Tíminn - 22.08.1996, Qupperneq 1

Tíminn - 22.08.1996, Qupperneq 1
80. árgangur STOFNAÐUR 1917 Fimmtudagur 22. ágúst 157. tölublað 1996 Óbinn aö leggja afstaö í Smuguna: Fjölmennt á útstíminu Varðskipiö Óðinn leggur úr höfn í býtið í dag, eða um áttaleytið, og siglir rakleitt í Smuguna. Þegar blaðamaður og ljósmyndari Tím- ans áttu leið um borð í skipið ár- degis í gær voru menn í óða önn að hífa birgðir um borð. Gert er ráð fyrir að skipið verði í sex til átta vikur í túrnum og miðast birgðimar við það. Læknir verður um borð með vel búna sjúkrastofu líkt og undanfarin ár. Hljóðið var gott í varðskips- mönnum, en án efa gerir svolítill kvíði alltaf vart við sig fyrir slíka ferð. Útlit er fyrir að áhöfnin verði nokkuð fjölmenn á útstíminu þar sem nokkrir togarar munu nota tækifærið til að fá mannskap flutt- an. Var í gær talið líklegt að farþeg- arnir yrðu fimm talsins, en á meðan Tímamenn dvöldust um borð var greinilegt að menn voru að hringja og óska eftir fari í Smuguna. í áhöfn Óðins verða hins vegar nítján að lækninum meðtöldum. Sjá viötöl og myndir úr Óöni á bls. 6 og 7 -ohr — jranwnl foO»Uí 30 x 1500 PACK! (SKCtJMPS Halldóra Ragnarsdóttir er eina konan um borb í Óbni og er hér í búrinu. Hún segist kvíba svolítib fyrir túrnum, svona lengri túrar séu alltaf erfibir. Tímamynd: Pjetur // Geir Haarde, þingflokksfor- maöur Sjálfstœbisflokksins um tillögur til fjárlaga: Allt er á réttu róli" „Ég kannast ekki við að það sé kominn upp neinn þrýst- ingur innan þingflokksins vegna þess að tillögur til fjár- laga eru ekki komnar fram," sagði Geir Haarde, þing- flokksformaður Sjálfstæðis- flokksins í samtali við Tím- ann. „Þetta er allt á réttu róli mið- að við það sem tíðkast hefur," sagði Geir. „Við erum í start- holunum að fara yfir þessi mál hér í þingflokknum." Geir sagði ekki tímabært að spá fyrir um hvenær drögin að fjárlögunum lægju fyrir, það færi fyrst og fremst eftir því hvernig vinnu ríkisstjómar- innar miðaði. -BÞ Neyöarfundur á Neskaupstaö vegna heilsugœsluástandsins í fjóröungnum. Lœknar í Neskaupstaö útkeyröir. Héraöslceknir: Stóraukin hætta er á læknamistökum I gær hélt Heilbrigðismálaráð Austurlands neyðarfund í Nes- kaupstað vegna ástandsins í heilsugæslumálum sem skapast hefur í Austurlandsfjórðungi í kjölfar læknadeilunnar. Auk full- trúa allra heilsugæslumdæmanna í fjórðungnum var þingmönnum Austurlands og fulltrúum lækna- félaga boðið að sitja fundinn. Ályktun lá ekki fyrir þegar Tím- inn fór í prentun í gær en Stefán Þórarinsson héraðslæknir sagöi að líklega yrðu deiluaðilar hvattir til að ná sáttum sem allra fyrst. Ofkeyrsla þeirra þriggja lækna á Austurlandi sem nú störfuðu ein- ir að heilsugæslu í fjórðungnum, kallaöi á læknamistök. „Ég tel eðlilegt að báðir aðilar gefi eftir en ég er ekki í aðstöðu til að segja um hver eigi að gefa eftir í augnablikinu. Niðurstaða deilunn- ar virðist mér hins vegar sem liggi fyrir á þessu stigi og ég tel það ábyrgðarhluta deiluaöila að ganga í það strax að reyna að ná lendingu," sagði Stefán. Heilsugæsluástand er mjög alvar- legt í fjórðungnum. Ekki er unnt að veita nema lágmarks venjubundna þjónustu