Tíminn - 30.07.1996, Qupperneq 1

Tíminn - 30.07.1996, Qupperneq 1
Þaö tekur aöeins einn ■ ■ ■virkan dag aö koma póstinum /if'fifjfif /f/ þíitum til skila PÓSTUR OG SlMI STOFNAÐUR 1917 80. árgangur Þriöjudagur 30. júlí 142. tölublað 1996 Klœbnaöur karlanna vib emb- cettistöku Ólafs Ragnars: Margir leigja kjólföt — ein- hverjir munu mæta í íslenska hátíðarbún- ingnum Katrín Óskarsdóttir er meb kjólfötin tilbúin fyrir embœttistöku nýs forseta. Búast má vib ab einhverjir gesta muni klœbast íslenska hátíbabúningnum, sem sést til hœgri á myndinni og hefur náb miklum vinsældum. Tímamynd: cs Jón Kristjánsson, formabur fjárlaganefndar: Áfram niðurskurður í næstu fjárlögum Fjölmargir bo&sgesta viö embættistöku Ólafs Ragnars Grímssonar á fimmtudaginn eru búnir ab festa sér kjólföt á leigu, en til þess er ætlast aö karlmenn, sem veröa í stór- um meirihluta viö athöfnina, klæöist þeim búningi. Búast má viö aö einhverjir muni klæöast nýja, íslenska hátíö- arbúningnum við hátíöina. Nokkrar leigur eru starfandi og leigja meðal annars kjólföt, smókinga, íslenska hátíðarbún- inginn, og síðkjóla fyrir kven- fólkið. „Ef eitthvað er um aö vera eins og konungskomur og álíka stórviöburöir, er ævinlega tals- vert um pantanir hjá okkur," sagði Hulda Þórðardóttir hjá kjóla- og smókingaleigu Brúö- arbæjar að Hjallabrekku 37 í Kópavogi. „Núna hafa pantanir veriö að berast og fötin verða tilbúin á miðvikudag. Sólarhringsleiga á kjólfötum er 4.200 krónur, en íslenski hátíðarbúningurinn er dýrari í útleigu, vegna þess að hann er dýrari í innkaupum, leigan á honum er 6.500 krón- ur á sólarhring, og einhverjir munu eflaust klæðast honum á fimmtudaginn," sagði Hulda. Kjólfataleiga Katrínar Óskars- dóttur í Grjótaseli 16 hefur líka mikið framboð af kjólfötum og öðrum samkvæmis- og við- hafnarfatnaði fyrir konur og karla. „Það eru svo margir þessara karla sem eru nánast í áskrift hjá mér. Það er miklu praktísk- ara að taka svona dýran fatnað á leigu öðm hverju," sagði Katrín í gær. Það kostar 4.500 krónur hjá henni aö fá lánuð kjólföt. Hún vissi ekki til að karlar mundu klæðast smókíng eða íslenska hátíðabúningnum við embætt- istökuna, í boðskortinu væri áskilið að menn mættu kjól- klæddir. Þó er vitað um í þaö minnsta tvo alþingismenn sem munu hunsa þessi tilmæli um kjól og hvítt, þá Össur Skarp- héðinsson og Ögmund Jónas- son. íslenskir aðalverktakar sf. greiða lang hæsta skatta lögað- ila í Reykjanesumdæmi álagn- ingarárið 1996, eða 337.960.538 krónur. Næst kemur varnarliðið með rúmar 144 milljónir og Hafnarfjarð- arkaupstaður er í þriðja sæti með Jón Kristjánsson alþingismað- ur og formaður fjárlaganefnd- ar alþingis segir að til þess aö geta skilað næstu fjárlögum hallalausum verði að skera út- gjöldin niður um 4 milljaröa króna. „Sá niðurskurður skiptist hlutfallslega niður á ráðuneytin, en sérstaklega þarf að draga saman í útgjald- afrekum málaflokkum, aðal- lega í heilbrigðis-, félags- og menntamálaráðuneyti. Þau sleppa ekki undan niður- skurðarhnífnum. Það