Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 24
Úr Rússlandsferð.
Rússneskir stúdentar buðu í vor nokkrum helstu
stúdentafjelögum Norðurlanda að senda fulltrúa í
kynnisför til Rússlands. Eru nefndir 7 frá Norðmönn-
um, 5 frá Svíum og 4 frá Danmörku. Ekki vanst tími
til að ná til íslenskra stúdentafjelaga, en okkur Davið
Stefánssyni, rithöfundi, var boðið að taka þátt í ferð-
inni, og þágum við það.
Fjelagið »Clarté« í Oslo undirbjó ferðina, en Rússar
greiddu allan kostnað við dvöl okkar í Rússlandi og
ferðir innan landsins.
Við Davíð urðum dönsku stúdentunum samferða til
Stockhólms, en þar hittum við hina norsku og sænsku
þátttakendur fararinnar. Voru þarna samankomnir
stúdentar af ýmsu tagi, hagfræðingar, verkfræðingar,
málfræðingar, skáld og blaðamenn. Þegar á fyrsta
sameiginlegum fundi þessarar »stúdenta-nefndar« kom
það í ljós, að hún var allmjög sundurleit, enda urðu oft
síðar allharðar deilur innan nefndarinnar um hvernig
haga skyldi ferðinni og hvað skyldi helst sjá og skoða.
— Enginn kynnist Rússlandi neitt að ráði á þremur
vikum. Nefndin ákvað því einkum að nota tímann til
að athuga háskólana, kjör stúdentanna og fjelagssko,p
þeirra. En marga fýsti að sjá ýmislegt annað og fleira,
og svo fór, að við fórum í engu eftir okkar fyrstu á-
ætlunum.
Aðeins tveir okkar kunnu rússnesku. En strax í Len-
ingrad fengum við túlk okkur til aðstoðar, norskan