Tíminn - 16.08.1996, Side 1

Tíminn - 16.08.1996, Side 1
<S3> oliufélagið hf h Lykiilað . lánsviðskiptum STOFNAÐUR 1917 80. árgangur Föstudagur 16. ágúst 153. tölublað 1996 Gjaldheimta í Þróunar- sjób sjávarútvegsins hefst meb nýju fiskveibi- ári 7. september: Um 765 mkr. gjöld á sjávar- útveginn næsta ár Sjávarútvegsrá&uneytið áætlar a& innheimta sérstaks gjalds í Þróunarsjóö flskiskipa nemi samtals 660 milljónum króna á næsta fiskveiöiári og gjald til Fiskistofu vegna veiðieftirlits ver&i 105 milljónir til viðbótar, eöa samtals 765 milljónir. Áætlað er að þessi gjöld nemi samtals kringum 2,6 milljón- um á meðaltogara, litlu lægri upphæð á meðal loðnuskip, um 290 þús.kr. á meðal bát án sérveiðiheimilda og um 28 þús.kr. að meðaltali á hvern smábát. Stærstu útgerðimar mega búast við hátt í 20 millj- óna innheimtu á næsta fisk- veiðiári. Gjald á aflaheimildir fellur í gjalddaga með þrem jöfnun grieðslum: 1. septem- ber, 1. janúar og 1. maí nk. og fellur veiðileyfi skips niður sé gjaldið ekki greitt innan mán- aðar. Sérstakt gjald á aflaheimildir, sem rennur í Þróunarsjóð sjáv- arútvegsins, kemur nú til fram- kvæmda í fyrsta sinn, sam- kvæmt lögum frá 1994. En jafn- framt hefur ráðuneytið gefið út reglugerð um veiðieftirlitsgjald til Fiskistofu. Þróunarsjóðurinn fær 1.090 kr. af hverri úthlutaðri þorskígildislest en krókabátar af hverri þorskígildislest sem þeir landa. Áætlað er að gjöld á afla- heimildir nemi samtals 565 milljónum. Þar til viðbótar er eigendum skipa gert að greiða í Þróunar- sjóð fast gjald á hverja brúttó- rúmlest skips, auk fasts gjalds til Fiskistofu vegna útgáfu veiði- leyfis, samtals um 120 milljónir. Þá er eigendum fasteigna sem nýttar em til fiskvinnslu gert að greiða fast gjald í Þróunarsjóð, 0,75% af fasteignamatsverði. Áætlað er að þetta gjald færi Þróunarsjóði kringum 80 millj- ónir á næsta ári. a Krakkarnir í sumarskóla Austurbœjarskólans í Reykjavík voru ab kynna sér sjómennsku á smábátum vib höfnina í gœr. Mebal þess sem þau lcerbu var ab síld er ekki veidd á trillunum. Tímamynd: cs Landssamband smábátaeigenda telur vissara aö hafa vaöiö fyrir neöan sig: Sækja 1.500 trillur um síldarkvóta á næsta ári? „í ljósi aðferðfræði sjávarút- vegsráðuneytisins telur stjóm Landssambands smá- bátaeigenda rétt að sótt veröi um síldveiðileyfi fyrir alla smábáta á næsta ári", segir m.a. í ályktun nýafstað- ins stjórnarftmdar. Þannig að hátt í 1.500 smábátar sem nú hafa fiskveiðiheimildir em allir hvattir til ab sækja um síldarkvóta. „Þegar síldveiðileyfin voru gefin út komu umsóknir frá fjölda vinnsluskipa og annarra sem gætu í rauninni ekkert stundað síldveiöar á þessum svæðum. En við vitum aldrei nema það verði kannski sett í einhverjar reglur að við út- Útflutningsverömœti afla smábáta um 9.300 milljónir á síöasta ári: Um 11% af verðmæti allra sjávarafurða af smábátum Tæplega 62.000 tonna heild- arafli smábáta á síðasta ári skilaði um 9.300 milljóna út- flutningsverðmæti og em þá 11.260 tunnur af söltuðum grásleppuhrognum og ígul- ker meðtalin. Þetta er rúm- lega 11% af heildarútflutn- ingsverðmætis sjávarafurða á árinu, og 8% af heildar- vömútflutningi lands- manna, samkvæmt upplýs- ingum frá Landssambandi smábátaeigenda. Mælt í útflutningsverðmæt- um slöguðu smábátarnir þannig nokkuð langt í álverk- smiðjuna, en álútflutningur var 10,5% af heildarútflutn- ingi ársins. Heildarafli smá- báta hefur aðeins tvisvar orðið meiri á síðustu tíu árum, mest- ur um 64 þúsund tonn árið 1990, en þá var smábátaflot- inn líka hátt í fjórðungi stærri. Meðalafli á bát var því meiri í fyrra en nokkru sinni síöan 1985 a.m.k., eða rúmlega 42 tonn. Þetta á líka við um þorskaflann, sem alls var 45.700 tonn, eða 31 tonn að meðaltali á bát. Þorskur var tæplega 3/4 heildaraflans, eða 45.700 tonn á árinu. hlutun verbi miðab við þá sem hafa einhvern tímann sótt um slík leyfi, eða annað slíkt. Þannig að við viljum bara hafa vaðið fyrir neðan okkur", sagði Orn Pálsson fram- kvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Stjórn LS vekur líka athygli á þeirri skobun sinni að úthlut- anir sjávarútvegsráðuneytisins á milljarða verðmætum í formi veiðiheimilda úr Norsk íslenska síldarstofninun sé ekkert einkamál stórskipaflot- ans. „Gangi vonir eftir um að þessi fyrrum gullkista opnist á ný við íslandsstrendur, munu minni skip og bátar geta nýtt sér hana". Stjórnin gerir sömuleiðis þá kröfu, að komi til útdeilingar veiðiheimilda á fiskistofnum utan efnahagslögsögunnar sem smábátar og smærri skip geta ekki nýtt sér þá verði lög- bundin reikniregla sem jafni stöðu útgerðarflokkanna inn- an efnahagslögsögunnar. „Hér er um sanngirniskröfu að ræða þar sem srrandveiðiflotinn hefur átt mikinn þátt í að veið- ar á fjarlægum miðum hafa verið mögulegar með leigu á veiðiheimildum úthafsskip- anna", segir í ályktun stjórnar- manna. ■ Svínabœndur: Erfiðleikum verði mætt með aukinni hagræðingu Kristinn Gylfi Jónsson, for- maður Svínaræktarfélags ís- lands, segir að svínabændur þurfi að hagræða í rekstri búa sinna enn frekar en orðið er til þess að mæta þeim erfiðleikum sem svínakjötsframleiðslan stendur frammi fyrir um þessar mundir. Fóðurkostnaður hefur aukist á sama tíma og verðfall hefur orðið umtalsvert a svína- kjöti frá því í vetur. Framleiðsla svínakjöts hefur jafnframt ver- ið að aukast undanfarin miss- eri og eru því margir bændur í greininni uggandi um sinn hag. Sjá vibtal við Kristin Gylfa Jónsson á blaðsíbu 10 I i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.