Tíminn - 01.08.1996, Page 6

Tíminn - 01.08.1996, Page 6
6 Fimmtudagur 1. ágúst 1996 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM Ingólfur Císlason bakarameistari (t.v.) og Eyþór jósepsson bragba á tilraunaframleibslunni og eru greinilega sáttir vib árangurinn. Nú stytt- ist óbum í ab varan verbi lögb undir dóm neytenda. Athyglisverbur dómur Samkvæmt nýuppkveönum dómi Héraösdóms Suöurlands er leyfilegt aö veiöa meö línu og handfærum á svokölluöu friöunarsvæöi yfir rafstrengjum og vatnslögnum milli lands og Eyja. Forsaga þessa máls er aö í mars í vetur var trillubátur staö- inn aö meintum ólöglegum linuveiðum á umræddu svæöi. Niöurstaða dómsins er sú aö bannið varði eingöngu botn- og flotvörpuveiöar. Dómsorð urðu því þau að skipstjórinn var sýknaður af öll- um kröfum ákæruvaldsins og sakarkostnaöur dæmdur á ríkis- sjóö. Þaö var Þorgeir Ingi Njáls- son sem kvaö upp dóminn. Ekkert Norbur- landamót kvenna- landsliba í Eyjum Fyrir liggur útskrift frá bæjar- ráöi frá 24. júní vegna erindis frá HSÍ, þar sem óskaö er eftir viöræöum viö bæjaryfirvöld um aö á næsta ári verði haldið í Eyjum Norðurlandamót 20 ára kvennalandsliöa í handbolta. Gert var ráö fyrir að allur kostnaöur við þátttakendur hér á landi yrði greiddur af Vest- mannaeyjabæ. Gert er ráö fyrir um 120 þátttakendum. Tómstundaráð þakkar það traust sem HSÍ sýnir Vest- mannaeyingum með erindinu, en getur ekki mælt með því aö bærinn standi fyrir mótinu, miöaö viö þær kröfur sem gerð- ar eru, enda ljóst aö heildar- kostnaöur yrði mikill og tekjur af umræddum leikjum myndi nema litlum hluta kostnaðar. Fluguhnýtingar- skóli vib Seltjörn í síðustu viku tók til starfa nýr fluguveiði/fluguhnýtingar- skóli viö Seltjörn. Hér er um að ræöa fyrsta fíokks aöstöðu meö mikla breidd varöandi flugu- veiðihnýtingar, auk ýmiss fróö- leiks um lífsmynstur laxfiska. Kennarar veröa þeir bestu sem völ er á, allir meö mikla reynslu við fluguveiöar. Nem- endur gista í nýinnréttuðu veiöihúsi staöarins og ætti viö þaö aö skapast svipuö stemmn- ing og í veiðitúrum. Sérstök áhersla verður lögö á unglinga og konur, auk þess sem hinn hefðbundni veiöimaöur er með. Kexiö farib ab bakast Þaö styttist í að framleiösla hefjist í nýju kexverksmiðj- unni við Hvannavelli á Akur- eyri. í vikunni fóru fyrstu kök- urnar að renna í gegnum bak- araofninn og þar meö byrjuðu menn að þreifa sig áfram meö þessa nýju framleiðslu. Er nú staddur hjá fyrirtækinu maður frá sænsku ráögjafarfyrirtæki sem aðstoðar við aö koma framleiöslunni af staö. Eigendur verksmiöjunnar eru fyrirtækið Upphaf ehf. og Sölumiöstöð hraðfrystihús- anna. Upphaf ehf. er í eigu þremenninganna sem gjarnan eru kenndir viö Akoplast, en þaö eru þeir Eyþór Jósepsson, Jóhann Oddgeirsson og Daní- el Árnason. Það er Eyþór sem hefur borið hitann og þung- ann af undirbúningi kexfram- leiðslunnar og hann mun stýra henni. í samtali viö Dag segir Ey- þór aö fariö verði af staö með 2-3 tegundir af kexi og síðan aukið eftir því sem málin þró- ast. Gert er ráð fyrir því að starfsmenn veröi 12-15 þegar reksturinn verður kominn á fullan skriö. Eyþór