Tíminn - 01.08.1996, Síða 9

Tíminn - 01.08.1996, Síða 9
Fimmtudagur 1. ágúst 1996 9 UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . Suharto hershöföingi og forseti Indónesíu hefur ríkt einrábur í 30 ár, en nú er heilsu hans fariö hraka og mörgum þykir sem dómgreindin sé ab fara sömu leib. Andstaba landsmanna gegn stjórn hans hefur enn- fremur ab öllum líkindum aldr- ei verib meiri, og hún nær orbib til flestra helstu þjóbfélagshóp- anna: Stúdentar krefjast réttlát- ara þjóbfélags, atvinnurekendur af millistétt kvarta undan þeim sérréttindum sem vinir og frændur Suhartos njóta í vib- skiptalífinu, verkamenn fara í verkföll til ab krefjast þess ab lágmarkslaun verbi hækkub (eru nú sem svarar tæpum 150 krónum á dag) og bændur mót- mæla því ab fólk sé hrakib af jörbum sínum án ástæbu. „Eftir 30 ár meb Suharto verbur sú til- finning æ almennari mebal fólks, ab nú sé nóg komib," seg- ir vibskiptarábgjafi nokkur í höfubborginni Jakarta. íbúar Indónesíu eru tæpar 200 milljónir talsins, og efnahagslega er landib nú á hrabri uppleið. Hagvöxtur er um 7 prósent á ári. En jafnframt því hefur spillingin farib hraövaxandi. Áhangendur og abstandendur Suhartos græba á tá og fingri á viöskiptabrölti sínu í olíu- og bifreiöaiönaðinum, aö ógleymdum fjarskiptaiönaöin- um, og hafa fengið stóra við- skiptasamninga á silfurfati. Sonur Suhartos, Hutomo „Tommy" Indónesía: tndónesíski herinn ab berja á stjórnarandstöbunni. Óánægja magnast Mandala Putra eignaðist t.d. ný- lega meirihluta í ítalska fyrirtæk- inu Lamborghini, sem framleiðir sportbíla eins og kunnugt er. Hin börnin fimm standa honum ekki langt aö baki hvað fjármálin snertir. Er nú svo komið að fjöl- skylda Suhartos er ein þeirra rík- ustu í heimi, en eigur hennar eru metnar á um 30 milljarða dollara. Á einungis fáeinum mánuðum hefur 49 ára kona, Megawati Suk- arnoputri, tekið ótvíræða forystu í hreyfingu stjórnarandstöðunnar. Megawati er dóttir Sukarnos, fyrsta forseta Indónesíu, og þar til fyrir skömmu var hún formaður Indónesíska lýðræðisflokksins (PDI), sem er annar af tveimur stjórnmálaflokkum sem leyfðir eru í landinu fyrir utan stjórnar- flokkinn sjálfan, sem heitir Golk- ar. í augum landsmanna er Mega- wati orðin að „tákngervingi lýð- ræðisins" í landinu, eins og mannréttindafrömuðurinn Poncke Princen orðar það. Segja má að vinsældir hennar og forystuhlutverk séu Suharto sjálfum að þakka. í júní lét hann skipa svo fyrir að hún segði af sér formannsembætti flokksins á sér- stöku aukaflokksþingi sem haldið var undir eftirliti hersins, en kjör- tímabil hennar átti ekki að renna út fyrr en áriö 1998 ef allt hefði verið með felldu. Lög Indónesíu heimila inngrip af þessu tagi, rík- isstjórnin má blanda sér í innri málefni stjórnmálaflokks ef hann er talinn ógna „velfarnaöi ríkis- ins". Þetta inngrip sýnir líka að Su- harto telur stöðu sinni vera ógnað af Megawati, þrátt fyrir að hann hafi komið sér upp nánast full- komnu kerfi til að halda uppi eft- irliti og halda sjálfum sér við völd. Megawati hafði gefið í skyn að hún myndi bjóða sig fram gegn honum í forsetakosningunum ár- Suharto einrœbisherra Indónesíu. ið 1998, sem væri brot á þeirri hefö að enginn sé í framboði nema Suharto sjálfur. Þjóöþingið, sem hefur fyrst og fremst ráðgjaf- arhlutverki að gegna í Indónesíu, hefur frá árinu 1968 sex sinnum kosið Suharto í forsetaembættið. „Eins og javanskur guðkonungur vill Suharto ekki fá eitt einasta Megawati, nýr leibtogi stjórnar- andstöbunnar. mótatkvæöi. Hann vildi ryðja samkeppniskonunni úr vegi," sagði Laksamana Sukardi, fjár- málastjóri PDI. Hins vegar virðist sem þessar aðgerðir Suhartos hafi snúist gegn honum. Með því að neyða Mega- wati til að segja af sér embætti leysti hann úr læöingi mikinn og almennan stuðning við hana meðal landsmanna, en fram að því hafði Megawati verið fremur lítið áberandi í