Tíminn - 02.08.1996, Page 1

Tíminn - 02.08.1996, Page 1
EINARJ. SKÚLASON HF 80. árgangur STOFNAÐUR 1917 Föstudagur 2. ágúst 145. tölublað 1996 \ í f I 1 | ■ •' ■ 1 —BBWwÍB ghl : 4 Nýr forseti tekur vib Skattrannsóknarstjóri segir þaö meira áhyggjuefni ab skrifstofan hans anni ekki almennum verkum en hvort virbisaukaskattssvik hafi aukist á þessu ári: Óttast að VSK-svik hafi stóraukist á þessu ári Formaöur fjárlaganefndar Alþingis telur fulla ástæöu til aö kanna hvort VSK-svik séu aö stóraukast á þessu ári, en skattrannsóknarstjóri segir ekkert geta sagt um þaö. Skattrannsóknarstjóri hefur hins vegar miklar áhyggjur af annríki embætt- isins. Ýmsum þykir meö ólíkind- um, í ljósi stóraukinnar veltu flestum sviöum, aö tekjur rík- issjóös af virðisaukaskatti (VSK) skyldu aðeins fara 200 milljónir (1%) framúr áætlun á fyrri helmingi þessa árs. í fjárveitinganefnd og fjármála- ráðuneyti höfðu menn vænst allt aö 800 milljóna kr. aukn- ingar. VSK af innflutningi fór að vísu 1,8 milljarða (13%) framúr áætlun, en virðisauka- skattur af innlendri fram- leiðslu varð hins vegar 1,5 milljörðum minni en áætlað var. Formaður fjárveitinga- nefndar, Jón Kristjánsson, seg- ir að þess verði farið á leit við fjármálaráðuneytið að skoða málið nánar og fylgjast grannt með þróuninni næstu mán- uði. Skattrannsóknarstjóri, Skúli Eggert Þórðarson, var spurður hvort þetta gæfi hugsanlega til kynna að skattsvik væru enn að aukast. „Það verður að hafa í huga að þetta eru tölur fyrir aðeins helming ársins, þannig að í ákveðnum tilfellum kann skýringin að felast í aukinni birgðasöfnun. Það er samt frekar ólíklegt að mismunur- inn skýrist eingöngu af því. Hin skýringin er aukin skatt- svik". Þannig að þú álítur megin- skýringuna felast í auknum skattsvikum? „Þessi mismunur gefur alla- vega tilefni til að staldra við og hugleiða málið. Að mínu mati er a.m.k. ekkert sem bendir til að umfang skattsvika séu minnkandi. En hvort þau eru að aukast, það veit maður ekki". Má þá búast við að þetta verði skoðað nánar? „Við er- um auðvitað í þeim bissnis alla daga. Það er enginn skort- ur á verkefnum — þvert á móti komumst við ekki yfir öll þau verkefni sem okkur eru ætluð. Og það er sérstakt áhyggju- efni", sagði skattrannsóknar- stjóri. Við kynningu fjármálaráðu- neytis á afkomu ríkissjóðs á fyrri helmingi ársins kom fram að rúmlega 1.500 milljóna minni skil virðisaukaskatts en áætlað var skýrðust að hluta til af 660 milljóna króna meiri endurgreiðslu til sjávarútvegs en áætlað var. Um fjórðungs aukning á innflutningi fjár- festingarvara, kynni einnig að valda einhverjum tilfærslum í greiðsluflæði á tímabilinu. í tekjuáætlun fjárlaga hefði þvert á móti verið gert ráð fyr- ir nokkrum viðbótartekjum af VSK á þessu ári vegna aukinn- ar framleiðslu í kjölfar mikilla fjárfestinga í atvinnurekstri á síðasta ári, og þar af leiðandi mikils frádráttar á innskatti frá útskatti. Þessi áhrif virtust lengur að koma fram en búist hafi verið við. Veltuaukning og hagnaöur hefur orbiö hjá Eimskip hf. á yfirstand- andi ári. Velta fyrirtækisins og dótturfyrirtækja þess jókst um 12% miöaö viö sama tímabil í fyrra og er hagnaöurinn um 291 milljón en var 844 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Segir í frétt frá félaginu aö eink- Um sex þúsund manns biöu þess ab hylla nýja húsbændur á Bessastöbum í veburblíbunni á Austurvelli í gœrdag, þau Ólaf Ragnar Grímsson og Gubrúnu Katrínu Þorbergsdóttur. Fram fór klukkutíma löng hátíbleg athöfn í Dómkirkjunni og í Alþingishús- inu ab vibstöddum á þribja hundrab bobsgestum. Á mynd- inni eru forsetahjónin á svölum Alþingishússins. Forsetinn bab vibstadda og þá sem á horfbu í sjónvarpinu ab minnast fóstur- jarbarinnar meb ferföldu húrra- hrópi. Tíminn var á stabnum og lýsir því sem fyrir augu bar á bls. 11, 12, 13 og 14. Tímamynd: GS um megi skýra veltuaukninguna meö auknum umsvifum félagsins í flutningaþjónustu innanlands, meiri áætlanaflutningum til og frá íslandi en á sama tíma í fyrra og vaxandi erlendri starfsemi. Á fyrstu sex mánuðum ársins voru heildarflutningar með skipum Eimskips 569 þúsund tonn. -ohr Eimskipafélag íslands á beinu brautinni: Veltuaukning og hagnaöur

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.