ævintýrið á Siglufirði til, sem nú
verður haldið í sjötta sinn. Að
þessu sinni ætla Siglfirðingar að
vera með söltun í gangi allan
daginn á laugardag og sunnudag
um verslunarmannahelgina, en
hingað til hefur aðeins verið efnt
til söltunar á ákveðnum tímum.
Að undanförnu hefur verið unn-
ið að uppbyggingu sérstaks síld-
arminjasafns á Siglufirði og á
svæði safnsins er góð aðstaða til
söltunar. Theodór Júlíusson leik-
Á Bindindismótinu í Galta-
lækjarskógi hefur ávallt verið
lögð áhersla á fjölskyldulíf án
vímugjafa. Til mótsins var
stofnað á sínum tíma meðal
annars til þess að fá þangað fólk
og halda því frá áfengi, sem ver-
ið hefur áberandi á ýmsum úti-
hátíðum í gegnum tíðina. í
Galtalæk verða hefðbundin há-
tíðarhöld að þessu sinni. Til ný-
breytni má þó telja að nýlega
kjörinn forseti íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, og Guðrún K.
ari er einn af upphafsmönnum
síldarævintýrisins, en hann er
Siglfirðingur að ætt og uppruna.
Hann hefur einnig haft umsjón
með framkvæmd þess, sem bygg-
ist ab mestu á heimafólki sem
bregður sér í gervi fimmta og
sjötta áratugarins yfir þessa helgi.
Mikið er lagt upp úr því ab bær-
inn breyti um svip þessa daga og
taki á sig mynd þess síldarbæjar
sem margir eiga í minningum
sínum.
En það er ekki eingöngu síldar-
söltun sem ferðamönnum er
boðib að sækja til Siglufjarðar um
verslunarmannahelgina. Einnig
verbur efnt til margvíslegra
skemmtiatriða, auk þess sem
dansað veröur á stóru sviði sem
komið verður upp á Ráðhústorgi
bæjarins. Tónlistin verður í takt
við síldarárin og þá stemmningu
sem þá ríkti, því um 20 manna
Þorbergsdóttir, kona hans,
munu heiðra mótið með komu
sinni, en Ólafur hefur þá tekið
við embættinu og mun þetta
verða fyrsta heimsókn hans sem
forseta íslands.
Snæfellsásmótið byggist á
hugsuninni um vináttu, gleði
og frib og verður aðalmarkmið
þess að þessu sinni ab kynna
fólki leiðir til eigin sjálfsræktar
og persónulegrar leitar ab aukn-
um þroska.
Boðið verbur upp á margvís-
sveit harmonikuleikara, sem
flestir eiga heima á Siglufirði,
mun sjá um tónlistarflutning.
Margt annaö verður til
skemmtunar á Siglufirði um
þessa verslunarmannahelgi og
má þar meöal annars nefna tí-
volí, Fílapenslana og Spaugstof-
una, sem koma munu þangað til
þess að skemmta gestum. Einnig
verbur boðib upp á ýmiskonar
útiveru og má nefna dorgveiði,
gönguferðir meb leiðsögn um
nesið, bátsferbir, hestaleigu og
sjósleðaleigu (jet-sky) í því sam-
bandi.
Menning og listir gleymast
heldur ekki á Siglufirði um kom-
andi verslunarmannahelgi, því
Birgir Schiöth myndlistarmaður
mun opna myndlistarsýningu,
Leikfélag Siglufjarðar skemmta
gestum, Kvennakór Siglufjarðar
halda tónleika og fjöllistarflokkur
Hellnum
lega viðburði að Hellnum þessa
daga og stendur dagskrá móts-
ins frá því á morgnana og langt
fram á kvöld.
Meðal þess, sem fram fer, má
nefna námskeið í umbreytingar-
dansi, grasaferðir, heilunarvígsl-
ur, svitahof, skyggnilýsingar,
umfjöllun um áruliti og einnig
verður fjallað um geimverur og
nýja heimsmynd mannsins. Þá
verða í bobi ævintýraferðir fyrir
börn.
-ÞI
mun skemmta með margvísleg-
um brögðum fjöllistarinnar.
Dansleikir verba á sínum stað á
Siglufirði og kallast þeir síldar- og
landleguböll, eins og tíbkaðist á
síldarárunum, og verður dansað á
Ráðhústorgi, Hótel Læk og í Bíó-
salnum. Auk harmonikusveitar
heimamanna munu Gautar, sem
lengi voru ein af þekktustu dans-
hljómsveitum á Norðurlandi, og
Miðaldamenn sjá um fjörið.
Venja hefur verið að efna til
sérstakrar gubsþjónustu í Hvann-
eyrarskál fyrir ofan Siglufjörð á
sunnudagsmorgni og verður hún
á sínum venjulega stað og tíma.
Munu hestamenn ríða í skálina í
broddi fylkingar, eins og á und-
anförnum árum. Messan hefur
þótt sérstök og margir heima- og
ferðamenn komið í skálina til
þess að hlýba á guðsþjónustu vib
þessar aðstæður. Allt að 900
manns munu hafa komiö í
Hvanneyrarskál, sem áður var
sungið um sem stað fyrir ástir og
ævintýr, til þessa guðsþjónustu-
halds á síðasta ári.
Á þeim sex árum, sem síldar-
ævintýrib á Siglufirði hefur verið
haldið um verslunarmannahelg-
ina, hefur þab náð að skipa sér á
bekk með stórum útihátíðum hér
á landi, í krafti sérstöðu sinnar.
Síldarævintýrið virðist því komið
til með að vera fastur liður í lífi
Siglfirðinga og halda uppi minn-
ingu mikillar „gullaldarstemmn-
ingar" hér á landi fyrr á árum.
-ÞI
Engin vímuefni á Galtalæk og
i
L