og öryggisjónusta er í sár- asta lágmarki á stórum svæðum að sögn Stefáns. Sem dæmi má nefna að enginn læknir starfar á Vopnafirði en íbúar Atvinnuleysi í ýmsum tilfellum fremur félagslegt og/eöa heilbrigöisvandamál? Fyrirtæki vilja ekki lengur þá sem koma bara 2-3 daga í viku „Það þekkist alveg, í iðnabin- um eins og annars stabar, ab mannarábningar séu ekki endilega aubveldar þrátt fyrir iangar atvinnuleysisskrár. Og þab þekkist líka ab sumt af því fólki sem er á atvinnu- leysisskrá ætti kannski frem- ur ab vera á einhverri annarri skrá. Stabreyndin er sú ab besta fólkib þab verbur aldrei lengi atvinnulaust", sagbi Þórarinn Gunnarsson skrif- stofustjóri Samtaka ibnabar- ins, spurbur hvab hæft væri í þeim orbrómi ab mannarábn- ingar fyrirtækja gætu verib erfibleikum hábar þrátt fyrir hundrub og þúsundir at- vinnulausra. Hvort atvinnu- leysingjar væru e.t.v. ekki all- ir svo æstir í ab fá vinnu og fara af bótum. „Eins og staðan er í dag þá eru fyrirtækin líka miklu var- kárari en ábur og taka ekki lengur hvern sem er. Atvinnu- rekendur vilja fá fólk sem er til- búið ab vinna, en eru ekki lengur tilbúnir að rába fólk sem kemur bara 2 til 3 daga í viku. Sumt af því fólki sem er inni á skránum á vib erfiðleika að etja á ýmsan hátt. Fyrir ára- tug réðu menn hvern sem var, frekar en að fá engan. En þetta hefur bara breyst", sagði Þórar- inn. í mörgum tilfellum sé vanda- málið þannig frekar félagslegt og öðrum tilfellum heilbrigbis- vandamál, fremur en slæmt at- vinnuástand. Og aubvitað séu svo alltaf einhverjir sem spili á þetta kerfi eins og öll önnur. Sumir rábi sig kannski í vinnu en mæti svo aðeins í 1 til 2 daga og láti síban reka sig. Þetta fólk fari þá aftur inn á at- vinnuleysisskrá eftir viku. „Og hvernig á þá ab bergbast við því", spyr Þórarinn. ■ þar hafa aðgang aö neyðarþjónustu á Þórshöfn. Um 80 km leið er á milli. Á Egilsstöðum liggur starf- semi heilsugæslustöðvarinar niðri, en þar starfar læknir við sjúkrahús. Sama gildir um Seyðisfjörð auk þess sem þar er starfandi slysavarðstofa. Á Eskifirði og Reyðarfirði eru engir læknar. Á Djúpavogi og Fáskrúðfs- firði er einnig læknislaust og á Höfn er aðeins starfandi neyðarlæknir. Öll heilsugæsla í Austurlandsfjórö- ungi fer því fram í Neskaupstað en þangað tekur um 6 klukkustundir að aka frá Höfn svo dæmi sé tekið. Álag læknananna þriggja sem sinna heilsugæslustörfum í Neskaupstað er gífurlegt að sögn Stefáns. „Þeir ráða ekki við að hjálpa fólki eins og þarf. Daglegur vinnutími er frá átta á morgnana fram til sjö á daginn og svo em þeir nánast allir á vöktum. Það er mikið um hringingar og truflanir á nóttunni þannig að þeir ná ekki lágmarkshvíld. Þetta er mjög brothætt ástand," segir Stef- án. Aðspurður hvort starfsgetu lækn- anna sé hugsanlega stefnt í voöa sagði Stefán: „Sú hætta er vissulega fyrir hendi. Þegar læknar em píndir mikið í vinnu fara þeir að gera mis- tök. Þetta er viðkvæm vinna og ná- kvæm. Maður hefur oft af því áhyggjur við eðlilegar aðstæður að þreyta lækna komi fram í störfum þeirra en þetta ástand núna kallar beinlínis á það." -BÞ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.