Réttur - 01.02.1923, Blaðsíða 87
Rjeltur
87
hvaða bjargráð yrðu tekin á því sviði, hversu langt mætti
ganga í því að taka ábyrgðina af misfellum stjórnar hlut-
hafanna yfir á ríkið. Hann leit svo á, að á þessum tím-
um mætti engir dansa ábyrgðarlausir kringum gullkálfinn.
Á verslunarsviðinu fylgir hann því fram, að almenningur
eigi sjálfur að ábyrgjast viðskifti sín; þar er leiðin mörk-
uð. Til þess að geta hið sama á sviði banka og pen-
ingamála verður að útrýma fölskum spilum — ótrygðum
seðlum og ábyrgðarlausum gjaldeyris-spilagosum. Lág-
gengi krónunnar telur hann niðurdrep fyrir þjóðina. Hún
má sjálfri sjer um kenna að mestu Ieyti; verður þess
vegna sjálf að rjetta sig við með sjálfsábyrgð og sam-
ábyrgð út á við og inn á við, en forðast lántökur. Flokk-
urinn hefir bent á leiðirnar. Það kostar erfiði og lang-
an tíma að ná markinu, greiða skuldirnar og lyfta krón-
unni til gullgildis; en því lengri verður sú raun, sem
samkepnismennirnir fá lengur að skipa meirihlutann.
Til fróðleiks læt jeg fylgja nokkra kafla frá nágranna
þjóð okkar um gengismálið. Vona að það veki hugsun
og áhuga lesenda um þetta stónnál nútímans.
II.
Gjaldeyrisbraskið.
Einu sinni enn hafa fjármála- og bankaráðsgæðingar
þjóðarinnar rænt hana og rúið um margar miljónir króna.
með aðstoð ríkissljórnarinnar og þingsins. Til þess að
bjarga Landmandsbankanum hefir Pjóðbankinn í síðastl.
viku bætt við seðlaveltuna eigi minna en 59 milj. krónuni!
Samhliða því hafa engin ný verðmæti skapast nje flutst
inn í landið; það er þvert á móti; því að samkvæmt ný-
ustu fréttum, sem fram eru komnar, munu þeir menn, er
málunum eru kunnugastir, ásátúr um að fremur mundi