auðveld- ar málið nokkuð að það eru meiri tekjur í ár, og uppsveifla í atvinnulífinu. Hinsvegar hefur orðið fyrirsjáanleg aukning í rétt rúmar 54,3 milljónir króna. Þá koma Pharmaco (53 m.kr.), Kópa- vogskaupstaður (50,3 m.kr.), Byko hf. (47,6 m.kr), Sparisjóður Hafnar- fjarðar (46,9 m.kr.), Byggingaverk- takar Keflavík (35,2), Fjarðarkaup (34 m.kr.), og P. Samúelsson (33,7 m.kr). ■ útgjöldum, þannig að við reiknum ekki með því að tekju- aukinn á þessu ári auðveldi okkur róðurinn á næsta ári. En það verður auðveldara að standa við það markmið á þessu ári að fjárlagahallinn verði ekki meiri en 4 milljarðar. Ef okkur tekst ekki að ná end- um saman núna við þessar að- stæður, þá gerum við það ekki í niðursveiflu." Jón sagði það vissulega áhyggjuefni ef einkaneysla færi úr böndunum. í því sambandi væri talað um að hagvöxtur mætti ekki vera meiri en 3-4% ef komast eigi hjá aukinni þenslu í þjóbfélaginu. Og við værum á þeim mörkum. Jón benti jafnframt á að vegna hættunnar á þenslu væri nauð- synlegt að stilla útgjöldum rík- isins í hóf. Nærtækara væri að auka útgjöldin þegar að færi að kreppa í þjóðfélaginu. Jón sagði ennfremur að verið væri að skoða það hvernig skera mætti niður útgjöldin án þess að það kæmi harkalega niður á þeim sem verst standa. „Vandamálið er að útgjöldin t.d. í heilbrigbisgeiranum halda áfram að vaxa, sérstaklega lyfja- kostnaðurinn sem vex stöðugt, þrátt fyrir aðgerðir til að halda honum niðri. Útgjöld vaxa líka mjög í tryggingakerfinu. Þetta tengist því að það er að verða aldurskipting í þjóðfélaginu, hlutfall eldra fólks er að aukast og því fjölgar þeim sem þurfa á bótum að halda". Samkvæmt áætlun ríkis- stjórnarinnar er stefnt að því að fjárlagahallinn í ár verði ekki meiri en 4 milljarðar króna, og er það í samræmi við fjárlaga- áætlun síðasta árs. Útgjöld munu fara fram úr áætlun á þessu ári, en á móti kemur mik- il tekjuaukning ríkissjóðs, sem rekja má til almenns efnahags- bata í þjóðfélaginu, og aukinn- ar neyslu því samfara. í ljósi þessara aðstæðna stefnir ríkis- stjórnin að því að skila halla- lausum fjárlögum á næsta ári. -JBP Skattskráin á Reykjanesi: Aöalverktakar hæstir -sh Skattgreibendur á Reykjanesi: Pétur Stefánsson skattakóngur Pétur Stefánsson, Amarhóli í Mosfellsbæ, er hæsti skatt- greiðandi úr hópi einstak- linga á Reykjanesi í ár. Hann greiðir 14.145.897 kr í skatta. Næstir koma: Reynir Jó- hannsson, Ránargötu 3, Grindavík með 11,6 m.kr; Benoný Þórhallsson, Staðar- hrauni 13, Grindavík (10,8 m.kr.), Steinn Sveinsson, Sæ- vangi 20, Hafnarfirði (10,3 m.kr.), Magnea Rósa Tómas- dóttir, Látraströnd 3, Seltjarn- arnesi (8,3 m.kr), Helgi Vil- hjálmsson, Skjólvangi 1, Hafn- arfirði (7,9 m.kr.), Werner ívan Rasmusson, Birkigrund 53, Kópavogi (7,8 m.kr.), Ágúst Valfells, Hrauntungu 46, Kópa- vogi (7,6 m.kr.), Einar Sædal Svavarsson, Hraunsvegi 10, Reykjanesbæ (7 m.kr.), Sólveig Eggerz Pétursdóttir, Skólabraut 3 Seltjarnarnesi (6,9 m.kr).

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.