sagöi of snemmt aö upplýsa nafnið á nýja kexinu og því verða menn að bíða spenntir enn um sinn. Erfib fjárhags- staba Ólafsfjarb- arbæjar „Það getur í sjálfu sér eng- inn verið sáttur viö þessa út- komu," sagði Þorsteinn Ás- geirsson, forseti bæjarstjórnar Olafsfjaröar, um ársreikninga bæjarins, sem voru samþykkt- ir á fundi bæjarstjórnar í síð- ustu viku. Tekjur bæjarins voru 136 milljónir, en gjöldin rúmar 149, þannig aö gjöldin eru 13 milljónum hærri. Það, sem setur mest strik í reikninginn hjá bænum að þessu sinni, eru 20 milljónir sem gjaldfæröar eru vegna Glits og 7,5 milljónir vegna fyrirsjáanlegs taps fiskeldis- stöövarinnar Laxóss. „Nú verðum við bara aö bíta í skjaldarrendurnar. í kjölfarið á byggingu íþróttahússins er skuldastaðan komin á efri mörkin og við verðum aöeins að stíga á bremsurnar. En þaö er ekki þar með sagt að við ráðum ekki viö þetta. Viö verðum bara að fara yfir fjár- málin og taka aðeins til. Það er ljóst aö menn veröa aö gæta mikils aðhalds og viö drögum enga dul á aö það verður erfið staða á næsta ári," sagði Þorsteinn. Endurbótum á Vallakirkju ab Ijúka Undanfariö eitt ár eöa svo hafa staðið yfir gagngerar endurbætur á Vallakirkju í Svarfaöardal og eru þær nú á lokastigi. Kirkjan verður end- urvígö viö hátíðlega athöfn innan tíðar. Vallakirkja þykir afar falleg, en hún er úr timbri, byggð 1861 og vígö á annan í jólum þaö ár. Framkvæmdir hafa veriö umfangsmiklar og til aö byrja meö var þakið tekiö af kirkj- unni og hún rétt á grunnin- um. Síöan hefur hvert atriði verið tekiö fyrir og hafa fram- kvæmdir verið í umsjá hús- friðunarnefndar. Aö sögn El- ínborgar Gunnarsdóttur, for- manns sóknarnefndar Valla- sóknar, eru framkvæmdirnar nokkuö kostnaöarsamar, en engu aö síður vel peninganna viröi og nauðsynlegt aö vanda til verksins. Hefur tvívegis fengist styrkur úr húsfriðunar- sjóöi og fleiri sjóöum. Engu aö síður sé þetta nokkuð stór biti fyrir ekki stærri sókn, en um 900 manns búa í Vallasókn. „íbúar í Vallasókn gætu vel þegiö aö fólk hugsaði vel til kirkjunnar, bæöi brottfluttir Svarfdælingar og fleiri. Maður veröur var við að margir ein- staklingar vilja hjálpa til og þó hver leggi ekki fram háa upphæö kemur þaö allt til góöa," sagði Elínborg. Nú er verib ab leggja síbustu hönd á lagfœringar innanhúss í Vallakirkju og í gcer var Snorri Cubvarbarson málari þar ab störfum. jón Sigurbsson og Ásdís Arnardóttir. Tónleikar í Lista- safni Sigurjóns Á þriöjudagstónleikum í Lista- safni Sigurjóns Olafssonar þann 6. ágúst klukkan 20.30 koma fram Ásdís Arnardóttir sellóleik- ari og Jón Sigurösson píanóleik- ari. Á efnisskrá eru eftirtalin verk: Gömbusónata nr. 2 í D-dúr BWV 1028 eftir Johann Sebastian Bach, Sónata nr. 3 í A-dúr opus 69 eftir Beethoven, Myndir á þili eftir Jón Nordal, Habanera eftir Maurice Ravel og Le Grand Tango eftir Astor Piazzolla. Ásdís Arnardóttir nam sellóleik hjá George Neikrug í Boston í Bandaríkjunum, Richard Talkow- sky í Barcelona og Gunnari Kvaran í Reykjavík. Hún hefur haldið tón- leika í Bandaríkjunum og á Spáni. Jón Sigurðsson píanóleikari stundaði nám hjá Helgu