Tíminn - 01.08.1996, Blaðsíða 6
6
Fimmtudagur 1. ágúst 1996
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
Ingólfur Císlason bakarameistari (t.v.) og Eyþór jósepsson bragba á
tilraunaframleibslunni og eru greinilega sáttir vib árangurinn. Nú stytt-
ist óbum í ab varan verbi lögb undir dóm neytenda.
Athyglisverbur
dómur
Samkvæmt nýuppkveönum
dómi Héraösdóms Suöurlands
er leyfilegt aö veiöa meö línu
og handfærum á svokölluöu
friöunarsvæöi yfir rafstrengjum
og vatnslögnum milli lands og
Eyja.
Forsaga þessa máls er aö í
mars í vetur var trillubátur staö-
inn aö meintum ólöglegum
linuveiðum á umræddu svæöi.
Niöurstaða dómsins er sú aö
bannið varði eingöngu botn- og
flotvörpuveiöar.
Dómsorð urðu því þau að
skipstjórinn var sýknaður af öll-
um kröfum ákæruvaldsins og
sakarkostnaöur dæmdur á ríkis-
sjóö. Þaö var Þorgeir Ingi Njáls-
son sem kvaö upp dóminn.
Ekkert Norbur-
landamót kvenna-
landsliba í Eyjum
Fyrir liggur útskrift frá bæjar-
ráöi frá 24. júní vegna erindis
frá HSÍ, þar sem óskaö er eftir
viöræöum viö bæjaryfirvöld um
aö á næsta ári verði haldið í
Eyjum Norðurlandamót 20 ára
kvennalandsliöa í handbolta.
Gert var ráö fyrir að allur
kostnaöur við þátttakendur hér
á landi yrði greiddur af Vest-
mannaeyjabæ. Gert er ráö fyrir
um 120 þátttakendum.
Tómstundaráð þakkar það
traust sem HSÍ sýnir Vest-
mannaeyingum með erindinu,
en getur ekki mælt með því aö
bærinn standi fyrir mótinu,
miöaö viö þær kröfur sem gerð-
ar eru, enda ljóst aö heildar-
kostnaöur yrði mikill og tekjur
af umræddum leikjum myndi
nema litlum hluta kostnaðar.
Fluguhnýtingar-
skóli vib Seltjörn
í síðustu viku tók til starfa
nýr fluguveiði/fluguhnýtingar-
skóli viö Seltjörn. Hér er um að
ræöa fyrsta fíokks aöstöðu meö
mikla breidd varöandi flugu-
veiðihnýtingar, auk ýmiss fróö-
leiks um lífsmynstur laxfiska.
Kennarar veröa þeir bestu
sem völ er á, allir meö mikla
reynslu við fluguveiöar. Nem-
endur gista í nýinnréttuðu
veiöihúsi staöarins og ætti viö
þaö aö skapast svipuö stemmn-
ing og í veiðitúrum. Sérstök
áhersla verður lögö á unglinga
og konur, auk þess sem hinn
hefðbundni veiöimaöur er með.
Kexiö farib ab
bakast
Þaö styttist í að framleiösla
hefjist í nýju kexverksmiðj-
unni við Hvannavelli á Akur-
eyri. í vikunni fóru fyrstu kök-
urnar að renna í gegnum bak-
araofninn og þar meö byrjuðu
menn að þreifa sig áfram meö
þessa nýju framleiðslu. Er nú
staddur hjá fyrirtækinu maður
frá sænsku ráögjafarfyrirtæki
sem aðstoðar við aö koma
framleiöslunni af staö.
Eigendur verksmiöjunnar
eru fyrirtækið Upphaf ehf. og
Sölumiöstöð hraðfrystihús-
anna. Upphaf ehf. er í eigu
þremenninganna sem gjarnan
eru kenndir viö Akoplast, en
þaö eru þeir Eyþór Jósepsson,
Jóhann Oddgeirsson og Daní-
el Árnason. Það er Eyþór sem
hefur borið hitann og þung-
ann af undirbúningi kexfram-
leiðslunnar og hann mun
stýra henni.
í samtali viö Dag segir Ey-
þór aö fariö verði af staö með
2-3 tegundir af kexi og síðan
aukið eftir því sem málin þró-
ast. Gert er ráð fyrir því að
starfsmenn veröi 12-15 þegar
reksturinn verður kominn á
fullan skriö. Eyþór sagöi of
snemmt aö upplýsa nafnið á
nýja kexinu og því verða
menn að bíða spenntir enn
um sinn.
