Tíminn - 01.08.1996, Síða 4
4
WPlptltl®
Fimmtudagur 1. ágúst 1996
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Útgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: Jón Kristjánsson
Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson
Fréttastjóri: Birgir Gubmundsson
Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík
Sími: 563 1600
Símbréf: 55 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmi&ja hf.
Mánaðaráskrift 1700 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk.
Fráfarandi forseta
þakkab, nýjum fagnab
í dag tekur Ólafur Ragnar Grímsson við embætti
sem fimmti forseti lýðveldisins, en Vigdís Finn-
bogadóttir lætur af völdum eftir 16 ára farsælan
embættisferil sem forseti íslands. Það eru því
þáttaskil og ástæða til þess að þakka fráfarandi for-
seta einstaklega vel unnin störf í þágu íslensku
þjóðarinnar sem fulltrúi hennar á erlendum vett-
vangi og sameiningartákn heima fyrir. Jafnframt
skal nýjum forseta fagnað og honum óskað far-
sældar í hinu virðulega og vandasama hlutverki
forseta íslands.
Innsetning forseta íslands fer fram í Alþingis-
húsinu í dag, og fer hún fram samkvæmt hefðum
sem mótast hafa í sögu lýðveldisins. Lýðveldið er
ungt og hefðir okkar íslendinga sem sjálfstæðrar
þjóðar eru ekki gamlar. Hjá öðrum þjóðum hafa
slíkar venjur mótast á liðnum öldum en því er ekki
nema að litlu leyti til að dreifa hjá okkur.
Formfesta er ekki mikil í okkar samfélagi. Hér er
ekki veriö að mæla með stífum hirðsiðum að hætti
konungdæma, en það er sjálfsagt og eðlilegt að
æðsta stjórn landsins haldi upp á þjóðhátíðina
með ákveðnum og formföstum hætti svo sem gert
hefur verið með athöfn á Austurvelli, forseti ís-
lands sé settur í embætti á virðulegan hátt,
ákveðnar hefðir gildi um setningu og slit löggjaf-
arsamkomunnar og áramóta sé minnst með form-
föstum hætti af forseta landsins og forsætisráð-
herra svo að nefndar séu nokkrar hefðir sem verið
hafa um áraraðir.
Fulltrúar hins þrískipta valds í þjóðfélaginu bera
ábyrgð á innsetningu forseta íslands og eru jafn-
framt handhafar valds hans í forföllum forseta og
þegar hann fer erlendis. Forseti Hæstaréttar, for-
sætisráðherra og forseti Alþingis eru þessir fulltrú-
ar og skipa sinn sess við innsetningarathöfnina.
Um forsetaembætti hafa skapast farsælar venjur.
Forsetinn er fremstur meðal jafningja. Hann gefur
merkisatburðum í daglegu lífi þjóðarinnar og ein-
stakra byggðarlaga hátíðarblæ með nærveru sinni.
Hann er sameiningartákn þjóðarinnar og hafinn
yfir hið pólitíska dægurþras. Það hlutverk er eink-
ar mikilvægt.
Ólafur Ragnar Grímsson, sem tekur við embætti
forseta íslands í dag, kemur beint af vettvangi
stjórnmálanna og hefur háð þar harðar orrustur.
Úrskurður þjóðarinnar er sá að ekki sé ástæða til
þess að útiloka menn frá forsetaembættinu af
þeim orsökum. Hann háði sína kosningabaráttu á
hófsömum og hefðbundnum nótum og uppskar í
samræmi við það.
Tíminn óskar þess að gæfa fylgi Ólafi Ragnari
Grímssyni og fjölskyldu hans þegar hún flytur nú
um set og sest að á Bessastöðum sem er setur for-
seta íslands. Ekki er ástæða til annars en bjartsýni
um það að þjóðareining skapist um nýjan forseta.
Fullvíst er að íslenska þjoðin vill hafa samstöbu og
virðingu um embætti forsetans. Það embætti
minnir okkur á sjálfstæði okkar og þá lýðræðislegu
hefð sem þjóðinni ber að standa vörð um.
Jafnréttinu bjargað
Stefnumótun í jafnréttismálum hefur verib nokk-
ub í umræbunni í höfubstabnum undanfarin miss-
eri. Fyrir nokkrum mánubum varb mikil sprenging
í borgarkerfinu verna ósamlyndis þáverandi jafnr-
étisfulltrúa og þáverandi formanns jafnréttisrábs
og ef Garri man rétt snerust klögumálin um þab ab
formaburinn taldi fulltrúann ekki sýna neitt frum-
kvæbi en fulltrúinn sagbi formanninn óþarflega
vibskotaillan auk þess sem ekkert lægi fyrir um þab
í hverju starf jafnréttisfulltrúans ættu ab felast.