indónesískum stjórnmálum. í fjölmörgum borg- um safnaðist fólk saman til þess að mótmæla afsetningu hennar úr embætti, og voru það ekki bara stuðningsmenn PDI. Jafnvel fyrr- verandi hershöfðingjar og stjórn- málamenn sendu frá sér ályktun gegn þessari umdeildu aðgerð. Og mestu munar e.t.v. um stuðning frá Abdurrahman Wahid, leiðtoga Nahdatul Ulama, sem eru 30 milljón manna samtök múslima — en í Indónesíu búa fleiri mús- limar en í nokkru öðru ríki heims. Nú um helgina réðst lögreglan og herinn inn í höfuöstöövar PDI í sendiráðahverfinu í Jakarta, en í allt sumar höfðu höfuðstöðvarnar verið miðstöð mótmælafunda. Miklar óeirðir fylgdu í kjölfarið og þúsundir manna hlupu um götur borgarinnar og köstuðu steinum í lögregluþjóna, hermenn og á stjórnarbyggingar. Eldar voru kveiktir og lögreglan virtist ekki ráða við neitt. Eftir nokkra hríð fór fólk svo að beina reiöi sinni að Kínverjum, sem eru 3ja prósenta minnihluti í landinu en oft mátt þola árásir frá almenningi vegna þess að kín- verskir viðskiptamenn eru margir hverjir með fjáðari mönnum í landinu. Megawati er enn óskrifaö blaö Atburðir síðustu vikna og óeirð- irnar um helgina sýna greinilega að andstaðan gegn Suharto er að magnast. Enn á eftir að koma í ljós hvort Megawati býr yfir þeim leiðtogahæfileikum sem sumar aðrar „dætur frægra feðra" í Asíu hafa til að bera, svo sem Aung San Suu Kyi í Búrma eða Benazir Bhutto í Pakistan. „Hún er að ganga í gegnum eldskírnina núna," segir Princen. Hún hefur skorað á Suharto að leyfa frjálsar og sanngjarnar forsetakosningar, ásamt því að uppræta spillinguna. „Sem dóttir Sukarnos hef ég ákvebnu hlutverki ab gegna, verð ég að gera eitthvaö fyrir landið mitt," segir Megawati sjálf. í 30 ár hafa menn „ekki getað sagt það sem þeir vilja segja. Þeir þurfa ein- hvern sem tekur að sér þá ábyrgð að tala máli þeirra." Samt er greinilegt að hún aðhyllist ekki neinar róttækar stjórnbyltingar- hugmyndir: „Stjórnarskráin okkar er mjög góð," segir hún. Hins veg- ar þurfi að beita henni á annan og betri hátt en gert hefur verið hingað til: „Fólkið vill jöfn rétt- indi." -gb/Der Spiegel, Newsweek Umdeildar hugmyndir um nýja tegund hraöahindrana í Hollandi: Kindum hleypt á þjóðvegina Borgarstjórnin í hollensku borg- inni Culemborg hefur ákvebið ab grípa til all óvenjulegra rábstaf- ana í baráttu sinni gegn hrab- akstri, sem hingab til hefur lítinn árangur borib. Hugmyndin er sú ab leyfa kind- um að ráfa frjálsum um þjóðvegina í þeirri von ab ökumenn neyðist þá til að draga úr hrabanum. Hug- myndin kviknaði þegar meðlimir borgarráðsins kynntu sér reynslu breskra ökumanna á sveitavegum í Bretlandi. „Það er raunar gjörsam- lega ómögulegt að aka hratt fram- hjá kindunum þegar ekið er um dal- ina í Yorkshire," segir Chris De Bakker, talsmaður borgarrábs. Dýraverndunarsinnum líst sem von er heldur illa á þessa hugmynd, enda óttast þeir að hún hafi óskemmtilegar afleiðingar: Daubar kindur muni liggja sem hrávibi á þjóbvegunum. Borgarrábið staðfesti hins vegar nýlega að þeim væri „full alvara" með áformum sínum. Tilraunin á ab hefjast í september næstkomandi með því að fimm eða sex kindum verði látnar spranga um vegina á svæði þar sem hrað- akstur er landlægur. Ef tilraunin ber góðan árangur er síðan ætlunin að fjölga kindunum í yfir 100. Sérstök- um grindum verður þó komið upp sem hindra kindurnar í ab komast inn á enn fjölfarnari vegi þar sem öruggt yrði að þeirra biði ekkert annab en dauðinn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem borgaryfirvöld í Culemborg hafa fengið óvenjulegar hugmyndir. Ein var sú að minnka verulega notkun sláttuvéla á graslendum borgarinn- ar. í staðinn átti að prófa að láta 40 kindur og 10 kýr sjá um að halda grasvextinum niðri. „Það er um- hverfisvænni lausn," sagði De Bakker. -gb/The Sunday Times

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.