Erfib fjárhags-
staba Ólafsfjarb-
arbæjar
„Það getur í sjálfu sér eng-
inn verið sáttur viö þessa út-
komu," sagði Þorsteinn Ás-
geirsson, forseti bæjarstjórnar
Olafsfjaröar, um ársreikninga
bæjarins, sem voru samþykkt-
ir á fundi bæjarstjórnar í síð-
ustu viku. Tekjur bæjarins
voru 136 milljónir, en gjöldin
rúmar 149, þannig aö gjöldin
eru 13 milljónum hærri.
Það, sem setur mest strik í
reikninginn hjá bænum að
þessu sinni, eru 20 milljónir
sem gjaldfæröar eru vegna
Glits og 7,5 milljónir vegna
fyrirsjáanlegs taps fiskeldis-
stöövarinnar Laxóss. „Nú
verðum við bara aö bíta í
skjaldarrendurnar. í kjölfarið
á byggingu íþróttahússins er
skuldastaðan komin á efri
mörkin og við verðum aöeins
að stíga á bremsurnar. En þaö
er ekki þar með sagt að við
ráðum ekki viö þetta. Viö
verðum bara að fara yfir fjár-
málin og taka aðeins til. Það
er ljóst aö menn veröa aö
gæta mikils aðhalds og viö
drögum enga dul á aö það
verður erfið staða á næsta
ári," sagði Þorsteinn.
Endurbótum á
Vallakirkju ab
Ijúka
Undanfariö eitt ár eöa svo
hafa staðið yfir gagngerar
endurbætur á Vallakirkju í
Svarfaöardal og eru þær nú á
lokastigi. Kirkjan verður end-
urvígö viö hátíðlega athöfn
innan tíðar. Vallakirkja þykir
afar falleg, en hún er úr
timbri, byggð 1861 og vígö á
annan í jólum þaö ár.
Framkvæmdir hafa veriö
umfangsmiklar og til aö byrja
meö var þakið tekiö af kirkj-
unni og hún rétt á grunnin-
um. Síöan hefur hvert atriði
verið tekiö fyrir og hafa fram-
kvæmdir verið í umsjá hús-
friðunarnefndar. Aö sögn El-
ínborgar Gunnarsdóttur, for-
manns sóknarnefndar Valla-
sóknar, eru framkvæmdirnar
nokkuö kostnaöarsamar, en
engu aö síður vel peninganna
viröi og nauðsynlegt aö vanda
til verksins. Hefur tvívegis
fengist styrkur úr húsfriðunar-
sjóöi og fleiri sjóöum. Engu aö
síður sé þetta nokkuð stór biti
fyrir ekki stærri sókn, en um
900 manns búa í Vallasókn.
„íbúar í Vallasókn gætu vel
þegiö aö fólk hugsaði vel til
kirkjunnar, bæöi brottfluttir
Svarfdælingar og fleiri. Maður
veröur var við að margir ein-
staklingar vilja hjálpa til og
þó hver leggi ekki fram háa
upphæö kemur þaö allt til
góöa," sagði Elínborg.
Nú er verib ab leggja síbustu
hönd á lagfœringar innanhúss í
Vallakirkju og í gcer var Snorri
Cubvarbarson málari þar ab
störfum.
jón Sigurbsson og Ásdís Arnardóttir.
Tónleikar í Lista-
safni Sigurjóns
Á þriöjudagstónleikum í Lista-
safni Sigurjóns Olafssonar þann
6. ágúst klukkan 20.30 koma
fram Ásdís Arnardóttir sellóleik-
ari og Jón Sigurösson píanóleik-
ari. Á efnisskrá eru eftirtalin
verk: Gömbusónata nr. 2 í D-dúr
BWV 1028 eftir Johann Sebastian
Bach, Sónata nr. 3 í A-dúr opus
69 eftir Beethoven, Myndir á þili
eftir Jón Nordal, Habanera eftir
Maurice Ravel og Le Grand
Tango eftir Astor Piazzolla.
Ásdís Arnardóttir nam sellóleik
hjá George Neikrug í Boston í
Bandaríkjunum, Richard Talkow-
sky í Barcelona og Gunnari Kvaran
í Reykjavík. Hún hefur haldið tón-
leika í Bandaríkjunum og á Spáni.