Þess utan blandabist inn í þetta mál spurningin
um hvort Reykjavíkurborg ætti ab móta algerlega
sjálfstæba jafnréttisáætlun eba hvort eblilegt væri
ab byggja á jafnréttisáætlunum sem gerbar hafi
verib á landsbyggbinni og var Akureyri sérstaklega
tilgreind.
Málib fór alla leib inn í borgarstjórn og borgar-
búar gátu hlýtt á heitar og tilfinningaþrungnar
umræbur um mikilvægi jafnréttis-
mála og starfs jafnréttisfulltrúa og
hversu brýnt væri ab þessi mála-
flokkur fengi sem mestan og bestan
framgang í stjórnsýslu höfubstabarins og starfs-
mannahaldi öllu. Sú snurba sem hljóp á þrábinn
milli fulltrúans og formannsins þótti því sérstak-
lega óheppileg öfugþróun í þessum mikilvæga
málaflokki.
Farsæll endir
En málib hefur sem betur fer fengib þann farsæla
endi ab nýr jafnréttisfulltrúi hefur tekib vib af
þeim gamla og nýr formabur tekib vib af gamla
formanninum. Og þab er ekki ab sökum ab spyrja
ab þessi mikilvægi málaflokkur er kominn í hinn
besta farveg og markvisst er unnib ab söfnun þýb-
ingarmikilla upplýsinga um stöbu og horfur í
jafnrétismálum borgarinnar. Eitt mesta stórvirkib á
þessu svibi er einmitt í deiglunni þessa dagana en
opinberaö hefur verib aö nokkrum starfsmönnum
borgarinnar verbur bobib ab taka sér 3 mánaöa
launaö fæbingarorlof. Þessir tilraunakarlar veröa
síöan vaktaöir á tímabilinu af jafnréttisnefnd
Reykjavíkur og kannab hvernig þeim gegnur í frí-
inu. I frétt í Tímanum í gær segir m.a. aö „feörun-
um og fjölskyldum þeirra veröi fylgt eftir meö viö-
tölum fyrir, á meban og eftir aö fæöingarorlofi lýk-
ur. Sömuleiðis yröu tekin vibtöl við samstarfsmenn
og yfirmenn á vinnustab. Meö verkefninu yrði
reynt ab leiba í ljós hvaða áhrif fæðingarorlof föð-
ur hefur á sjálfsmynd hans, tengsl hans vib barn
sitt, verkaskiptingu inni á heimilinu og þar með
jafnrétti kynjanna. Jafnframt að kanna hvernig
vinnustaburinn bregst við fæðingarorlofi föður og
hvernig yfirstíga megi þá erfiðleika sem kunna að
koma upp."
Áhugi á ab vera meb
Eins og þessi upptalning ber með sér er hér á
ferðinni verkefni sem skiptir gríðarlegu máli og er
afar líklegt til ab draga fram eiginleika hins dæmi-
gerða íslenska karlmanns þegar hann stendur
frammi fyrir „móðurlegu" umhyggjuhlutverki
með lítib barn heima hjá sér. Eng-
inn vafi er á að þeir tilraunakarlar
sem gefa sig í þetta verk verða ein-
mitt góbir fulltrúar kynbræðra
sinna og svara spurningum og viðtalameðferb
jafnréttisnefndar af samviskusemi. Þannig ab út-
koman gefi góða vísbendingu um hvernig karl-
menn í Reykjavík umbreytast þegar þeir fara ab
umgangast börnin sín, sem þeir væntanlega gera
fæstir eða hvað? Ekki mun það nú spilla fyrir
áhuga manna að komast í þennan tilraunahóp að
yfirmenn þeirra og samstarfsmenn verða með í
dæminu og eiga ab fylgjast með breytingunum og
skrifa um þab skýrslur hvort tilraunakarlarnir tali
ekki frekar um bleiukaup og barnavagna eftir orlof-
ið en fluguhnýtingar og fyllerí.
Það er því full ástæða til að fagna þessu framtaki
og lofa Guð fyrir ab tekist hefur að koma jafnréttis-
málum í höfuðborginni á sporib eftir hremming-
arnar í vor. Ab vísu veröur Garri að viburkenna að
hann myndi trúlega verða nokkuð feiminn að taka
þátt í þessari tilraun. Hins vegar myndu málin
horfa öbru vísi vib ef fengnir yrðu í tilraunahópinn
línumenn frá Landsvirkjun — það myndi óneitan-
lega líta betur út, enda vill Garri, eins og hann hef-
ur ábur lýst yfir, helst af öllu líkjast hinum karl-
mannlegu línumönnum.
