Tíminn - 29.08.1992, Page 21
Tíminn 21
Laugardagur 29. ágúst 1992
Angela Spohr sópransöngkona (tx.) og Þóra Fríia Sœmundsdóttir píanólcikari.
Seinustu þriöjudagstónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Síðustu þriðjudagstónleikar sumarsins í Sigurjónssafni 1. september kl. 20.30 verða
ljóðatónleikar. Þar koma fram þýska söngkonan Angela Spohr og Þóra Fríða Sæ-
mundsdóttir píanóleikari. Á eftiisskrá eru lög eftir Leos Janacek, Amold Schönberg,
Benjamin Britten og Enrique Granados.
Sópransöngkonan Angela Spohr er fædd og uppalin í Norður- Þýskalandi. Hún stund-
aði nám við Tónlistarháskólann í Freiburg á árunum 1978-83 og var síðan við fram-
haldsnám í Basel. Angela Spohr, sem nú er kennari við Tónlistarháskólann í Freiburg,
hefur hvarvetna hlotið mikið lof fyrir söng sinn. Svið hennar spannar nútímaverk jafnt
og verk frá rómantíska og klassíska tímabilinu.
Þóra Fríða Sæmundsdóttir lauk námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1978 og
stundaði framhaldsnám í Freiburg og Stuttgart Frá árinu 1984 hefur hún starfað sem
píanóleikari og kennari f Reykjavík og tekið þátt í ýmiss konar tónlistarflutningi. Þóra
Fríða er félagi í íslensku hljómsveitinni.
Útivist:
Fjörugangan — Ný raöganga
1. ganga: Eyðieyjar á Kollafíröi.
í Fjörugöngunni, 8. raðgöngu Útivistar,
verða teknar upp nýjungar. Ekki verður
gengin samfelld leið í hverri dagsgöngu,
heldur verður henni skipt í 2 til 3 áfanga
innan ákveðins svæðis. f áföngunum
verður lögð áhersla á fjörulífið, rekann
og minjar á ströndinni. Gönguhópamir
verða selfluttir á milli áfanga. Hægt
verður að stytta áfangana fyrir þá sem
vilja.
Fyrsta gangan verður sunnudaginn 30.
ágúst og hefst að venju við skrifstofu Úti-
vistar, Hallveigarstíg 1. Þaðan verður
gengið kl. 9:30 eftir gömlu þjóðleiðinni
niður í Grófina og að Hafnarhúsinu, en
þaðan verður ekið í rútu upp í Víðines og
gengið með fjörunni í Gunnunes og að
Þemeyjarsundi og síðan ferjað yfir í
Þemey. Þar verður gengið um eyjuna og
fjömlífið skoðað. Að því loknu verður
selflutt yfir í Engey og þar gengið á reka
og mannvistarminjar skoðaðar. Þeir, sem
sleppa vilja Þemey, geta byrjað fjöm-
gönguna milli kl. 18 og 19 og henni lýk-
ur við skrifstofu Útivistar.
Ef ekki verður gott sjóveður verður
haldið áfram að ganga með Þemeyjar-
sundi og yfir að Álfsnesi og þaðan selflutt
yfir á annað svæði.
Nýtt rit eftir
Guörúnu Sveinbjarnardóttur
gefiö út í Bretlandi
í desember s.I. kom út hjá bókaforlag-
inu Oxbow Books í Oxford bók sem heit-
ir Farm Abandonment in Medieval and
Post- Medieval Iceland og er eftir Guð-
rúnu Sveinbjamardóttur fomleifafræð-
ing. Þetta verk er gefið út í ritröðinni Ox-
bow Monographs in Archaeology og er
nr. 17.
Bókin fjallar um þróun og eyðingu
byggðar á íslandi og byggir á rannsókn-
um á þremur svæðum á landinu: Eyja-
fjallasveit, Austur- og Vesturdal í Skaga-
firði og Fossárdal og Bemfjarðardal í
Bemfirði. Stuðst er við sagnfræðilegar,
fomleifafræðilegar og náttúmvísinda-
legar aðferðir. Ritheimildir um byggð á
svæðunum þremur em kannaðar,
byggðaleifar mældar upp og rannsakaðar
og stuðst er við gjóskulagafræðina til
tímasetningar. Reynt er að grafast fyrir
um orsakir byggðaeyðingar og þá m.a.
rætt um þátt náttúmfarslegra breytinga,
farsótta og efnahagsbreytinga.
