Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 16
144
KOMANDI ÞING
[Rjettur
þjóðinni best. Það ár ætti að verja nokkrum miljónum
króna til stofnunar góðra sjúkra-, slysa- og atvinnu-
leysistrygginga og taka fjeð alt af gróða íslensku yfir-
stjettanna. Einu sinni á 1000 árum mætti yfirstjettin
líklega sjá af arði þeim, er hún knýr fram úr vinnu
verkalýðsins.
Og ætti íslenska þjóðin að reisa sjer veglegt minnis-
merki þessara þúsund ára, þá væri það fegurst valið,
ef sannvinna,, samtök og sameign þjóðarinnar væri efld
sem fullkomnast, til að útrýma sundrung þeirri, er
verið hefur einhver versti óvinur hennar um allan ald-
ur, og nú er aðaleftirlæti hættulegustu fjandmanna
hennar og gengur undir nafni hinnar frjálsu samkepni.
Fullkomin sameining þjóðarverslunarinnar og stórfyr-
irtækjanna í höndum ríkisins til hagsmuna hinna vinn-
andi stjetta, fylsti stuðningur til samtaka verkamanna
og bænda og alhliða efling alþýðumentunar — það
væru minnismerki, sem bæru vott um að eitthvað hefði
þjóðin lært af þrautum þúsund ára.
1000 ára hátíðin verður erfiður prófsteinn á stjórn
þá, er með völd fer. Hvor minningin verður nú valin?
Þjóðrembingshátíð, sukk og svall, orðaskvaldur og orðu-
regn — eða vegleg verkleg, andleg og fjelagsleg minn-
ismerki um baráttu og jafnvel sigur mannsandans yfir
ógnum náttúrunnar og óstjórn þjóðfjelagsins?
Hjer skal staðar numið.
Síðasta þingi heilsaði verkalýðurinn með vonum,
komandi þingi verður heilsað með spurningum. Fram-
sókn stendur á vegamótum; hjeðan af verður hún ann-
aðhvort að ganga með alþýðunni, móti íhaldinu, eða
móti alþýðunni, með íhaldinu. Flokkurinn skaut svar-
inu á frest síðast í veigamestu málunum — og Alþýðu-
flokkurinn ljet samt við svo búið standa. Nú verður
ekki lengur komist hjá svari. Þúsundir heitustu og
bestu flokksmanna verklýðs- og bænda-flokkanna bíða