Jón Sigurðsson píanóleikari
stundaði nám hjá Helgu Laxness
og Halldóri Haraldssyni í Reykja-
vík, Eriku Haase í Hannover í
Þýskalandi og Caio Pagano í Pho-
enix í Bandaríkjunum og hefur
haldið tónleika í Bandaríkjunum
og á íslandi.
Á námsárum sínum léku þau Ás-
dís og Jón saman í Tónlistarskólan-
um í Reykjavík og á síðastliðnum
vetri tóku þau upp þráöinn á ný og
hafa þau haldið tónleika víöa. Þau
starfa bæði í Reykjavík við kennslu.
Viöskipta- og þjónustuskrá
Hafnarfjaröar komin út
Viöskipta- og þjónustuskrá
Hafnarfjarðar er komin út.
Það er fyrirtækið Almiölun
sem gefur skrána út og er
þetta í fyrsta skipti þar sem
allar upplýsingar um þjónustu
í Hafnarfirði er að finna á ein-
um staö. í skránni er meöal
annars að finna götukort af
Hafnarfiröi og sérstaka fax-
númeraskrá fyrirtækja í bæn-
um. Þá eru upplýsingar um
fyrirtæki þar sem símanúmer
og kennitölur eru meðal ann-
ars tilgreind. í lok skrárinnar
eru upplýsingar um bæjaryfir-
völd í Hafnarfiröi og hverjir
eiga sæti í bæjarstjórn og
nefndum á vegum bæjarfé-
lagsins og stofnana þess.
I fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir aö skráin sé unnin í
samvinnu viö Hafnarfjaröarbæ
og fyrirhugað sé aö endurútgefa
hana árlega með leiöréttingum
í samræmi viö þær breytingar
sem verða á fyrirtækjum o§
stofnunum á hverjum tíma. I
upphafi skrárinnar er ávarp Ell-
erts Borgars Þorvaldssonar, for-
seta bæjarstjórnar Hafnarfjarð-
ar, og síöan er stutt ágrip af
sögu bæjarins. Þá er aö finna
fyrirtækjaskrá þar sem skráö eru
öll fyrirtæki sem vitað er um í
bænum í stafrófsröö. Skrá um
öll húsfélög í Hafnarfirði er
einnig aö finna í viðskipta-
skránni meö heimilisfangi og
kennitölu.
Meginefni viöskipta- og þjón-
ustuskrárinnar er þjónustuskrá
þar sem er aö finna öll þau fyr-
irtæki sem sendu inn skráningu
og eru þau skráð eftir þjónustu-
greinum. Dæmi eru um aö
sama fyrirtæki sé skráö oftar en
einu sinni, sem stafar af því aö
þau fyrirtæki starfa þá í mis-
munandi þjónustugreinum.
Fyrirtækið Almiölun starfar
að ýmsum útgáfumálum í
Hafnarfirði og gefur meðal ann-
ars út hið gamalkunna bæjar-
blað Fjaröarpóstinn, sem nokkr-
ir kennarar hleyptu af stokkun-
um á sínum tíma undir forystu
Ellerts Borgars Þorvaldssonar.
Almiölun gefur nú einnig út
bæjarblað í Kópavogi, Kópa-
vogspóstinn, auk þess að reka
staðbundna útvarps- og sjón-
varpsþjónustu í Hafnarfiröi. ■
Finnland:
Sérlán handa konum
Þann 1. október næstkom-
andi veröa liðin 90 ár frá því
konur fengu kosningarétt í
Finnlandi. Finnska þjóðþing-
iö hefur ákveöiö aö minnast
þess annars vegar meö hátíö-
arfundi og hins vegar meö
sérstakri samþykkt um sérlán
til kvenna í atvinnurekstri.
í því skyni veröa veittar 50
milljónir finnskra marka á fjár-
lögum næsta árs, en það sam-
svarar tæpum 750 milljónum
ísl. króna. Skilyröi fyrir lánveit-
ingu er aö konur eigi meiri-
hluta í fyrirtækinu sem lánað er
til og kona stjórni því.
Formaður Sambands kvenna í
atvinnurekstri, Ritva Sjöholm,
telur aö sérlán til kvenna hafi
einkum mikla þýðingu vegna
þess aö konur vilji oft stofna
þjónustufyrirtæki og torvelt
hafi reynst aö fá lán til þess. ■