Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 8
136
KOMANDI ÞING
[Rjettur
öðru máli er að gegna um síldareinkasöluna. Það er
beint hagsmunamál verkalýðsins hvernig henni er hátt-
að. Síðasta þing gaf þeirri einkasölu formið, skipulag-
ið, en það skorti hið rjetta innihald, þann anda og tak-
mark, sem gat gefið henni gildi fyrir verkalýðinn.
Einkasalan mun, þótt ófullkomin sje, strax sýna mikla
yfirburði yfir frjálsu samkepnina, en eins og henni er
háttað nú, verða það síldareigendurnir einir, sem njóta
góðs af þeim kostum — og það var þó ekki tilgangur
einkasölunnar að reisa þá stétt fjárhagslega við, sem
komin var með útveginn á glötunarbarminn, en láta
höfuðáhættuna hvíla á fiskimönnum og sjómönnum.
Meðferð síldareinkasölunnar verður einn helsti próf-
steinn næsta þings. Um tvent er að velja. Annar kost-
urinn er að láta alt standa eins og nú er; verður einka-
salan þá atvinnurekendum einum til hagsmuna og
verður þá eklci sjeð hversvegna jafnaðarmenn og sam-
vinnumenn skyldu settir til að gæta hagsmuna þeirra,
þegar þeir gátu það ekki sjálfir; gegn slíkri einkasölu
yrðu jafnaðarmenn að berjast, þótt sætta mætti sig
við hana eitt ár til reynslu, í þeirri von að hún stæði
til bóta. Iíinn kosturinn er að láta einkasöluna taka
að sjer alla söltunina, ráða alt verkafólkið, semja við
útgerðarmennina. Til þess yrði ríkið að láta hana fá
höfuðstól til reksturs. Með þessu móti væri trygt, að
ágóði síldaratvinnuvegsins rynni til verkamanna, fiski-
manna og ríkisins og yrði notaður til að bæta afstöðu
hinna vinnandi stjetta í atvinnuveginum. Endurbót
þessi þolir ekki bið og gefst vinstri flokkunum því gott
tækifæri til að sýna í afstöðunni til hennar á næsta
þingi hvoru megin þeir standa, eigenda eður vinnenda,
atvinnurekenda eða verkamanna.
Fullkomin stofnun þessara þriggja einkaverslana
er sjálfsagðasta krafa alþýðunnar af næsta þingi.
Tvær hinar fyrri höfðu áður verið til og vinstri flokk-
arnir höfðu varið þær til hins ítrasta, en hina síðast-