Bókin er í A4 broti, 206 blaðsíður að
stærð og með 74 kortum, teikningum og
ljósmyndum.
Bókin er til sölu hjá Bóksölu stúdenta í
Reykjavík og einnig er hægt að panta
hana beint frá forlaginu: Oxbow Books,
Park End Place, Oxford OXl ÍHN (Fax
0865-794449).
Regnboginn frumsýnir
„Varnarlaus"
Vamarlaus eða „Defenseless" er hörku-
spennandi þriller sem fjallar um ótrúleg-
an lygavef og ógnvekjandi fjölskyldu-
leyndarmál. Með aðalhlutverk fara Sam
Shepard, Mary Beth Hurt og Barbara
Hershey.
Steven er virtur viðskiptajöfur og góður
eiginmaður. En þegar Steven er myrtur
fer ýmislegt að koma í ljós. í raun og
vem var hann hataður meðlimur glæpa-
gengis í Los Angeles. Skyndilega verður
listi yfir þá, sem gmnaðir em um morð-
ið, ansi langur. Allir sem þekktu hann,
allir sem elskuðu hann, höfðu ástæðu tií
að myrða hann. Konan hans er gmnuð,
dóttir hans, viðhaldið og faðir hans. Nú
hefst barátta upp á líf og dauða til að
komast að hinu sanna um Steven.
Barbara Hershey hefur leikið í myndum
eins og „Shy People", ,A World Apart" og
„The Last Temptation of Christ".
Sam Shepard er hugsanlega betur
þekktur sem rithöfundur og leikrita-
skáld, en hann fékk m.a. Pulitzerverð-
laun fyrir bók sína „Buried Child“. She-
pard hefur á síðustu ámm haslað sér völl
í kvikmyndum og hefúr m.a. leikið í
myndum eins og „The Right Stuff', „Ba-
by Boom" og „Homo Faber" sem Regn-
boginn hefur nú sýnt í rúmlega 10 mán-
uði.
Sölusýning á Kjarvalsmálverk-
um í Gallerí Borg um helgina
Laugardag, sunnudag og mánudag
verður haldin sölusýning á allmörgum
málverkum eftir Jóhannes S. Kjarval í
Gallerí Borg, en ár og dagar em síðan
slík sýning hefúr verið haldin.
Fæstar þessara mynda hafa áður sést á
almannafæri og em allar í einkaeign og í
umboðssölu í Gallerí Borg.
Myndimar em frá misjöfnum tíma eða
málaðar frá því 1920 til 1961, a.m.k. 10
olíumyndir og ein vatnslita- og túss-
mynd.
Um helgina er auk þess von á tveimur
til þremur myndum, sem berast munu
Galleríinu utan af landi meðan á sýning-
unni stendur.
Sýningin verður opin á milli klukkan 14
og 18 þessa þrjá sýningardaga.
LEKUR : ER HEDDIÐ
BLOKKIN? SPRUNGIÐ?
Viögeröir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir — rennum ventla.
Eígum oft skíptihedd í ymsár geröir bifreiöa.
Viöhald og viogerðir á iðnaöarvélum — járnsmíöi.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kœnuvogsmegin - Sími 814110
Trúlofunardagurinn fyrir rúmum sex árum.
Sex ára sambandi
Andrews prins og
Fergie er nú að
ijúka með brauki og
bramli:
Ferill
Andrews
og Fergie
Það var nánast sex árum upp á
dag eftir að Andrew prins og
Fergie tilkynntu trúlofun sína, að
tilkynning um skilnað þeirra
barst frá bresku hirðinni.
Þegar þau tilkynntu um skilnað-
inn í mars sl., lýstu bresk blöð yfir
sorg sinni og undrun yfir því að
svona væri komið fyrir hertoga-
hjónunum.
En nú er komið annað hljóð í
strokkinn. Myndbirtingar af
Fergie og milljónamæringi frá
Texas hafa orðið þess valdandi að
Hertogahjónin meö dætur sínar.
Bretar eru foxillir út í hana og
krefjast þess að hún verði svipt
hertogaynjutigninni, bömum sín-
um og helst gerð landræk.
En eins og sjá má af meðfylgj-
andi myndum, hafa þau Andrew
og Fergie gengið í gegnum bæði
súrt og sætt í hjónabandinu —
eins og öll önnur hjón!
Þau hafa greinilega ekki alltaf veriö upp á kant.