Laxness og Halldóri Haraldssyni í Reykja- vík, Eriku Haase í Hannover í Þýskalandi og Caio Pagano í Pho- enix í Bandaríkjunum og hefur haldið tónleika í Bandaríkjunum og á íslandi. Á námsárum sínum léku þau Ás- dís og Jón saman í Tónlistarskólan- um í Reykjavík og á síðastliðnum vetri tóku þau upp þráöinn á ný og hafa þau haldið tónleika víöa. Þau starfa bæði í Reykjavík við kennslu. Viöskipta- og þjónustuskrá Hafnarfjaröar komin út Viöskipta- og þjónustuskrá Hafnarfjarðar er komin út. Það er fyrirtækið Almiölun sem gefur skrána út og er þetta í fyrsta skipti þar sem allar upplýsingar um þjónustu í Hafnarfirði er að finna á ein- um staö. í skránni er meöal annars að finna götukort af Hafnarfiröi og sérstaka fax- númeraskrá fyrirtækja í bæn- um. Þá eru upplýsingar um fyrirtæki þar sem símanúmer og kennitölur eru meðal ann- ars tilgreind. í lok skrárinnar eru upplýsingar um bæjaryfir- völd í Hafnarfiröi og hverjir eiga sæti í bæjarstjórn og nefndum á vegum bæjarfé- lagsins og stofnana þess. I fréttatilkynningu frá útgef- anda segir aö skráin sé unnin í samvinnu viö Hafnarfjaröarbæ og fyrirhugað sé aö endurútgefa hana árlega með leiöréttingum í samræmi viö þær breytingar sem verða á fyrirtækjum o§ stofnunum á hverjum tíma. I upphafi skrárinnar er ávarp Ell- erts Borgars Þorvaldssonar, for- seta bæjarstjórnar Hafnarfjarð- ar, og síöan er stutt ágrip af sögu bæjarins. Þá er aö finna fyrirtækjaskrá þar sem skráö eru öll fyrirtæki sem vitað er um í bænum í stafrófsröö. Skrá um öll húsfélög í Hafnarfirði er einnig aö finna í viðskipta- skránni meö heimilisfangi og kennitölu. Meginefni viöskipta- og þjón- ustuskrárinnar er þjónustuskrá þar sem er aö finna öll þau fyr- irtæki sem sendu inn skráningu og eru þau skráð eftir þjónustu- greinum. Dæmi eru um aö sama fyrirtæki sé skráö oftar en einu sinni, sem stafar af því aö þau fyrirtæki starfa þá í mis- munandi þjónustugreinum. Fyrirtækið Almiölun starfar að ýmsum útgáfumálum í Hafnarfirði og gefur meðal ann- ars út hið gamalkunna bæjar- blað Fjaröarpóstinn, sem nokkr- ir kennarar hleyptu af stokkun- um á sínum tíma undir forystu Ellerts Borgars Þorvaldssonar. Almiölun gefur nú einnig út bæjarblað í Kópavogi, Kópa- vogspóstinn, auk þess að reka staðbundna útvarps- og sjón- varpsþjónustu í Hafnarfiröi. ■ Finnland: Sérlán handa konum Þann 1. október næstkom- andi veröa liðin 90 ár frá því konur fengu kosningarétt í Finnlandi. Finnska þjóðþing- iö hefur ákveöiö aö minnast þess annars vegar meö hátíö- arfundi og hins vegar meö sérstakri samþykkt um sérlán til kvenna í atvinnurekstri. í því skyni veröa veittar 50 milljónir finnskra marka á fjár- lögum næsta árs, en það sam- svarar tæpum 750 milljónum ísl. króna. Skilyröi fyrir lánveit- ingu er aö konur eigi meiri- hluta í fyrirtækinu sem lánað er til og kona stjórni því. Formaður Sambands kvenna í atvinnurekstri, Ritva Sjöholm, telur aö sérlán til kvenna hafi einkum mikla þýðingu vegna þess aö konur vilji oft stofna þjónustufyrirtæki og torvelt hafi reynst aö fá lán til þess. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.