Garri
GARRI
Konsertinn sem aldrei var haldinn
„Ferðin sem aldrei var farin" eftir Sigurð Nordal er
eitt af snilldarverkum íslenskrar smásagnagerðar.
Eins og nafnið bendir til, fjallar sagan um feröalag
sem ekkert varð úr nema umstang og undirbún-
ingur. í kvöld verða svo tónleikar sem aldrei verða
haldnir, en eru orðnir margfrægir af fregnum af
undirbúningi. Meðal þeirra sem ekki syngja í
kvöld eru stórstjörnurnar Björk og Kristján hetju-
tenór og Bubbi lætur ekki til sín heyra fremur en
Sinfóníuhljómsveit íslands.
Hátíðartónleikarnir sem ekki verða haldnir fóru
af stað meb miklum glæsi-
brag, eins og vænta mátti
við svo hátignarlega at-
höfn og forsetakrýningu
með viðeigandi svardög-
um. Svo er komin til önn-
ur söngskemmtun sem
ekki verður haldin á hátíð-
isdaginn. Kvennakór
Reykjavíkur átti aö stilla
sér upp framan við Alþing-
ishúsib og syngja við at-
höfnina sem þar fer fram.
Þab verður líka konsert
sem ekki verbur haldinn,
þrátt fyrir æfingar og und-
irbúning.
Forsætisráðuneytiö sagði aö
Kvennakórnum væri ofaukib, því
á Austurvelli á að blása í lúðra og
berja bumbur. Ekkert kvennapíp
þar.
Heiburinn lítils virbi
Forsetakonsertinn sem ekki var haldinn átti að
vera í Háskólabíói í kvöld, eftir að biskupinn yfir
íslandi og forseti Hæstaréttar hefðu veitt Ólafi R.
blessun guðs og sína.
Eftir ab í ljós kom að söng- og spilafólk átti aö
troða upp eingöngu þjóbhöfðingja og fósturjörð
hans til dýrðar, án annarrar umbunar en heiburs-
ins að fá að spila þar og syngja af hjartans lyst,
fóru að renna tvær grímur á listafólkið og að lok-
um felldi það grímuna alveg: Vib sprellum ekki í
Háskólabíói fyrir svo lítilmótleg kjör. Úr varb for-
setakonsert sem aldrei var haldinn og verður lengi
í minnum hafður, eins og ferðin sem aldrei var
farin. Eða sagði ekki þjóðskáldið að þab væri þakk-
arvert að sitja kyrr á sama stað og samt að vera ab
ferðast? Kannski eru þeir hljómleikar bestir og eft-
irminnilegastir sem aldrei eru haldnir.
Hvab átti ab gera vib aurinn?
Metnaðarfullir skipuleggjendur forsetahljóm-
leikanna létu þau bob út ganga, þegar hljómleik-
arnir voru ákveðnir, að mestu og bestu listamenn
lýðveldisins og víðar að myndu gefa vinnu sína,
en hlotnast heiðurinn. Var það látið gott heita þar
til upp komst að selja átti
inn fyrir vænar fúlgur. Þá
spurðu listamenn hver
ætti að fá aurinn, en þab
hefbu þeir átt að láta
ógert í kurteisisskyni.
Þeir sáu að verið var að
hafa þá að féþúfu fyrir
einhverjar óskilgreindar
þarfir. Upp úr einum
skipuleggjanda álpaðist
ab verib væri að safna fyr-
ir tónlistarhúsi og því
trúði enginn. Enn síbur
vildu listamenn trúa því
ab nota ætti gjafmildi
þeirra til að greiða upp í
kosningaskuldir, en auðvitað er
alveg fráleitt að nota krýningar-
daginn til svo ómerkilégra um-
svifa.
Úr því sem komið er skiptir engu máli hvað gera
átti við aðgangseyri forsetakonsertsins. Hann
verður hvort sem er ekki notaður til neins, ekki
einu sinni til kaupa eba endurnýjunar húsakosts
embættisins. Ekki fá listamennirnir sem hvorki
spiluöu né sungu neitt fyrir að láta það vera, frem-
ur en þeir áttu aö fá nokkuð fyrir aö spila og
syngja. Er þeirra hlutur hinn sami, hvort sem
konsertinn lukkaðist eða var aldrei haldinn.
Fræg er ferðin sem aldrei var farin, frægur verð-
ur forsetakonsertinn sem aldrei var haldinn og
lengi verður í minnum haft forsetaframboðið sem
Davíð lagði aldrei í.
Svo má vel hugsa sér hvort þessi pistill hefði
ekki orðið miklu betri ef hann hefði aldrei veriö
skrifaður.
OÓ
Á víbavangi